Þjóðviljinn - 24.12.1958, Síða 1
1
Sjálfstœðisflokkurinn myndaði í gœr
minnihlutastjórn Alþýðuflokksins
Hálfur þingflokkur AlþýSuflokksins á sœfi i sfjórninni, effir að allir
ufanþingsmenn, sem reynf var viÓ, höfSu neifaÓ!
Hálfur bingflokkur Alþýðuflokksins tók í gær að sér að stjórna landinu í
umboði Sjálfstæðisflokksins, og í rauninni má segja að íhaldið hafi myndað
minnihlutastjórn Alþýðuflokksins. Tók hin nýja stjórn við störfum á ríkisráðs
íundi kl. 4 í gær, og eiga sæti í henni Emil Jónsson, Guðmundur í. Guð-
mundsson, Gylfi Þ. Gíslason og Friðjon Skarphéðinsson. Tilraunir Alþýðu-
ílokksleiðtoganna til að fá utanþingsmenn úr öðrum flokkum í stjórnina
með sér mistókust gersamlega; þeir voru á handahlaupum um allan bæ
í fyrrakvöld og langt fam á nótt og 'buðu hverjum manni sem beir hittu
ráðherradóm — en allir neituðu að taka þátt í stjórninni með þeim, eink-
anlega af spéhræðsluástæðum.
Miðstjórn Alþýðuflokksins
hélt fund kl. 2 í gær og var
þar eamþykkt að Alþýðufloldc-
urinn myndaði minnihluta-
stjórn. Flokksráð Sjálfstæðis-
fiokksins hélt fund á sama
tíma og var þar samþykkt að
þingmenn flokksins skyldu gefa
Alþýðuflokksstjórninni líf ef
luin framkvæmdi stefnu þá sejn
flokksráð markaði í samþykkt
sinni fyrir nokkrum dögum um
talsverða kauplækkun hjá lauu-
þegum, Síðan var forseta til-
kynnt um stjórnarmyndunina
og haldinn ríkisráðsfundur kl.
4, eins og áður er eagt.
Verkaskipting
Stjórnin skiptir þannig með
sér verkum að Emil Jónsson
er forsætisráðherra og fer aulc
þess með sjávarútvegsmál, Guð-
mundur 1. Guðmundsson heldur
áfram stjórn utanríkismála og
bætir við sig fjármálunum,
Gylfi Þ. Gíslason er mennta-
málaráðherra áfram en bætir
við sig viðskiptamálunum *bg
Friðjón Skarphéðinsson — sem
er þingmaður Alþýðuflolcksins
á Akureyri og hefur fyrst og
fremst Framsóknaratkvæði á
bak við sig — verður ráðherra
dómsmála, landbúnaðarmála, fé-
lagsmála og heilbrigðismála.
Nánari greinargerð um verka-
skiptinguna er birt á öðrum
stað liér á síðunni.
Af utanþingsmönnum sem Al-
þýðuflokkurinn reyndi mjög að
fá í stjórnina má nefna ráðu-
neytisstjórana Gunnlaug Briem,
Jónas Haralz og Sigtrygg
Klemensson; einnig var reynt
við fjölmarga aðra menn — en
allir neituðu eins og áður var
sagt. Var þá rætt um að 6 af
hinum 8 þingmönnum flokksins
yrðu ráðherrar, en það strand-
aði á því að engir tveir feng-
ust til að láta skilja sig eftir
sem óbreytta þingmenn. Var þá
ákveðið að „aðeins“ hálfur
þingflokkurinn settist í ráð-
herrastólana.
Völdin hjá íhaldinu, met-
orðin hjá Alþýðu-
flokknum
Þessi sérstæða stjórnarmynd-
un Alþýðuflokksins hefur vakið
mikinn hlátur og spaug meðal
almennings í Reykjavík. Þyk-
ir mönnum það að vonum
furðulegt fyrirbæri að lang-
minnsti og veikasti flokkur
þjóðarinnar skuli láta sem svo
að hann megni að leysa nokkur
Dr@g&£§ í hesppdrætfi
Þjóðviljans í gær
Vinningaskráin verður birt eftir hátíðina
Á miðnætti sl. var dregiö hjá borgarfógeta í Happ-
drætti Þjóðviljans 1958.
eru beðnir að hraða uppgjöri
svo hægt verði að birta vinn-
ingaskrána sem fyrst.
Þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöld höfðu enn ekki borizt
full skil frá nokkrum umboðs-
mönnum happdrættisins úti á
landi og reyndist því eigi unnt
að birta vinningsnúmerin nú.
Þau verða væntanlega birt ein-
hvern næstu daga eftir hátíð-
ina.
Umboðsmenn happdrættisins
og aðrir sem enn hafa ekki
gert skil fyrir seldum miðum
vandamál, flokkur sem ekki
hefði komið neinum manni á
þing í síðustu kosningum án
aðstoðar Framsóknar.
Það er ekki að undra þótt
menn spaugi. En alvaran á bak
við stjóz’narmyndunina er
Sjálfstæðisflokkurinn. Þetta er
í raun og veru ríkisstjórn hans
og styðst eingöngu við þinglið
hans og styrk. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur hins vegar eklci
kosið að taka formlega þátt
í ríkisstjórn — fyrr en eftir
kosningar — og þess vegna er
ákjósanlegt fyrir hann að eftir-
láta leiðtogum Alþýðuflolcksins
að framkvæma stefnu íhaldsins
í bili. Völdin eru í höndum í-
haldsins, en metorðin í hönd-
um Alþýðuflokksins, og hafa
þá báðir það sem þeir leggja
mest upp úr.
Vildu ekki kanna mögu-
leika á vinstristjórn
Leiðtogar Alþýðuflolcksins
munu halda því fram að þeir
hafi myndað etjórn til þess að
koma í veg fyrir utanþings-
stjórn, þar sem ekki hafi reynzt
unnt að mynda meirihluta-
stjórn eins og nú standa sak-
ir. En það er Alþýðuflokkurinn
sem ber ábyrgð á því að ekki
var gerð nein tilraun til þess
að kanna hvort unnt værj að
niynda vinstri stjórn á nýjum
grundvelli. Fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins lögðu til að sú til-
raun yrði gerð, og það kom í
ljós að Framsóknarflokkurinn
var einnig reiðubúinn til að
ræða um myndun nýrrar
vinstristjórnar. En Alþýðu-
flokkurinn tók af skarið síð-
degis í fyrradag og neitaði fyr-
irfram og að óreyndu
að taka þátt í vinstri-
Framhald á 11. síðu.
ÞJÖÐVILJINN
óskar lesendum sínum og öllum
landsmönnum gleðilegra jóla.
Emil Jónsson Guðmundur í. Guðmundsson
forsætisráðherra utanríkis. og fjármálaráðherra
Friðjón Skarpliéðinsson
dóms- og félagsmálaráðherra
Gylfi Þ. Gíslason
viðskipta- og menntamálaráðh.
Þannig skipta Aiþýðnflokksráðkerr-
arnir landsstjóminni milli sín
Eftir tillögu forsætisráðherra
og samkvæmt 15. gr. stjórnar-
skrárinnar hefur forseti Is-
lands í dag sett eftirfarandi
álcvæði um skipun og skiptingu
starfa ráðherra o. fl.:
1. Forsætisráðherra Emil Jóns-
son. Undir hann heyra eftir-
greind mál; Stjórnarskráin,
mál, er varða forsetaembætt-
ið. Alþingi, nema að því leyti
sem öðruvísi er ákveðið, al-
menn álcvæði um framkvæmda-
stjórn ríkisins, skipun ráð-
herra og lausn, forsæti ráðu-
neytisins, skipting starfa ráð-
herranna, mál, er varða stjórn-
arráðið í heild, hin íslenzka
fállcaorða og önnur heiðurs-
merlci. Þingvallanefnd og mál
varðandi meðferð Þingvalla.
Ríkisbúið á Bessastöðum. Sam-
göngumál, þ.á.m. vega-, brúa-
og liafnarmál, strandferðir,
flugmál, þ.á.m. flugvallarekstur.
Póst-, síma. og loftskeytamál,
Sjávarútvegsmál, þar undir
Fiskifélagið, Fiskimálasjóður og
Fiskveiðasjóður íslands, sildar-
útvegsmál (síldarverksmiðjur
og síldarútvegsnefnd), sjávar-
vöruiðnaður og útflutningur
sjávarafurða. Almenn siglinga-
mál, þar undir atvinna við
siglingar. Skipaskoðun rílcisins,
Eimskipafélag íslands h. f.
Önnur atvinnumál, sem elcki
eru sérstaklega i úrskurði þess-
um falin öðrum ráðherrum.
Ennfremur rafmagnsmál þ.á.m.
rafmagnsveitur ríkisins og raf-
magnseftirlit, vatnamál, þar
undir sérleyfi til vatnsorku-
notlcunar, jarðboranir eftir
heitu vatni og gufu. Námu-
rekstur.
II. Ráðherzli Friðjón Skarp-
héðinsson. Undir hann heyrir
dómaskipan, dómamál, þar und.
Framhald á 11. síðu.