Þjóðviljinn - 02.10.1959, Blaðsíða 12
Alþýðubandalagsfólk! Munið að kjósa G-listann í öllum kgördœmum
,Þessum þrældðmi yerður að linna’
Einqr Olgeirsson: Hefjum sókn i kosningunum í hausf fyrir
sfytfum vinnufima og bœtfum lifskjörum meS gerbreyf-
ingu á efnahagskerfi landsins
Undanfarin ár hefur íslenzkur verkalýöur unniö eins
og í samfelldri vertíðarhrotu, og aldrei hefur vinnutím-
inn veriö lengri en eftir kaupránslögin sem samþykkt
voru 1- febrúar s.l. Þessum þrældómi verður aö linna.
ÞaÖ verður aö tryggja verkafólki sómasamleg lífskjör
fyrir 8 stunda vinnu og stefna að styttingu vinnutímans.
Þetta er hægt að framkvæma með kauphækkun á kostn-
aö auðmanna án þess aö verðlag hækki, með lækkun
skatta og útsvara, meö lækkun húsaleigu og fleiri hliö-
stæöum ráðstöfunum.
í heiminum á tæknisviðinu og séu orðin hættulega mikil. Það
okkur ber að fylgjast nákvæm-! þolir ekki að verkafólk skuli
Á þessa leið komst Einar 01-
geirsson að orði í fyrrakvöld
á sameiginlegum fundi félaga
þeirra sem standa að Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík.
—: 'En til þess að þetta sé
unnt verður að gerbreyta efna-
hagskerfi landsins, hélt Einar
áfram. Þær ráðstafanir sem ó-
hjákvæmilega verður að gera
eru þessar:
1. Það verður að taka af
auðvaldinu þann stórfellda
gróða sem það safnar nú á vax-
andi striti verkafólks. Þetta
verður að gera með því að
þjóðnýta ýms veigamestu fyrir-
tæki í landinu, eins og stærstu
hraðfrystihúsin við Faxafióa og
• *
fundur á iisavl
Alþýðubandalagið í Norður-
landskjördæmi eystra hélt al-
mennan kjósendafund í sam-
komuhúsinu á Húsavík í fyrra-
kvöld. Var fundurinn ágætlega
sóttur og kom þar fram ein-
beittur og sterkur vilji fyrir
því að vinna að sem mestum
sigri Alþýðubandalagsins í
kjördæminu við alþingiskosn-
ingarnar 25. og 26. október n.k.
Framsöguræður á fundinum
fluttu fjórir efstu menn G-
listans í Norðurlandskjördæmi
eystra, Björn Jónsson, Páll
Kristjánsson, Ingólfur Guð-
mundsson og frú Soffía Guð-
mundsdóttir. Röktu þau öll í
ýtarlegum ræðum viðhorfið í
stjórnmálunum og þá miklu
þýðingu sem úrslit alþingis-
kosninga í haust hafa fyrir
hagsmuni og velferð alþýðu-
stéttanna í landinu. Auk frum-
mælenda tók til máls Arnór
Kristjánsson. Fundarstjóri var
Björn Kristjánsson.
þlÓÐVIMINif
Skólar bæjarins eru nú sem
óðast að hefja störf Af þcim
sökum verða þessa dagana
miklar breytingar á útburðar-
starfsliði dagblaðanna. Mó því
búast við að næstu daga vilji
verða nokkur misbrestur sum-
staðar á að blaðið komi skil-
víslega til áskrifenda, en reynt
verður eftir föngum að koma
blaðburðinum í eðlilegt horf
sem allra fyrst.
í Vestinannaeyjum. Það verður
að taka upp ríkisverzlun á olí-
um, vélum, bílum og bygging-
arefni, til þess að gróðinn sem
auðmenn hirða á þeim vett-
vangi komi almenningi til
gagns. Það verður að tryggja
að bankagróðinn sé hagnýttur
fyrir alþýðu landsins með því
að veita löng lán með lágum
vöxtum til húsnæðismála og
annarra framkvæmda sem eru
undirstaða góðra lífskjara.
2. Það verður að taka
upp áætlunarbúskap og tryggja
bætt Iífskjör með aukinni liag-
sýni og sparnaði. Að undan-
förnu liefur mjög mikill hluti
af þjóðartekjum okkar farið í
fjárfestingu, en allt of mikið
af þessari upphæð hefur farið
í súginn vegna skipulagsleysis,
og ailt of IítiII hluti af þessari
upphæð hefur farið til þess að
auka framleiðsluna. Við verð-
um að taka upp hagræna f jár-
festingu sem miðuð sé við það
á markvissan hátt að bæta lífs-
kjörin og stytta vinnutímann.
3. Það verður að hefja tækni-
lega nýsköpun í öllu atvinnu-
lífi Islendinga. Við verðum að
stórauka framleiðsluöflin og
tryggja að aukningin verði al-
menningi til hagsælda. Einmitt
nú er að fara fram gerbylting
Keres efstur er
mótið er hálfnað
Lokið er nú fyrra helmingi
áskorendamótsins í Júgóslavíu.
Úrslit biðskákanna urðu þau,
að F:scher vann Friðrik í skák-
inni úr 12. umferð og Smisloff
vann Friðrik í skákinni úr 13.
umferð en Gligoric og Keres
gerðu þá jafntefli. Skák Smisl-
offs og Fischers úr 14. umferð
varð jafntefli.
Staðan eftir 14. umferð er
þá þessi:
1. Keres
2. Tal
3. Petrosjan
4. Gligoric
5. Smisloff
6. Fischer
7. Benkö
8. Friðrik
10 v.
91/2 V.
81/2 v.
8 v.
6 v.
51/2 v.
5 v.
31/2 v.
Mótið flyzt nú til Zagreb,
þar sem næstu 7 umferðir verða
tefldar. Verður 15. umferðin
tef’.d á morgun og eigast þá
þessir við: Smisloff og Tal,
Keres og Fischer, Petrosjan og
Friðrik, Benkö og Gligoric. Þeir
fyrrtöldu hafa hvítt.
lega með og hagnýta allt það
bezta tafarlaust. Sjálfvirkni í
verksmiðjum er nú mjög að
ryðja sér til rúms; þannig ætla
Sovétríkin að auka sjálfvirkar
verksmiðjur sínar úr 50 í 1300
með sjö ára áætluninni. Við
íslendingar eigum að geta gert
stærstu liraðfrystihús okkar al-
gerlega sjálfvirk, en þá þurfa
þau að vera í almenningseign,
en ekki í eigu braskara sem
myndu nota tæknina til þess
að auka ábáta sinn en kasta
verkafólki út í atvinnuleysi.
Með stóraukinni tækni er hægt
að slá slíkum töfrasprota að
lífskjör gerbreytist á skömm-
um tíma. Við vitum að við höf-
um tök á að framkvæma slíka
gerbyltingu. I tíð vinstri stjórn-
arinnar stóð okkur til boða 400
millj. kr. lán í Sovétríkjunum
ineð 2i/2% vöxtum til 20 ára,
og slíka lánsmöguleika gétum
við einnig hagnýtt til að virkja
fossa okkar og hveri í þágu
alþjóðar.
Áætlanir aíturhalds-
flokkanna
Þetta eru hin stóru og já-
kvæðu stefnumið Alþýðubanda-
lagsins. En afturhaldið boðar
einnig sókn í þessum kosning-
um. Því blæðir í augum að á-
hrif alþýðunnar í þjóðfélaginu
hafa fulla atvinnu. Það óttast
forustu róttækra manna í verk-
lýðshreyfingunni. Það telur ís-
land hafa hættulega mikil sam-
skipti við sésíalistísku löndin.
Auðmönnum finnst þáttur ríkis
og bæja í atvinnurekstrinum
hættulega m;kill og héimta að
fá að kaupa fyrirtækin. Allar
þessar kröfur afturhaldsaflanna
eru nú settar fram opinskátt af
meiri hreinskilni og frekju en
nokkru sinni fyrr; auðmanna-
stéttin íslenzka boðar hreinlega
Framhald á 5 siðu
Einar Olgeirsson
flytur ræðu sína.
im, er a snuoagmn Kei
SÍBS hefur hafið starfrækslu vinnuhælis
hér í Reykjavík, nefnist það Múlalundur
21. berklavarnardagurinn er á sunnudaginn kemur.
Héldu forráðamenn SÍBS fund meö’ blaöamönnum í gær
af því tilefni og sýndu þeim nýtt vinnuhæli, Múlalund,
sem tekið er til starfa hér í bænum.
Berklavafnadagurinn verður upp á Reykjalundi og á árinu var
með líku sniði og undanfarið. tékin upp sú nýbreytni, að aðrir
Seld verða m,arki dagsins og öryrkjar en af völdum berkla-
blaðið Reykjalundur, en það hef-. veiki voru teknir inn á hælið til
ur nú komið út í 13 ár. I fjögurra mánaða dvalar. Hefur
Starfsemi SÍBS á síðasta ári það gefið góða reynslu.
hefur verið með líkum hætti og
áður. Stöðugt er verið að byggja
Gransöe kennir öryrkja að fara með vél, sem rafbræðir plast.
Filturinn í hjólastólnum er varaformaður í félaginu Sjálfsbjör.g.
þlÓÐVIUINN
Föstudagur 2 október 1959 — 24. árgangur — 213. tölublað
Merkasta nýmælið á árinu er
þó tvímælalaust það, að hafin
var starfræksla nýs vinnuhælis
hér 1 Reykjavík fyrir hvers kon-'
ar öryrkja. Er það í samræmi við
þá stefnu félagsins að færa út
starfsemi sína, þannig að hún nái
til allra öryrkja, hverjar orsakir
sem eru til fötlunar þeirra.
Vinnuhælið nýja hefur hlotið
nafnið Múlalundur, er það til
húsa í Ármúla 16, en þar keypti
félagið einnar hæðar hús um ára-
mótin síðustu, er það 125 ferm.
að flatarmáli. í ráði er að byggja
síðar á þessari sömu lóð þriggja
hæða hús, er verður 160 ferm. að
flatarmáli.
Forstöðumaður vi'nnrihælisins
er Kjartan Guðnason. Skýrði
hann svo frá að starfsemi þess
hefði hafizt í maí s.l. Kevpti fé-
lagið 6 vélar, er rafbræða , plast
og fékk hingað danskan sérfræð-
ing, Gransöe að nafni, til þess að
kenna fólkinu á vélarnar. Éru
framleiddar þárna regnkápur á
börn, möppur ýmiskonar og al-
búm, sjóstakkar o. fl. Var frétta-
mönnum boðið að skoða v.erk-
stæðið og framleiðsluna í gær og
eru framleiðsluvörurnar mjög
snotrar og smekklegar' í útliti
og frágangi.
Húsnæðið að Ármúla er þegar
orðið yfirfullt og hefur félagið
nú komið upp saumastofu á
Hjarðarhaga, sem Ingibjörg Hall-
grímsdóttir, sníðameistari veitir
forstöðu.
Alls vinna nú á þessum stöðum
um 20 manns.
Vinnur hver maður aðeins
há'fan daginn, þannig að skipt er
niður á vaktir. Kaup er greitt
Frainhald á 5, siðu