Þjóðviljinn - 26.04.1959, Blaðsíða 9
Sunnudagur 26. april 1959 — ÞJÓÐVILJINN
(9
í Þ R Ó T T I R ' mtstmri *
Haukur Engilbertsson sigur-
vegari í 44. Víðavangshlaupi ÍR
Víðavangshlaup ÍR. hið 44. í
röðtnmi fór fram að venju á
sumardaginn fyrsta og var
hlaupið á sömu slóðum og vant
er, byrjað í Hljómskálagarðinum
og endað þar lika. Er leiðin
innan við 3 km. Nítján kepp-
endur voru skráðir til keppn-
innar en fjórir mættu ekki til
leiks. Voru flestir frá UMF-
Reykdæla eða sex talsins og
varð sigur\ægarinn þaðan líka,
Haukur Fngilbertsson, sem
kunnur er sem hlaupavi og kom
mjög við sögu á sl. sumri. Var
hann langfyrstur og virtist alls
óþreyttur, þegar hann kom að
marki.
UMS-Eyjafjarðar, UMS-
Skarphéðinn og ÍR sendu 3
menn hvert til hlaupsins. Var
ekki að undra þótt mönnum yrði
tíðspurult um hversvegna eng-
Inn af hinum góðu lilaupurum
KR værl með og eins hvers-
vegna Armann ætti engan full-
trúa í htaupi þessu. Því fékkst
ekki svarað svona á förnum
vegi, en óneitanlega er það til-
efni til hugrenninga og umhugs-
unar fyrir alla aðila sem að
hiaupi bessu standa, sem eru
frjálsiþróttafélögin yfirleitt,
Allir sem lögðu af stað í
hlaupið komu að marki, en sér-
stakur spennfngur var aldrei í
hlaupinu, til þess voru yfirburð-
ir Hauks of miklir. Hafði liann
forustu í hlaupinu alla leið. en
næstur kom okkar ágæti og vin-
sæii Kristján Jóhannsson, sem
áð þessu sinni tók þátt i hlaup-
inu í 10. sinn.
Flokkakeppnina í fimm manna
sveit vann Umf-Reykdæla, enda
eini aðiiinn sem átti menn í
fulla sveit, en þriggja manna
sveitina vann UMS-Skarpliéðinn
með 16 st., önnur varð sveit
UMSE með 18 st., þriðja sveil,
ÍR með 21 st., fjórða A-sveit
Reykdæla með 23 st. og fimmta
B-sveit Reykdæla með 42 st.
ÍR vann báðar sveitirnar í
fyrra.
TJistít og' tími einstakra
tiiiHa.
Haukur Engilbertsson Umf.
Reykdæ’a 8,08,6
Kristján Jóhannsson ÍR 8,30,3
Hafsteinn Sveinsson Skai’phéðni
8,39,8
Jón Gíslason UMSE 8,40,0
Birgir Marinósson UMSE 9,08,0
Jón Guðlaugsson Skarphéðni
9,12,0
Einar Jónssdn Skarpliéðni
9,17,0
Helgi Hólm ÍR 9,19,0
Ófeigur Jóhannesson UMSE
9,36,0
Vigfús Pétursson Umf-Reyk-
dæla 9,36,2
Helgi V. Ólafsson ÍR 9,41,0
Magnús Jakobsson Umf-Reyk-
dæla 10,00,2
Hinrik Guðmundsson Umf-
Reykdæla 10,13,0
Guðlaugur Guðmundsson Umf-
Reykdæla 10,22,0
Sigvaldi Eggertsson Umf-Reyk-
dæla 10,30,0.
„Allt versnandi”.
í þrönginni eftir hlaupið 1-akst
fréttamaður fþróttasíðunnar á
roskirm mann sem virtist mikið
niðri fyrir og opnaði fyrir það
í fullri einlægni og einurð. Það
sem hann sagði var eitthvað á
þessa leið: ,,Allt er þetta versn-
andi, ég hef séð öll hlaupin 44
eða frá byrjun, og þetta er það
lakasta. Aldrej hafa menn kom-
ið jafnilla æfðir tii þessa hlaups.
AJltaf er þátttakan að minnka.
Alltaf er leiðin að styttast, og
leiðin sem hlaupið er nú orðið
er enginn víðavangur lengur.
Hvar eru svo stóru félögin með
alla sína menn, eins og KR og
Ármann, þau áttu engan mann
í hlaupinu. Já þetta er alltaf að
verða lakara og lakar. Og svo
bætir hnn við með glotti: ,.Já
þeir komast ekki áfram fyrir
styrkjum og öllu því sem lagt.
er uppí fangið á þeim!“ Svo
hrissti hann höfuðið, pikkaði
siafnum sínum fast í gangstétt-
ina og hvarf í mannhafið. Svo
geta menn velt fyrir sér, hvort
fullorðni maðurinn hefur eitt-
hvað til síns máls.
Krisíján Jóhannsson hylltur
eftir hlaupið.
Á eftir hlaupið ofhenti Öm
Eiðsson keppendum verðlaun í
hófi sem hlaupurunum var
haldið. Við það tsekifæri var
Kristjáni sérstaklega þakkað
fyrir þátttöku hans í Víðavangs-
hiaupinu í 10 ár. Hefur Krjstján
unnið hlaupið í 4 skipti, verið
5 sinnum í öðru eða briðja sæti
og einu sinni sá sjöundi.
Örn þakkaði utanbæjai-mönn-
unu_m sérstaklega fyrir þátttök-
una og áhugann og kvaðst vona
að áhuginn fyrir hlaupi þessu
færi vaxandi með hverju árinu
sem liði.
Örn Eiðsson lét þess getið að
til mála hefði komið að flytja
KR sigraði Þrótt 3:0 í
fyrsta leik sumarsins
HAUKUR ENGILBERTSSON
Víðavangshlaupið inn í Laugar-
dal, láta það hefjast og enda
á leikvanginum þar en leggja
hlaupaleiðina að öðru leyti um
víðavanginn í dalnum.
Jón Guðlaugsson frá UMS-
Skarphéðni tók undir orð
Arnar í stuttri ræðu sem hann
flutti, þegar hann tók á móti
verðlaunum fyrir 3 manna
sveitakeppnina.. Kvaðst hann
fastlega gera ráð fyrir að allir
beir sem komið hefðu núna
mundu koma næsta ár og senni-
lega margir fleiri.
Með leik Þróttar og KR hófst
knattspyma sumarsins og að
þessu sinni vildi svo skemmti-
lega til að þessi byrjun lenti
á sumardeginum fyrsta. Þar
með hefur knötturinn tekið að
velta og velta og draga að sér
iðkendur og áhorfendur. Enginn
leikur er svo aðalaðandi og eng-
inn leikur dregur eins marga til
sín sem einmitt knattspyman.
Það er því alltaf hlakkað til
leikjanna, og eftirvænting um
það hvort við fáum að sjá betri
leiki en síðast, betri knatt-
spyrnu. Hvað svo með þennan
leik? í fáum orðum sagt var
leikur Þróttar úti á veliinum
betri en ’ maður hafðí búizt við,
en leikur KR ekki eíns góður
og ef til vill hefði mátt vænta.
Sérstaklega voru KRingar
klaufskir upp við mark, og áttu
mörg tækifæri sem þeir hefðu
átt að nota betur. Aftur á móti
vju- framlína Þróttar veikari-:
hluti liðsins.
Vöilurinn var ekki þægilegur
Wolverhampton
dæmt í sekt
Það skeði fyrir stuttu að
enska knattpsyrnuliðið Wolver-
hampton, sem er efst í deilda-
keppninni, var dæmt af Knatt-
spymusambandi Englanids í 250
sterlingspunda sekt. Ástæðan
er sú að félagið hefur snúið
sér til 15 ára skólapilts og
beðið hann að ganga í Wolver-
hampton. Samkvæmt enskum
knattspymureglum er það
bannað að viðlögðum sektum.
staklega voru það þeir Sveinn
og Ellert sem voru slyppifengir
og enda Gunnar Guðmannsson.
Óskar Sigurðsson átti beztu
skotin, og Reynir átti betri
leik en hann hefur sýnt í langan
tíma.
Garðar Árnason var bezii
maður KR-liðsJns og sá sem
mest reyndj að skipuleggja sam-
leik, en samleikurinn var ekki
eins góður hjá KR og í fyrra
haust og ekki eins skemmtilega
leikandi, en það er etv. ekki að
marka svo snemma að vori.
Hörður Felixson var sterkasti
maður varnarinnar, enda ekki -
sérlega flókið að gæta miðherja
Þróttar. Hreiðar Ársælsson er
betri; en hann hefur oft verið
að vori til. Það reyndi ekki
mikið á Heimi í markinu, en
hann virðist öruggur.
Gangiu* leiksins í fáum
orðum.
Leikurinn var aðeins 4 mín.
gamall, þegar Garðar átti hörku
til að leika á lionum, laus og því skot á mark Þróttar en Þórður
Sundmeisaramót íslands
verður liáð í Sundköll Reykja-
víkur n.k. mánudag og miðviku-
dag. Keppendur emi alls skráð-
ir 54.
Fyrri dag mótsins verður
keppt í 100 m skriðsundi karla,
400 m bringusundi karla, 50 m
bringusundi telpna, 100 m
skriðsundi drengja, 100 m bak-
suudi kvenna, 200 m baksundi
karla, 100 m bringusundi
drengja, 200 m bringusundi
kvenna og 4x100 m fjórsundi
karla. Seinni mótsdaginn eru
keppnisgreinar þessar: 400 m
skriðsund toarla, 50 m skriðsund
telnna, 100 m baksund karla,
100 m baksund drengja, 100 m
skriðsund kvenna, 200 m bringu
sund karla, 3x50 m þrísund
kvenna og 4x200 m skriðsund
karla.
Þátttakendur eru sem fyrr
segir 54. frá 4 Reykjavíkurfé-
lögum: Á. ÍR, KR og Ægi, í-
þróttabandalagi Akraness, f-
þróttabandalagi Keflavíkui’,
Sundfélagi Hafnarfjarðar og
Sundráði Akureyrar. Á mótinu
verður nú keppt um forsetabik-
arinn í annað sinn. í fyrra
hlaut Ágústa Þorsteinsdóttir
bikarinn fyrir bezta afrek móts-
ins.
ósléttur þegar farið var að
hlaupa á honum, og nokkuð
bungur. Gerði það samleik erf-
iðari. Veður var aftur á móti
sérlega gott til keppni.
Fyrri hálfleikur var yfirleitt
nokkuð jafn og á miðju vallar-
ins náðu Þróttarar oft góðum
samleik sem þó oftast rann utí
sandinn þegar upp að rnarki
kom. Jón Magnússon, miðherji
Þróttar, var ekki nógu hreyfan-
legur og kunni ekki á því lagið
að losna við miðframvörðinn
Hörð Hinír ungu og efnilegu
innheriar Þróttar, Axel og Órn-
ar, höfðu ekki nógu gott sam-
band við hann heldur. Jens og
Bill (eða Baldur Ólafsson eins
og hann nú heitir) unnu mikið
og gott starf á miðju vallarins,
og rnðu þar meiru en framverð-
ir KR í fyrri hálfleik. Halldór
Halldórsson lék ekki með að
hessu sinni vegna lasleika, og
hefði hann verjð með, má gera
váð fyrjr að Hð Þróttar hefði
verið sterkara. Helgi Árnason
iék miðframvörð og gerði hví
undragóð skil, þar sem það er
ekki hans staður". Marteinn
lék isem bakvörðui’, en hann er
vaniir að vera framvörðui’, og
gerði s+öðunni allgóð skil og var
friskasti maður öfjustu varnai’-
innar. Ff til vill var bað mark-
maðurinn Þói’ður Ásgeii’sson,
sem mesta athygli vakti með
leik sínum í marki. Hann er
kornungur. var i þrið.ia flokki
í fyrra en átti í þessum fyi’sta
leik í meistaraflokki leik sem
l.ofar mjög góðu.
i
S-Iök sko( KR-inga.
KR-ingar náðu betri tökum á
síðari hálfleik, án þess þó að
geta notað sér það með því að
skora mörk. Sumpart voru þeir
óheppnir með skotin, þar sem 3
þeirra fóru í stengur marksins,
og a.m.k. 3 svokölluð opin teeki-
færi sem öll misnotuðust. Sér-
varði meistaralega, og 4 mín.
síðar á Óskar höi’kuskot yfir
slá. Á 18. mín. á Jón Magnús-
son skot rétt framhjá marki
KR. Fyi'sta mai’k skorar Reyn-
ir eftir góð samskipti Ellerts
og hans. Gerðist það á 20. min.
Rétt á eftir átti Axel -Axelsson,
hörkuskot rétt yfir blá horn KR-
marksins. Nokkru áður er E!l-
ert í opnu faeri en sparkið er
misheppnað og knötturinn velt-
ur í hendur Þórðar.
Annað mark KR kom á 40.
mín. og skoraði Óskar Sigurðs-
son það með góðu skoti, og rétt
áður átti hann hörkuskot rétt
yfir þverslá.
Síðari hálfleikur var ekki oins
viðburðarikur og sá fyrri. I-á
yfii’leitt meira á Þrótturum og
var oft þi’öng við mark þeirra.
Skall þá hurð oft nærri hælum.
Á 10. mín. á Gunnar Guðmanhs-
son fast skot, en markmaður
ver, og á 22. mín. á Gunnar
íkot í þverslá. Litlu síðar or
Sveinn fyrir opnu marki on
spyrnir laust framhjá. Þriðja
mai’k KR kom á 32. min. og
skoraði Reynir eftir sendingu
frá Garðari.
Síðasta stundarfjórðunginn
gerðist lítið sem sögulegt má
kalla. Eftir tækifærum heföi
KR getað skorað 3 mörkum
fleira, og gefur markatalan því
ekki rétta mynd af leiknum.
Þjá’fup msmia vix-ðist betri en
maður á að venjast að vori.
Dómari var Einar Hjartarson
og slapp nokkuð vel frá því. Á-
horfendur voru um 1500.
Til
liggui leiðia