Þjóðviljinn - 26.01.1960, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 26.01.1960, Qupperneq 3
r Þriðjudagur 26. janúar 1960 ÞJÓÐVILJINN (3 iiiiiiilillllllliilllllllllllllilillllllllllllllllllllllllllllllllllllil>lllliiiiiiiiilliiillllllllllllllillllllllllllllllillllllllllllllillllllll | Rejkvísk alþýða fagnar [ I sigri Dagsbrúnarmanna j Hvar sem verkamenn hittust í gærmorgun var umræðuefni þeirra Dag's- brúnarkosningarnar. Alls- staðar fögnuðu verkamenn sigri A-listans. Þetta var ágætt! var algengasta upp- hrópun verkamanna þegar þeir fréttu um úrslitin. Og einn hafnarverkamann hitti Þjóðviljinn er sagði: Þetta var ágætt. Og nú þurfum við að fylgja þess- um sigri eftir og treysta enn betur einingu félags- manna. Listi. sem borinn er frarn af atvinnurekénd- um og skipaður mönnum, scm eru samþykkir því að skerða kjör verkamanna nú ætti ekkert atkvæði að fá í Dagsbrún, og því þurfum við að koma öllum félögum okkar í skilning um að með því að kjósa lista at- vinnurekenda eru vcrka- menn að vinna gegn sjálf- um sér. Við næstu kosning- ar í Dagsbrún þurfa enn fleiri að neita að fullu og öllu að Ijá atvinnurekenda- lista nokkurn stuðning. Við þurfum að vinna að því að atvinnurekendur dirfist ekki að stilla upp lista í Dagsbrún. En það voru ekki verka- mennirnir einir sem fögn- uðu úrslitunum í Dagsbrún- arkosningunum, hvarvetna þar sem reykvísk alþýða hittist fagnaði hún úrslit- um kosninganna. Reykvísk- um launþegum er ijóst að sigur Dagsbrúnar er einnig þeirra sigur. ji 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 i 11111111 111111111111111111111111111111111111111111 i 11111111111111111111111111111 Starfsaldur ráði veitingu j Skákþing Norð- starfs yfirhafnsögumanns lendinga hafið Haínsögumenn snúa sér til bæjaryfir- valdanna Akureyri. — Frá fréttaritara. Hafnsögumenn hafa skrifaö bæjaiyfirvöldunum og far- 3Ö þess eindregiö a leit aö starfsaldur veiöi látinn ráöa rnestu um veitingu starfs yfirhafnsögumanns. Skákþing Norðlendinga var sett að Hótel KEA á sunnudag- inn og þá tefldar tvær fyrstu umferðirnar. Stööugur vöxtur var í Skeiöará þar til í fyrrinótt, en þá virtist sem vöxturinn heföi stöövast, að minnsta kosti í bili. Björn Jónsson flaug austur yfir Grimsvötn á sunnudaginn með dr. Sigurð Þórarinsson jarðfræðing o.il. Mikið sig var komið í Grímsvötnin, en þó tel- ur dr. Sigurður, að enn sé ekki hlaupinn fram öllu meira en þriðjungur vatnsins eftir fyrri hlaupum að dæma. Þó má telja líklegt að hlaupið hafi nú náð hámarki sínu. Minnkaði nokkuð vatnsmagnið í gær. Ekki eru taldar miklar líkur fyrir eldgosi í Grímsvötnum að þessu sinni, og draga menn þá ályktun af því hve vöxturinn í Skeiðará hefur verið hægur til þessa. Enda þótt Skeiðarárhlaupið hafi náð hámarki er enn geysi- mikið vatnsmagn í Skeiðará og fellur það niður með Skafta- fellsbrekkunum. Hefur vatnið þegar graíið undan 5 símastaur- um og sex staurar að auki eru umflotnir vatni. Vatnið kemur undan jöklin- um á tveim stöðum og er farið að brotna úr jökulröndinni. Að- alvatnsmagnið kemur fram und- ir Jökulfelli, — eins og í hlaup- inu 1954, — en í gær var einnig farið að vaxa í Sandgígjukvísl. Megna fýlu leggur af hlaupinu og er það svipað og í síðasta hlaupi. Bókmenntakynn- ing að Lauga- vegi 13 KI. 8,30 í kvöld hefst bók- menntakynning í ameríska bóka- safninu við Laugaveg. Lesnar. verða að þessu sinni nokkrar smásögur eftir enska höfunda. Fjalla þær allar um hafið og nefnast einu nafni „Stories of the Sea“. Þorvarður Björnsson yfirhafn- sögumaður lætur af starfi í vor fyrir aldurs sakir. Fjórir hafn- sögumenn hafa ,sótt um starfið, þeir Einar Thoroddsen, Kolbeinn Finnsson, Mag'nús Runólfsson og Theódóc Gíslason. Stjórninálasjóiiarniið Fyrir nokkru kom upp kvittur um að bæjarstjórnarmeirihlutinn hefði í hyggju að veita yfir- hafnsög'umannsstaríið samkvæmt Nýr bátur til Neskaupstaðar Frá frétfaritara Þjóð- óiljans, Neskaupstað í gær kom' hingað frá Noregi nýsmíðað íiskiskip, Stefán Ben NK 55, og' 'er það stáiskip. Bát- urinn er 147 lestir, með 400 ha Wickmannvél. Hann er mjög vel útbúinn með nýjustu öryggis- og siglingatækjum. Mannaibúðir eru rúmgóðar og mjög vistlegar og vinnuskilyrði öll hin ákjósan- legustu um borð, Báturinn hreppti vont veður fyrst.a dag heimferðarinnar og reyndist hið ákjósanlegasta sjó- skip. Eigendur eru bræðurnir Ár- sæll og Þorsteinn Júlíussynir en bátur þeirra Langanes sökk við Vestmannaeyjár i fyrra og kem- ur þetta skiþ í stað þess. Skip- stjórí á Stefáni Ben er Einar Guðmupdsson. Báturinn verður gerður út héðan í vetur, fyrst með línu og síðan með net og fer á veiðar síðar í vikunni. Héðan verða gerðir út í vet- ur fjóric stórir bátar. Eru tveir byrjáðir fyrir nokkru en hinir verða tilbúnir eftir fáa daga. Afli • hefur verið dágóður og gæftir sgjmilegar. stjórnmálasjónarmiðum en taka ekki tillit til starfsaldurs um- sækjenda. Um svipað ieyti skrifuðu hafnsögumenn allir nema einn hafnarstjóra og ósk- uðu eindregið að embættið yrði veitt með tilliti til starfsaldurs. Hafnsögumenn fóru þess á leit við Starfsmannafélag Reykjavík- urbæjar að það skærist í málið, og varð félagsstjórnin við þeirri beiðni. ritaði Væjaryfirvöldunum bréf þar sem sjónarmið hafn- sögumanna var stutt. Ekki er langt síðan fyrrver- andi borgarstjóri lagði á það mikla áherzlu í umræðum um veitingu embættis skipulags- stjóra, að fara ætti eftir st^fs- aldri þegar nýir menn væru skipaðir í ábyrgðarstöður á veg- um bæjarins. Samninganefnd! frá Færeyjum Ardegis í dag cr væntan- leg hingað til Reykjavíkur með Dronning Alexandrine nefnd Sjómannafélagsins í Tórshavn í Færeyjum. Kemur hún til samninga- viðræðna við fulltr. Lands- sambands íslenzkra útgerð- mannafélagsins. Erlendur Patursson, er mcðal nefnd- armanna. Eyjabátar fengu 205 tonn í gær Vestmannaeyjum í gær. Frá fréttaritara. Á laugardaginn voru 46 bát- ar á sjó og fengu samtals 142,5 tonn. Stígandj var hæst- ur með 10,2 tonn, Kári með 9,5 og Dalaröst með 7. í dag voru 45 bátar á sjó og fengu sam- tals • 205 tonn. Gullver var hæstur með 9,5 tonn, Ófeigur. með 8,7 og Eyjaberg 8 tonn. | t Keppt er í 3 flokkum. Kepp- endur í meistaraflokki eru 13, í 1. flokki 8 og í 2. flokki 7. Freysteinn Þorbergsson skák- meistari frá Reykjavik keppir sem gestur á mótinu. Skákstjóri er Haraldur Bogason. í 1. umferð fóru leikar þann- ig i meistaraflokki að Stein- grimur Bernharðsson vann Unn- stein Stefánsson. Jónas Halldórs- son van’> Anton Mag'nússon, Jó- hann Snorrason vann Margeir Steingrímsson, en jafntefli gerðu Jón Ingimarsson og Haraldur Ólafsson. Biðskák varð hjá Frey- steini Þorbergssýni og Steinþóri Helgasvni, og hjá Júlíusi Boga- syni og Kristni Jónssyni. Jóhann Helgason sat hjá. I 2. umferð vann Jóhann Snorrason Unnstein, Margeir vann Harald, Kristinn van Jón, Jónas vann Steingrím og Frey- steinn vann Anton. Jafntefli gerðu Júlíus og Jóhann Helga- son. en Steinþór sat h.iá. Þriðja umferð var tefld i gær- kvöld, biðskákir verða tefldar í kvöld en 4. umferð á rnorgun, miðvikudag. • Líðan Aneurins Bevans var slæm í fyrrinótt og skán- aði l'ítið í gær, Hann er þó ekki talinn í yfirvofandi lífshættu. I Láki: Þér leikið dásamlega á munnhörpu, ungi maður Margir eiga ósótta vinnixtga í happdrættis láni ríkissióðs Siður Liis'birtingarblaðs sem út kom á Iaugardaginn eru að heita má þaktar tómum tölum. Þetta eru númer vinningmiða í B-flokki happdrættisláns rík- issjóðs sem eigendur hafa enn ekki vitjað um. Ósóttu vinningarnir eru frá tímabilinu 15. febrúar 1949 til 15. júlí 1959 og skiptir heildar- fjárhæð þeirra hundruðum þús- unda króna. Þarna eru m.a. átta 75 þús. króna vinningar, tveir 40 þús. króna, fjórtán 10 þús. króna og 31 fimm þúsund króna vinn- ingar, auk aragrúa af smærri vinningum: 2000, 1000, 500 og 250 k-róna. Hvcrnig væri að þcir lesend- ur. scm iniða eiga í liapp- drættisláni ríkissjóðs, gættu að númcrum sínum og bæru þau saman við vinningaskrána í Lögbirtingarblaði? Þó að langl sé um liðið frá fyrsta drættl eru vinningsnúmerin enn i fullu gildi, því að samkvæmt lögum fyrnist krafa um vinn- ing í happdrættisláni ríkissjóðs á 15 árum frá gjalddaga. Sé vinningsins ckki vitjað innan þcss tima, verður hann eign rikissjóðs.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.