Þjóðviljinn - 18.11.1958, Page 12

Þjóðviljinn - 18.11.1958, Page 12
ar veri y Alfre& Gislason flyfur á Alþingi frumvarp um hreyfingar á lœknaskipunarlögunum Komið er fram á Alþingi frumvarp um breytingu á yfirstjórn heilbrigöismálanna í landinu. Er lagt til aö stofnað veröi heilbrigðisráð, er hafi yfirumsjón með allri heilbrigðisstarfsemi í landinu og sé æðsti ráöu- nautur ríkisstjórnarinnar um allt er varðar heilbrigð- ismál. f heilbrigöisráði eigi sæti landlæknir, sem er for- seti ráðsins og framkvæmdastjóri, og fjórir læknar skip- uðir til fimm ára í senn, og skulu þeir vera kunnáttu- menn í heilbrigðisfræöi, lyfiæknisfræði, handlæknis- træði og geðveikrafræði. Flutningsmaður frumvarpsins er Alfreð Gíslason. Frumvarpið er flutt til sérfræðilega aðstoð því til breytingar á læknaskipunarlög- um, og er á þessa leið: 1. gr. — 7. gr. laganna orðist svö: — í heilbrigðisráði eiga sæti landlæknir, sem er forseti ráðs- ins og framkvæmdastjóri, og fjórir læknar aðrir, er ráð- herra skipar til 5 ára í senn. Skal þess gætt eftir föngum, að jafnan eigi sæti í heilhrigðis- ráði kunnáttumaður í hverri þessara sérgreina: heilbrigðis- fræði, lyflæknisfræði og geð- veikrafræði. Heilbrigðisráð hefur yfirum- sjón með allri heilbrigðisstarf- semi í landinu og er æðsti ráðu- nautur ríkisstjórnarinnar uin allt, er varðar heilbrigðismál. líeimilt er ráðherra að á- kveða í regliigerð nánar um starfshætti heilbrigðisráðs, verkaskiptingu innan þess og handa. Ráðherra ákveður þókn- un ráðsmanna, annarra en Iandlæknis. Landlæknir skipuleggur skýrslugerðir héraðslækna (í Reykjavík borgarlæknis), ann- arra lækna og heilbrigðisstofn- ana, innheimtir fyrirskipaðar skýrslur frá þessum aðiliim og annast útgáfu lieilbrigðis- skýrslna landsins. 2. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1959, og falla þá jafn- framt úr gildi lagaákvæði, sem kunna að fara í bága við þessi lög. I greinargerð segir flutnings- maður: Samkvæmt gildandi lögum er það verksvið landlæknis að vera ráðunautur ráðherra í öllu sem viðvíkur heilbrigðismálum, og að hafa eftirlit með öllum læknum og heilbrigðisstarfs- Ólafur Thors hamast gegn Ólafi T'hors Vill nú íella niður það sem hann barðist mest íyrir í vor og sumar Framferði ólafs Thors í landhelgismálinu er nú slíkt að engu er líkara en að hann hafi verið sviptur ráði og rænu. Nýjasta tiltæki hans er það að hann hefur flutt á þingi svohljóðandi ályktunar- tiiiögu: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að breyta reglu- gerðum um fiskveiðilandheigi íslands frá 30. júní 1958 og 29. ágúst 1958 á þann veg að bannaðar verði algerlega botnvörpu-, flotvörpu- og dragnótaveiðar innan núver- andi fiskveiðalandheigi ís- lands“. í greinargerð rökstyður Ól- afur tillögu sína með því að „sérstaða íslenzkra skipa hef- ur bæði sætt andúð margra ísiendinga og auk þess verið í ríkum mæli notuð af and- stæðingum okkar erlendis til þess að torvelda íslendingum sóknina í þessu lífshagsmuna- máli þeirra.“ Þessi tillöguflutningur Ól- afs er þeim mun kynlegri sem einmitt hann beitti sér af al- efli fyrir því í vor og sum- ar að íslenzk skip fengju leyfi til að veiða innan 12 mílna markanna. Aiþýðubandalagið hafði lagt til að þeirri ákvörð- un yrði frestað þar til fullur sigur hefði unnizt í landhelg- ismálinu, og Framsóknar- .fiokkurinn studdi þá afstöðu. Meirihluti Sjáifsitæðisfiokks- ins og Alþýðuflokkurinn kröfðust þess hins vegar að íslenzk togskip fengju strax veiðileyfi, og Alþýðuflokkur- inn gerðí það að lokum að skiiyrði fyrir aðiid sinni að stækkun landheiginnari Það voru fyrst og fremst Ólafur Thors og Gunnar Thoroddsen sem stöppuðu stálinu í Al- þýðuflokkinn í þessu efni, og þegar reglugerðin um veiðar isienzku togskipanna var gef- in út töldu thorsararnir að veiðisvæði þeirra væru alit of litil. Einhverjir kunna að halda að hin nýja tillaga Ólafs sýni að hann hafj vitkazt af reynsiunnj, en þeir sem þekkja hann vita að svo er ekki. Hann er aðeins að reyna að þyria upp moldviðri í sam- bandi við undanhaldstiliögui sínar í iandhelgismálinu — og koma þeirri skoðun inn hjá andstæðingum okkar að við vitum ekki okkar rjúk- andi ráð, heidur ákveðum eitt í dag og annað á morgun. mönnum í landinu, en einkum héraðslæknum og öðrum opin- Framhald á 11. síðu Herinn í Súdan Framhald af 1. síðu. hann að mestu leyti og hann er búinn brezkum vopnum. Útvarpið í Súdan segir að æðstu trúarlegir leiðtogar í landinu styðji uppreisnina. Fréttaritari brezka útvarpsins í Harthum, höfuðborg iapdsins), segir að fólk hafi verið mjög óá- nægt með stjórnarfar landsins og það öryggisleysi, sem þar ríkti. Iíann segir ennfremur að ekki hafi sézt nein merki þess að stjórnarbyltingin hafi verið gerð fyrir erlend áhrif. Ungt lýðveldi í fyrri viku sögðu 6 af ráðherr- um Umma-flokksins af sér og ætlaði Khalil forsætisráðherra að reyna að mynda stjórn allra flokka á næstunni. í stjórnarandstöðunni hefur verið Frjálslyndi flokkurinn í Suður-Súdan, en hann fékk 44 þingsæti við síðustu kosningar (marz 1957). Stjórnarfiokkarnir höfðu til samans 103 þingsæti. Hin íhaidssama stiórn, sem steypt var í gær, studdist aðal- leg'a við ríka landeigendur og átti í erjum við Egypta, einkum út af vatninu í Níl sem notað er til áveitna í báðum löndunum. Súdan er eitt af yngstu iýð- veldum heims, og var lýst yfir fullveldi þess árið 1956, en þá hafði landið um hálfrar aldar skeið verið undir svokallaðri samstjórn Breta og Egypta, en raunverulega réðu Bretar þar lögurn og lofum en notuðu það líka til þess að reyna að halda Egyptum þægum undir yfirráð- um sínum. Súdan er um 2,5 millj. ferkíló- metrar að stærð og ibúar um 10 miiijónir. Þriðjudagur 18. nóvember 1958 — 23. árgangur — 263. töluþlað Afmœlisfagnaður Sésíai- istoflokksins á laugardag 20 ára afmælisfagnaður Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins verður haldinn laugardaginn 22. nóvember n. k. að Hótel Borg. Fagnaðurinn hefst kl. 19 með borðhaldi. Meí|al dagskráratriða; Halldór Kiljan Laxness Ies úr verbum sínuam, Magnús Kjartansson ritstjóri fljlur ræðu. Einsöngur. Gamanþáttur fluttur af Áraa Tryggvasyni leikara. Að lobum verður (fansað. Kynnir verður Jón Múli Árnason. Tekið verður á móti aðgöngumiðapöntunum hjá Sós- íalistafélagi Reykjavíkur sími 17510, Sósialistaflokkniítn sími 17512, Bókabúð Máls og menningar sáni 15055, Bókabúð KRON sími 15325 og Þjóðviljanum sími 17500. Um kl. 8.30 í gærkvöldi varð mjög harður árekstur á Arnar- nesholti á Hafnarfjarðarleið- inni er fólksbíll og strætisvagn skuliu saman. Samkvæmt frásögn lögreglunn- ar í Hafnarfirði þá var fólks- bíllinn G-1831 á leið til Hafnar- fjarðar en á móti honum kom strætisvagninn R-4707. Telur lögreglan að stjórnandi fólks- bifrejðarinnar hafi jafnvel fengið aðsvif, en farþegar í strætisvagninum sögðu, að fólksbíllinn hefði komið ak- andi á hægri kanti, og er stjórnandi itrætisvagnsins ætl- aði að forða árekstri, með því að aka yfir á hægri kant, þá hefði fóiksbifreiðin einnig beygt yfir á sama kant og varð þá árekstur svo harður, að fólksbifreiðin sneri á eftir í áttina til Reykjavíkur, en strætisvagninn var þversum á veginum. Eftir áreksturinn lá stjórn- andi fólksbjfreiðarinnar í öng- viti út um glugga bifreiðarinn- en, en komst svo síðar til sjálfs síns, og var ekið með hann í Slysavarðstofuna og þar gert að meiðslum hans, sem voru ekki meiri en það, að farið var með manninn heim aö aðgerð lokinni. Maðurinn, sem heitir Sigurjón Sigurjónsson, Alfhóls- vegi 6, var einn í bifreiÁinni og var hann undir áhrifum áíeng- is. Areksturinn olli miki'il; um- ferðarteppu þarna á háísinum og tók langan tíma að greiða úr henni. I fyrstu ætlaði stór kranabifreið að reyna í-.-l konv ast fram úr strætisvagtúnúm, en vegkanturinn sprakk und- an þunga hennar og st hún Framhald á 7. síðu. Uerkamannafélagið Þróttur k Siglufirði: lyrir Ösamboðið íslenzku þjóðinni að vera lengur í Atlanzhafsbanda laginu Siglufirði í gær. frá fréttaritara Þjóðviljans „Fundur haldinn í Verka- mannafélaginu Þrótti 15. nóv- ember 1958 vill benda íslenzku ríkisstjórninni á að það er vaxandi óánægja í landinu með (aðgerðarleysi hennar í landhelgismálinu. Það er ein- dregið álit fundarins að það sé ástæðulaust og engum til gagns að bíða með að kæra brezkn ofbeldismennina og eftár því að þcir myrði starfs- menn íslen/.ku Hxndbelgss- gæzlunnar við skyldustörf þeirra. Fyrir því ályktar. fuml- urinn að skora á ríkisstjórn Islands að liúrt kæri nú þegar til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna liernað brezku ríkis- stjórnarinnar í íslenzkri laiul- lielgi. Þá telur fundurinn mjö.g óviðeigandi að Island láti sendiherra sinn sitja í London á meðan að starfs- menn brezku ríkisstjórnarinn- ar hóta íslenzkum mönnum lífláti vegna þess að þeir vilja rækja skyldustörf s;n innan íslenzkrar lögsögu og skorar því á ríkisstjórnina að kalla sendiherrann lieim nú þegar. Fundurinn krefst þess að ríkisstjórnin hlutist til um að ísland segi sig úr Atlanz- hafsbandalaginu lil þess að inótmæla því að stjórn Jæssa bandalags skuli láta það óá- talið að Bretar, eitt vpidug- ast bandalagsríkið, beiti okk- ur, minnstu bandalagsþjóðina, slíltu ofríki sem við höfum reynt nú um meira en tveggja mánaða skeið. Telur fiindur- inn ósamboðið íslenzku þjóð- inni jað taka Iengur þátt í yf- irdrepsskan þessa bandalags. Að lokum heif'r Verka- mn.nnf*féla«rið Þróltur á alla íslertzku þjóðina að hún standi ‘i mn málstað s.imi í landhelgismálinu, þar tíl full- ur s'gur er unninii.“

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.