Þjóðviljinn - 30.10.1959, Side 12

Þjóðviljinn - 30.10.1959, Side 12
Fjársöfnun fyrir arabiska flóttamenn Þaö eru taldar vera 48 milljónir heimilislausra manna í 'heiminum og' á sunnudaginn kemur gangast prestar hér í Reykjavík, fyrir forgöngu biskups, fyrir fjársöfn- un, og mun henni verða varið til arabiskra flóttamanna i Palestínu. Sigurbjörn Einarsson biskup skýrði fréttamönnum frá þessu í gær, en íslenzka kirkjan hef- ur á undanförnum árum, fyrir forgöngu þáverandi biskups, Ásmundar Guðmundssonar, iagt nokkurn skerf til hjálpar- starfs meðal flóttamanna, og hefur það verið gert á vegum Lútherska heimssambandsins, en það starfrækir m.a. stærsta spítala í Litlu-Asíu, þar sem 11 þús. manns fá aðhlynningu að meðaltali á ári. Einnig hef- ur það 6 heilsuhæli í Jórdan- íu og 5 í Sýrlandi. í Palestínu eru 900.000 Arabar táldir á vonarveli. f flótta- mannabúðunum þar fæðast ár- lega um 25 þús. börn heimilis- lauss fólks. Héðan voru í fyrra sendir 11 ballar af skreið og nokkuð af ‘ lýsi og kom hvorttveggja sér vel, því eggjahvítuekortur í fæðu þessa fólks hefur verið sérstakt vanidamál lengi. Nú þurfum við að halda vel í horfi með þetta framlag, sagði Sigurbjörn Einarsson biskup. Allir sem eru aflögu- færir eru ótvírætt skyldir til að létta undir með þessu ó- gæfusama fólki, sem af ýmsum ástæðum hefur misst heimili sín og hefur hvergi aðstöðu til að afla sér lífsviðurværis af sjálfsdáðum •— það er hvergi rúm fyrir það í okkar stóra heimi, sagði biskup. Biskup kvað samtök kirkj- unnar manna m.a. reka 48 vinnuhæli fyrir flóttafólk. Sem fyrr segir eru taldar vera 45 milljónir heimilislausra manna í heiminum, þar af 18 millj. í Evrópu. Framhald á 11. síðu. Föstudagur 30. október 1959 — 24. árgangur — 237. tölublað Þeir eru þingmenii Þjóðvarnar Telpa fyrir bíl Sex ára gömul telpa, Sigríð- ur Guðlaugsdóttir Auðarstræti 15 varð fyrir bifreið um hálf sex leytið í gærdag á Snorra- braut, móts við húsið nr. 73, Meiddist telpan á höfði og var flutt í slysavarðstofuna Nýr póstmeistari Matthías Guðmundsson, Ideild- arstjóri tollpóststofunnar, hef- ur verið skipaður póstmeistari frá næstu áramótum að telja, en þá lætur Magnús Jochums- son af störfum fyrir áluurs sakir. Matthías er ú fimmtugs- aldri o" h>efur starfað hjá •póslinurú síðan 1938. , Áðrir umsækjendur voru Helgi B. Björnsson, deildar- stjóri bögglapóststofunnar, Sveinn Björnsson, deildarstjóri bréfapóststofunnar og Þórður Halldórsson póstmaður á Keflavíkurflugvelli. Birgir Kjaran Sjaldan hefur komið skýrar í ljós en nú hverjum leiðtogar Þjóðvarnarflokksins þjóna með framboðum sínum. Framboð þeirra hér í Reykjavík olli því að Sjálfstaeðisflokkurinn fékk 7 þingmenn af 12, enda þótt hann fengi mikinn minnihluta kjós- enda. Leiðtogar Þjóðvarnar hafa þannig fengið því áorkað að tryggja það að Heimdellingurinn Pétur Sigurðsson næði kosningu sem þingmaður Reykvíkinga, og að hinn harðvítugi hernámssinni Birgir Kjaran yrði fyrsti uppbót- artnaður Reykvíkinga. Á annað þúsund af kjósendum Sjálfstæð- isflokksins flýðu listann af and- Innbrot í Seglne h.f. Á fimmtudagsnótt var brot- izt inn í Sögina h.f. við Höfða- tíin og stolið þ&ðan allmiklu af tóbaksvörum. Brotin var rúða í húsinu og síðan farið inn um hana. Hafði þjófurinn á brott með sér 12 pakkalengjur af vindlingum og 50 dósir af píputóbaki. Engu öðru var stolið. Pétur Sigurðsson úð á þessum tveimur fulltrúum hins ofstækisfyllsta afturhalds en framboð Þjóðvarnarflokksins tryggði þeim engu að síður þing- setu. Pétur Sigurðsson og Birgir Kjaran mega því með sanni nefn- ast þingmenn Þjóðvarnar. En As.geir Ásgeirsson, forseti Islands, ræddi í gær við formenn {lingflokkanna um viðhorfin að kosningum loknum. Forsetinn skýrði Einari Olgeirssyni, formanni þingflokks Alþýðubandalagsins, svo frá að Iiann myndi ekki hlutast til um stjórnarmyndunartilraunir, fyrr en núverandi ríkisstjórn hefur sagt af sér. Eins og getið er á öðrum stað lýsir Alþýðublaðið hins vegar yfir þvj í gær að núverandi stjórn muni ekki segja af sér fyrr en búið sé að mynda meirihlutastjórn. Viðræður um myndun slíkrar stjórnar munu þegar hafnar milli forustumanna Sjálfstæðisflokksins og Al- þýðuflokksins. Veturliði opnar sýningu Veturliði Gunnarsson opnar í dag málverkasýningu í Listamannaskálanum. Þrjú ár eru liðin síðan Vet- urliði hafði sýningu hér og eru myndirnar á sýhingu hans ÆFR Farið verður í vinnuferð í ekki hefur það verið tilgangur skálann um helgina. Lagt af þeirra hernámsandstæðinga sem stað á laugardag kl 2 og 8 e.h. — Stundvíslega. Stjórnin. greiddu Þjóðvörn atkvæði. Vel heppnuð leikför á vegum Bandalags íslenzkra leikfélaga Sýndi leikritið „Brúðkáup Baldvins" á 25 stöðum á Austur, Norður- og Vesturlandi Leikflokkur Bandalags íslenzkra leikfélaga er fyrir nokkru kominn úr sýningarferð um Austfirði, Norður- og Vesturland. Á næstunni mun flokkurinn sýna á ýmsum stöðum hér sunnan lands. I leikförinni um Austur-, Norð- ur- og Vesturland var lagt 5. sept. sl. og fyrsta sýningin í Hornafirði. Síðan var á næstu fjórum vikum haldið norður og vestur og alls haldnar 28 leik- sýningar á 25 stöðum. sýndur var alþýðlegur, norskur leikur „Brúðkaup Baldvins“, en leik- stjóri og fararstjóri var Þóra Borg leikkona. Leikendur voru Emilía Borg, Kristín Jónsdóttir, Valdimar Lárusson, Harry Ein- •arsson og Erlendur Blandon; en auk þess fór leikstjóri með lítið hlutverk. Ljósameistari í förinni var Guðlaugur Magnús- son frá Hafnarfirði. Vel heppnuð för Þóra Borg ræddi stutt- lega við fréttamenn í gær og kvað förina hafa verið hina ánægjuleg- ustu og hafa tekizt ágætlega.' Léiksýningun- um hefði hvarvetna ver- ið vel tekið og leikflokk- Framhald á 11. síðu Leikflokkurinn, sem sýndi ,;Brúðka.up Balrl- vins“ á 25. stöðum á Austur-, Norður- og' Vesturlandi í haust. Frá vinstri; Erlendur Bland- on, Kristín Jóhannes- dóttir, Harry Einarsson, Emilía Borg, Valdimar Lárusson og leikstjór- inn Þóra Borg. flestar gerðar á þrem síðustu árunum, en það eru allt vatns- litamyndir. Málverk Veturliða Gunnars- sonar vekja allijif athygli og umtal og svo mun enn verða. Mæðiveiki á Vestfjörðum? ^ Grunur leikur á að mæði* i veiki sé komin upp í sauðfé j á Múla í Nauteyrarhreppi, en . hvergi annarrstaðar hefur orcj- J ið vart mæðive’ki á þessu | hausti. öl'.u sauðfé á Múla verður slátrað og er Guðmundur Gíslason læknir nú þar vestur frá, ásamt aðstoðarmanni, til að rannsaka lungu fjárins. Vestfirðir hafa fram að þessu sloppið við mæðiveikina, enda var fé fengið þaðan í hin sauðfjárlausu héruð þegar fjárskiptin fóru fram. Átján fórust í ffngslysi 18 manns fórust í gær í flug- slysi í Grikklandi. Flugvél með þriggja manna áhöfn og 15 farþegum rakst á fjallstind í mikilli rigningu um það bil 60 km fyrir norðan Aþenu og fór- ust allir sem með vélinni voru. Flugvé'in var frá gríska flugfélaginu „Olympic Air- ways“ og flaug á flugleiðinni Aþena — Saloniki. inanna fórnst í Mexíkó Nokkur hundruð manna munu hafa farizt af völdum fellibyls og flóða í Mexikó. Á þriðju- dagsnótt gerði fellibyl á Kyrra- hofsströnd landsins og fylgdu honum mikil flóð. Auk hinna dánu, eru -500 manns í sjúkrahúsum vegnæ afleiðinga náttúruhamfaranna og mörg hundruð manna er t aknað. • Alvarlegt ástand ríkir.í.þeim héruðum, sem verst urðu úti í flóðunum. Miklar skemmdir urðu á mannvirkjum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.