Þjóðviljinn - 02.03.1960, Síða 1
me'ðfkrð
DRYKK JUS JÚKLIN G A
Grein eftir Alfréð
Gíslason lækni
á opnunni.
Þúsundir fórust í jarðskjólfta í
Þjáning og eymd rikjandi i horginni
Agadir, sem er nœr þvi öll i rústum
Ógurlegur jarðskjálfti gekk yfir borgina Akadir á Atlanzhafsströnd Marökkó í gær-
morgun. Talið er að á annaö þúsund manns hafi farizt og mörg þúsund slasazt.
Jarðskjálftanum fylgdi mikil flóöbylgja og eldar brutust út. Um 80 prósent borg-
arinns.r er algjörlega í rústum, en í henni bjuggu um 40000 manns.
Allmargir jarðskjálftakippii
u'rðu í borginni og var sá fyrsti
og snarpasti snemma í gær-1
morgun. Jarðskjálftinn var svo
harður, að jarðskjálftamæli-1
tæki i athuganastöð nálægt
Casablanca gjöreyðilögðust.
Símasamband rofnaði þegar
við borgina, svo og allar sam-
göngur. Var reynt að fá flug-
vélar til að flytja lyf, lækn-
ingatæki og vistir til borgar-
innar, og til að koma slösuðu
fólki þaðan.
Hræðile.gt ástand
Fréttaritarar sem komust til
borgarinnar í gær sögðu að þar
ríkti hin hræðilegasta eyðilegg-
ing og eymd. Um 80 prósent
borgarinnar eru algjörlega í
rúst vegna jarðskjálftanna.
Þúsundir manna eru lokaðir
inni og grafnir undir
> 1111 [ m 111111111111111111111111111111i1111111111111111111111111■111111m1111111111111111111 iit
| 27 létu lífið í flugslysinu j
E Stélið var heillegasti hluturinn, sem fannst í braki E
3 flugvélar þeirra'-, sem íórst sl. föstudag skömmu el'iir -
= að hún hafði hafið sig til flugs af Shannon-flugvelli í E
| írlandi áleiðís íil Neiv York. 27 létu lífið ý flugslysi E
E þessu Flugvélin var eign ítalska flugféla.gsins ALITAL- §
= IA af gerðinni DC 7C. Hún hafði liat't viðkomu á £
E Shannon-velli 'ii1 að taka þar eldsneyti á lcið sinni frá E
E Napólí til New York. =
hálfhrundum húsum. Jarð-
skjálftanum fylgdi mikil flóð-
hylgja sem grandaði hundruð-
um manna, sem ekki var und-
ankomu auðið. Eldar gusu upp
víða i borginni og voru eng-
in tök á að slökkva þá, enda
allt á ringulreið vegna þeirrar
skelfingar, sem greip um sig.
Það jók líka á erfiðleikana
að aðalsjúkrahús borgarinnar
hrundi í rúst. Þúsundir af slös-
uðu fólki beið í gær eftir að
fá læknishjálp eða vera flutt
burt ’í sjúkrahús annarsstaðar
í landinu.
Hjálp berst víða að
Múhameð konungur í Mar-
okkó, sem heimsótti slysastað-
inn í gær, sendi þegar út hjálp-
arbeiðni til Alþjóða Rauða
krossins. Hefur Rauði kross-
inn sent út áskorun til allra
landa um að hjálpa hinu nauð-
stadda fólki. Hjálp hefur þegar
borizt víða að með flugvélum
og í gær voru allmörg skip
á leiðinni með lyf og vistir til
að líkna hinum sjúku og heim-
ilislausu.
Rjörgpinarstarfið var skammt
á veg komið í gær Byrjað var
að grafa 'í 'húsarústirnar og
hafði nokkrum mönnum verið
bjargað, flestum mikið slösuð-
um.
f gærkvöld var enn ekki hægt
að segja með neinni vissu,
hversu margir hefðu týnt lífi
í þessum náttúruhamförum. I
opinberri heimild segir þó
að óttast sé að tala hinna
dauðu sé að minnsta kosti tals-1
vert á annað þúsund, og að
um t'íu þúsund hafi slasazt
Framhald á 2. siðu
Þessi mynd, sem Gunnar lands og: af því tilefni
Sverrisson hefur tekid, er birtist mynd, og frásiign á
birt í tilefni öskudagsins 12. síðu.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIII
áSþýðan myndi órjúfandi
samsföðu um rétt sinn
Stjórn Málarafélags Reykjavíkur
vurð sjálfkjörin
Á aöalíundi Málarafélags Reykjavíkur í fyrrakvöld
var samþykkt ályklun, þar sem dýrtíöarlögum ríkisstjórn-
arinnar var harölega mótmælt og skoraÖ á alla alþýöu
aö mynda órjúfandi samstööu um aö ná rétti sínum.
Ályktunin fer í heild hér ó
eítir:
„Aðalfundur Málarafélags
Reykjavíkur, haldinn 29. febr.
1960, mótmælir harðlega dýr-
tíðarfrumvarpi ríkisstjórnar-
innar. Fundurinn telur að
það feli í sér freklega kjara-
skerðingu alls launafó'ks í
landinu, sem leiða mun af sér
aívinnuleysi og þá fyrst og
fremst í byggingariðnaði.
Sérstaklega mótmælir fund-
urinn þeirri frelsisskerðingu
sem felst í því að ríkisvaldið
skuli afnema með lagasetn-
ingu réttindi sem verkalýð-
urinn hefur áunnið sér með
frjá'sum samningum, svo sem
vísitöluuppbót á laun.
Fundurinn skorar á alla al-
þýðu þessa lands að mynda
órjúfandi samstöðu til að ná
rétti sínum“.
Sjájfkjörin félagsstjórn
Stjórn Málarafélags Reykjavík-
Lárus Bjarnfreðsson
ur varð sjálíkjörin.' en hana
skipa: Lárus Bjarnfreðsson for-
maður, Iljálmar Jónsson vara-
formaður. Leifur Ólafsson ritari,
Halldór Gíslason ritarl stjórnar,
Grímur Guðmundsson gjaldkesi.
Framhald á 2.,.síðu.