Þjóðviljinn - 26.03.1959, Síða 5

Þjóðviljinn - 26.03.1959, Síða 5
Fimmtudagur 26. marz 1959 — ÞJÓÐJVILJINN :— (5 I unnskiptingastofunni f kompanii víð allífið. — Matthías Johannessen tal- ar við Þórberg Þórðarson. — 254 blaffsíður. — Helga- fell, Keykjavík. 12. marz 1959. Mattihías Johannessen. er fyrir ýmsa hluti vel búinn til að tala við Þórberg Þórðar- son. í fyrsta lagi kann hann hraðritun og getur þannig bókfært orðræður meistarans nákvæmlega orðrétt. Hann er í öðru lagi svo andvígur mörgum hugmyndum Þór- bergs, að það hlaut að verða viðta'aranum ærin hvöt til að tala sem skýrast, túlka hug- myndir sínar sem nákvæmleg- ast, leggja fram hugsunar- orku sína. 'Ef Maó hefði far- ið að diskútera sósíalisma við Þórberg eða Jónas útvarps- stjóri eilífðarmálin, þá hefði meistarinn ekki þurft að kosta sér nema hálfum til — af því hann ræddi við ekoð- anabræður. En af þvi Matt- hías er lítiltrúaður á sósíal- ismann og fávís í eilífðarmál- unum, þá veit Þórbergur ekki fyrri til en hann er tekinn að kenna honum; árangurinn er mælska og fyndni og and- riki þessarar bókar. Matthías er af langri reynslu orðinn býsna klókur að spyrja menn — toga, þeim tungu úr höfði, ef á þarf að halda. Þéirrar kunnáttu gætir þó ekki svo mjög í Kompaní- inu; spurningar hans koma stundum dálítið spánskt fyrir sjónir. En það er kannski einmitt þetta sem Þórbergur hefur i huga í bókarlok, er hann hrósar Matthíási fyrir það að hann sé alltaf nýr; hann er ekki alltaf að þumb- ast við sömu umræðuefni né stritast við að byggja sam- tölin upp á listrænan hátt, heldur hleypur hann úr einu í annað, sendist aftur og fram milli umræðuefna. Líklega hefur hann verið kría í ein- hverju fyrra lífi. En hvað sem þvi líður, verður niður- staðan líf og fjör og mikil skemmtan á margan handa máta. Það skiptir vitaskuld allra mestu máli í svona bók, að viðtalarinn hafi eitthvað að segja — ráði fyrir hugsun og andagift, hafi gáfu til að segja frá. Það þýðir ekki að kunna hraðritun á fundi mál- lauss manns; það þýðir ekki að brýna skoðanaleysingja til að lýsa viðhorfum sínum; allur ferskleiki í samræðu- kúnst er gagnslaus í húsi manns, sem seg'r aðeins já og nei. En Þórbergur hefur andann og sögugáfuna; og honum er að auki léð hrein- skilni og þor til- að segja ná- kvæmlega það sem honum býr í brjósti. Ég vil í engu rýra hlut spyrilsins, eins og Matt- hias heitir á máli Þórbergs; en ég vil þó leyfa mér að segja að þessi „óundirbúnu" viðtöl séu einhver fjörugasta, fyndnasta og mælskufyllsta bók Þórbergs sjálfs. (Reynd- ar hefur það kvisazt, að Þór- bergur liafi vasazt í próförk- um bókarinnar, eins og hon- um er títt, og framið drjúg- ar endurbætur á ýmsum til- svörum sínum. Þessu trúi ég giska vel; en þá verður að draga pínulítið frá þeim um- mælum hans í bókarlok, að viðtölin séu gjörsamlega ó- undirbúin). Hugsa sér, ef Snorri í Reykho'ti hefði rak- ið svona úr sér garnirnar vet- urinn 1239. Nú hirði ég ekki að orð- lengja maryvís'ega skemmtan þessarar bókar. Rökkuróper- an, sem kom út á liðnu hausti, sýndi að Þórbergur er enn í fullu fjöri; honum hef- ur litt eða ekki förlað, síðan hann ritaði Ofvitann fyrir tveimur áratugum. Þessi bók er ný staðfesting á yfirburð- um hans. Vissulega er hún þó ekki öll jafnfróðleg; sum fvndni hennar rennur út í sardinn; undirritaður hlýtur að gefa lítið fvrir ýmsa v'zku hennar. Hugmvndir Þórbergs um annað líf og áróður hans fvrir ei'ífðarverum er til dæmis fremur óhugtækt efni. Satt að segja er túlkun hans á eilífðarhugmyndunum næsta fábreytileg og einhæf — það er mestan nart einhverskonar draugatrú í gömlum stil. Og það eru lika mótsagnir í bók- inni. Á bls. 110 stendur skrif- að: „. . . her er stofnun Djöfulsins. Her er stofnaður til manndrápa og verndunar á kúgun, ránskap og þjófn- aði“ — og þetta skal ég skrifa undir fyrirvaralaust. En á bls. 112 er skyndilega fund- inn góður her: „Rússneski herinn er varnarher í fullum skilningi þess orðs“. Þetta gefur náttúrlega valdsstefnu- fíflunum í Atlanzhafsbanda- laginu kærkomið tilefni til að öskra á móti: Herir frjálsra þjóða eru* varnarherir — og er þarflaust af Þórbergi Þórð- arsyni að kynda undir lygra.- sögum íha'dsins hérna. Enda er her hvorki stofnaður til varnar né sóknar, heldur ein- faldlega til þess að berjast þegar stjórnendum hans þyk- ir nauðsyn bera til. Svo skulum við hætta þessu árans nöldri og gleðja okkur heldur við lítinn kafla Komp- anísins. Viðtalarinn leggur spvrlinum lífsreglur: „. . . Ef þú vilt verða hraustur á taug- um og hraustur í maga, skaltu aldrei lesa kvæði, aldr- ei ská’dsögu, aldrei leikrit. Ef þú vilt verða sterkur á taugum, ska'tu ganga mikið úti, sitja uppi í fjallshlíð og hlusta á þögn'na og láta ljós hins eilífa stre.yma inn í þig, Varastu óperur, balletta, píanóspiliri og glamur í krön- um. Og farðu ekki upp á kvenmann oftar en fjórum sinnum á ári, á vetrarsólstöð- um og jafndægrum vor og haust og sumarsólstöðum. Láttu augu þín aldrei hvarfla að því, sem æsir. Talaðu aldr- ei annað en það, sem satt er, skrifaðu aldrei annað en það, sem rétt er. Vendu ekki kom- r J ur þina á skntlumot, en kost- aðu kapps um að skilja lífið. Skáldsltapur er koníak Sat- ans . . . Þegar aðrir fara á skemmtanir, skaltu einbeita huga þínum að Sjöstjörnunni. Þegar þú sérð fallega konu, skaltu beina huga þínum tii meistarans. Vendu ekki komur þínar að litl- um vötnum, ekki að lágum hálsum, ekki að grunnum döl- um. Og reyndu að skilja skuggana á Kili“. Ekki vænti ég, að þessum kafla hafi verið hagrætt lítillega í þriðju próf- örk? Enn er ótalinn einn kostur þessarar bókar: myndin af Þórbergi aftan á kápusiðu. Hugsa sér, ef við ættum svona mynd af Snorra í Reyk- holti þar sem hann situr og eegir fyrir um ritun Heims- kringlu . . . B.B. GUNNAB M. MAGNCSS; STUFUR um skonrok og kringlur í íslenzkri ifóðíist n. Þar var frá horfið í lok fyrsta þáttar, er kringlur höfðu svifið niður á borðið í Unuhúsi, að því er virðist eftir fingrabendingu húsföð- urins. Þetta er hið eina nær- ingarefni mannlegs líkama, sem um getur í hinni löngu Birtingsgroin, og veitt er í gestaboðinu. Þessu er Jóni úr Vör hyglað. Jafnframt gefur húsfaðirinn, Einar Bragi, í s'kyn, að hér séu menn á kringluplaninu, andlega og efnalega. Jón segir ekki takk, eins og börnin, heldur espast af kúmeninu og tekur að viður- kenna sjálfan sig opinberlega af mikilli hreinskilni. Hann, sem fyrir stimdu hafði slegið til hinna dauðu, sækir nú fast til fylgdar við nýlátið skáld, dregur það varnarlaust til sin, og segir: „. . . Við Steinn erum lötrandi spor- göngumenn Jóhanns Jónsson- ar, Jóhanns Sigurjónssonar og Jóns Thoroddsen yngri H Það virðist óneitanlega vera snefill af lævísi í þessu orðalagi, og skai ósagt látið, hvors hlutur verður betri, hins látna eða þess, sem sit- ur á kringluplani Einars Braga. Það mætti segja, að þessi orð væru sögð af hóg- værð skálds í lítillæti and- ans, og víst er það satt, að slæðu hefur verið brugðið yfir. En sú slæða er svo þunn, svo þunn, að allsstaðar „grisj- ar í guðræknina okkar“. Og við tökum að hugsa um önn- ur orð en hógværð og lítillæti andans. Lesandanum virðist jafnvel svo sem Jón úr Vör láti liggja að því, að Einar Bragi hefði átt að gefa sér tvíböku, þó að það sé reynd- ar nokkuð borgaralegt hug- tak að borða tvibökur í slíku gestaboði. Og meðan verkanir kúmens- ins eru hvað örastar ræðir Jón úr Vör um höfuðeinkenni þeirra skálda, sem gestaboðið sækja, og segir að lokum um einn gestinn; Hann „er kannski o'kkar allra mestur völundur að listrænni túlkun.“ „Asskoti var gaman, þegar maður fór að skilja“, sagði karlinn. Og hver er sá lesandi, sem ekki skilur Jón úr Vör. Orðið völundur er ekki neitt upnskafningsorð í mál- inu. Kynslóðimar á undan- gengnum öldum liafa gefið þvi ríka hefð. Þegar það er skrifað með litlum staf, tákn- ar það ómótmæ'anlega snilli anda og handar, fegurð og fullkomnun, starfsást og þol- gæði og hverja þá dyggð, er manninn mega prýða, — völ- undarsmíð er göfug smíð. Og Jón úr Vör er ekki myrkur í máli: Þú ert völ- undur, Einar minn Bragi, ég er 'íka sagður völundur, en „hann“ er kannski okkar allra mestur völundur okkar allra mestur völundur allra mestur völundur mestur völundur völundur. Svona tala menn í ljóðum nú til dags. En hverfum nú frá Jóni úr Vör meðan hann maular síha kringlu. Og hugurinn reikar að hinu harða brauði, sem ein'kennt hefur menningar- og efna- hagstig undangenginna kyn- slóða. Við hugsum til Sigurð- ar Breiðfiörðs, þegar hann kom röltandi utan af Seltjarn- amesi á þær slóðir, sem gestaboðið stendur nú, yrkj- andi ferskeytlur og rímur, guðsfeginn að fá skonrok að bleyta í bollann sinn. Og sagan endurtekur sig á þessari nóttu, og Sigurður kemur röltandi í bæinn, svo sem forðum, og kveður dyra I Unuhúsi. Húsfaðirinn fer í jakkann, til þess að sér verði ekki kalt eins og Sigurði, og afgreiðir hann utan dyra, — hér eru nefnilega eintórn formbyltingarskáld, Sigurður minn. — Jæja. — Já, við höfum hreiní: ekkert handa þér, við hcfnm ekkert nema kringlur, — ég held þú hafi ekkert gott af þeim, Sigurður minn, — þaó er í þeim kúmen. — Jæja. — Ja, formbyltingarskáld af okkar tegund eru þannig. að maður reynir að reyna að hugsa, en af því að það er búið að hugsa svo lygi- lega margt á jörðinni, þá er- um við alloft í vafa um. hvort það erum við sjálfir, sem erum að hugsa þetta eða einihver annar að hugsa það, og þá verðum við aftur að reyna að reyna að hugsa, og svona gengur þetta koll af kolli, svo að þú sérð, að það er enginn leikur að vera form- byltingarskáld. Það var a.nn* Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.