Þjóðviljinn - 23.04.1959, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. apiíl 1959 —' ÞJÓÐVILJINN — (9
ilngar efna fil
Yioavangshlaups i dag
Þátftakendur eru 60—70
I>að er kunnara en frá þurfi
að segja að í Hafnarfirði hef-
ur um langt skeið verið mikill
íþróttaáhugi og að þaðan hafa
komið úrvalsíþróttamenn bæði
í einstaklingsíþróttum og eins
flokksíþróttum.
í dag brydída Hafnfirðingar
upp á nýjum þætti í íþrótta-
lífi sinu þar í Firðinum sem
líklegur er til þess að verða
vinsæll, en það er Víðavangs-
hlaup.
Eru það FH-menn sem
standa fyrir því og er það
fyrsti þátturinn í því að halda
upp á 30 ára afmæli félagsins,
en þeim aldri nær félagið á
komandi hausti. Það er langt
síðan víðavangshlaup hefur
verið haldið í Hafnarfirði, og
ætla FH-menn að hrista af sér
þessa lognmollu, eins og einn
þeirra komst að orði.
Ekki var búizt við mikilli
þátttöku i hlaupi þessu, en það
hefur orðið eitthvað annað, því
á milli 60 og 70 piltar hafa
gefið sig fram í hlaupið.
Hlaripið verður í þremur ald-
ursflokkum: 17 ára og eldri,
14—16 ára og 13 ára og yngri
og er sá flokkur langfjölmenn-
astur. Er mikill áhugi meðal
piltanna. Hlaupið á að hefjast
kl. 4 í idag (sumardaginn
fyrsta).
Þrenn verðlaun verða veitt í
hverjum flokki, auk bikara sem
sigurvegarinn í hverjum flokki
hlýtur. Hafa bikaramir verið
gefnir af íþróttaáhugamönnum
í Hafnarfirði: Stefáni J ónssyni
forstjóra (17 ára og eldri),
Hafsteini Sveinssyni (maraþon-
hlaupara) 14—16 ára, og
stytta gefin af Ragnari, Berg-
þóri og Ingvari (allt þekktir í-
þróttamenn).
Til að gera atburð þennan
hátíðlegri ætlar Lúðrasveit
Hafnarfjarðar að leika á lúðra
sína áður en hlaupið hefst, en
það er eins og fyrr segir kl. 4.
StraMar kröfur
1 fréttum frá Moskva segir
að nú þegar eða 1. apríl hafi
mót í frjálsum íþróttum hafizt
þar sem farið sé að velja þá
menn eem fara eiga til Rómar
næsta ár. Mót þeesi eiga að
halda áfram fram í júlí í sum-
ar.
Frjálsiþróttasamband Sovét-
ríkjanna hefur sett lágmarks-
kröfur sínar, sem verður að ná
til þess að menn verði sendir
til leikjanna. Á það er bent að
sumar kröfurnar em strangari
en gildandi sovézk met í dag.
Karlar:
100 m hlaup: 10.3 sek. —
200 m 20.9 sek., hástökk 2.08,
langstökk 7.07, kringlukast
55 m og spjótkast 80 m.
Konur:
100 m lilaup 11.5 sek., 200
m 23.5 sek., hástökk 1.75 m.,
langstökk 6.20 m, kringlukast
55 m, spjótkast 55 m.
Knattspyraan
Reykjavíkurmótið hefst í dag
kl. 4.30 á Melavellinum og leika
þá KR og Þróttur. Dómari
verður Einar Hjartarson.
Flest félaganna hafa æft vel
undanfarnar vikur og leikið
nokkra æfingaleiki í meistára-
flokki. Hefur Valur náð beztum
árangri, sigrað Fram með 1—0
og KR með 2—0, KR hefur
sigrað Víking með 5—1 og
Fram hefur sigrað Þrótt með
10—0.
Tveir kunnir knattspyrnu-
menn hafa skipt um félag,
Halldór Halldórsson, úr Val,
hefur ákveðið að keppa með
Þrótti í sumar og mun hann
jafnframt þjálfa hjá Þrótti. Þá
hefur Albert Guðmundsson til-
kynnt, að hann muni keppa
með Val í sumar. Þó mun hann
ekki háfa réttindi til þess að
leika fyrir sitt gamla félag
fyrr en eftir 20. maí.
Hólmbert Friðjónsson sigur-
vegari í Drengjahlaupi UMFK
Hið árlega drengjahlaup
Ungmennafélags Keflavíkur fór
fram sunnudaginn 19. april.
Þátttaka í hlaupinu var góð
eins og ávallt áður, eða 20
keppendur. Hlaupaleiðin var sú
sama og undanfarin ár en hún
er kringum 2000 metra löng. 1
hlaupinu var keppt um tvo
bikara. Hlýtur sigurvegari
hlaupsins amian en hinn það
félag sem sigrar í þriggja
manna sveitakeppni.
Sigurvegari hlaupsins að
þessu sinni var Hólmbert Frið-
jónsson UMFK. Tók hann þeg-
ar í upphafi hlaupsins forust-
una og liélt henni út allt hlaup-
ið. Tími Hólmberts var 5.52.0
mín. 1 fyrra sigraði Hólmbert
einnig í þessu hlaupi og þá á
5.59.8 mín.
Fyrstu 10 menn í hlaupinu
urðu þessir:
Hólmbert Friðjónsson UMFK
5.52.0 mín.
Margeir Sigurbjörnsson UMFK
6.02.0 mín.
Ólafur Gunnarsson UMFK
6.16.0 mín.
Kjartan Sigtryggsson UMFK
6.22.5 mín.
Agnar Sigurvinsson UMFK
6.30.0 mín.
Hörður Karlsson KFK 6.31.0
Ragnar Guðlaugsson KFK
6.31.5 mín.
Magni Sigurhansson KFK
6.38.0 mín.
Einar Magnússon UMFK
6.38.5 mín.
Guðmundur Guðmundsson KFK
6.39.0 mín.
í þriggja manna syeitakeppni
sigraði UMFK með 6 stig. Önn-
ur varð B-sveit UMFK með 18
stig og þriðja sveit KFK með
21 stig. íþróttabandalag Kefla-
vikur mun senda átta keppend-
ur í Drengjahlaup Ármanns,
sem fer fram fyrsta sunnudag 1
sumri.
Nú, þegar vetur hefur kvatt, munu Vafalaust margir tougsa
hlýtt til væntanlegra sól- og sjóbaða í snmar og Eaánna.st
jafnframt liðinna hvíldar- og ánægjustunda á baðstrSndlnni.
íþróttasíðan óskar öllum lesendum sínum gleðilegs siamars.
HANDKNATTLEIKUR;
Orsiit í 2« flokki, hvor
sigrar Volur eðo Árran?
Sennilegt er að síðasti leikur
kvöldsins verði aðalleikurinn,
og sá leikur sem mestur spenn-
ingur verður um, en það er úr-
slitaleikur annars flokks karla.
Þar leika FH, sem vann A-rið-
ilinn og Frarn sem vann B-riðil-
inn. il § 'lf
FH vann alla keppinauta
sína, en eftir að allir leikir
höfðu farið fram í B-riðli voru
jöfn: Fram, Valur og Þróttur
með 4 stig, en Fram hafði hag-
kvæmasta markatölu. Verður
vaíalaust um jafnan leik að
ræða og skemmtilegan.
j Virðist sem þeir Hafnfiroing-
ar séu allákveðnir í að komast
í úrslit í móti þessu því að
á laugardaginn verða þeir í úr-
slitum í þrem leikjum af fimm
og á sunnudaginn í tveím af
þrem! Nánar um það síðar.
Þá getur leikurinn á milli Ár-
manns og alls í meistaraflokki
karla orðið skemmtilegur. Að
vísu er þar aðeins barizt um
það, hver verður neðar eða of-
ar á listanum, og vissulega niiia
þeim vérða það nokkuð kapps-
mál. Bæði liðin hafa sótt sig
er á veturinn leið og þá Ár-
mann alveg sérstaklega núna í
síðustu Ieikjunum.
í meistaraflokki kveima fara
fram tveir leikir, sá fyrri milli
Ármanns og Vals, og mun Á;-
mann ekki i vanda að tryggja
sér bæði stigin, enda. vantar hin-
ar ungu stúlkur í Val, reynslu
á við Ármann. Ármann heíur
ekki tapað le’k hingað til, og
hefur vissulega fullan huga á
að mæta KR í úrslitaleiknum á.
sunnudaginn.
Hinn leikurinn er á milli
Þróttar og Fram, og eru miklar
líkur til þess að sá leikur verði
jafn og skemmtilegur, og næst-
um er ómögulegt að spá hvort
liðið vinnur.
LOKSINS kveður þessi vetur,
og við fögnum sumrinu vel
að vanda. Það væri víst ekki
rétt að segja að veturinn hafi
verið harður, en stórviðrasamt
var þó oft, umhleypingar
miklir, leiðindatíð, eða svo
fannst mér að minnsta kosti.
Og stórviðri þessa vetrar
hjuggu stór og tilfinnanleg
skörð í mannafla okkar, meira
en ..fjórir tugir vaskra ejó-
manpa hurfu í djúpið með
skipum sínum í ofviðrum
þessa vetrar, og við minn-
umst þeirra með þökk og
virðingu. — Nei, það er víst
ekld rétt að kalla þetta harð-
an vetur, en kalt hefur nú
verið síðan á páskum, norð-
an eða norðáustan stormar
BÆJARPÖSTURINN
Gleðilegt sumar — Sumardagurinn íyrsti
Merki dagsins og „Sólskin"
og oft talsvert frost. En nú
ætlar líklega að fara að hlýna
fyrir alvöru, enda ekki van-
þörf á. Sumardagurinn fyrsti
er fyrst og fremst hátíðisdag-
ur bamanna, þann dag eru
haldnar sérstakar skemmtan-
ir fyrir þau í mörgum sam-
komuhúsum, og sjálf fará
bömin i skrúðgöngu um bæ-
inn, veifandi litlum fánum,
en merki dagsins eru seld á
götunum. Ágóðinn af sölu
þeirra merkja rennur til að
efla starf Barnavinafélagsins
Sumargjafar, sömuleiðis ágóð-
inn af sölu barnabókarinnar
,,Sólskin“, sem einnig er seld
á götunum þennan dag. Ég
skal játa að merkjasölur fara
yfirieitt idálítið í taugarnar á
mér; það má líka heita að
manni séu boðin einhver
merki til kaupa alla sunnu-
daga ársins. En til þessa hef
ég alltaf keypt merki á sum-
ardaginn fyrsta með a.m.k.
þolanlegu geði, og oftast hef-
ur einhverjum krakkanum
tekizt að pranga inn á mig
einu „Sólskini" líka. Ég veit
ekki af hverju þetta er, og þó
. . . skapið er yfirleitt í betra
lagi. á sumardaginn fyrsta, og
svona undir niðri er mér jú
fremur vel við krakkana.
Broshýr börn, klædd í sumar-
sparifötin sín, veifandi litlum
íslenzkum fánum, eru líka dá-
samlegar verur og erfitt að
reka slíkt sölufólk á dyr án
þess að kaupa neitt af því.
SUMARKOMAN hefur löngum
orðið íslenzkum skáldum yrk-
isefni og mörg sumarijóð eru
á hvers manns vörtnn, eða
voru það a.m.k. til skamms
tíma. (Annars virðist mér
ljóðakunnátta fólks fara mjög
þverandi). Kvæði eins og Nú
er sumar, gleðjíst gumar,
Vorið er komið og grundirn-
ar gróa, Þegar flýgur fram
á sjá, Þú vorgyðjan evífur, ogr
mörg, mörg fleiri erq. enn
sungin um hver sumarmál, cg
maður kemst í sumarska p
við að heyra þau suhgin. En
sumir hagyrðingar eru svo
alvönúausir, að þeír geta
ekki einu sinni unnt jafn há-
tíðlegum viðburði Og stunar-
komunni alvarlegs kveðskap-
• ar. Ilér er upphaf sumarkvæð-
Framhald á 11. eiðu