Þjóðviljinn - 08.01.1960, Síða 3
iiiiiimiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiii!
iiiiiiiiiiimiiiiiiiiniiimiiiiiii
í fyrrakvöld var haldin þrett- ] riddarar í fuilum herklæðum og
með alvæpni. Hestar þeirra voru
einnig skreytttr og' meðal annars
hafði hver hestur eitt ljós í
ándahátíð U.M.F. Afturelding-
ar í Mosfellssveit og fór hún
fram á grundinni fyrir neðan
Hiégarð, skammt frá íþróttavell-
inum nýja.
Fólkið streymdi að úr sveit-
inni og Reykjavík. Varð brátt
afarmikið fjölmenni þarna sam-
ankomið. Gizkað var á, að yf-
:ir 3000 manns hafi verið þarna
:saman komin, enda hafði flokk-
ur iögreglumanna ærinn starfa
við stjórn á umferðinni.
Hátíðin hófst með biysför frá
barnaskólanum að Brúarlandi. í :
iblysförinni fóru fyrstir ríðandi
. I
í nýútkomnu félagsbréfi Al-
'menna bókafélagsins er skýrt
frá því að næstu mánaðarbækur j
félagsins verði Tvær bandingja-
;sögur eftir Jón Dan og Fölna
:stjörnur eftir danska höfundinn
Kari Bjarnhof í þýðingu Krist-
manns Guðmundssonar.
í Félagsbréf ritar nú sr. Sig-
urður Einarsson í Holti um
Magnús Ásgeirsson skáld, Þórð-
ur Einarsson starfsmaður banda-
ríska sendiráðsins ritar grein
um bók pasternaks, Sívagó
lækr.i. Einnig er í heftinu grein
um danska rithöfundinn H. C.
Branner o.fl.
Fyrsti fundur
ahndritanefudar
Nýstofnuð nefnd, sem vinna
á imdir forystu ríkisstjórnar-
fnnar að endurheimt íslenzkra
handrita frá Danmörku, hélt
fyrs'ia fund sinn í fyrradag.
Formaður nefndarinnar var
kjörinn Einar Ól. Sveinsson
próf., en aðrir nefndarmenn
eru Kristinn E. Andrésson til-
inefndur af Alþýðubandalaginu,
Stefán Pétursson þjóðskjala-
vörður tilnefndur af Alþýðu-
flokknum, Sigurður Ólason hrl.
tilnefndur af Framsóknar-
flokknum og Alexander Jó-
hannesson próf. tilnefndur af
Sjálfstæðisflokknum. Einar Ól.
er tilnefndur í nefndina af
heimspekideild Háskóla íslands.
Ekið & monn-
lausa bíla
1 fyrradag var ekið á tvær
mannlausar bifréiðir hér í bæn-
um og þær skemmdar mikið.
Önnur bifreiðin, 1-314, stóð á
stæciinu við Landsbókasafnið.
Hefur verið ekið á hana ein-
hvemtíma á tímabilinu frá kl.
2 e.h. til 12 á miðnætti og hún
stórskemmd. Hin bifreiðln,
R-7129, stóð við húsið Klapp-
arstíg 16, þegar ekið var á
hana. Hefur það verið gert á
tímanum milli kl. 8 og 9 um
morguninn. Hún var einnig
mikið skemmd. Rannsóknarlög-
reglan biður alla, sem kynnu
að geta gefið. einhverjar upp-
lýsingar um þessar ákeyrslur,
að gefa sig fram.
I hópi þeirra, sem sáust við
brennuna, voru Sku.gga-Sveinn
'og Ketill skrækur.
hvoru eyra og var það frumlegt
og skemmtilegt að sjá. Á eftir
riddurunum gegnu ,,álfar“ og
voru þeir í skrautklæðum. Síðan
komu „álfabörnin“ og þar á
eftir ,,púkar“ og alls kyns lýður.
Þátttakendur gengu í tvöfaldri
röð og báru allir blys.
í lestinni mátti og sjá naut
eitt allmikið og einnig hrút
vænan og geit. Báru dýrin ljós
og bjöllu.
Tilkomumikið var að sjá allt
þetta skrautbúna fólk ganga
með Jogandi kyndla upp holtið
að Hlégarði.
Við bálköstinn biðu álfakóng-
ur og drottning hans skrúðgöng-
unnar. Hjá þeim stanzaði skrúð-
gangan og kveikti drottning á
bálkestinum með blysi sínu og
logaði hann glatt. Því næst
gengu þau kóngur og drottning
í broddi fylkingar meðfram
mannfjöldanum, sem stóð utan
girðingar, umhverfis bálið á tvo
vegu.
Síðan stigu þau á pall og
sungu fyrir fólkið, ásamt með-
limum úr kirkjukór Lágafells-
sóknar.
Ólafur Magnússon frá Mos-
felli, sem var álfakóngur, var
forsöngvari. Álfadrottning var
Gerður Lárusdóttir og aðstoðaði
hún kóng sinn af röggsemi.
Þau sungu ásamt kórnum ým-
is alþýðulög svo sem Nú er glatt
í hverjum hól, Ólafur reið með
björgum fram, Stóð ég úti í
tunglsljósi og m.fl. Álfarnir
dönsuðu á meðan og leiddu með-
limir úr Þjóðdansafélagi Reykja-
víkur dansinn. Ekki létu púk-
arnir sitt eftir liggja heldur
endásentust um allar trissur og
fóru jafnt á höndum sem fótum
og létu yfirleitt öllum illum lát-
um.
Og þarna skaut þeim upp fé-
lögunum Skugga-Sveini og Katli
skræk, og gerðu þeir sig heima-
komna. Þeir komu fólki í hið
bezta skap með tiltektum sínum,
enda voru þær margar og
skemmtilegar.
Flugeldum var skotið upp í
tugatali, sprengingar kváðu við
í öllum áttum, þálið logaði glatt
og lýsti upp umhverfið.
Stórri sól var skotið á loft í
suðurátt og fór hún geysihátt,
sveif síðan yfir mannfjöldann
og lýsti á meðan upp nágrennið
allt. Hún hneig svo til viðar í
norðurátt eins og vera ber.
Ásbjörn Sigurjónsson . á Ála-
fossi hafði með höndum veg og
vanda þessarar sýningar. Stjórn-
aði hann hátíðinni af áhuga og
skörungsskap.
Aðspurður kváðst Ásbjörn
vera mjög ánægður með hversu
vel hefði til tekizt með sýningu
þessa, gott veður og góð stemn-
ing hefði gert sitt til að gera
skemmtunina sem hátíðlegasta.
Ásbjörn kvaðst vilja þakka
öllum þeim er þátt tóku í sýn-
ingunni fyrir góða frammistöðu,
svo og áhorfendum fyrir mjög
prúðmannlega framkomu.
Að lokum kvaðst hann vona
að allir hefðu slcemmt sér vel
og sem flestir kæmu aftur að
ári liðnu.
Riddari með hjálm á liöfði
(Jón á Reykjum Guðmunds-
son).
Skrautklæddur riddari í mannþrönginni. — Teikningar eftir
Ragnar Lárusson.
Eftir --sýninguna fengu gestir
heita súpu í Hlégarði.
Kariakór Reykjavíkur og
Þjóðleikhúsið lánuðu hina fögru
búninga.
í framkvæmdanefnd áttu sæti:
Guðjón Hjartarson, Álafossi;
Einar Kristjánsson, Reykjadal,
og Hreinn Ólafsson, Laugabóii.
Sýning þessi hefur vafalaust
kostað mikla fyrirhöfn og stór
fjárútiát. Margir hafa lagt hönd
á bagga og iagt fram sinn skerf
til að gera sýningu þessa sem
stórkostlegasta, enda tókst hún
í aila staði mjög vel. Býst ég
við að áhorfendur hafi skemmt
sér prýðilega. Það er ánægju-
legt þegar ungmennafélagi í
sveit tekst svo giftusamlega að
halda þrettándann hátíðlegan og
laða til sín fólk úr höfuðstaðn-
um og nærliggjandi sveitum. U.
M.F. Afturelding á þakkir skil-
ið fyrir skemmtan þessa, hún
var skemmtileg og glæsileg.
Núverandi stjórn U.M.F. Aft-
ureldingar skipa þessir aðilar:
Guðjón Hjartarson. formaður;
Arndís Jakobsdóttir. ritari; Tóm-
as Sturlaugsson, gjaldkeri; Reyn-
ir Guðjónsson, varaformaður;
Einar Kristjánsson, meðstjórn-
andi.
Eftir sýninguna var dansað í
Hlégarði frá kl. 10 til kl. 1 e.m.
og var húsfyllir. Árni Norðfjörð
og Sigmundur Júlíusson sáu um
undirleik við söng og dans.
R.
: Vest-
! ræn menning
•
• Bandarikin hafa herstöðvar
• víða um heim til að tryggja lýð-
Jræði og frelsi og gefa frumstæð-
,um þjóðum kost á að bergja á
•dýrð hinnar vestrænu menning-
•ar. Morgunblaðið, sem aldrei
•þreytist á því að vegsama lán
•þeirra þjóða sem hernumdar
*eru, birtir í gær athygiisverða
Jfrétt máli sínu tii sönnunar; þar
• segir svo: „SEOUL, Suður-
•Kóreu, 6. janúar. (Reuter); —
•Bandarísku hernaðaryfirvöldin
*hér tilkynntu að tveir liðþjálfar,
Jsem s.l. laugardag krúnurökuðu
• tvær „ástands“dömur. hafi að-
•eins farið eftir fyrirskipunum. 1
•tilkynningunni er sagt að Me
jHenry kapteinn hafi gefið þess-
•ar fyrirskipanir til að bægja
•kóreönskum konum frá því að
•skera göt í girðingar, iaumast
*inn í fangabúðimar og breiða út
Jkynsjúkdóma . . . Vændi var
Jbannað með lögum í Kóreu 1948,
•en það bann nær ekki til við-
•skipta við erlenda hermenn.
•Kóreanska lögreglan telur að a.
Jm. k. 3QQ0 vændiskonur hafi við-
•skipti við bandaríska herinn.
Það mun vera þess vegna sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt
á það ofurkapp að troða leiðtog-
um ísl. nazistahréyfipgarinnar í
ýms valdamestu embætti þjóð-
arinnar og koma þeim á þing.
Margir hermenn eru sagðir í
föstum reikningi hjá stúlkunum
og greiða skuld sína mánaðar-
lega.“
Morguntalaðið virðist sízt af
öllu sjá nokkuð vafasamt við
þessa sigra vestrænnar menn-
ingar í Kóreu og telur það auð-
sjáaniega mjög til fyrirmyndar
að viðskiptamennirnir launi
fylgikonum sínum með ofbeldi
þegar þeim býður svo við að
horfa. Þó má teljast ólíklegt að
blaðið beiti sér fyrir því að
krúnurakstur verði tekinn upp -i
Kefiavíkurflugvelli; hver veit
nema hermennirnir kynnu ein-
hvern daginn að villast á vænd-
iskonum og hermöngurum eða
stjórnmálamönnum sem þar
tíðka komur sinar í hliðstæðum
erindum.
Sam-
kvæmni
„Allir góðir íslendingar for-
dæma Gyðingaofsóknir og önnur
tákn um nazisma", segir Morg-
unblaðið í gær og heldur áfram:
,.Nazisminn hefur sýnt og sann-
að, að hann er hryllileg glæpa-
stefna.“
Lækkar
ekki
í gengi
SiPurður frá Vigur er farinn
að iðka hagfræði og hefur þeg-
] ar gert hinar sérstæðustu upp-
| götvanir, eins og hans var von
. og vísa. Þannig hefur hann
sannað það tvo daga í röð í
blaði sínu að margskonar gengí
sé á íslenzkri krónu og er bú-
inn að reikna út ein tíu af-
brigði með ærinni fyrirhöfn.
Kenning hans er miðuð við þá
forsendu að ef tollar og skattar
eru lagðir á innfluttar vörur sé
verið að framkvæma gengis-
breytinear. og sé gengið þá jafn-
margvislegt og tollarnir eða
skattarnir; ennfremur séu það
gengisbreytingar ef atvinnu-
greinar fá misiafnan stuðning
hjá stjórnarvöldunum. Sam-
. kvæmt þessari kenningu hefur
enginn gialdmiðill í veröldinni
neitt ákveðið gengi, og öll geng-
isskráning er hrein lokleysa.
i Hætt er við að Sigurður verði
að læra betur ef hann vill auka
gengi sitt sem hagfræðingur;
hins vegar verður gengi hans á
því sviði ekki lækkað me3
nokkru móti. — Austri.
Föstudagur 8. janúar 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (3
iiiiniiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiimiiimimiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiuiiiiiimmmimimiimiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
1 Þúsundir við þrettándabrennu f
I í Mosfellssveit í fyrrakvöld I