Þjóðviljinn - 18.11.1958, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 18.11.1958, Blaðsíða 11
----Þriðjudagur 18. nóvember '195S — ÞJÓiÐVIi-’jiTÍN — (11 PETER CURTIS: 41. dagur. dC þetta væri eina leiðin til að kveöa niður móður- sjki og ég vonaöi að hún geröi sitt til þess að Díana ytði ekki taugasjúklingur. Þá fékk hún um annað að hugsa. Einu sinni brá okkur illa. Það kom gott veður, sum- arauki, og ég fann til eiröarleysis. Það var allt í lagi aö leika Eloise, þegar veörið var leiðinlegt, en þegar sohn skín langar mig til að vera úti. Og við Richard gengum niður að hamrinum og niður í fjöruna, þar sem ég gat gengið án þess að vera hálf bogin og hengsl- isleg. Við hlógum mikið. Ég man að ég sagði honum ég hefði fært rúmið hans Parkesar í dragsúg og gert þáð rakt nóttina fyrir brúðkaupið, til að ýta undir giktina og ■ gefa Dickon tækifæri til aö koma sér í mjúkinn hjá Eloise. Við klifruðum aftur unp hamarinn nokkru neðar og vorum á heimleíð eft.ir stignum, þegar við sáum kvemnann koma. upn bakka sem hafði borið á milli hennar og okkar. Eg hvæsti: ,,Prú Baker sem ég leigði hjá,“ og stanz- aði viö, efins í hvort ég ætti aö snúa við eða halda áfram. Díekon tók undir handlegginn á mér og sagði: „Vertu róleg. Vertu álút, hallaðu þér upp að mér og segðu ekki mi!dð.“ Þegar hér var komið, fannst frú Baker hún vera komin í kallfæri. „Gott kvöid. herra minn. Gott kvöM frú. Eg er að koma ofanúr húsinu. Það var ýmislegt smávegis sem veslings dána frúin lét, eftir sig.“ „Eigið þér vð frú Meekin?“ „Já einmitt. Þér munið aö þegar þér settuð kist- una hennar, bá sagði ég vður að það væru sokkar og smádót sem hún hefði beöið mig að vinda úr þegar hún kom. Eg hefði komið með þetta fyrr, ef fasti leigiandinn minn hefði ekki legið í flenzu. Eg sagði honum reyndar a,ð það væri alltof snemmt, að fá flenzu núná. Ef þú ætlar að byria núna, sagði ég við hann, þá slærðu þitt eigiö met. Sex sinnum fékk hann hana í fyrra.“ „Þetta var óþarfa fvrirhöfn,“ sagði R.ichard blíður og alúðlegur. „Þetta er drjúgur spölur neðan úr þorpinu.“ Hún tók upp stóran, hvítan vasaklút og þurrkaði rjótt' andlitið „Já, það má nú segja, herra mirín. Og ef ég hefð'i vitað að veslings frú Meekin ætlaöi aö ganga hluta af leiðinni. hotði ég aðvarað hana, og há væri hún ef til vill enn hjá okkur. Eg sagöi við I.orkin gamla: „Þú ert fífl,“ sagði ég, ,.að láta kvenmanninn fara út og ganga í kolniðamyrkri. Af hveriu sagðirðu henni ekki,“ sagði ég. að bíllinn þinn ætti meira að segja fullt í farígi með að komast upp brekkuna.“ Auövitað var þaö þess vegna sem hann lét það gott heita að hún eenai, hann er dauöhræddur um að gamli skrjóöurirín bih. hann ekur honum ekki nema á jafn- sléttu.“ . En meðan hnn var að tala — og ég vissi aö hún gat talaö endalaust, virti hún mig fyrir sér Það hefði getað verið venjuleg forvitni, en svo gat það verið Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við jarðarför GUÐFINNU GÍSLADÓTTUR, Eiríksgötu 17. Ósk Kristjánsdóttir, Rfarinó Erlendsson. 5 Sigþrúður Jónasdóttir, Þórður Erlendsson. annað. Eg hékk á handleggnum á Richard og reyndi að hafa hanrt á milli okkar, en ég var dauðhrædd um að hún ræki upp undrunaróp og þættist þekkja mig. Og nú vai ég flækt í máliö. Eg var í vitorði um svikin; ég hafði látið jarða sjálfa mig. Eg kleip í hand- legginn á Richard. Hann sneri sér aö mér og sagði: Ibrótlir Frumvarp Alfreðs Gíslasonar Franihald af 12. síðu. berum heilbrigðisstarfsmönn- um. Þessu ákvæði um starfssvið landlæknis hefur verið haldið óbreyttu í lögum í áratugi, enda þctt lieilbrigðismálin hafi vaxið og margfaldazt og tekið miklum stakkaskiptum á ýmsan hátt. Það er nú jafnfráleitt að fela einum manni lögákveðið hlutverk landíæknis sem það var sjálfsagt fvrr á tímum. Sérstaklega er það á einskis manns færi lengur að vera ráð- gjafi stjórnarvalda í öllu, sem heilbrigðismál varðar. I læknisffteði hafa orðið stór- stígar framfarir á síðustu ára- tugum, og má heita, að hún bæti við sig á ári hverju nýj- um, mikilsverðum atriðum þekkingar og tækni. Er það raunar fyrir löngu orðinn ó- gerningur einum manni að fá nema rétt nasasjón af öllum greinum læknisfræðinnar eða fylgiast með öllum nýjungum á sviði liennar. Samfara bættum lífskjörum þjóðarinnar hafa kröfurnar um aukna heilbrigðisþjónustu auk- izt jafnt og þétt. Ný sjúkra- hús og hæli rísa af grunni, víð- tæku kerfi sjúkratrygginga er komið á fót og fjölþætt heilsu- verr.darstarfsemi, sem vart þekktist fyrir fáum áratugum, er nú í örum vexti. Jafnvel meginverkefni á sviði heil- brigðismála eru að breytast og verða önnur en þau voru. Heilsuverndin skipar þegar veglegan sess við hlið sjúkra- hjálparinnar. Farsóttir og aðrir sjúkdómar voru áður brýnasta vandamálið, en eru það ekki lengur. Nú b'asa önnur vanda mál við, svo sem hrörnunar sjúkdómar og geðbilanir, og skapa ný viðhorf. Það er ekki forsvaranlegt lengur að fela landlækni einum að vera æðsti ráðunautur hins opinbera í öllum heilbrigðis málum. Enginn einn maður hefur þar næga yfirsýn. Jafn- vel þótt landlæknir eigi þess kost að leita álits sérfróðra aðila í einstökum málum og geri það, verður það um of háð hans eigin skapgerð, að hve miklu leyti önnur sjónar- mið en hans persónulega fá að njóta sín, og þannig verður það, á meðan hann einn er æðsti ráðgjafinn. I nálægum menningarlöndum er fyrirkomulag þessara mála allt annað en hér og ekki treyst á hæfni eins manns. í Danmörku er sérstakri stofnun (Sundhedsstyrelsen) falið það hlutverk að hafa yfirumsjón með heilbrigðisstarfseminni og vera æðsti ráðgjafi stjórnar- valda í heilbrigðismálum. Kjarni þeirrar stofnunar er ráð sjö lækna. Er „landlæknirinn" einn þeírra og jafnframt forstöðu- maður stofnunarinnar, en ráð- inu til aðstoðar er fjöldi fasfra ráðunauta, sem eru sérfróðir hver á sínu sviði. Þótt íslancf sé fámennt í sam- anburði við nágrannalöndin og umfang heilbrigðismála liér að sama skapi minna en annars staðar, þá eru heilbrigðisleg verkefni og vandamál þó hin sömu, jáfnmafgháttuð og jafn- víðtæk. Þörfin á glöggri yfir- sýn er því engu minni hér en í öðrum menningarlöndum. í frv. er gert ráð fyrir, að heilbrigðisráð hafi eftirlit með a’lri heilbrigðisþjcnustu í land- inu og sé æðsti ráðunautur hins opinbera í heilbrigðismálum, að þotta ráð verði sldpað fimm 'æknum, er. hver hafi sína sér- kunnáttu, og að landlæknir verði forseti og framkvæmda- stióri ráðsins. Með slíkri skipun þessara mála mundi emhætti landlæknis ekki setja neitt ofan, nema siður væri, en heilbrigð’sstjóm landsins fá aukna tryggingu fyrir því, að heildarsýn mála væri jafn- an sem g’eggst og hverju ein- stöku máli gerð þau skil, er bezt hæfði. Það er gert ráð fyrir því. að landlæknir verði eftir sem áður fastur embættismaður, skipáður af forseta, en að aðrir ráðsmenn verði tilnefndir af ráðherra til fimm ára í senn. Má ganga út frá, að hinir síð- arnefndu ráðsmenn gegni öðr- um störfum jafnhbða og að eðlilegt þyki, að tilhögun starfs þeirra sem ráðsmanna svo og Iaunakj"r verði ákveðin síðan í reglugerð, er ráðherra setur. Framhald af 9. £Í5u. það nú í hlut dóroa; n- og laga- nefndar að aðstoca útbreiðslu- nefnd við framkværod norrænu unglingakeppninnar og er mér eþki. gninlau/st um, að sú að- stoð hafi verið meiri en nafn- ið eitt.. Á ársþinginu voru samkvæmt venju kosnar þingnefndir, sem fengu tillögur til roeðferðar og báru sumar frám sjálfstæoar tillögur að auki. 1 frásögn blaðsins af þinginu er réttilega getið um 9 af þgssum tillögura og farið um þær viöurkenning- arorðum. Til fróðle.ilrs mætti þó geta þess, að 8 aí þessum 9 tillögum komu frá. laga- og leikreglnanefnd, en hana skip- uðu þeir: Jóhann Benihard for- maður, Jón M. Gucmundsson og Svavar Markússon. Að lokum vil ég iaka undir þau orð Frímanns Helgasonar, að þing þetta haii verið já- kvætt fyrir frjálsu þróttirnar, ekki sízt fyrir þá s ’ k, að þeim yngstu er nú geíinn meiri gaumur en verið heíúr. Hanpdrætti Þjóðviljans Ert þú búinn að kaupa miða í Happdrætti Þjóeviljans? Eil svo er ekki, þá ættirðu að gera það strax í dag. Með því slærðu tvær flugur í einu höggi: Styður goit málefni og skapar sjáiíum þér tæki- færi til þess að hijóta góð- an vinning í jólaglaðning. Það væri t.d. ekbi amalegt að eignast 100 þúsund króna Opelbifreið, og ný föt fyrir hátíðirnar eru heldur ekki til að fúlsa við. Jékbækm fiá ísafold sem kcma á næstwmi SKÁLDSÖGUR: Hráfnhetta eftir Guðmund Daníelsson, skáldsaga frá 18. öld, sem byggir á sögulegum stað- reyndum. Himmiegin vi8 heimizm óskar eftir að leigja húsnæði fyrir litinn leikskóla hentugum stað í bænum. Æskilegt væri stór stofa með sérinngangi og snyrtiklefa. Tilboð sendist fyrir 20. þ. m. til Sigriðar Ingimars- dóttur, Njörvasundi 2. Sími 3-49-41, sem gefur allar nánari upplýsingar. eftir Guðmund L. Friðflnnsson — 1 þessari bck kemur fram lausung og fastheldni og straumhvöif í þjóðlíf- inu, fráhvarf fólksins frá gróandanum á malbilcið. Þega? skálá áeyja eftir Stefán Jónsson. — Stefán hefur um Iangt skeið verið talinn í Jang- fremstu röð baina- og unglingabókáhöfnnda og verður hiklaust talinn til okkar beztu smásagna- höfunda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.