Þjóðviljinn - 28.12.1958, Blaðsíða 1
Sunnudagur 28. desember 1958 — 23. árgangur — 295. tbl.
Jólatrésskemmtun
'itádenta
Stúdentar halda í dag. jólatrés-
skemmtun fyrir börn sín og fer
hún fram á Gamla Garði. Hefst
skemmtunin kl. 3 og lýkur kl.
6. Aðgöngumiðar á vægu verði
verða til sölu við innganginn.
Miklar breytingar gerðar í
gjaldeyrismálum V-Evrópu
Skiptifrelsi aukiS á gjaldeyri V-Evrópu,
gengi franska frankans fellt um 17,55%
í mörgum höfu'ðborgum Vestur-Evrópu voru í gær
gefnar út tilkynningar um aukið frelsi til að skipta á
gjaldmiðli ríkjanna þar og öðrum gjaldeyri, svo sem
Bandaríkjadollurum. Þessar breytingar á gjaldeyrisregl-
um Vestur-Evrópuríkjanna koma til framkvæmda á
morgun og hverfur þá Greiðslubandalag Evrópu jafn-
framt úr sögunrn. Þá var tilkynnt í París i gær aö gengi
franska írankans myndi fellt frá og með mánudeginum
um 17,55%.
Hinar nýju reglur sem gilda
um kaup og sölu sterlings-
pundsins, franska og belgiska
Happdrætti
Þjóðviljans
Dregið var í happdrætti
Þjóðviljans á Þorláksmessu eins
og iilkynnt liafði verið.
Vegna þess að enn hefur
ekki borizt uppgjör frá öllum
umboðsmönnum happdrættis-
ins úti á landi verður hinsveg-
ar ekki hægt að birta vinn-
ingsnúmerin fyrr en eftir
nok'fera daga enn, eftir að upp-
gjör þeirra hafa borizt blaðinu.
Þá eru það eindregin tilmæli
til þeirra bæjarmanna sem ekki
haía gert full skil að láta það
ekki dragast.
frankans, hollenzka gyllinsins,
vesturþýzka marksins, sænsku
norsku og dönsku krónunnar
og ítölsku lírunnar miða allar
í þá átt að gera skipti á þess-
um gjaldmiðlum og dollurum
algerlega frjáls.
1 tilkynningu brezka fjár-
málaráðuneytisins var sagt að
frá og með mánudeginum
myndu allir þeir sem ættu
sterlingspund eða eignuðust
þau og búsettir væru utan
sterlingssvæðisins geta breytt
þeim í dollara eða hvern annan
gjaldeyri á fastákveðnu gengi.
Tilkynningar stjórna Vestur-
Þýzkalands, Belgíu, Danmerk-
ur, Noregs, Svíþjóðar, Italíu
og Hollands voru á sömu leið.
Þetta aukna frjálsræði tii að
skipta á gjaldmiðli þessara
landa og dollara á þó efeki við
þegar um er að ræða lönd
sem þau ha.fa tvíhliða við-
skiptasamninga við.
Gengi. sterlingspundsins og
gjaldmiðla liinna sjö landanna
mun haldast óbreytt frá því
sem nú er
Gengi franska frankans
fellt
Öðru máii gegnir með franska
frankann. Gengi hans verður á
Framhald á 11. síðu.
r
Ovíst hver orðið hafa afdrif
loftbelgsins Litla heims
Óvíst er hver orðið hafa af-
drif loftbelgsins Ldtla lieims
sem lagði af stað frá Kanarí-
eyjuin vestur yfir Atlanzhaf
fyrir hálfiim mánuði.
I loftbelgnum voru þrír karl-
menn og ein kona. I fyrradag
bárust þær fréttir að radíó-
amatörar þóttust hafa heyrt í
sendistöð loftbelgsins og hefði
þar verið sagt að belgurinn
hefði svifið til jarðar yfir ós-
hólrrium Orinocofljóts í Venez-
úéia og væru farþegar «hans
íokaðir inni í frumskóginum
þar og gætu litla björg sér
veitt. Áður höfðu borizt fréttir
um að loftbelgurinn liefði sézt
yfir Trinidad og Venezúela.
Leitarflugvélar voru sendar
af stað til að hafa upp á belgn-
um og farþegum hans, en þær
höfðu í gærkvöld ekki orðið
neins ..varar. Leitirini var hald-
. ið áfram, enda þótt þær fréttir
bærust síðar um daginn frá
f jarskiptastöð brezka stórblaðs-
ins Daily Mail sem haft hefur
samband við beiginn að hún
hefði heyrt í sendistöð hans og
reiknað út hvar hann væri
staddur. Samkvæmt þeim út-
reikningi átti belgurinn enn að
vera á lofti um 1.300 km und-
an strönd Venezúela.
lén Bach látinn
Jón Bach, íyrsti formaður
Sjómannafélags Reýkjavíkur,
lézt á aðfangadag jóla í Landa-
kotsspítalanum eftir langa
sjúkdómslegu. Hann var 84ra
ára gamall.
Myndin er tekin á götu í Haifa í ísrael. Á henni sjást tveir
Arahjar frá Galileu, ungur maður og öldungur, lilckkjaðir
saman og er verið að leiða þá fyrir dómara. Þeir eru sakaðir
mn njósnir i þágu Sambandslýðveldis Araba
Tólf ára drengur missti framan
af þrem fingrum á Þorláksmessu
Alvarlega skoraÓ á foreldra að hafa eftir-
lit meS að börnin fáist ekki v/ð spreng]ur
Jólin voru nú að mestu slysalaus. Þó bar þar skugga
á: 12 ára drengur missti framan af þrem fingxum er
hann var að kveikja í dinamítkvellhettu. Alls munu 8—10
drengir hafa brennzt eitthvaö af slíkum sökum.
Drengurinn, Jónas Hermanns-
son, Hólmgarði 7, er 12 ára gam-
all. Hann fann í geymslunni
heima hjá sjr dínamithvellhettur
Sprengdi hann þrjár með þeim
hætti að kveikja í þræðinum, og
varð ekkert slys af. Fjórðu
hvellhettuna sprengdj hann með
þeim hætti að draga hana niður
steinvegginn á húsinu og kvikn-
aði þá > henni og sprakk hún
r •
ar árásir frá Kaíró
á sýrlenzka komnmnista
Blaðið A1 Aliram í Kaíró birti
í gær barðorða grein þar sem
ráðizt var á sýrlenzka koinmun-
ista.
Blaðið sagði að þeir hefðu
gert samsæri gegn Sambandslýð-
veldi Araba ásamt heimsvalda-
sinnum, ísraelsmönnum og zíon-
istum. Blaðið sagði að þessir
samsærismenn réðu yfir leyrii-
legri útvarpsstöð og legðu þeir
sig alla fram til að spilla sam-
búð Sambandslýðveldis Araba
og íraks. Ætlun þeirra sé að
stofna iil samtaka ríkja til að
fjandskapast við Nasser forseta
og stjórn hans.
Arabíska fréttastofan í Beirul
hefur það eftir sýrlenzkum
stjórnmálamönnum sem komu til
Bejrut irá Damaskus á jóladag
að stjórnarvöld Sambandslýð-
veldis Araba hafi látið ioka sov-
ézkum menningarstöðvum víða
í Sýrlandi. Það er einnig Haft
eftir þeim að bönnuð hafi ver-
ið útgáfa málgagns kommúnista
í Damaskus.
Menn þessir spá frekari. að-
gerðum gegn sýrlenzkum komm-
únistum. Nasser, forseti sam-
bandslýðxældisins, réðst harð-
lega á þá í ræðu sem hann hélt
rétt fyrir jól. Sagt er að leið-
togi þeirra, Khalid Bakhdash, sé
farinn til Évrópu.
í hendi hans. Við sprenginguna
tættist íraman af þumalfingri,
vísifingur tók af og framan af
löngutöng. Talið er að bæði
þumalfingur og vísifingur verði
honum cnýtir.
Vinstri hendi hans sprakk
einnig sundur við sprenginguna
svo það varð að sauma hana
saman.
Atbugið vel að hverju
börn leika sér
Faðir drengsins lézt fyrir fjór-
um áruin. Hann hafði haft í fór-
um sínum dinamithvellhettur og
vissi kona hans ekki hvar þær
voru geymdar — fyrr en dreng-
urinn varð fyrri til að finna
þær, með þeim afleiðingum sem
áður segir.
Liigreglan biður foreldra að
hafa gát á því að hverju börn
leika sér, því þau geti alloft
fuKidið hvellliettur eða amiað
sprengielni, seni þau liafa ekki
vit á hve hættulegt er og farið
sér þannig að voða.
Það virðist hafa verið óvenju-
almennt að drengir væru að
fikta með elda og sprengjngar
um jólin því leitað mun hafa
verið læknis með 8—10 drengi
á aldrinum 10—15 ára til að
gera að meiðslum er þeir hlutu
af völdum skotelda. Að undan-
skildum drengnum sem fyrst var
frá sagt meiddist þó enginn
hættulega.
Það eru alvarleg tilmæli
liigieglunnar til allra for-
edra að þeir geri allt sem
unnt er til að koma í veg fyr-
ir að börn þeirra fari sér að
voða með skoteldum eða.
heimatilbúnum sprengjum. —
Það er ömurlcgt að gera jólin
að tíma sára og lemstrana á
börnum.
Árekstrar
Jólaumferðin tókst vel i mið-
bænum, Tvær konur urðu Þ»
fyrir bílum á Þorláksmessu og
aðfangaciag — en þær voru
báðar utan mestu jólaumferðar-
innar.
Önnur konan varð fyrir bíl á
Miklubrautinni við Háaleitisveg-
inn og krákaðist á fæti. Gatan er
Framhald á 12. eíðu.
Jólatrésskemmt-
uq Dagsbrúnar
Jólatrésskemmtun fyrir börn
Dagsbrúnarmanna er í Iðnó á
þriðjudaginn kl. 4 e.h, Kertasník-
ir kemur í heimsókn til barn-
anna og flejra verður þar til
skemmtunar.
Aðgöngumiðar eru seldir í
skrifstofu Dagsbrúnar ó morgun
og þriðjudaginn og kosta 25 kr.