Þjóðviljinn - 12.01.1960, Side 12
œiamm ner er nu aoems
ír
9 + 9
Kjarnasprengingar eitruSu andrúmsloftiS
og Bandarikin búast til að byrja aftur
Frá því fyrir einu ári eða síðan stórveldin hættu að Hins vegar ákvað Bandaríkja-
sprengja kjarnorkuvopn í tilraunaskyni hefur stórlega' stjórn nú um áramótin að hún
dregið úr geislavirkni í andrúmslofti og regnvatni hér á skyldi óbundin af fyrra heiti
landi.
Sprengingum kjarnavopna j regnvatni hér á landi sé nokkru
var hætt í byrjun nóvember- minni en á meginlandi' Evrópu
mánaðar 1958, en mælingar á
geislavirkni í andrúmsloftinu
og regnvatninu hér á landi hóf-
ust um svipað leyti á vegum
eðlisfræðistofnunar háskólans.
Páll Theódórsson eðlisfræðing-
ur hefur annazt þessar mæling-
ar.
Hann skýrði svo frá í gær
að sýnishorn af regnvatni væru
tekin einu sinni á mánuði, en
daglega tekin sýnishorn af
geislavirku ryki í andrúmsloft-
inu.
Mælingarnar hafa sýnt að
geislavirkni í andrúmslofti og
sínu um stöðvun tilraunauna
og áskildi hún sér rétt til þess
að hefja hær aftur livenær sem
lienni þætti henta.
Þióðviliinn
Þriðjudagur 12. janúar 1960 — 25. árgangur — 8. tölublað.
Peningaskáp stolið
með tugþúsundum
í fyrrinótt voru framin 5 j um 35 þús. kr. innstæðum,
innbrot hér í bænum, þar af mikið af ávísunum, víxlum o.g
Akresnesbéiar
Frá fréttaritaranum Akranesi.
með 5—10 tonn hver. Búizt er
við að 12 bátar rói í kvöld með
iínu. 3 sildarbátar eru nú úti.
ökpþér
Aðfaranótt sl. sunnudag var
maður með b'íl sinn við Vetr-
argarðinn. Hafðj hann fengið
sér eitthvað í staupinu og vildi
ekki aka, en þá kom þar maður
er bauðst til að aka bílnum
fyrir hann og þá bíleigandinn
það, þar sem hann sá ekki á-
fengi á manninum. Á Njarðar-
götunni tók sá er ók fimm
manns upp í bílinn. Varð lög-
reglan vör við þetta, ók á
eftir manninum og gaf honurq
merki um að nema staðar, en
íiann skeytti því engu. Hófst nú
mikill eltingaleikur upp í Þing-
holtin og þaðan aftur
niður í Lækjargötu o^ inn
Hringbraut. Er komið var inn
I Stakkahlíð var gatan svo
slæm, að vinstri afturhurð bíls-
ins hrökk opin við hristinginn.
Var hraðinn þá um 90 km.
Ökumaðurinn nam þá loks stað-
ar Höfðu sumir af farþegun-
um í bíluum bá fengið tauga-
áfall. Ökumaðurinn var settur
í varðhgld, og kom í liós, að
hann var bæði undir áhrifum á-
fenvis og réttindalaus.
Sömu nótt voru tveir aðrir
ökumenn, karl og kona, tekn-
ir ölvaðir við akstur. Höfðu
þau bæði lent í árekstri og ek-
ið á brott af staðnum.
og í Norður-Ameríku. Geisla-
virknin hefur farið minnkandi
jafnt og þétt á þessu rúma ári
síðan mælingar hófust, en sem
áður segir, er það einmitt sá £JL 1 ft 1_HH
tími sem liðinn er frá því i O I L# lOtliI
kjarnasprengingar voru stöðv-
aðar.
Síðan fyrir réttu ári liefur
geislavirknin hér á landi
minnkað svo, að hún er nú að-
eins einn tíundi þess sem hún
mældist þá í regnvatni og ekki
nema einn tuOiugasti af því
sem hún mældist I andrúms-
loftinu. Það er því engum blöð-
um um það a.ð fletta að geisla-
virknin hér á landi hafði marg-
faldazt meðan kjarnatilraunirn-
ar stóðu yfir, og myndi auk-
ast aftur að sama skapi ef
þær hæfust aftur.
Sérstök ástæða er til að
minnast þessa nú, þegar aftur
eru að hefjast í Genf viðræð-
ur kjarnorkuveldanna þriggja
um algert bann við slíkum til-
raunum, en fulltrúar þieirra
koma aftur saman á fund í dag
eftir mánaðar hlé.
Sovétríkin eru eina kjarn-
orkuveldið sem gefið hefur ó-
tvíræða yfirlýsingu um að þau
muni alls ekki hefja kjarna-
sprengingar að fyrra bragði.
eitt meiri háttar, og eitt inn-
brot var framið á sunnudags-
nóttina. Særsta innbrotið í
fyrrinótt var framið 'í Tré-
smiðju Birgis Ágústssonar að
Brautarholti 6. Þar var stolið
peningaskáp af skrifstofunni,
útvarpsviðtæki og riffli.
Peningaskápurinn er tómur
I gær réru héðan 5 bátar með um no kg. að þyngd. Voru í
línu og voru að koma að í kvöld •honum 17—18 þús. krónur í
peningum og 1—2 þús. kr. í
sparimerkjum. Einnig voru í
skápnum sparisjóðsbækur með
Vinnings-
númerin
Þessi núiner hlutu vinn-
ingana í happdrætti Þjóð-
vil jans: Volkswagenbifreið:
25624.
Vörur eftir eigin vali fyr-
ir 5000 kr.:
3178 98864
Vörur eftir eigin vali fyr-
ir 2000 kr.:
52304 97190 67997 114690
119546.
Vörur eitir eigin vali fyr-
ir 1000 fcr.:
10091 10440 20394 44097
02823 96488 100649 109408
109744 113522
Vinninganna má vitja í
dkrifstþfu Þjóðviljans.
Frœðsla
um sósíalismann og
verkalýðshreyíinguna
Þessa dagana fer fram inn-
ritun í stjórnmálanámskeið
Sósíalistaflokksins og Æsku-
lýðsfylkingarinnar er hefst nú
á fimmtuda.ginn og súendur til
31. marz. Verður námskeiðið
eitt kvöld í viku, á fimmtudög-
um, tveir þímar á kvöldi.
Kennarar verða Einar Ol-
geirsson, Ásgeir Blöndal Magn-
ússon, Sigurður Guðmundsson,
Sverrir Kristjánsson, Björgvin
Sálómonsson og Brynjólfur
Bjarnason. Fjallað verður um
íslenzka þjóðfélagið, verkaíýðs-
hreyfinguna og sósáalismann.
ÞáÞitökugjald fyrir allt nám-
skeiðið er 50 kr. Þátttaka til-
kynnist í skrifstofu Æskulýðs-
fylkingarinnar, Tjarnargötu 20,
feími 17513. Frá námsefninu
Verður ý'iarlega skýrt í æsku-
lýðssíðu nú í vikunni.
Esm uppþot í mið*
bænum í iyrrinótt
Á fyrsta tímanum í fyrrinótt
varð uppþot í miðbænum ineð
líkum hætti og' það, sem varð
nokkru fyrir jólin og frá var
sagt liér í blaðinu á sínum tíma.
Tilefni þessa uppþots var það,
að lögreglan ætlaði að taka pilt,
er var með óspektir í miðbæn-
um, og komu þá fleiri honum
til lijálpar og gerðu aðsúg að
lögreglunni. Lögreglan tók þá
tvo pilta og' fór með þá á lög-
reglustöðina, en liinir koinu á
eftir og safnaðist brátt múgur
og margmenni í kring um lög-
reglustöðina. Köstuðu strákar
Ekki bæjarstjórn-
in — heldur bæj-
arstjorinn
Meinleg prentvilla varð í
blaðinu í fyrradag, þar sem til-
*ærðar voru játningar Morg-
unblaðsins á yfirhilmingum
Guðlaugs Gíslasonar bæjar-
stjóra í Vestmannaeyjum. Stóð
í blaðinu að ,,bæjarstjórnin“
hefði heimilað gjaldketanum að
greiða 105 þús. 'kr. 'í marz í
fyrra, þegar upp komst að þá
upphæð skorti í bæjarsjóð, en
átti auðvitað að vera bæjar-
stjórinn. Sök Guðlaugs var ein-
mitt í því fólgin að hann hilm-
aði yfir með gjaldkeranum og
lét engan vita um sjóðþurrð-
ina, hvorki bæjarfulltrúa né
aðra, fyrr en upp komst níu
mánuðum síðar að þjófnaður-
inn hafði verið miklu stórfelld-
ari en fyrst var ætlað.
steinum í glugga hennar og
brutu tvær rúður. Mannsafnað-
ur þessi stóð í um það bil
klukkustund, en ekki kom til
ncinna átaka og engir lilutu íiein
meiðsli.
í gær kærði Iögreglan nokkra
pilta fyrir sakadómara óg hlutu
þeir sekt fyrir aðild sína að
uppþotinu. Má geta þess, að
einn þeirra, sem nú stóð fyrir
þessu uppþoti, tók einnig þátt
í ólátunum í vetur.
Stolið vimmfötum úi bát
Á sunnudagsnóttina var stolið
vinnufatnaði úr Akraborginni
frá Akureyri, þar sem hún lá
hér í höfninni. Var stolið peys-
um, buxum og skórn, er tveir
skipverjar áttu.
Vestmannaeyja-
bátar með 1601.
Frá fréttaritara Vestm.eyjum.
Á sjó voru í dag 20 bátar og
fengu 100 tonn samtals. Ilæstur
var Leó með IOV2 lest, Gullborg
önnur með 91/2 og Björg NK fékk
9. Á morgun verða 34 bátar á
sjó.
Langjökull er hér og lestar 15
þús. kassa af freðfiski.
Ingimarsmálið
Ingimarsmálið svoncfnda, mál
ágæruvaldsins gegn Ingimar
Jónssyni fyrrv. skólastjóra, kem-
ur til niálflutnings í Hæstarétti
í dag. Hefst málflutningur kl. 2.
fleiri verðmætum skjölum. Ot-
Varpstæ'kið var 5 lampa tæki
nýlegt, brúnleitt að lit og riff-
illinn var 5 skota, kal. 22 með
áföstum sjónauka,
Brotizt var inn í vörubíla-
stöðina Þrótt við Rauðarárstíg
. og stolið þaðan um 100 krón-
um í s'kiptimynt. Einnig var
brotizt inn ’í- Isaga h.f. við
Rauðarárstíg og stolið þaðan
veggklukku, tveim Parkerpenn-
um og 2 nýjum logsuðubrenn-
urum úr vörugeymslu. Þá var
brotizt inn í verksmiðjuna
Sanitas að Klettj og stolið um
100 kr. í skiptimynt. Loks var
brotizt inn í Hampiðjuna að
Stakkholti 4, en þar var engu
stolið,
Innbrotið á sunnudagsnótt’na
Var framið í söluturn í Veltu-
sundi. Þar var stolið nokkru af
sælgæti.
Speidel-inynd-
in fékkst ekki
sýnd í bíéinu
Fulltrúar togaramanua hitta
dr. Krástin á fimmtudaginn
Á fimmtudaginn munu fjór-
ir íulltrúar yfirmanna og há-
seta á brezkum togurum gang'a
á fund dr. Kristins Guðmunds-
sonar, sendiherra Islands í
Bretlandi, oji bera fram til-
mæli um að brezkir landhelgis-
brjótar verði ekki látnir sæta
ábyrg'ð fyrir veiðiþjófnað ef
þeir leita vars við ísland eða
koma til íslenzkrar hafnar með
menn til lækninga.
Samtök yfirmanna áttu
frumkvæði að þessari málaleit-
an. Nú skýrir Daily Mail frá
því að sendiráð íslands hafi
tilkynnt að sendiherrann geti
tekið á móti nefnd togara-
manna klukkan þrjú síðdegis
14. janúar.
Nazistaherliöfðinginn sem
nú er lierforingi NATO
Það er í kvöld sem ÆFR
endurtekur kvikmyndasýn-
ingu sína, sýninguna á
kvikmyndinni um nazista-
og NATO-hershöfðingjann
Speidel „IJndernehnien Teu-
tonenschwert“.
Eins og skýrt var frá í
sunnudagsblaðinu, var ætl-
unin að sýna kvikmyndina
við fullkomnustu aðstæður
og hafði ÆFR tryggt sér
Stjörnubíó í því skyni. Það
loforð' liélt þó elcki, því að í
gær var ÆF tilkyiiní að
ekki gæti orð’ð af sýning-
unni í bíóinu. Ekki voru tök
á að fá inni í öðru bíói og
verður kvikmyndasýningin
því í sýningarsalnum Þing-
holtsstræti 27 og hefst kl.
9 í kvöld (ekki kl. 7).
Auk Speidel-myndarinnar
verður sýnd austur-þýzk
kvikmynd um gyðingaof-
sóknir nazista í Berlín og
Varsjá. Eru menn eindregið
hváttir til að sækja kvik-
myndasýningu þessa. Skýr-
ingar á íslenzku verða í'Iutt-
ar með myndunum.