Þjóðviljinn - 05.02.1959, Side 1
s
INNI f BLAÐiNII:
Fífamleiðslukapphlaupið mikla
gengur Sovétríkjunum £ vil.
Erlend tiðindi . 6. síða.
Fimmtudagur 5. febrúar 1959 — 24. árgangur — 29. itölub^að.
Heildarstjórn á þjóðarbúskap íslendinga
Einar Oigeirsson flytur á Alþingi frumvarp fil laga um áœtlunarráö rikisins
isins
Einar Olgeirsson ílytur á Alþingi „írumvarp til laga um áætlunarráð rík-
Er þar lagt til að ríkisstjórnin skipi íjögurra manna neínd er nefn-
ist áætlunarráð ríkisins og haíi það verkefni að semja heildaráætlanir um
þjóðarbúskap íslendinga í samráði við ríkisstjórn.
Gert er ráð fyrir tvenns konar áætlunum: Heildaráætlunum um þróun at-
vinnulífsins og fjárfestingu þjóðarinnar fyrir 5—10 ára tímabil, og áætl-
unum um eitt ár í senn um allan þjóðarbúskapinn.
Frumvarpið er í tiu greinum
og er birt hér í heild. I ýtar-
legri greinargerð rekur flutn-
ingsmaður tilraunir sem gerð-
ar hafa verið til svipaðra ráð-
stafana áður og rökstyður
þörfing á áætlunarbúskap.
Greinargerðin er birt á 7. síðu
blaðsins í dag.
Frumvarp Einars er á þessa
leið:
1. gr. Rí'kisstjórnin skipar
fjögurra manna nefnd, er nefn-
ist áætlunarráð rikisins.
2. gi’. Hlutverk ráðsins er
aö semja heildaráætlanir um
þjóðarbúskap Islendinga, er
gerðar skulu í samráði við
ríkísstjórn.
Áætlanir þessar skulu vera
tvenns konar:
1. Heildaráætlanir um þróun
abvinnulífsins og fjárfestingu
íþjóðarinnar fyrir 5—10 ára
tímabil.
2. Áætlanir um eitt ár í
senn um allan þjóðarbúskap-
inn.
3. gr. Heildaráætlanir þær,
sem um ræðir í 1. tölulið 2. gr.,
skrulu miðaðar við eftirfarandi:
1. Að öll framleiðslugeta
landsmanna sé hagnýtt til fulls
og öllum verkfærum mönnum
tryggð næg og örugg atvinna.
2. Að auðlindir lands og
þjóðar verði sem bezt hagnýtt-
ar i þágu þjóðarheildarinnar
til þess að auka velmegun
tryggja afkomu þjóðar og ein*
staklinga.
3. Að atvinnuvegir lands-
manna verði efldir og nýir
skapaðir, til þess að þjóðin
eignist sem fjölbreytilegast at-
vinnuTíf, en þó einbeitt að því
að efla fyrst og fremst þær
atvinnugreinar, er veita í seitn
beztu hagnýtingu á auðlindum
þjóðarinnar, mestu afkastagetu
landsmanna og beztu nýtingu
fáanlegra markaða og skapa
þannig forsendur fyrir sem
beztum Tífskjörum þjóðarinnar.
ísraelsmenn drepa
konnr og börn
Yfirstjórn eftirlitsliðs Sam-
einuðu þjóðanna á Gaza-svæð
inu hefur tilkynnt að ein af
sveitum þess hafi í gær rek ■
izt á flokk vopnaðra ísraels-
manna sem komnir voru inn
á egypzkt landsvæði.
ísraelsmennirnir höfðu skotið
á borgara í egypzku Beidúína-
þorpi með þeim afleiðingum, að
kona og barn biðu bana en
önnur kona særðist.
I þessum heildaráætlunum
skal áætluð þróun hverrar at-
vinnugreinar, eins og bezt sam-
rýmist heildarhagsmunum þjóð-
arinnar, svo og hver höfuð-
atvinnutæki, samgöngutæki,
byggingar og annað þurfi til
sjávar og til sveita til þess
að tryggja, að þeim tilgangi,
sem vinna skal að samkvæmt
þessari grein, verði náð.
Áætlunarráðið skal og gera
áætlanir um, hvar tækin skuii
staðsett, og tillögur um bygg-
ingar, byggðarþróun og aðrar
framkvæmdir í því sambandi.
4. gr. Áætlanir þær, sem um
ræðir í 2. tölulið 2. gr., skal
gera um allan rekstur þjóðar-
öúskaparins fyrir ár hvert,
bæði rekstur og þróun hinna
einstöku atvinnugreina innan-
íands og viðskipti þjóðarinnar
út á við.
Áætlanir þær, sem fjalla um
tekjur og gjöld þjóðarinnar í
viðskiptum við önnur lönd,
skulu gerðar í samráði við
ráðherra þann, sem fer með
viðskiptamál, og skal síðan
leggja þær til grundvallar fyr-
ir viðskiptin á næsta ári. Þess’
ar áætlanir skulu gerðar með
það mark fyrir augum að
ná sem hagstæðustum viðskipt-
um og greiðslujöfnuði við önn-
ur lönd, skapa þjóðinni öruggt
fjárhagslegt sjálfstæði út á við
og gera henni kleift að fram-
fylgja. heildaráætlunum um
uppbyggingu atvinnulifsins og
þeim fyrirætlunum um örugga
og batnandi lifsafkomu al-
mennings, sem unnið er að
liverju sinni.
Á sama hábt skal áætlunar-
ráð og við samningu áætlana
sinna hafa samráð við hin ein-
stöku ráðuneyti um liinar
ýmsu atvinnugreinar, er undir
þau heyra.
Áætlunarráðinu ber hins veg-
ar ætið að hafa heildanliags-
muni þjóðfélagsins fyrir aug-
um og gæta þess,. að í öllum
áætlunum þess sé fullt sam-
ræmi, svo sem bezt fullnægir
þeim tiigangi, er þvi ber að
vinna að. Er ráðið því alls
ekki bundið við tillögur hversr
ráðuneytis i áætlunum sínum.
5. gr. Til þess að ná þeim
Framhald á 10. síðu.
11 kr. sparnaður
á mánuði!
Auk þess sem getið var
í blaðinu í gær hafa kom-
ið til framkvæmda nokkrar
nýjar lækkanir. Fransk-
brauð, rúgbrauð og norin-
albrauð hafa verið lækkuð
um 10 aura, vínarbrauð
um 5 aura, tvíbökur um 45
aura lúlóið, kringlur um 30
aura kílóið, kaffi um 20
aura pakkinn, vlnarpylsur
og bjúgu um kr. 3.80 kíló-
ið og kjötfars urn kr. 2.50
kílóið.
Samkvæmt grundvelli nýju
vísitölunnar, sem nú hefur
verið lögfest, nema þessar
lerðlækkanir kr. 131.87 á
ári fyrir 4-5 manna fjöl-
skyldú. Sparnaðurinn er
þannig sem næst 11 kr. á
mánuði. Hins vegar er
lækkunin á mánaðarkaupi
Dagsbrúnarverkamanns, er
vinnur 8 dagviunutíma og
einn eftirvinnutíma til jafn-
aðar, kr. 757.75 á mánuði.
Kveðja ber sendiherra fslands heim
til að mótmæla ofbeldi Breta
Allirþingflokkarnirtelja Valafellsatl)urðinn mjög alvarlegt mál
Sest enn við
þcsS samcs
í gcerkvöld
Er Þjóðviljinn hafði
samband við Landlielgis-
gæzluna á tólfta tíman-
um í gærkvöld hafði enn
.ekkert ger/.t í máli brezka
> eiðiþjófsins Valafells.
Þór og brezki tundurspill-
irínn héldu sig í námunda
við togarann og duflið
sem sett liafði verið í sjó
á þeim slóðum er Valafell
var staðið að ólöglcgum
veiðuin á sunnudaginn.
— Brezka útvarpið minnt-
ist ekkert á atburðinn í
fréttasendingum sínum í
gær.
Allir þingflokkarnir telja ,,Valafells“-atburöinn við
Loðmundarfjörð mjög alvaríegt mál, og tóku Eysteinn
Jónsson og Bjarni Benediktsson eindregið urvdir þá
kröfu Einars Olgeirssonar á Alþingi í gær, að utanrík-
ismálanefnd verði tafarlaust kvödd saman til aö ræöa
hvernig svara skuli þessu síðasta ofbeldisverki Breta.
Einar Olgeirsson lýsti yfir aö hann teldi rétt að kalla
sendiherra íslands í London heim í mótmælaskyni.
4ður en gengið var til dag-á íslenzkt varðskip, og býggist
skrár á fundi sameinaðs þings
í gær kvaddi Einar Olgeirsson
sér hljóðs, og flutti þá fyrir-
spurn til dómsmálaráðherra
hvað rikisstjórnin hyggðist
gera vegna atburða þeirra sem
nú væru að gerast úti af Loð-
mundarfirði, þar sem brezk her-
skip hóta að beita íslenzkt
varðskip vopna-valdi og hindra
að það nái að framfylgja ís-
lenzkum lögum gegn landhelg-
isbrjót, sem staðinn var að
verki meira að segja innan
gömlu markalínunnar.
Einar minnti á, að þetta væri
í annað skipti síðan í liaust
að brezk herskip hóta að skjóta
hann við að ' allir þingmenn
væru sammála um að ríkis-
stjórnin yrði að sýna brezku
stjórninni hve alvarlegum aug-
um íslendingar líta á slílcar að-
farir. Teldi hann brýna nauð-
syn að kveðja utanríkismála-
nefnd saman til að fjalla um
máliö.
Við eigum að svara með því
að kalla tafarlaust heim ís-
lenzka sendiherrann í London,
sagði Einar, svo brezka stjórn-
in viti að Isieiulingar láta ekki
bjóða sér slíkt. Nú hefur brezka
stjórnin látið íslenzk stjórnar-
völd bíða í tvo sólarhringa eftir
því, að því er virðist, að hún
sé að þinga um hvað gera
skuli. íslendingar verða að hafa
fulla gát á að þeir skemmi ekki
fyrir málstað sínum með óvið-
eigandi aðgerðarleysi i máli
eins og þessu.
Dómsmálaráðherra Friðjón
Skarphéðinsson kvaðst ekki
geta svarað á aðra lund, en að
svo komnu máli væri ekki ann-
að gera en bíða átekta. Hann
gerði ráð fyrir að úr því feng-
ist skorið alveg á næstunni
hvernig með málið færi, hvort
brezku herskipin slepptu tog-
aranum við 'islenzka varðskip-
ið eða hindruðu að íslenzk lög
næðu yfir það að ganga. Að
svo komnu he.fði ríkisstjórnin
ekki tekið aðra ákvörðun en
þá að bíða átekta og sjá hvern-
i'g þessum þætti málsins lykt--
aði.
Eysteinn Jónsson kvaðst því
samþykkur og livetjandi þess
að ríkisstjórnin tæki upp fund-
arhöld í utanríkismálanefnd
vegna þessa alvarlega máls og
til að ræða hvernig skuli með
mál þessi fara yfirleitt. Ríkis-
stjórninni bæri að hafa fullt
samráð við alla þingflokkana
um hvað gera skuli.
Bjarni Benediktsson kvaðst
mjög vilja táka undir það að
Framhald á 10. síðu.
65íórust í flug-
slysiíUSA
Bandarísk farþegaflugvél með
08 farþega og 5 manna áhöfn
innanborðs hrapaði til jarðar í
fyrrinótt í Austurá við New
York. Flugvélin var að koma frá
Chicago. Aðeins 8 menn komust
lífs af úr flugslysi bessu, en hin-
is 65 fórust.. Rigning og þoka
var þegar flugvélin kom að flug-
vellinum og er talið að hún hafi
ekki séð ljósmerki frá flugvell-
inum.
20 lík höfðu fundist í gær-
kvöld en slæmt veður hamlaði
leitinni að þeim sem fórust.