Þjóðviljinn - 19.09.1959, Page 3
—— Laugardagur 19. september 1959 — ÞJÓÐVILJINN -— (3
Þið greiðið útsvörin fyrir þá
' Alþýðublaðið birtir í gær á
þriðju síðu bréf frá ungri
móður undir fyrirsögninni
„Þetta er ljót saga“. Unga
konan skýrir þar frá því að
þau hjónin, sem eiga þrjú
börn, hafi ráðizt í að byggja
hús vegna þess að þau gátu
hvergi fengið leigt. I því skyni
stritaði maðurinn myrkranna
á milli, vann öll kvöld, alla
eunnudaga, öll sumarfrí og
komst með þessum þrældómi
upp í 125 þús. kr. tekjur á
s.l. ári. Afleiðingin er sú að
í ár er honum gert að greiða
21.200 kr. í útsvar og 14.996
kr. í skatta. Hann á sem eé
að greiða kr. 5.500 á mánuði
í opinber gjöld, en eðlilegar
mánaðartekjur hans eru kr.
7.800. Og nú spyr konan:
„Eru engin takmörk fyrir því
hvað má ganga langt í að
taka af kaupifólks? Þarf ekki
að skilja nóg eftir svo börn-
in þurfi ekki að svelta, á með-
an fjölmargir borgarar þessa
bæjar lifa í vellystingum
praktuglega ?“
Ástæðan til.þess að þessari
fjölskyldu er gert að greiða
svona hátt útsvar er m.a., að
hún er látin borga úsvör fyrir
ýmsa helztu leiðtoga Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins í Reykjavík. Há-
tekjumenn eins og Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri, Gunn-
ar Pétursson borgarritari,
Guðmundur Benediktsson bæj-
argjaldkeri, Ólafur Thors for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
Bjarni Benediktsson ritstjóri
Morgunbíaðsins, Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra
og Jón Axel Pétursson for-
stjóri Bæjarútgerðar Reykja-
vikur hafa allir fengið eftir-
gefið í útsvari svo skiptir þús-
undum og tugum þúsunda á
mann. Þá upphæð verða aðr-
- ir að greiða fyrir gæðingana.
Þessar eftirgjafir bætast við
skipulögð skattsvik hjá öllum
sem aðetöðu hafa til og nema
milljónum; þá upphæð verða
launþegar einnig að greiða
fyrir skattsvikarana.
Alþýðublaðið svaraði ekki
bréfi ungu konunnar, en full-
trúi Alþýðuflokksins í bæjar-
stjórn, Magnús Ásmarsson,
svaraði í staðinn á bæjar-
stjórnarfundi í fyrradag. Þar
báru fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins fram tillögu, sem jafn-
gilti vítum á þessi endemis-
legu vinnubrögð í útsvars-
álagningu. Tillagan var auð-
vitað felld af bæjarfulltrúum
ihaldsins. Og bæjariulltrúi AI-
þýðuflokksins, Magnús Ást-
marsson, sat lijá. Hann telur
auðsjáanlega sjálfsagt að
ýmsum helztu gæðingum
Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins sé ívilnað í út-
svörum svo skiptir stórfelldum
upphæðum. Hann telur auð-
sjáanlega sjálfsagt að unga
konan, sein skrifaði Alþýðu-
blaðinu, og aðrir launþegar
greiði útsvörin fyrir gæðing-
ana.
Benzínafgreiðslustöð I
sfað nýs útvarpsfiúss
Málið til umræðu á bæjarstjórnarfundi
í fyrradag
Allmiklar deilur uröu um það á síðasta bæjarstjórnar-
fundi, hvort leyfa skyldi Olíufélaginu Skeljungi h.f. aö
reisa benzínsölu á lóö fyrirhugaös útvarpshúss viö Haga-
torg. Fulltrúar íhaldsmeirihlutans í bæjarstjórninni sam-
þykktu aö veita leyfið.
Tímaritið Samvmtian er ktimið
út í nýjum og bættum búningi
Guðmundur Sveinsson skólastjóri Samvinnu-
skólans hefur nú tekið við ritstjórninni
í viðtali viö fréttamenn í gær skýröi ritstjórinn, Guð-
mundur Sveinsson, frá þeim breytingum, sem geröar hafa
verið á tímaritinu og í ráði eru, en fyrsta hefti Sam-
vinnunnar í nýja búningnum er komiö út.
í viðtalinu við frétlamenn rakti ! laugur Rósinkrans 1935—1945,
Guðmundur Sveinsson íyrst sögu Jón Eyþórsson 1945—1947 og
Bæjarráð hafði samþykkt
fyrir sitt leyti á fundi sínum
sl. þriðjudag að gefa Olíufé-
laginu Skeljungi hf. kost á
lóð til benzínsölu "við Bihkimel,
andspænis Birkimel 10. Greiddi
Guðmundur Vigfússon atkvæði
gegn því að leyfið yrði veitt.
Leigusamningur þessi gildir til
ársloka 1964, en eftir þann
tíma getur bæjarráð sagt hon-
Kosið í stjórn Inn-
kaupastofnunar
Reykjavíkur
Á síðasta bæjarstjórnar-
fundi var kosið í stjórn Inn-
kaupastofnunar Reykjavíkur.
Kosnir voru úr hópi bæjar-
fulltrúa og varabæjarfulltrúa
sem aðalmenn í stjórninni
þeir Guðmundur J. Guð-
mundsson, Höskuldur Ólafs-
son, Óskar Hallgrímsson cg
Þorbjörn Jóhannesson,, en til
vara Ingi R. Helgason, Guðjón
Sigurðsson, Magnús Ástmars-
son og Páll S. Pálsson.
um upp með eins árs fyrirvara
og er þá leigutaka skylt að
taka á brott af lóðinni öll
mannvirki bæjarsjóði að kostn-
aðarlausu. >
Flutti Guðmundur Vigfússon
tillögu um það á bæjarstjórn-
arfundinuin í fyrradag, að um- ar
ræddri lóð við Hagatorg sem
ætluð er fyrirhuguðu útvarps-
húsi sem fyrr segir yrði ekki
ráðstafað, en þarfir Skeljungs
leystar til frambúðar á annan
hátt. Felldu íhaldsfulltrúarnir
í hæjarstjórn ásamt Magnúsi
Ástmarssyni þessa tillögu Guð-
mundar með 11 atkvæðum gegn
4 atkvæðum fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins og Framsóknar-
flokksins.
Samvinnunnar, en hún er nú orð-
in 53 ára gömul.
Árin i896 og 1897 stóð Pétur
Jónsson á Gautlöndum fyrir út-
komu nts er nefndist Tímarit
kaupíélaganna en síðan féll út-
gáíu þess niður um ára bil.
Árið 1907 var það hins vegar
endurvasið og varð Sigurður
Jónsson frá Yztafelli þá ritstjóri
þess. Ritstýrði hann því til árs-
ins 1917, er hann varð ráðherra,
en þá tók við af honum Jónas
i Jónsson frá Hriflu. Breytti Jón-
as nafni ritsins árið 1925 í Sam-
vinnan. Jónas hefur lengst alfra
verið ritstjóri Samvinnunnar eða
allt til ársins 1947, en á meðan
hann var ráðherra árin 1927 til
1931 sá Þorkell Jóhannesson, nú
háskólarektor, um ritstjórnina.
.Árið 1947 fluttist Samvinnnn
til Akureyrar og tók Haukur
Snorrason þá við ritstjórn henn-
Breytti ritið þá mikið bæði
um efni og búning. Áður hafði
það verið barátturit fyrir sam-
vinnuhreyfinguna en varð nú
meira heimilisrit. Haukur var
ritstjóri Samvinnunnar til 1951
er Benedikt Gröndal tók við. en
hann hætti störfum um síðustu
áramót og hefur Erlendur Ein-
arsson forstjóri gegnt ritstjóra-
störfum síðan þar til nú. Að-
stoðarntstjórar og blaðamenn
við Samvinnuna hafa verið Guð-
Gísli Sigurðsson 1955—1959.
Hin nýja Samvinna
Samvinnan breytir nú bæði
um efni og búning. Hér eftir
verður hún ekki samvinnurit
heldur fræðslu- og skemmtirit.
OommmaiA
Athugasemd írá Framleiðslnráði
Iandbúnaðarías
Kikjudagur Óháða safnaðar-
ins hér í bœ er á morgun
Hinn. árlegi kirkjudagur Óháða safnaöarins hér í
Reykjavík er á morgun, sunnudag. Er dagur þessi hald-
inn til aö vekja eftirtekt og áhuga á kirkjulegu starfi
og afla fjár til þess.
Guðsþjónusta hefst kl. 2 e.h.
Formaður Bræðrafélags Óháða
safnaðarins, Jón Arason, préd-
ikar, en prestur safnaðarins,
sérá Émil' Björnsson, þjónar
fyrir altari og flytur ávarp
í messulok. Jón Arason hefur
starfað mikið og um langan
aldur að kirkjumálum og verið
formaður Bræðrafélags safn-
aðarins frá stofnun þess. Að
lokinni messu gefst fólki kost-
ur á að láta eitthvað af hendi
rakna í byggingarsjóð kirkj-
unnar eins og venja hefur ver-
ið á þessum degi. Þá verður
Ikaffisala í félagsheimili kirkj-
unnar, Kirkjubæ. Konur úr
kvenfélagi safnaðarins hafa
þar á boðstólum kaffi og
iheimabakaðar kökur og smurt
brauð, eins og hver vill, og
hafa þessar kaffiveitingar jafn-
an verið konunum til hins
mesta sóma vegna þess hve
allt hefur verið stórmyndar-
lega fram borið.
Á sunnudagskvöldið kj. 9
verður samkoma í kirkjunni
með einsöng og kvikmynda-
sýningu. Sýnd verður í fyrsta
sinn kvi'kmynd frá vígslu
kirkju Óháða safnaðarins í vor.
Óskar Gíslason tók mynd
þessa.
Starfsemi Óháða safnaðar-
ins hefur vakið athygli víða
um land og þótt til fyrirmynd-
ar. Kirkju'klukkur miklar voru
teknar í notkun nýlega en fjár-
skortur kom í veg fyrir að
■hægt væri að múrhúða og mála
kirkjuna utan í sumar.
(Frá Óháða söfnuðinum).
Þjóðviljanum harst í gær svo-
hljóðandi athugasemd:
„1 tilefni af bréfi því og
tilkynningu sem etjórnir Al-
þýðusambands Islands, Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og
Landssambands iðnaðarmanna
fengu birt í dagblöðunum í
dag um verðlagningu landbún-
aðarvara, þykir Framleiðsluráði
landbúnaðarins rétt að skýra
mál þetta í stuttu máli út frá
sjónarmiði Framleiðsluráðs.
Verkefni sexmannanefndar-
innar eru samkvæmt lögum, að
finna grundvöll, sem feli í sér,
að bændiy; hafi sambærilegar
tekjur við aðrar vinnandi
stéttir og eem verðlagning í
heildsölu og smásölu geti
hvílt á. Þessi grundvöllur er í
rauninni reikningur yfir gjöld
og tekjur bús af ákveðinni
stærð. Er þetta undirstaðan að
verðlagningunni.
Hins vegar ber Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins að ákveða
heildsölu- og smásöluverð á
landbúnaðarvörum í samræmi
við þennan grundvöll.
Þessi lagafyrirmæli hafa ver-
ið í gildi frá árinu 1947 og all-
an tíma, sem liðinn er síðan
hefur sexmannanefndin starfað
samkvæmt þeim. Fulltrúar
neytenda í nefndinni hafa öll
þessi ár unnið að þessum mál-
um í anda laganna, ]:ar til
haustið 1958, að þeir vildu
einnig hafa afskipti af störfum
Framleiðsluráðs, hvað verðlagn-
inguna snerti. Það virðist vera,
að fulltrúar neytenda í nefnd-
inni hafi haustið 1958 lagt ann-
an skilning í hlutverk sitt í
sexmannanefndinni en áður,
þannig að þeim bæri einnig að
hafa áhrif á ákvörðun Fram-
leiðsluráðs um heildsölu -og
smásölukostnað.
í áðurnefndri tilkynningu frá
stjórnum nefndra samtaka
kemur fram, að þau láti full-
trúa sína í sexmannanefndinni
hætta störfum, m.a. vegna þess,
að Framleiðsluráð hafi á s.l.
hausti bætt 85 aurum ofan á
hvert kg dilkakjöts, sem selt
var á innlendum markaði, til
þess að standa straum af út-
flutningi á dilkakjöti. Fram-
leiðsluráð hefur þó verið sýkn-
að í undirrétti í máli út af
þessu.
Ot af þessu vill Framleiðslu-
ráð taka fram að vegna til-
færslu vlrðs milli búvara leiddi
þetta ekki til neinnar lækkunar
á útsöluverði kjötsins og var í
fullu samræmi við grundvöll-
inn. Framfærsluráðið getur því
ekki fundið réttmætt tilefni hjá
samtökunum til þess að láta
Framhald á 11. síðu.
Forsíða Samvinnunnar nýju.
Hefur verið lagt í mikinn kostn-
að við útgáfuna og sagði rit-
stjórinn, að aldrei hefði verið
kostað jafnmiklu fé til útgáfu
nokkurs tímarits á íslandi, sem
þessa nýja heftis Samvinnunnar.
í heftinu eru m.a. fjórar síður
prentaðar í litum en ætlunin er,
að í íramtíðinni verði 16 iit-
prentaðar síður í hverju hefti.
Auk ritstjórans Guðmundar
Sveinssonar, eru tveir nýir blaða-
menn við ritið, Dagur Þorleifs-
son og Sigurður Heiðar. Teikn-
ari verður Hörður Haraldsson,
teiknikennari við Samvinnuskól-
ann. Helgi Sæmundsson og Ind-
riði G Þorsteinsson verða bók-
menntalegir ráðunautar ritsins.
Auglýsingastjóri er Þorvaldur
Ágústsson og framkvæmdastjóri
Gunnar Steindórsson. Þá mun
Hörður Ágústsson listmálari
teikna auglýsingar fyrir ritið og
verða til ráðuneytis um uppsetn-
ingu og umbrot.
í ritinu verða fyrst um sinn
5 fastir greinaflokkar. Björn Th.
Björnsson sér um flokkinn Tíð-
arandi og tízka, dr. Hermann
Einarsson og dr. Sigurður Þórar-
insson um þáttinn Höf og lönd,
Hjörleiíur Sigurðsson listmálari
um þáttinn listir, Lupus mun
skrifa Palladóma um skálda-
þingið og fjallar fyrsti þátturinn
um meistara Þórþerg og loks sér
Skúii Norðdahl arkitekt um þátt-
inn Hús og húsbúnaður. Annað
fast efni í ritinu verður Konan,
kvennasiða, Við eigum heiminn,
síða fyrir unglinga á gelgiu-
skeiðinu og Börnin okkar, barna-
síða. Einnig verður í ritinu fram-
haldssaga og í hverju hefti verð-
ur íslenzkt kvæði og saga, ýmist
íslenzk eða erlend.
Guðmundur Sveinsson sagði að
lokum, að á það yrði lögð á-
herzla að auglýsingar í ritinu
yrðu fremur tii þess að prýða
það en spilla útliti þess, eins
og tíðkazt hefði í íslenzkum blöð-
um, blaðið mundi einnig á næst-
unni taka meiri breytingum,
þetta væri aðeins tilraun. 1 að
væri í sköpun.