Þjóðviljinn - 08.12.1959, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 08.12.1959, Qupperneq 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 8. desember 1959 Má Menningarsjóður gefa út... Framh. af 7. síðu verkum sínum. Og hann bætir við: . . hlýtur fyrrnefndur verknaður að heyra undir þær greinar hegningarlag- anna, sem fjalla um viðurlög fyrir misnotkun eignarréttar- ins.“ Lægra van nú ekki reitt til höggsins: Menntamálaráði hiklaust borið á brýn stórlega refsivert athæfi. Þess eru forn dæmi, að heimspekigrufl hefur stundum leikið iðk- endur sína. grátt. Er helzt að sjá, að svo geti borið enn. Rökin fyrir þessari furðu- legu staðhæfingu ,,fílósófus- ar“ eiga að vera þau, að Menntamálaráð hefur í aug- lýsingum sínum um fyrr- greind tvenn verðlaun áskil- ið Bókaútgáfu Menningar- sjóðs rétt til að gefa verð- launaritin út án þess að sér- sta'kt gjald komi til. Hér er vitanlega um að ræða bæði verðlaun og .ritlaun fyrir fyrstu útgáfu ygrkanna. Til greina gat komið, að tvískipta hvorri upphæð, telja hluta hennar verðlaun og afgang- inn ritlaun. En Menntamála- ráði þótti það þarflaus leik- ur með orð og tölur. Þess vegna var að því ráði horfið, að auglýsa á þann þátt, sem gert var. Auðvitað skilur hver meðalsnotur maður, sem skilja vill, að hér er fyrst og fremst um að ræða rit- laun fyrir það verk, sem til. launin hlýtur og til útgáfu verður tekið. Sú venja hefur hins vegar myndazt, þegar laun fyrir verk eru auglýst fyrirfram með þeim hætti, sem hér var á hafður, að nota orðið verðlaun í stað hins algenga orðs, ritlauna. Enginn, sem auglýsingar þess- ar les og sendir handrit 'í slíka keppni, fer í neinar grafgötur um þau skilyrði, sem þar eru sett. Hann tek- Mannlýsingar eftir Einar H. Kvaran. Bók mánaðarins hjá Almenna hókafélaginu 1 tilefni af hundraá ára afmæli Einars H. Kvarns gefur Almenna bókafélagið út ritgerðasafn eftir hann. Ber safn þetta heitið Mannlýsingar og er úr- val úr ritgerðun; þeim, sem E. H. K. skrifaði um nokkra af samtíðarmönnum s'ínum o. fl. Tómas Guðmundsson skáld hefur annazt va’ið og ritar jafnframt ýtarlegan inngang um rithöfundinn, þar sem hann gerir grein fyrir ævistarfi hans og bókmenntastörfum. Verða Mannlýsingar fyrri bók mánaðarins í desember hjáí AB, en félagið gefur út tvær mánaðarbækur að þessu sinni. Efni Mannlýsinga er sem hér segir: Um Gest Pálsson Ólafur Davíðsson Matthías Jochumsson Indriði Indriðason Björn Jónsson Þorsteinn Erlíngsson Síra Priðrik J. Bergmann Stefanía Guðmundsdóttir Gearg Brandes og íslendingar Hannes Hafstein á stúdentsárunum Skapstórail 'konur Fyrir fjörutíu árum i lærða skólanum Afstaða m'ín til bókmenntanna 1 nokkrum formálsorðumj fyrir bókinni farast Tóm- asi Guðmundssyni orð á þessa leið: ,Öðru efni úr ræðum og ritgerðum Einars H. Kvarans verður væntanlega gerð nokkur skil innan tíðar, í sams konar bindi og þessu, og mun þá um leið verða vikið að blaðamennsku hans og skiptum af al- mennuiry málum“. Mannlýsingar eru 246 bls. að stærð. Verður bókin send til umboðsmanna út um land næstu daga, en send til umboðsmanna út/ um land næstu daga, en í Reykjavík verður hún til afgreiðslu fyrir félags- menn síðari hluta þessarar viku. ur því aðeins þátt í keppn- inni, að hann fallist á skil- yrðin. Aðilar hafa því gert með sér eins konar samning, þar sem gilda fastar reglur, Menntamálaráð með því að auglýsa 'keppnina og þátttak- endur með því að senda hand- rit og taka þátt í henni. Eg fæ því ekki annað séð en það sé fleipur eitt, að Menntamálaráð hafi með þessari tillögu gengið á rétt nokkurs rithöfundar. Öllu heldur má segja, að með þv'í j að bjóða 75 þúsund krónur fyrir rétt til 1. útgáfu með- alstórrar skáldsögu, leggi Menntamálaráð áherzlu á, að rithöfundi beri sómasamleg greiðsla fyrir gott verk. Naumast ætti það að vera fleinn í holdi Islenzkra rit- höfunda, enda hef ég ekki heyrt að þeir ha.fi gagnrýnt þá tilhögun, sem hér hefur verið höfð. Hið eina, sem ég hef heyrt rithöfunda fetta fingur út : af tilefni bókmennaverðlauna þeirra, sem Menntamálaráð hefur auglýst, er það, að gerður sé óeðlilega mikill munur á launum fyrir skáld- sögu og leikrit. Þeir, sem. svo mæla, hafa mikið til síns máls. Það er vafalaust sízt auðveldara að semja gott leikrit en góða skáldsögu. Hitt má þó nefna, að væntanlega hefði höfundur verðlaunaleik- rits nokkrar tekjur af sýn- ingum þess á íslenzku leik- sviði. Þær 30 þús. kr., sem Menntamálaráð heitir, fær höfundur fyrir útgáfuréttinn einan. Og1 allmiklu hærri upp- hæð mun það vera en íslenzk- ir rithöfundar hafa fengið fram til þessa fyrir fyrstu útgáfu á leikriti. 5. desember 1959. Gils Guðimindsson N Ý B Ó K : PENNASIÓÐIR Rit kvenna Ritstjóri Halldóra B. Björnsson. 11 sögur ef'iir 11 höfunda. Við beinum athygli yðar að þessari bók, sem á margan hátt er nýstárleg og mun koma lesendutn á óvart m.a. vegna hins fjölbreytta og á ýmsan hátt óvænta efnisval höfundanna. Meðal höfunda eru konur, sem þegar eru þjóðkunnar fyrir ritverk sín, en aðrar eru nýjar í hópi rithöf- unda og flestum ókunnar. Höíundar: Arnfríður Jóna'Iansdóttir Guðfinna Þorsteinsdóttir (Erla) Halldóra B. Björnsson Líney Jóhannesdóttir Oddný Guðmundsdc'ttir Bósa B. Blöndals Sigríður Einarsdóttir frá Munaðarnesi Steingerður Guðmundsdóttir S'icinunn Eyjólfsdóttir Valborg Bentsdóttir Vilbor.g Dagbjartsdót»íir Þessi bók sýnir að íslenzkar konur kunna að se ftja SKEMMTILEGA SÖGU SVO SEM VERIÐ HEFIR FYRR OG SÍÐjAR HÉR Á LANDI Gísli Sveinsson ur, Guðríður gift Finni Guð- mundssjmi dr. rer. nat. í Reykjavík, Sigríður, nudd- kona á Landsspítalanum, Guðlaug gift og búsett í Eng- landi og Sveinn, flugmaður, búsettur í Hollandi. Öll þau ár, er Gísli var sýslumaður okkar Skaftfell- inga, naut hann þar óskor- aðra vinsælda. Við fráfall hans munu Skaftfellingar senda fjölskyldu hans hug- heilar kveðjur. Ásmundur Sigurðsson. SKIPAUTGCRÐ RIKISINS Herðubreið austur um land til Þórshafnar hinn 12. þ.m. Tekið á móti flutningi í dag til Hornafjarð- ar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Borgarfjarðar, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og Þórshafnar. Farseðlar seldir á föstudag. ATH. Þetta er síðasta ferð skipsins fyrir jól. FERÐAFÓLK — FERÐAFÓLK Vcrzlunin GNOÐ Verzlunin Gnoð er fyrsta verzlunin sem þér sjáið þegar þið komið yfir Elliðaár á leiðinni í bæinn. Verzlunin Gnoð selur snyrtivörur, vefnaðarvörur, smávörur, jólavörur og margt fleira. — Næg bílastæði. VERZLUNIN GNOB — Sími 3-53-82 íþróttir Framh. af 9. síðu Reynir skorað úr vinstra horni teigsins, eftir góða línusend- ingu Karls. Ólafur Ragnarsson skoraði síðasta mark leiksins fyrir Fram, og lauk leiknum þvi með 10:7. I liði KR var langbeztur Karl Jóhannsson, hann skoraði tvö markanna mjög glæsilega og átti mjög góðar sendingar inn á línuna, auk þess sem hann byggði mikið spil upp. Að öðru leyti var liðið mjög jafnt. Framliðið var sömuleiðis mjög jafngott; þó var Guðjón frískastur. Mörkin skoruðu: KR: Stefán og Reynir 3, Karl 2, Bergur og Hörður 1. Fram: Hilmar 2, Karl Ben., Rúnar, Ágúst, Guðjón og Ólafur 1 hver. Sigur KR-liðsins í mótinu er sanngjarn. Mót:nu var elitið af for- manni TBR Gísla Halldórssyni og afhenti hann sigurvegurum verðlaunagripi, en sigurvegar- ar í einstökum flokkum voru þessir: Meistaraf'. kvenna: KR 2. fl. kvenna Valur Mc'starafl. karla KR 1. fl. karla Þróttur 2. fl. karla óútkljáð 3. fl. kar:a Fram —hip— HAPPDRÆTTI HÁSiCOLA ÍSLANDS I dag er nœstsíBasfi söludagur Vinningar í 12. flokki 3.645.000 krónur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.