Þjóðviljinn - 26.04.1959, Blaðsíða 1
Signrjon <.»nsson 1 V esimannaeyjum tók þessar myiuiir 1 gœtrmorgun íyrir Þjóðvíljann, skömniu eftir að koiniö var með
brezka landhelgisbrjótinn Moritgomery lávarð til Eyja. Á myndinni len.gst til vinstri sést aftur eftir togaranum, miðmyndin
er af Jóhannesi Albertssyni lögregluþjóni á brúArvæng og myndin til hægri af brezka skipstjóranum George Harrisson
að lathuga sjókort í klefa síuum.
ÆFR — 1. maí
fagnaður
Æskulýðsfylkingin held-
ur l.-maí-jagnað í Fram-
scknarhúsinu, 30. apríl
n.k. og hefst skemmtun-
in kl. 9 s d. Margir á-
gætir skemmtikrafíar
munu konia fram á fagn-
aðinnm, m.a. mun Gísii
Malldórsson leikari
skemmta, sunginn verður
tv&öngur, sýndir þjóð-
dansar og f'eira Að lokum
verður dansað. Nánar
verður se.gt frá skemmt-
uninni í Þriðjudagsblað-
inu.
Fylkingarfélagar, eldri
sem yngri eru hvattir til
að fjölnienna á skemmt-
unina og taka með sér
gesti. Aðgöngumiðar e-u
afheritir í skrifstofu ÆFK
; TTornorfötn 20.
lEidur í vélbáti
tJm kl. 3.20 í fyrrinótt var
i slökkviliðið kvatt að skipa-
| smíðastöð Daníels Þorsteinsson-
ar. Þar hafði kviknað í lúkar
vélbátsjns Skóeafoss. Erfiðlega
gekk að komast að eldinum í
fyrstu vegna reylrjarsvælu en
gekk þó allgreiðlega að s'ökkva
og urðu skemmdir ekki miklar.
Montgomery lávarður heíur verið skráður 12
til 13 sinnum íyrir veiðiþjófnað hér við land
Réttarhöld yfir veiðiþjófnum hófust síðdegis í gær — Skipstjórinn var áður á Lord
Plender sem tekinn var síðastur brezkra togara fyrir stækkun landhelginnar í 12 mílur
Frá fréttamanni Þjóðviljans í Vestmannaeyjum. \
Brezki veiðiþjófurinn Montgomery lávarður kom til Vestmannaeyja í gærmorg-un
snemma og klukkan rúmlega 4 í gær — rétt áður en Þjóðviljinn fór í prentun —
hófust réttarhöld yfir skipstjóranum, George Harrisson. Er þetta sámi skipstjórinn
sem tekinn var fyrir þjófnað á öðrum lávarði — Plender — aöfaranótt 29. ágúst s. |
1., en það var síöasti landhelgisbrjóturinn sem tekinn var áður en landhelgin var j
stækkuo. — Montgomery lávarður hefur verið skráður 12—13 sinnum fyrir veiði-
þjófnað síöan 1. september í haust, en ekki var komiö fram í réttarhöldunum
síðdegis í gær hversu lengi Harrisson væri talinn hafa fariö með skipstjórn hans.
Eins og rakið.var í blaðinu í
gær ákváðu eigendur togarans
Montgomerys lávarðar að láta
hann halda til hafnar og hlíta
dómi eftir að hann hafði verið
staðinn að þjófnaði um 9 mil-
ur innan landhelgislínu; er það
hliðstætt fyrirbæri og þegar eig-
endur Valafells heimiluðu að sá
togari væri tekinn í vetur —
þótt brezka stjómin segist sem
kunnugt er ekki viðurkenna
nema 3ja mílna landhelgi.
Réttur var settur kl. rúmlega
4, og er dómari Torfi Jóhanns-
son bæjarfógeti, en meðdómend-
ur með honum Páll Þorbjörns-
son skipstjóri og Þorsteinn
Jónsson skipstjóri Laufási.
Réttarhöldin hófust á því að
skipherrann á Ægi, Þórarjnn
Björnsson, gaf skýrslu um töku
togarans, og hafa meginatriði
þeii-ra atburða áður verið rakt-
ir í fréttum. Vann Þórarinn
síðan eið að framburði sínum.
um, einkum Ægi.
Sérstaklega lýsti skipstjórinn
yfir því aö hann hefði verið
fyrir utan 4 mílur þar sem j
ísflendlngar liefðu a'Aaf leyft
brezkum togurum að veiða í
friði!
Það vakti athygli að skip-
stjórinn á Montgomery lávarði,
George Harrisson, var gamall
kunningi landheigisgæzlunnar.
Var han á Plender lávarði sem
tekinn var síðastur veiðihjófa
fyrir stækkun landhelginnar
langt inni á Breiðaf. og dæmd-
ur 30. ágúst. Ekki er kunnugt
þversu lengi hann verður tal-
inn hafa verið með Montgomery
lávarð, en sá togari hefur verið
skráður 12 til 13 sinnum fyrir
veiðiþjófnað síðan 1. september.
Samkvæmt gildandi lögum er
skipiftjóri einn ábyrgur fyrjr
iandhe]>risbrotum — og þá að
sjálfsögðu þeim einum sem
verða sönnuð upp á hann. Því
var sem kunnugt er haldið fram
að skipstjórinn á Valafelli hefði
verið í sinni fyrstu veiðiferð,
var sá framburðtsr tekinn trú-
Framhald á 12. eíðu.
Ægir sótti þá.
Komið var með veiðiþjófinn
ti 1 Vestmannac^'ja á sjötta tím-
ánum í gærmorgun, en Ægir
hélt þá til Þorlákshafnar og
sótti embættismenn og frétta-
menn. Voru í þeim hópi Valdi-
mar Stefánsson sakadómari,
sérstakur sendimaður ríkis-
stjómarinnar, Gísli ísleifsson
lögfræðingur en hann er verj-
andi veiðiþjófanna á vegum
lögfræðiskrifstofu Lárusar
Fjeldsted, Brian Holt fulltrúi
brezka sendiráðsins, Geir Zoega
umboðsmaður brezkra togara
hér á landi og blaðamenn.
Segist vera saldaus!
Þegar Harrisson skipstjóri
var tekjnn til yfirheyrslu lýsti
hann yfir því að hann væri ekki
sekur. Neitaði hann að hafa ver-
ið á þeim stað, sem mælingar
Ægis sýndu; kvaðst hann að
vísu viðurkenna að mælingaj'nar
frá baujunum sem Ægir setti út
væru réttar en kvaðst alls ekki
hafa verið þar með skip sitt.
Ekki kvaðst hann sjálfur hafa
gert aðrar staðarákvarðanir en
þær að mæla dýpið og hefði
það verið 51 faðmur; radarinn
hefði liann ekki getað notað
vegna truflana frá öðrum skip-
Myndin er tekin í stjórnklefa Montgomerys lávarðar í gærmorg-
un. Skipstjórinn t»l liægri, en til vinstri Kristján Georgsson,
umboðsmaður brezkra tógara í Vestmannaeyjum. (Lljósm; S.J.)-
Montgomery lávarður og varðskipið Ægir í Vestmannaeyja-
höfn í gærmorgun. (Ljósmynd: Sigurjón Jónsson). ,