Þjóðviljinn - 05.01.1960, Page 7

Þjóðviljinn - 05.01.1960, Page 7
Þriðjudagur 5. janúar 1960 -— ÞJÓÐVILJINN — (7 « llll llll refsiloggjof í Sovétrikjtinum Fyrir nokkru hélt 'Boldyréf, dóms.málaráðherra Rússneska sambandslýðveldisins, fund með blaðamönnum og skýrði ■þeim frá ýmsum nýjungum í dómsmálum og refsilöggjöf. Boldyréf skýrði frá því, að frá þvi að 20. flokksþingið var haldið 1956 hefði mikið verið unnið að því að betrumbæta réttarfarið í landinu. Einkum hefði verið bætt úr þeim yf- irsjónum sem framdar voru á . Stalínstímabilinu. Mætti þar nefna, að afnumdar hefðu verið svonefndar „sérstakar ' rannsóknir' á vegum innan- ríkisráðuneytisins, en með of- angreindri aðferð var hægt að taka mál fvrir og dæma án þess að sakborningurinn væri viðstaddur. Hefðu öll slík mál verið endurskoðuð, ásamt mörgum öðrum, og saklausir menn öðlazt frelsi og upp- reisn æru. Þetta tilheyrði f ortíðinni, sa gði ráðherrann, en ofangreind brot á grund- vallarreglum -sósíalíst’ískrar réttvisi hafa haft sin áhrif á ýmis ákvæðí hinnar nýju löggjafar. Spurt er hversvegna ákveð- Ið var að semja nýja refsi- löggjöf. Su refsilöggiöf sem hefur verið í gildi í rússneska lýðveldinu var samin 1924 og hefur verið litið breytt síð- an; það er þv’í eðlilegt að þar sé margt orðið úrelt. Síðan þá hafa orðið margar og mik- ilvægar brevtingar í bióðlíf- inu, og er það þá mikilvæg- ast, hve glænum hefur fækk- að mikið á síðustu árum. Þannig eru þjófnaðir fjórum sinnum fátiðari í Moskvu nú en fyrir stríð. Þessi stað- revnd hefur gert það mögu- legt að létta refsingu við mörgum afbrotum og fækka hæði dómstólum og í lögreglu- liði. Refsilöggjöf Hin nýja refsilöggjöf, sem nú er næstum fullsamin. verð- ur lögð fvrir æðstaráð lýð- veldisins seint á þessu ári. Hún er í höfuðatriðum byggð á þeim drögum að refsilöggjöf fyrir öll Sovétríkin, sem sam- þykkt var á æðstaráðsfundi í fyrra. Annars hefur hvert sambandslýðveldi sína refsi- löggjöf til að betur verði tek- ið tillit til ýmissa erðavenja viðkomándi þjóða. I þessar; refsilöggjöf er mildu. ýtarlegar en í þeirri gömlu gerð grein fyrir því, hvað sé refsivert athæfi og hvaða refsingu beri að ákveða í hverju tilfelli. Þannig eru útilokuð ýmis vafatilfelli, sem ■ gátu leitt til misbeitingar á dómsvaldi. Þá verða refsiákvæði mild- uð. Tekinn verður upp sá háttur að fela minniháttar mál svonefndum almennings- dómstólum. Þessir almenn- ingsdómstólar, sem kosnir eru k á vinnustöðum, taka fyrir smáþjófnaði, ærumeiðingar, tjón af völdum slagsmála og fleira þessháttar. Þeir hafa ékki rétt til að ákveða refs- ingu, en þeir reyna að hafa bætandi áhrif á hinn brotlega með fortölum og ávítum, reyna að fái hann til að bæta án málaferla tjón það, sem hann kann að hafa va'dið o. s.frv. Aðeins eftir amað brot skal manninum stefnt fyrir reglulega dómstóla. Fangeláisvist verður einnig stytt verulega. Aðeins í ör- fáum tilfellum er hægt að dæma menn tií meira en t'íu ára fangelsisvistar. og alls ekki meira en til fimmtán ára Dauðarefsing verður ekki af- numin með öllu, og eru bað morðingjar og hættulegir föð- urlandssvikarar sem til henn- a_r geta unnið. Með góðri hegðun geta menn unnið af sér allt að helming refsivistar. Þó verð- ur margföldum glæpamönnum ekki sýnd sú miskunn. Þeg- ar menn svo hafa afplánað refsingu s'ína, geta þeir fengið því framgengt, að hvergi verði minnzt á dóminn í per- sónulegum skilríkjum þeirra, og eru það þá verkalýðsfé- lögin eða önnur samtök sem biðja dómstólana um slíkt. Þetta er gert til að auðvelda afbrotamönnum að byrja nýtt lxf. Dómstólar Dómstólum verður fækkað. Tryggð verður betri hjálp verjanda við ákærða. Tryggð verður ókeypis vörn eða sókn, ef málsaðili hefur takmörkuð fjárráð. Dóm má aðeins fella eftir fullum sönnunum, en aldrei eftir líkum. Meðlimir kviðdóma verða kosnir til tveggja ára í stað fimm áður, svo að fleira fólk taki virkan þátt ’í dómsmálum. Boldyréf ræddi mikið um það, hve mikil áherzla yrði nú lögð á uppeldisaðgerðgir gagnvart misyndisfólki, en dregið úr beinum refsiaðgerð- um. Hér er einkum átt við al- menníngsdómstólana. Meðlim- ir slíkra dómstóla eru, eins og áður er sagt, kosnir á vinnustöðum, og þeir taka fyrir mál, sem starfsmenn við- komandi vinnustaðar eiga hlut að. Er þá oft skotið á almennum fundi með starfs- fólki og afbrot hlutaðeigandi vinnufélaga rætt fram og aft- ur. Þetta ku hafa góð áhrif. Frétzt hefur, að ýmsir menn, sem hafa t.d. framiið einhvern óskunda í ölæði, hafi beðið um að fá heldur að koma fyrir dómstóla en fyrir um- ræðufund vinnufélaganna. Þvkir þeim þá betra að gjalda nokkra opinbera sekt, en svara til saka fyrir félögum sínum. Þá verður og sá háttur hafð ur á, að dómstólar geta fellt skilorðsbundinn dóm fyrir minn:háttar afbrot, og snú- ið sér síðan til starfsfélaga sakborningsins, verkalýðsfé- lagsms eða slíkra aðila, og beir beð’iir að táka sakborn- ing að sér til upneldis. Spurningar I svörum við beim smirn- ingum sem hinir ýmsu blaða- menn lögðu fram, sagði Boldy- réf m.a. að hann styddi það elndregið að hjónaskilnaðar- mál yrðu gerð mun einfald- ari en nú er, en slík mál hafa kostað gífurlegan tíma og fyrirhöfn hingað til. Þá var ráðherrann einnig spurð- ur, hvernig stæði á þv'i að í Sovétríkjunum, þar sem skýrslugerð væri í bezta lagi, skuli skýrslur um afbrot og glæpi vera ríkisleyndarmál. Ráðlierrann svaraði, að svo hefði ekki alltaf verið, og gæti hann búizt við þvi, að þessari leynd yrði mjög bráð- lega létt af. □ Vel á við að birta á eftir þessari lýsingu á hinni nýju refsilöggjöf Sovétrikjanna frásögn Árna Bergmanns af heimsókn í sovézkan réttar- sal. Fyrir rétti Réttarsalurinn er fremur lítill, hann rúmar varla meira en þrjátíu manns. Við há- borð situr dómarinn og að- stoðar dómendur hans tveir. Fyrst eru vitni kölluð fyrir, þeir áminntir að segja satt og rétt frá og látnir skrifa und- ir yfirlýsingu þess efnis, að þeim sé kunnugt um þá á- byrgð er vitnisburði fylgir. Ákærður er ungur maður, 19 ára að aldri og heitir Vlad'ímir Rjabakon, renni- smiður að atvinnu. Hann er kallaður upp að borði og hon- um sagt, að hann haf; rétt til að ryðja dóminn og’krefjast annarra dómenda og ýmis réttindi hefur hann önnur. ' Málið liggur mjög ljóst fvrir. Þessi ungi maður hafði litið inn í stórverzlunina Détskí mir, séð þar konu nokkra skoða leikföng af miklum áhuga, gripið tækifær- ið, farið ofaní handtösku hennar og stolið þaðan' pen- ingum. En hann hafði ekki fyrr stungið þeim í vasann en hann var gripinn, því að menn höfðu tekið eftiv honum. Öllum vitnum ber saman, og ákærður hefur þegar játað sök sína. En dómarinn spyr samt Rjabakon þennan í þaula. Hann reynir að komast fyrir orsakir þessa afleita verknað- ar. Rjabakon segist ekki geta gefið neina skýringu. þetta kom allt í einu yfir mig seg- ir hann. Dómarinn spvr: Þú hefur máske lágt kaup? Nei, segir ákærði, það er miög sæmilegt. Dómarinn spyr: En máske hafa einhverjir félagar þínir mælt með slíkum fjár- öflunaraðferðum ? Nei, þetta eru beztu strákar, svarar sákborningurinn. Hvað ger- irðu á kvöldin eftir vinnu? spyr dómarinn. Fer í bíó, spásséra með stelpum, horfi á sjónvaro. Þú ert ekki í í- þróttum eða öðru félagslífi, spyr dómarinn. Nei. — Málið vill ekki skýrast. Nema hvað drengurinn seg- ist vita að hann hafi gert sig sekan í mjög slæmu athæfi. Hann lofar að siíkt skuli aldrei henda sig framar. Það var haldinn fundur um mál mitt á vinnustaðnum, segir hann, og ég skammaðist mín mjög mikið. Og svo fékk mamma taugaáfall, þegar við fengum tilkynningu um að ég ætti að mæta fyrir rétti. Nei, ég geri svona nokkuð aldrei aftur. Faðir ákærða, strætis- vagnabilstjóri, segist ekki hafa orðið var við neitt mis- jafnt í fari sonarins áður en þetta slys henti hann. Sam- komulagið hafi verið gott heima fyrir, drengurinn hafi verið fremur hlýðinn. brenni- vín hafi hann drukkið miög hóflega. Hafði hann nóga vasapeninga ? spyr dómarinn. Það má ég segja, svarar fað- irinn. Síðan tók verjandinn til máls. Þetta er ekki venju- legur verjandi, heldur ungur verkfræðingur, sendur frá vinnustað Vladímírs Rjabak- ons honum til trausts og halds. Hann ber bessum unga manni fremur gott orð, hann vinnur vel og hagar sér miög skikkanlega. Þessvegna biðj- um við vinnufélagarnir um, p.ð honum verði sýnd linkitid. Ef hann yrði settur inn, gæti hann lent í háskalegum fé- lagsskap. sem hefði síðan var- anleg áhrif á hann, en í okk- ar hópi, við sitt starf, er hon- um borgið. Þess vegua le°rgj- um við til, cð við tökum dreneinn að okkur og revnum að sjá svo um, að hann mis- stígi sig ekki framar. Að lokum lofar ákærður bót og betrun. Dómurinn kveðinn unp: Riabakon er dæmdur í tugt- húsvist. En dómurinn er skil- orðsbundinn vegna bess að betta er fyrsta afbrot og vinnufélagar srkborningsins hafa borið honum gott orð. Faðir ákærða og konan, sem stolið var frá ganga út og tala saman í mesta bróðerni. Að málaferlum loknum svarar dómarinn spurningum blaðamanna. Hann segir það nú orðið mjög rlgengt, að vinnufélagar sakborninga sendi sinn fulltrúa í réttar- sal með beiðni um skilorðs- bundinn dóm: væri yfirleitt orð'ð við slíkum um1eitunum, ef ákærðuv þætti líklegur til að bæta ráð sitt. Dómstólar sem þessir nefn- ast þjóðdómstólar og fyrir þá koma flest mál nema stór- mál, eins og morðmál og stór- felld fjársvik Hér dæma þrír menn: einn dómari lögfræði- menntaður og tveir menn úr hópi þjóðdómstólafulltrúa. Slíkir menn eru kiörnir í hverju borgarhverfi. Þeir eru úr öllum mögulegum starfs- hópum, og fá 14 daga launað leyfi á hverju ári til að taka Framhald á 11. síðu. Moskvubréf frá Árna Bergmann

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.