Þjóðviljinn - 26.03.1959, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.03.1959, Blaðsíða 3
Fimmtudagui 26. marz 1&59 ÞJÓEiVILJINN (3 Reksturinn þarf að vera i hönd- um hins starfandi fólks sjálfs NorðfirSingar hafa geri ráðsiafanir til þess að fá báfa sem landi afla sinum heima Fyrir skömmu komu tveir nýir bátar, samtals rúml. 300 lestir, til Neskaupstaéar og unnið er aö útvegun tveggja til viöbótar og beitir bæjarstjómin sér fyrir því aö kaupa annan er landi í heimahöfn. ,(Þ£ð er ákaflega mikils virði til að tryggja heimalöndun, að reksturinn sé í höndum þeirra aðila sem beinna hagsmuna hafa a.ð gæta í sam- bandi við að landað sé heima”, sagði Bjarni Þórð- arson bæjarstjóri í Neskaupstað í viðtali við Þjóð- viljann nýlega. — Hvað helzt reicur þig til I Tekjur manna. eru því á- Reykjavíkur á þessum tíma árs,' reiðanlega miklu • meiri en spurði ég Bjarna er hann var' hér í bænum fyrir nokkru. — Hingað kom ég til að sækja tfund kaupstaðanna, sagði Bjarni, en fyrirhuguð er fólagsstofnun til kaupa á vél- um til varanlegrar gatnagerð- ar, en vegagerð úti um land er eitt erfiðasta og kostnaðar- samasta viðfangsefni sveitar- félaganna, þar sem yfirleitt er um frumstæða vegi að ræða, en umferð sívaxandi samfara því að farartæki eru alltaf af þyngjast. Eg tel >ví ákaflega mikils virði að af félagsstofnuninni geti orðið, þó hinsvegar sé Ijóst að þótt vegagerðarvélar verði keyptar er ekki þarmeð sagt að allur vegagerðarvandi sé leystur, því 'varanleg vega- gerð er á'kaflega dýr og of- viða smærri kaupstöðunum, nema til komi hagstæð lán til langs tíma. Jafn.framt því að sækja þenn- ah fund lief ég unnið að ýms- um máhim snertandi mitt starf, en bæjarstjórar hafa venjulega nóg að gera þegar þeir leggja leið sína til Reykjavikur. □ Mesta góðæri sem við höíum íengið — Hvernig hefur verið með afkomu og atvinnu manna austur þar ? — Árið sem leið var á Norð- firði áreiðanlega niesta góðæri sem við höfum liaft (af að segja. Atvinna var ír.jög mikil, jafnvel meiri en liægt var að anna. Framleiðsla vjar all- mikil, liúsabyggingar meiri en nokkru sinni og fullyrða má að afkoma átvinnufyrirtækj- anna í bænum hjifi verið miklu betri en áður. no'kkru sinni fyrr. Þessi ihikla vinna stafaði m.a. af því að reist var á skömmum tíma síldarverksmiðja. Nú í vetur hefur atvinna hinsvegar ekki verið fullnægj- andi; og er það ekkert nýtt fyrirbæri hjá okkur, en þó hefur ekki verið alvarlegt at- í febrúar og hefur nú verið aftur fær síðan um miðjan marz. Venjulega getum við ekki búizt við því að vegur- inn sé akfær frá því í nóvemb- er þar til í maí — júní. Bjarni Þórðason vinnuleysi. Margir verkamenn hafa haft stöðuga vinnu, en yfirvinnu minni en áður. □ Eindæma gott tíðaríar — í vetur hefur það haft töluverð áhrif til bóta á at- vinnuástandið að tíðarfar liefur verið með eindæmum milt, svo unnið hefur verið að bygg- ingum allmikið, allt frá því um mánaðamótin janúar — febrúar. Til dæmis um hina piildu veðráttu má geta þess að veg- urinn um Oddsskarð, sem er í meira en 600 m. hæð yfir sjávarmál, var akfær í 3 vikur Fallegir blómlaukar Begonía og Georgína Opið á laugardag. laukar komnir □ Tuttugu Norðíjarðar- bátar — Hvað um útgerðina? — Norðfjarðarbátar á sjo munu nú vera um tuttugu tals ins, ef með eru taldir færa bátar, sem til þessa hafa. lagt upp í Djúpavogi, en þrátt fyrir þessa miklu útgerð leggur eng- inn bátur upp afla sinn heima í vetur. í fyrra réru þó 3 bátar að heiman, og hafði það ákaflega mikii áhrif til bóta á atvinnulífið. □ Þuríum báta til að leggja upp heima — Til hráefnisöflunar fyrir fiskvinnslustöð Neskaupstaðar, heldur Bjarni áfram, hefur að- eins togarinn Gerpir komið að gagni 1 vetur, en hann hefur nú landað frá áramótum rúm- lega þúsund smálestum af fiski. Vegna þess að hve litlu gagni mótorbátaflotinn kemur til hráefnisöflunar yfir vetrar- mánuðina, einmitt þegar mest er hætta á atvinnuleysi, hefur vaknað mikill áhugi fyrir því að Norðfirðingar eignuðust báta sem betur lientuðu til heimaróðra að vetrinum en þeir sem fyrir eru. Við þurfum að eignast nokkra 130—150 lesta báta sem geta farið í útilegu. □ Að reksturinn sé í höndum þeirra ... — Fyrir forgöngu bæjar- stjórnarinnar er nú verið að ganga frá hlutafélagi er hafi það verkefni að kaupa og re'ka slíka báta, en aðalhluthafar auk bæjarins, munu verða hraðfrystihúsin i bænum. En það er ákaflega mikils 'irði til að tryggja heimalöndun, að reksturinn sé í höntlum þeirra aðila er beinna hagsmuna liíafa að gæta í sambandi við að landað sé í heimahöfn. □ Nýkominn 250 lesta togbátur — Voru ekki rýlr bátar að koma til Norðfjarðar? — Fyrir fáum dögum kom til bæjarins eitt af 250 lesta a.-þýzku togskipunum. Nefnist það Hafþór, og er eigandi þess Óskar Lárusson. Skipið er í þann veginn að hefja veiðar með botnvörpu og binda menn allmiklar vonir við útgerð þess s'kips í sambandi við að vinna bug á vetraratvinnuleysinu. synir, sem áttu Langanes, að' kaupum á 130—150 lesta báti frá Noregi, og hefur Ársæll verið hér fyrir sunnan tij að vinna að því máli, og mun hafa fengið leyfi fyrir bátnum. □ Sótt um 150 lesta bát — Á vegum samtakanna sem ég gat um áðan, heldur Bjarni áfram, hefur einnig verið sótt um leyfi fyrir 150 lesta norsk- um báti, og vonast ég til að það fáist, þar sem okkur er brýn nauðsyn að ná í slíka báta fyrir næsta vetur. Enn má geta þess að fyrir nokkr- um dögum kom nýr 70 lesta bátur frá Danmörku. Hann heitir Dalaröst og er eigandi hans nýstofnað hlutafélag: Glettingur. Dalaröst er komin til Keflavíkur og rær þaðan til vertíðarloka. □ Baráttan í stjórn- málunum — Hvað um stjórnmálin? — Talsvert líf er í stjórn- málunum í Neskaupstað, og þrír flokkar gefa þar út blöð. Elinna mest hefur að undan- förnu verið rætt um fyrirhug- aðar breytingar á kjördæma- skipuninni, og hygg ég að full- yrða megi að öllum öðrum en sanntrúuðum Framsóknar- mönnum sc ljóst að breytingar þær sem rætt hefur verið um að gera á kjördæmaskipuninni, sem sé fá kjördæmi og stór, mundu verða til mikilla hags- bóta, og er ég þeirrar skoðun- ar að þær tillögur séu miklu hagstæðari fyrir strjálbýlið en tillögur Framsóknar um að fjölga þingmönnum og jafnvel kjördæmum í þéttbýli. Um kosningahorfur er ekki hægt að segja .mikið nú, en mér finnst þó ekkert benda til neinnar grundvallarbreytingar á fylgi flokkanna frá síðustu alþingiskosningum, og kemur því lcosningabaráttan fyrst og fremst enn sem fyrr til með að standa á milli Alþýðubanda- lagsins og Framsóknar um annað sætið í sýslunni. Eg þakka Bjarna fyrir spjallið, og nú, ’ þegar þetta birtist mun hann aftur vera kominn í ríki sitt austur þar. J. B. Nýútkomin bók Horfðu reiðiir um öxl eífir John Osborne, í þýð. Thors Vilhjálmssonar Leikurinn sem niestu umtali hefur valdið undanfarið: Horfðu reiður um öxl, eftir John Osborne, hefur nú verið gefinn út £ þýðingu Thors VUhjálmssonar. Höfundur "leiksins. Jolm Osborne, vakti fyrst athygli á sér i leiklistarlifi Englands fyrir þrem árum, einmitt með leiknum Horfðu reiður um öxl. Gagnrýnandi í New Sta.tesma :i and Nation sagði t.d. um leik- inn að hann væri „c'kki aðeins iangsamlega athyglisverðasta leikrit ársins 1956; i því ern beztu samtöl frá bókmennts- legu sjónarmiði sem hafa heyrzt í ensku leikhúsi í alda:- fjórðung." Leikrit þetta olli hörðmn deilum í Eaglandi engu síður en hér, en það er leikhúsgest- um hér í svo fersku minni að óþarfi er að fjölyrða um það. Síðan hafa tvö önnur leik- rit verið leikin í Engl | idi eft .r John Osborne. Leikritið er smekklega gefið út, frágangur góður. Félags- menn í leikfélögum hvarvetna um land geta fengið bókina fyrir lægra verð en hún er seld í búðum ef þeir senda pantanir til útgefanda gegnum leikfélög sín. — Leikritaunn- endum ékal bent á að'upplag er mjög lítið. Bókin er prentuð í Hó'.ur:. Útgefandi er Bláfellsútgáfan, Tónleíkar Kamm ■ ermúsíkkl óbbsins Kammermúsíkklúbburinn heli- ur tónleika í samkomusal Mela-. skólans i dag, skírdag, og hefjast þeir kl. 3 síðdegis. Á efnisskránni eru verk. eít- ir Brahms og Tsjækofskí. Þeir Kristinn Hallsson óperusöng’- ari og Árni Kristjánsson píanó- leikari flytja Vier ernste Ge- sánge eftir Brahms og tríó Tón- listarskólans leikur tríó í a-mcll op. 50 eftir Tsjækofskí. RÓSIN, Vesturveri, Sími 2-3523. □ í stað Langaness — Þá Ársæll og vinna þeir Þorsteinn bræður Júlíus- PASKA EGG Eins og alltaf áður liöfum við fjölbreytt úrval at' Páskaegg’ium Konlektgerðin „Fjóla" Vesturgötu 29. --- Munið „FJÓLU” páskaegg, sælgæti og. )V. --- Fæst aðeins — Vesturgötu 29.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.