Þjóðviljinn - 02.10.1959, Blaðsíða 7
Föstudagur 2. október 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (Tr >
ím/<<W/wi-i
//ífcvvn>9 Rrsvto*#*,
<Z4>, ^
Mo
s*o*~*o.
o-y Oy, /<»V aa*Uo(*v
C/Jtt-rZ'- • J~° J) Uy
\fb+s&d' r^éJ/Ct /n~xyfULjjxt/&*v~v !f//J j*+C&** /t/irUi,^ 4/if
/juCt'yrfj/ jioj) /<</ ++**~
fi/ J Kc«-VVv, Ako^J /fjkutyiJ AtJ (joL sr>~A+s&te-*. /&*£+.
jvds /y^r þ-+- ,&4~* CUUi. f*+ry*. Jtc+
jl/oJ /ryt-flj. i/yywo*. jrpv-niJdov) <>*>*-> /h*/, j*4^/ hdjL: ■/
. OJ/UJa/ Jotjjtf/' ðJc&^L-. /i4*.d
_ ■• f!:: >!■ tíj- ÓJ. r ■ (
A^y/yi J /vuArtji ^t-íV ■*‘**í "*., U/t/orJv* ~ >
rvJ. /KÍ*Um /a*w *. í(H j~** k)' AA~U». +-J /-*,
/kb^ Cy Pv-X> /ó. ftLtZf*. /+*uU J-c ■*~™,-'■>
*y U*~»/*~~* <Jo fy1**' R^í>
jýlarwvi /U/Ufw m ^juC&Xö> *r *uýl4***> /v+ieU ujj/,tr /ROuyyy^
íY\U CÍ*J~t.>/ ry\U/ zJJiÁ J .4u(Xy ' A>J*^UiAy.yjr. /*- /&**/
/ 'yurva.A/. tfrU^ >rt f*eJ) i/áJ /4jJá/ *W /uj
^JccA//JJr ix/-í%A-/ /JU t xra~ófio*-<Jv JílzJ&-. , fa*».
4-/ jftvJ) wxv /‘i-C-0 /*f~y i***' JtéJ
Mynd sem sýnir meginefni bréfs frá einum agenti Framsóknarflokksins við eitt lielzta kaup-
félag landsins til Hannesar Pálssonar, fulltrúa Framsóknarflokksins í húsnæðismálastjórn. Ag-
entinuin hafði verið falið að senda upplýsingar um stjórnmálaskoðanir raamia sem sent hefðu
umsóknir um lán úr byggðarlagi hans, en samvizkan hafði eitthvað vafizt fyrir honum Eftir
að Þráinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hafði rekið á eftir lionum
sendi hann þó njósnalistann ásamt þessu bréfi.
Njósnir og skoðanakúgun
u
í síðasta tölublaði Útsýnar
birtist grein eftir Sigurð Sig-
mundsson formann húsnæðis-
málastjórnar, en þar afhjúpaði
hann á mjög eftirminnilegan
hátt njósna- og skoðanakúgun-
arkerfi helmingaskiptaflokk-
anna í sambandi við úthlutun
húsnæðislána. Birti Sigurður
þar bréf til Hannesar Páisson-
ar, fulltrúa Framsóknarflokks-
ins í húsnæðismálastjórn, frá
einum agenti Framsóknar við
eitt helzta kaupfélag landsins,
en Þráinn Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Framsóknar-
flokksins, hafði falið agentinum
það verkefni að senda Hannesi
upplýsingar um stjórnmála-
skoðanir þeirra manna úr sínu
byggðaúagi sem sæktu um hús-
næðismálalán- Myndin hér að
ofan sýnir meginefni bréfsins,
en nöfn, sem gætu bent á send-
anda eru felld niður — að svo
stöddu.
Þessar skipulögðu njósnir
helmingaskiptaflokkanna hóf
ust 1952, þegar lánadeild smá-
íbúða var stofnuð. íhaldið til-
nefndi þá Ragnar Lárusson til
að úthluta fé og Framsókn til-
nefndi Hannes Pálsson, og þeir
áttu auðvitað að úthluta sam-
kvæmt helmingaskiptaregl-
unni. Flokkarnir báðir skipu-
lögðu svo jafnframt víðtækasta
njósnakerfi, fengu hjá Hannesi
og Ragnari upplýsingar um
hverjir sæktu um lán og létu
þeim svo aftur í té vitn-
eskju um það hverjar væru
stjórnmálaskoðanir umsækj-
enda. Eftir því var lánun-
um síðan úthlutað. En gagn-
var umsækjendum voru þessar
aðstæður síðan notaðar til lof-
orða og hótana: ef þú kýst rétt
skaltu fá lán, ef þú ert á móti
okkur skaltu aldrei fá lán! Á
þennan hátt úthlutuðu þeir
Tekur við njósnalistununi
frá Framsóknaragentunum.
Ragnar og Hannes 40 milljón-
um króna næstu árin, og þótt
nú sé búið að afnema helminga-
skiptakerfið halda þeir iðju
sinni áfram, eins og bréfið hér
fyrir ofan sannar bezt.
Þessar njósnir sem nú eru
sannaðar að fullu eru ömurlegt
dæmi um pólitískt siðleysi og
valdníðslu helmingaskipta-
flokkanna, um þá spillingu sem
er einhver svartasti bletturinn
á opinberu lífi hér á landi um
þessar mundir. Margir hafa
kynokað sér við að trúa frá-
sögnum um kerfisbundnar
njósnir og skoðanakúgun þess-
ara flokka, en nú eru sönnunar-
gögnin birt hverjum manni.
Vilja kjósendur halda áfram að
efla þessa flokka til að halda á-
fram svo smánarlegri iðju?
Helmingaskiptamenn hafa
steinþagað um uppljóstranir
Útsýnar um þetta mál. Eflaust
er þögnin bezta úrræði þeirra,
en hún mun ekki bjarga þeim
undan þyngsta áfellisdómi
þeirra manna sem gera ein-
hverjar kröfur um lágmarkssið-
gæði í íslenzku stjórnmálalífi.
<í>-
Norskur skátaleiðtogi á vegum Banda-
Eags íslenzkra skáta staddur hér
Gilwell-skóli að Úlíljótsvatni
Stjórn Bandalags íslenzkra skáta boöaði blaöamenn
á sinn fund í gær. Tilefnið var að skýra frá starfi norska
skátaleiðtogans Odd Hopp, sem hér hefur dvalizt und-
cnfarna daga og veitt forstööu svonefndum Gilwell-skóla.
Undanfarið hefur dvalið hér
á landi norskj skátaforinginn
Odd Hopp. Hann kom hingað
á vegum Bandalags ísl. s'káta
til þess að veita forstöðu svo-
nefndum Gilwell-skóla, sem
haldinn var í fyrsta skipti héí
á landi dagana 19.—27. sept-
ember s.I.
Odd Hopp er framkvæmda-
stjóri nors'ka skátabandalagsins
og meðai þekktustu leiðtoga
skátahreyfingarinnar. á Norð-
Framhald á 2. síðu.
Smisloff og Petrosjaa voru tald-
ir líklegastir til sigurs
Bled 24. september.
7. umferð 17.—19. september.
Benkö—Tal 0 - 1
Gligoric—Petrosj an 1 — 0
Friðrik—Keres 0—1
Fischer—Smisloff V2-V2
Tal teflir hollenzka vörn
gegn Benkö og beitir aðferð,
sem kunn er úr kóngsindversku
vörninni, til þess að ná sókn
á drottningarvæng. Þessi blanda
úr tveimur byrjunum gefst vel.
Benkö nær hvergi mótsókn, og
óðum saxast á tíma hans. Eftir
18 leiki er timinn þegar á þrot-
um, og verður Benkö þá á sú
skyssa, að gefa kóngsbiskup
sinn í uppskiptum fyrir ridd-
ara. Verður kóngsstaða hans nú
Fréttabréf frá Frey-
steini Þorbergssyni
götótt mjög, eins og Tal sýnir
fram á með snoturri peðsfórn.
Þegar Benkö svo feilur á tíma
í 29. leik, verður mát ekki
varið.
Gegn Gligoric velur Petrosj-
an Caro-Kann vörn, sem hann
hefur mikið dálæti á. Verður úr
þóf mikið, hægfara stöðubar-
átta. Loks komast báðir kepp-
endur í tímaþröng og þó Pet-
rosjan meiri. Gerist þá það,
sem sjaldan skeður, að Pet-
rosjan .leikur af sér. Eins og í
skákinni við Keres í 4. umferð
er það enn 39. leikurinn, en nú
er skyssan mun alvarlegri.
Gligoric teflir þó ekki sem bezt
í biðskákinni, en Petrosjan leik-
ur enn fingurbrjót og gefst upp.
Friðrik teflir Rétibyrjun gegn
Keres og strax í fjórða leik
velur hann veikt framhald, sem
gefur svörtum kost á þægilegu
tafli. Eftir ýmsar vendingar
nær Keres frumkvæðinu og
rýmri stöðu. Þar við bætist
tímaþröng hjá Friðriki, og í 32
leik tekur Keres peð. sem Frið-
rik hélt sig hafa eitrað. Keres
verður þó ekki meint af og
sækir hann nú fram á nýjum
vígstöðvum. Þegar loks fertug-
asta leik er lokið, og tími til
liðskönnunar, eru flestir menn
feigir hjá hvítum, og Friðrik
gefst upp.
Smisloff teflir Caro-Kann
gegn Fischer. Ungi Ameríkan-
inn, sem nú í fyrsta sinn hittir
á hólmi fyrrverandi heimsmeist-
ara, ræðst til kóngssóknar.
Rússanum tekst þó brátt að
byggja upp trausta varnarlínu.
Fer þá Ficher í drottninga-
kaup, og staðan er lík, unz
Smisloff fær færi á að brjóta
upp drottningarvæng andstæð-
ingsins með peðsfórn. Kemur
Smisloff síðan mönnum sínum
í návígi við hvíta kónginn, en
þótt flest sýnist í uppnámi hjá
Fischer tekst Rússanum ekki að
finna neitt afgerandi, og er
skákin fer í bið, er Fischer
sloppinti úr mestu hættunni.
Svo fer og í biðskákinni, að
Fischer tekst að halda á sínu,
og eftir 52 leiki takast friðar-
samningar þessara giæstu full-
trúa eldri og yngri kynslóð-
anna.
Staðan eftir fyrsta fjórðung,
7 umferðir.
1.—3. Petrosjon, Keres og TaS>
4V2 v.
4. Gligoric 31/2 v.
5. —7. Fischer, Smisloff og
Benkö 3 v.
8. Friðrik 2 v.
Nú, þegar keppendur hafa
lokið einföldu móti, ætti út-
koman að gefa nokkra vísbend-
ingu um gengi þeirra, þótt
margt kunni að breytast áður en
næstu 3 fjórðungum lýkur. Við
skulum nú til gamans bera út-
komuna saman við spádóma
fyrir mótið. Vikublaðið T.T. í
Ljúbljana gekkst fyrir skoð-
anakönnun fyrir mótið meða^ ,
keppenda, blaðamanna og
kunnra skákmanna um áætlað-
an árangur keppenda í mótinu.
Síðan var tekið meðaltal af
spádómunum og úrslitin birt
skömmu eftir að mótið hófst,
Útkoman er þessi.
1. Smisloff.
2. Petrosjan.
3. Gligoric.
4. Tal.
5. Keres.
6. Fiseher.
7. Friðrik.
8. Benkö.
Svo virðist sem Keres ætli
að koma á óvart með glæsilegri
frammistöðu á sama hátt og
Smisloff með slakri. Ef skipt
er um sæti hjá þeim fvímenn-
ingum, þá er útkoman ekki .
fjarri spádómum, það sem af
er mótsins. Blaðið birti einiig
spádóma einstakra manna. Við
tökum aðeins spár þeirra, sem
íslenzkir lesendur kannast við.
Þess ber að geta að keppendur
undanskilja sjálfa sig.
Benkö: 1. Petrosjan 2. Smisl-
off 3. Gligoric 4. Tal 5.-7.
Friðrik, Fisher og Keres.
Petrosjan: 1. Smisloff 2. Tal
3. Gligoric 4. Keres 5. Fischer
6. Friðrik 7. Benkö.
Friðrik; 1. Petrosjan 2. Tal
3. Smisloff 4. Gligoric 5. Fisc-
her 6. Keres 7. Benkö.
Tal: 1. Smisloff 2. Petrosjan
3. Gligoric 4. Keres 5. Fischer
6. Friðrik 7. Benkö.
Keres: 1. Smisloff 2. Petrosj-
an 3. Tal 4. Gligoric 5. Fischer
6. Friðrik 7. Benkö.
Gligoric; 1. Smisloff 2.—3.
Keres og Petrosjan 4. Tal 5.—6.
Benkö og Fischer 7. Friðrik.
Aðstoðarmaður Gligorics,
Matanovic: 1. Smisloff 2.-4.
Gligoric Petrosjan og Tal 5.
Keres 6. Fischer 7. Friðrik 8.
Benkö.
Aðstoðarmaður Tals, Aver-
bach. 1.—5. Petrosjan, Tal,
Smisloff, Keres og Gligoric 6.
Friðrik 7. Benkö 8. Fischer.
Dr. Trifunovic: 1. Smisloff 2.
Gligoric 3. Petrosjan 4. Keres
5. Tal b. Fischer 7. Benkö 8.
Friðrik.
Aðstoðarmaður Friðriks,
Darga: 1. Petrosjan 2 —3. Smisl-
off og Gligoric 4. Tal 5. Fisc-
her 6. Keres 7. Friðrik 8. Benkö.
Kona Gligorics, — Danica: X
Smisloff 2. Gligoric 3. Tal 4.
Petrosjan 5. Keres 6. Fischer 7.
Friðrik 8. Benkö.
Fréttamaður — Freysteinn: 1.
Framhald á 10. siðu.