Þjóðviljinn - 04.01.1959, Blaðsíða 1
Sunnudagur 4. janúar 1959 — 24. árgangur — 2. tölublaíf.
Inni í blaðinu
Sovétríkin munu geta ger-
eyðilagt állt herstöðvakerfi
USA í einu vetfangi segja
bandarískir sérfræðingar.
Sjá frétt á 5. síðu.
Kauplækkunin vegna niðurgreiðslnanna
verður tvöíalt meiri en sparnaðurinn
VerSi grunnkaup skert um 6% mun
kaup Dagsbrúnarmanns lœkka um 10,8%
Útreikningar sýna að hinar nýju niðurgreiðslur, sem komu til framkvæmda um
áramótin, munu lækka mánaöarleg útgjöld meðalfjölskyldu um kr. 176,32. Niður-
greiðslurnar lækka hins vegar kaupgjaldsvísitöluna um 13 stig, og sú Lækkun mun
skerða mánaðarkaup Dagsbrúnannanns- um kr. 356,75. Kauplækkunin er þannig tvö-
falt meiri en sparnaöurinn, og raunveruleg kaupskerðing vegna niðurgreiðslnanna
einna 3,3%.
Framkvæmi ríkisstjórnin síöan hótun sína um að lækka grunnkaupið í ofanálag
um allt að 6% mun beint fjárhagstjón fyrir meðalfjölskyldu Dagsbrúnarmanns nema
kr. 612,18 á mánuði, en það jafngildir 10,8% beinni kauplækkun.
Gamla vísitalan gefur sem
kunnugt er næsta takmarkaða
mynd af neyzlu almennings.
Hins vegar gerði Torfi Ás-
geirsson hagfræðingur grund-
völl nýrrar visitölu fyrir
skömmu og var þr.r miðað við
búreikninga 80 launþegafjöl-
skyldna, verkamanna, sjó-
manna, iðnaðarmanna og skri.f-
stofumanna, á árunum 1953 og
1954. Mun sú vísitöluf jölskylda
sem þannig fékkst gefa næsta
skýra hugmynd um meðal-
neyzlu almennings nú, og verð-
ur því við hana miðað í þeim
útreikningum sem hér fara á
eftir.
Sparnaðurinn aí niður-
greiðslunum
Nýja vísitölufjölskyldan tel-
ur 4,24 meðlimi, og með því
að athuga neyziu hennar á
vörum þeim, sem ríkisstjórnin
eykur niðurgreiðs’ur á, fæst
mynd af því hversu mikið laun-
þegar spara við hinar nýju
verðlækkanir. Sú mynd lítur
þannig út:
Ársnotkun fjölskyldunnar af
hverskonar kindakiöti er talin
115,36 kíló, og það magn lækk-
ar nú í verði um kr. 770,57'.
Ársnotkun fjölskyldunnar af
saltfiski er talin 39,55 kíló,
og það magn lækkar nú í verði
um kr. 65,26.
Ársnotkun fjölsr.yldunnar af
nýmjólk er talin 1022 litrar,
og það magn lækkar nú í verði
um kr. 901,98.
Ársnotkun fjölskv'.dunnar af
kartöflum er talin 235,65 ’kíló,
og það magn lækkar nú í verði
um kr. 141,39.
Ársskammturinn af niðnr-
greiddu sinjöri fyrir þessa fjöl-
skyldu er nú 16,96 :dló, og það
magn lækkar nú í verði um kr.
164,51.
Ársskammturinn af niður-
greiddu smjörlíki fyrir þessa
fjölskyldu er' nú 42.4 kíló, og
það magn lækkar nú í verði um
kr. 72,08.
Árssparnaður þessarar fjöl-
skyldu vegrya liinna nýju nið-
urgreiðslna ríkissljórnarinnar
er þannig kr. 2115,79 — en
sparnaður á mánuði er kr.
176,32.
Þess ber auðvitað að gæta
að hér ér um meðaltalsfjöl-
skyldu að ræða. Síærri fjöl-
skyldur, sem nota meira magn
af hinum niðurgreiddu vörum,
bera þeim mun meira úr být-
um. Minni fjölskvldur bera
hins vegar minna úr býtum;
og einhleypingar, sem borða
á matsöluhúsum, munu vart
hafa mikinn hag af niður-
greiðslunum. Sumt í niður
greiðslunum er eionig næsta
hæpið; þannig hafa allir þeir
sem rækta kartöflur fyrir sig
engan hag af lækkuninni á
kartöfluverðinu — þeir fá
aðeins læ’kkun á vísitölu og
þar með kaupi sinu.
Kauplækkunin vegna
niðurgreiðslnanna
Þetta er önnur hlic'in á niður-
Framhald á 10. síðu.
NatrÍDmbjarmi
frá tungleldflaug-
inni Ijósmyndaður
Sovézka geimfarið sendi í fyrri-
nótt frá sér natríuinský eins og
boðað liafði verið. Bjanninn af
skýinu gerði það sjáanlegt í
nokkrar mínútur meðan efnið
\ar að dreifast og myndaði
fyrstu gervihalastjörnuna.
Skýið var ljósmyndað frá
stjörnuathuganastöðinni í Alma
Ata í Mið-Asíu og brezkt blað
birti í gær mynd sem tekin var
í Skotfandi og talin var af nat-
ríumskýinu.
Á geimkönnunarsýningú í Prag uni liátíðarnar gat mecjal ann-
ars að Líta þetta sovézka l.íkan af geimfari, sem ætlað er
það lilutverk að fiytja menn til tunglsins og aftur til jarð-
ar. Eftir liið vel liepjmaða tunglskot í fyrradag hefur sovézlc-
um geimsiglingafræðingum verið falið að undirbúa tunglleið-
angur, og hver veit nema þessi huginynd um farkost í slíkt
ferðalag vcrði að einhverju leyti l^agnýtt þcgar til framkvæmd-
anna kemur.
•é
Jeiurism er alk
mannkynsins"
Mikojan, fyrsti aðstoðarfor-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
kom í gær til Kaupmannahafn-
ar á leið til Bandaríkjanna.
Hann sat boð Hansens forsætis-
ráðherra og ræddi við hann og
aðra ráðherra.
Þegar fréttamenn niðu á
Framhald á 10. síðu.
Tungleldflaugin einnig sólspútnik
Mun fara framhjá funglinu i 6000 til 8000 km fjarlœgcS,
siSan verSa gervireikist]arna á brauf umhverfis sólina
Þriðja þrep sovézku tungleldflaugarinnar sem
skotið var í fyrramorgun, og náði fyrst jarðneskra
hluta yfir 11,2 km, hraða á sekúndu og þar með
afli til að slíta sig laust frá aðdráttarsvioi hnatt-
ar okkar og þjóta út í himingeiminn, var í gær-
kvöldi komið langleiðina til fylgihnattar jarðar-
mnar.
Um klukkan átta í gærkvöldi
hafði eldflaugin farið 311.000
km í áttina til tunglsins og átti
ófarna um 70.000 km. Gert var
ráð fyrir að geimfarið myndi
verða á móts við tunglið klukk-
an þrjú í morgun eftir íslenzk-
um tíma.
Mun gaiiga um sólina að eilífu
Tópíséff, varaforseti Vísinda-
akademíu Sovétríkjanna, sagði
í gær við fréttaritara Tass, að
hraði eldflaugarinnar væri
meiri en svo að aðdráttarafl
tunglsins myndi geta yfirunnið
hann og dregið hana að sér.
Geimfarið myndi því ekki fara
á braut umhverfis tunglið, held-
ur fara framhjá því í 6000 til
8000 km fjarlægð, eða sem
svarar tveim þvermálum tungls-
ins, og síðan halda áfram út
í geiminn. Þar mun eldflaugin
fara á braut umhverfis sólina,
verða sólspútnik, fyrsta reiki-
stjarnan gerð af mannahönd-
iim.
Fyrirlesari í Moskvaútvarp-
inu sagði að horfur væru á að
geimfarið færi svo nærri tungl-
inu að mælitæki þess næðu og
fengju sent til jarðar vitneskju
um segulsvið tunglsins og
geislaverkun, en þeirra upplýs-
inga er þörf áður en hægt ér
að ráðast í geimleiðangur til
tunglsins. Eiinig sagði Moskva-
útvarpið, að vitneskja sem
fengist frá eldflauginni á göngu
umhverfis sólina yrði mun
þýðingarmeiri en sú sem það
hefði getað aflað á braut um-
hverfis tunglið.
Sænski prófessorinn Salvén
sagði í útvarpsviðtali í gær, að
hann byggist við að geimfarið
myndi ganga umhverfis sólina
að eilífu.
Starfar snurðuiaust
Mæli- og senditækin í geím-
farinu hafa frá upphafi starf-
að snurðulaust og skýrði
Moskvaútvarpið frá því í gær
að þegar hefðu fengizt þýðing-
armiklar upplýsingar. Meðal
annars hefur komið í ljós að
hitastig á yfirborði geimfarsins
hefur verið frá 15 til 20 stig
á selsíus.
Framhald á 10. síðu.