Þjóðviljinn - 08.12.1959, Síða 7

Þjóðviljinn - 08.12.1959, Síða 7
Þriðjudagur 8. desember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (7 1. Tveir bókaútgefendur hafa nú í haust séð ástæðu til að krsta nokkrum hnúj;um að . bókaútgáfu Menningnsjóðs. Annar þeirra, Gunnar Einars- son, löngum kenndur við ísá- fold, nú forstjóri Leifturs, f'utti re'ðilestur í útvarpi. Hinn. Ragnar Jónsson, kenndur við smiör'íkisgerðina Smára. kom umvöndunum sín- um á framfæri í dagblaðinu Vísi. Þessir tveir menn hafa án efa gefið út fleir} bækur en nokkrir aðrir Islendingar frá upnhafi nrentlistar og fram á þennan dag. Að óreyndu mætti því æt'a. að dómar þeirra um bókaútgáfu -væru á meira viti byggðir og sanngirni en slegg.iudómar ýmissa beirra, sem aldrei hafa við bókaútgáfu fengizt. En því er ekki að fagna, þegar HókaútnáLi Menningarsjóðs á í hlut. Þá er eins og dóm- greind og þekking þessara á- gætu manna megi s’ín lítils, en skansmunirnir hlauni með þá i gönur. Báðir eru þeir kunn- Ingjar mínir góðir, og þykir mér heldur miður, að starf- semi forlags þess, sem ég vinn við, skuli raska sá.iarró þeirra svo mjög sem raun ber vitni. Þar eð ég taldi enn fremur, að bókaútgefendur hefðu margt annað þarfara nð gera en að bítast innbyrð- is. ætlaði ég að láta hjá líða að svara þeim félögum, þótt rakalausar væru fullyrðingar þeirra og slettur ómaklegar. Eg leit á þær sem staðlitlar hnútur frá 'keppinautum, og raunar nokkurn vott þess. að meðal útgáfubóka Menning ■ arsióðs væru r't, sem um- svifamestu mennirnir í hópi útgefenda hefðu gjarna vilj- að' koma á framfæri — ef þeim hefði dottið það í hug I tíma. En nú hefur þeim Gunnari og Ragnari bætzt liðsauki, har sem er ,,fílósóf- us“ sá, sem 'í gær ritar í Þjó- viljann vreinarstúfinn „Verð- laun—ritlaun". Tekur hann að nokkru i sama streng og hinir frrri siðameistarar, en bætir beirri ásökun við, svo sem til bm o'ðbætis, að for- stöðumenn Bókaútgáfu Menn- insasióðs níðist á íslenzkum rithöfundum og reyni að fleka þá til að afsala sér eignar- rétti á verkum sínum. Gagn- vart svo rlvarlegri aðdróttun osr rakalausri, er naumast hægt að þegja. Þvkir mér þá rétt að svara lítillega allri þrenningurmí. Gunnari, Ragn- ari og ..fiiósófusi", vopna- hróður þeirra. 2. Kjarninn í ádeilum þeirra Gunnars og Ragnars á hendur Bókaútgáfu Menningarsjóðs ■er þessi:, Bókaútgáfa Menningarsjóðs nýtur opinbers styrks. Hún á því ekki að gefa út bækur, sem aðrir bókaútgefendur hynnu að vilja sinna, heldur aðeins þau rit, sem þeir kæra sig ekkj um eða telja sér of- viða að koma á framfæri. Með þeirri stefnu, sem nú ríkir, virðist ,,hið opinbera“ ætla að ganga af annari bókaút- gáfu dauðri. Við þessar kenningar vil ég leyfa mér að gera nokkrar athugasemdir. Hér koma út árlega hátt á Menningarsjóður hefur gefið út allt sem eftir Steplian G. Ckephansson liggur, kvæði hans, brét' og ritgerðir. hin mesta ^varstæða að B.M. sé re'kin með það í huga, að ganga af öðrum bókaútgefend um dauðum. Er mér um það kunnugt, að miklu fremur vakir það fyrir forráðamönn- um hennar, að kosta kapps um útgáfustarfsemi, sem gagnleg má teljast, en önnur forlög sneiða hjá, sakir þess að hún krefst mikillar fjár- festingar en hagnaðarvonin er engin. Hitt finnst mér satt að segja nokkuð óbilgjörn krafa, að B.M. megi aldrei eiga frumkvæði um að gefa út bók, ef einhverjar líkur eru til að hún seljist fyrir kostnaði! Meðan forlagið sinnir fyrst og fremst hinum stóru vehkefnum, sem aðrir útgefendur sneiða hjá, fæ ég Má Menningarsjóður gefa út seljanlegar bœkur ? þriðja hundrað bækur. Stærstu forlögin gefa út 30— 40 bækur hvert. Bókaxitgáfa Menningarsjóðs gaf löngum út 6—10 bækur á ári, en s'íðustu tvö árin hefur hún gefið út nálægt 20 bókum, þar af 10—12 t’l sölu á al- mennum bókamarkaði. Þetta eru öll ósköpin, sem vaxa hinum stóru útgefendum svo mjög í augum. Af þeim um það bil 12 bókum B.M., sem koma á almennan bókamark- að, er' fullúr þriðjungur gef- inn út eingöngu í því skyni, að koma þörfum ritum á framfæri, þótt voniaust megi heita að þau seljist fyrir kostnaði. Um aðrar bækur ýmsar er það að segja, að brugðið getur til beggja vona um sölu þeirra, svo sem löng- um vill verða um útgáfustarf- semi hér á landi. Loks gefur forlagið út margar bækur, sem sameina það tvennt, að vera merlcar bækur og hafa góða sölumöguleika. Hins vegar reynir forlagið að sneiða sem mest hjá þeim flokki bóka, sem verið hefur í stærra lagi hjá ýmsum öðr- um útgefendum. Á ég þar við bækur, sem eru gildislausar með öllu, en eingöngu send- ar á markað í hagnaðarskyni. Geti styrkur sá, sem B.M. nýtur, komið í veg fyrir að útgáfan falli í þá freistni, að gefa út seljanlegt rusl, tel ég honum ekki illa varið. Auðsætt er, að fæst einkafor- lög tel.ia sig geta án þess háttar útgáfustarfsemi verið. Slíkt er að vísu mannlegt, en menningarstarfsemi er það ek!ki. Að vísu er það einka- forlag, sem teljast má til fyr- irmyndar í þessu efni. Eg á þar við Hlaðbúð. Forstjórinn heitir að sönnu Ragnar Jóns- son, en ekkí er sá Ragnar kenndur við smjörlíkisgerð- ina Smára. 3. Styrkur sá, sem B.M. nýtur úr Menningarsjóði, nemur stórum lægri upphæð en þeir Gunnar og Ragnar virða^t gera sér í hugarlund. Sann- leikurinn er sá, að Bókaút- gáfa Menningarsjóðs verður, á svipaðan hátt og önnur forlög, að reka meginhluta starfsemi sinnar fyrir fé það, sem inn kemur fyrir seldar bækur. Útgáfa þessi er að því leyti ver sett en sum önn- ur forlög, að hún býr ekki við eigið húsnæði, á ekki prentsmiðju né bókbands- vinnustofu. Hinn opinberi styrkur gerir henni hins veg- ar kleift að gefa út fremur en ella myndi nokýur þau rit, sem forráðamenn hennar telja eiga erindi á prent, enda þótt vonlaust megi teljast að þau seljist fyrir útgáfukostnaði. Á það t.a.m. við um doktors- ritgerðir og önnur fræðirit. En verulegur hluti styrksins fer til að greiða undirbún- ingsvinnu við kostnaðarsöm og og stór verk, sem litlar eða engar líkur eru til að einka- útgefendur telji sér kleift að láta vinna. Skulu hér nefnd 5 slík verk, sem þegar eru á döfinni: Saga Islendinga, tólf bir.da rit. Siö eru þegar komin út. Orðabók íslenzkrar tungu handa skólum og almenningi, eitt stórt bindi. Verk þetta er þegar vel á veg komið. Blaðagreinar Jóns Sigurðs- sonar, þrjú bindi, sem koma eiga út árið 1961. Lýsing íslenzkra sögustaða, ásamt myndum og unpdrátt- um. Það verk er áætlað 4 bindi. Islenzk skáld siðari akla í vönduðum textaútgáfum, á- samf rækilegum formálum og skýringum. Hér bíða livar- vetna óleyst verkefni, sem full þörf er að sinna. Standa vonir til að útgáfa þessi geti haf’zt innan skamms. Fleiri stórvirki bíða, en fjármagn skortir. 4. Samkvæmt þvi, sem nú; var sagt, má ljóst vera, að það er í þessari grein svarar Gils Guðmundsson, framkvæmdast)óri Menntamálaráðs, á- deilum sem fram hafa komið hér í blaðinu og annarsstaðar á Bókaútgáfu Menning- arsjóðs og verðlauna- veitingar Mennta- mála.ráðs fyrir ís- lenzk skáldrit. ekki skilið að í því sé fólgin stórfelld hætta, þótt það gefi út árlega fáeinar álilegar sölubækur. Það er alger mis- skilningur, að úgáfa þeirra bóka sé styrkt af opinberu fé. Þær eru verðlagðar á sama hátt og bækur annara útgef- enda, með það I huga, að kaupendur beri útgáfukostn- aðinn allan. Væru útgáfubæk- ur Menningarsjóðs óeðlilega lágt verðlagðar, gæti ég ákaf- lega vel skilið, að öðrum út- gefendum þætti nærri sér höggvið. En svo, er ekki. 5. Einhver kynni nú að spyrja Hvað veldur hinu afar lága verði á bókum þeim, 5 að tölu, sem félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvina- félagsins fá fyrir árglald sitt? Er sú útgáfa ekki stórlega styrkt af opinberu fé? Þessu er ekki þannig farið. Ástæðan til hins lága verð er eingöngu sú, hve félagsmenn eru margir og útgáfustarf- semin tiltölulega örugg. Vit- að er fyrirfram nokkurn veg- inn, hvað upplög bókanna mega vera stór, og síðan eru félagsmönnum seldar bækurn- ar á útgáfukostnaðarverði. Eg hef orðið þess var, að ýmsir útgefendur — Gunnar og Ragnar eru ekki einir um það — hafa horn í síðu þeirra bókafélaga, sem hér hafa risið upp á siðari árum 1 þeim tilgangi, að afla fé- lagsmönnum ódýrra bóka. Þeir halda vafalaust, að þessi starfsemi dragi mjög úr annarri bókasölu. Eg er hins vegar sannfærður um, að hér er um misskilning að ræða. E'tt sinn óttuðust bókaút- gefendur það, bæði hér og erlendis, að fjölgun almenn- ingsbókasafna myndi stór- spilla bókasölu og gera bóka- útgáfu torveldari en verið hefði. Reynslan hefur hins vegar sýnt, að ótti þessí var ástæðulaus. Mun hins vegar mega færa að því allsterk rök, að almenningsbókasöfu auki lestrarfýsn manna og löngun þeirra til að eignast nokkurt safn góðra bóka. Á- þekku hlutverki hygg ég að bókafélögin hafi að gegna. Hinar ódýru bækur þeirra hafa orðið stofn að þúsund- um heimilisbókasafna víðs vegar um land. En það er segin saga, að þar sem stofn- inn er kominn, hafa menn. hneigð til að bæta við og auka safnið. Fjölgun heimilis- bókasafna hefur einnig haffc örvand; áhrif á sölu bóka, sem ætlaðar eru til gjafa. Fæstir velja bók til að gefa fólki á þvi heimili, þar sera engar bækur eru fyr;^ En sé vitað, að heimilið eigi vísi að heimilisbókasafni, fer vel á þýí að láta nýja bók flytja þangað vinarkveð.iu um jól og við önnur hátíðleg tækifæri. Mér er nær að halda, að bókafélögin hafi fremur en hitt stuðlað að aukinni bóka- sölu, þegar á allt er litið. 6. Eg vík loks að hinni ein- 'kennile.gu heimspeki, sem ,,fílósófus“ bar á borð fyrir lesendur Þjóðviljans í gær. Ritsmíð hans fjallar einkum um tvénn verðlaun, sera Menntamálaráð hefur heitið íslenzkum rithöfundum, hin fyrri fyrir skáldsögu, hin síð- ari fyrir leikrit. Fyrlf verð- launin, 75 þúsund krónur, hafa þegar verið veitt, svo sem kunnugt er. Þau hlaut Björn Th. Biörnsson fyrir skáldsöguna Virkisvetur. Síð- ari verðlaunin, 30 þús. kr. fyrir nýtt. íslenzkt leikrit, voru aualýst nýlega. Frestur til að skila handritum er til 1 október 1960. ,,F'ílósófus“ tekur upp hanzkann fyrir ís- lenzka rithöfunda og telur þeim hér e'kkj aðeins van- sæmd gerð, heldur af þeim tekinn réttur til að ráðstafá Framhald á 10. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.