Þjóðviljinn - 26.11.1959, Qupperneq 12
þlÓÐVILIINH
■ - - - -■■■■. -•
Pimmtudagur 26. nóvember 1959 ■—- 24. árgangur — 260. tbl.
„Djöfull stimplar
hann vel þessi!“
Dalvíkingar
í hvalskurði
Rétt vika er nú liðin síðan
grindhvalavaða mikil var
rekin á land í Dalvíkurhöfn
og unnin þar, svo sem greint
hefur verið frá í fréttum.
Myndirnar tók Níels Kristins-
son á fimmtudaginn í síðustu
viku. þegar fyrrgreindir at-
burðir gerðust. Á stærri
myndinni sést, þegar Daivík-
ingar unnu að hvalskurðinum
á hafnaruppfyllingunni; minni
myndin var tekin, þegar
hvalavaðan var orðin land-
föst.
Músagildran
í 15. siim
Leikfélag Kópavogs hefur
nú sýnt hinn snjalla saka-
málaleik „Músagildruna“ eftir
Agötu Christie 14 sinnum og
jafnan við mikla aðsókn.
Fimmtánda leiksýningin verð-
ur í kvöld í Kópavogsbíói, en
sýningum fer nú að fækka. —
Myndin er af einu atriði úr
,,Músagiidrunni“: Sigurður
Grétar Guðmundsson og Arn-
heiður Jónsdóttir í hlutverk-
um.
Þrír alþingismenn, Jóhann
Hafstein, Benedikt Gröndal og
Þórarinn Þórarinsson, sátu ár-
legan fund þingmannasam-
bar.ids Atlanzhafsríkjanna, er
fram fór í Washington í síð-
ustu viku.
19. þing Farmaima- og fiski-
mannasamhandsins sett í gær
Nítjánda þing Farmanna- og fiskimannasambands ís-
lands var sett í gær hér í Reykjavík. Mættir eru um
30 fulltrúar víðsvegar af landinu.
Forseti sambandsins, Ásgeir
Sigurðsson skipstjóri, setti
þingið með ræðu. Þingforseti
var kjörinn Þorsteinn Árna-
son vélstjóri og ritari Guð-
Aðalfundur NF
annað kvöld
Norræna félagið heldur að-
alfund í Þjóðleikhússkjallaran-
um annað kvöld. — Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
verður rætt um breytingar á
skipuiagi félagsins og laga-
breytingar. Að aðalfundi lokn-
um verður efnt til kvöldvöku
og flytja þá leikararnir Valur
Gíslason og Klemenz Jónsson
skemmtiþátt, en einnig verður
dansað.
kTpavogur
SÓSÍALISTAFÉLAG
KÓPAVOGS
Aðalfundur félagsins verður haldinn
föstudaginn 27. þm. kl. 8.30 í barna-
skólanum við Digranesveg.
Fundarefni:
1. Venjuleg Aðalfundarstörf.
2. Sigurður Guðnason frv. alþm.
segir frá för sinni til Kína.
mundur Jensson loftskeyta-
maður.
I gær var kosið í nefndir og
byrjað að ræða dagskrármál,
en helztu þeirra eru: Hafnar-
og vitamál, skipabyggingar,
réttindamál sjómanna, sam-
eining á vélfræðikennslu við
Stýrimannaskólann, veðurat-
huganir, hagnýting og með-
ferð fiskjar, ásamt ýmsum
öðrum málum. Búizt er við að
þinginu ljúki á laugardag.
o
o
• •••••••••••••<
f gær var mikill hátíðisdagur
hjá frímerkjasöfnurum, því að
þá komu á markaðinn hvorki
meira né minna en fjögur ný frí-
merki: 90 aura merki, 'svart og
brúnt, með mynd af æðarkollu,
2ja krónu merki, svart og grænt,
líka með mynd af æðarkollu, 25
aura merki, blátt, með mynd af
laxi og 5 króna merki, grænt,
með mynd af laxi.
Eins og nærri má geta var
heldur en ekki handagangur í
öskjunni á frí-
merkjamark-
aðinum. Eftir
hádegið brá
fréttamaður frá
Þjóðviljanum
sér niður í
Pósthús til þess
að sjá hverju
fram færi og þar gaf sannarlega
á að líta.
Fyrir utan dyrnar og í gang-
P1
y
inum stóðu nokkrir piltar með
umslög í höndum og hrópuðu
hver í kapp við annan: Útgáfu-
dagsumslög, 2 krónur stykkið!
Blaðamaðurinn vék sér að einum
piltinum og spurði hann hvernig
salan gengi.
— Vel, ég er búinn að selja
700.
— Hvenær byrjaðirðu að selja?
— Klukkan 9 í morgun.
Árshátíá Alþýðubandalagsins í Suð-
urlandskjördæmi haldin á Selfossi
Árshátíð Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi
verður haldin í Tryggvaskála á Selfossi, föstudaginn 27.
nóvember kl. 21.
Ræður og ávörp flytja alþingismennirnir Karl Guð-
jónsson, Hannibal Valdimarsson og Einar Ol.geirsson og
Gunnar Benediktsson, rithöfundur.
Gestur Þorgrímsson og Haraldur Adolfsson skemmta.
Að lokum leikur hljómsveit Óskars Guðmundssonar.
Allir stuðningsmenn G-listans í Suðurlandskjördæmi
vel'komnir meðan húsrúm leyfir.
Aðgöngumiða sé vitjað til Þórmundar Guðmundssonar,
Magnúsar Aðalbjarnarsonar, Skúia Guðnasonar á Sel-
fossi og Björgvins Sigurðssonar á Stokkseyri.
G-LISTINN.
Bandalag kvenna skorar á þing og sf járn að
leita annarra ráða en gengislœkkunar
I ályktun um dýrtíðarmál,
sem samþykkt var á aðalfundi
Bandalags kvenna í Reykjavík
fyrir fáum dögum, var skor-
að á þing og stjórn að „leita
annarra ráða til viðréttingar
íslenzku efnahagslífi heldur en
að lækka skrásett gengi ís-
ienzku krónunnar.“. Ennfrem-
ur: „að Iækka toiia og önnur
aðflutningsgjöld á nauðsynja-
vörum, svo sem matvörum,
fatnaði, vefnaðarvörum og
heimilistækjum, afnema sölu-
skatt af vörum og þjónustu,
koma á fót fullkomnu eftirliti
með húsaleiguokri og hiutast
til um að Iánastofnanir veiti
þeim, sem þurfa á láni að
lialda til að byggja íbúðarhús
til eigin afnota Ián með Iægri
vöxtum og til lengri tíma en
nú tíðkast.“
Fundurinn skoraði á ríkis-
stjórn að herða á eftirliti með
því, að íbúðarhúsnæði sé ekki
tekið til annarra afnota svo
sem fyrir verzlun eða iðnað.
>••••••••••••••<
— Og fyrir hvern ertu að
selja þessi umsiög?
— Jón Agnars. Þetta eru tvær
gerðir og kosta 2 krónur stykk-.
ið.
Þarna eru tveir aðrir piltar að
selja umslög fyrir Jón Agnars og
segjast báðir vera búnir að selja
nokkur hundruð, enda ganga við-
skiptin greitt meðan blaðamaður-
inn sér til.
En það eru fleiri en Jón Agn-
ars, sem hafa gefið út úgáfu-
dagsumslög. Þarna er líka ungur
snáði að selja umslög fyrir hann
Framhald á 11. síðu.
IIús skemmist
af eldi
I fyrrinótt kl. 1,35 var
slökkviliðið kvatt að húsinu nr.
77 í Herskólakampi. Er það
stórt timburhús, lítil íbúð í
norðurendanum en húsgagna-
verkstæði og geymsla í suður-
endanum. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang var eldur laus
í geymslu í norðurhorni húss-
ins og breiddist hann allmikið
út. Tók á annan klukkutíma að
ráða niðurlögum hans. Tals-
vert miklar skemmdir urðu af
völdum eldsins, bæði í íbúð-
inni og á verkstæðinu. Eigandi
hússins er Dagur Óskarsson.
Ármann Kr. EinarSson
Flogið yfir
flœðarmáli
7. Árnabók Ármanns Kr.
Einarssonar-
Ármann Kr. Einarsson hef-
ur sent frá sér 7. Árnabók
sína, og nefnist hún Flogið yf-
ir flæðarmáli. Hefur sagna-
flokkur þessi sem kunnugt er
orðið mjög vinsæll hjá ungling-
um og börnum, einnig erlendis;
í Noregi er fjórða Árnabókin
nú að koma út og tvær þeirra
eiga að koma út í Danmörku
á næsta ári.
Flogið yfir flæðarmáli er
192 síður og skreytt 10 teikn-
ingum eftir Halldór Pétursson.
Útgefandi er bókaforlag Odds
Björnssonar og bókin er prent-
uð í prentsmiðju þess.