Þjóðviljinn - 30.03.1960, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 30. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Tilraun sem markað getur |
tímamót í lœknisvíssndum !
iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiii
Eftir nokkrar vikur koma saman í einu úlhverfi Belg-
rad kjarnorkufræðingar og læknar írá mörgum löndum.
Þeir munu setja í gang kjarnaofn og haga því þannig
að helgeislar frá honum hitti átta „mannlíkön“ úr plasti
og gleri. Tilgangur þeirra er að ganga úr skugga um
hvort frönskum lækni hafi tekizt aö finna aðferð' til að
lækna sjúklinga sem áður voru taldir ólæknanlegir, þ.á.
m. hvítblæðisjúklinga.
Þessi tilraun er talin geta
markað t'mamót í sögu læknis-
fræðinnar. Ætlunin er að endur-
taka með sem mestri nákvæmni
það sem gerðist þarna árið 1958
þegar mistök ollu því að nokkr-
ir júgóslavneskir vísindamenn
urðu fyrir banvænni geislun, en
hlutu aftur heilsuna með lækn-
ingaraðferð sem hafði áður
aldrei verið reynd.
Það var 15. október 1958 sem
kjarnorkuofn í rannsóknarstöð-
inni Vinca við Belgrad fór úr
skorðum af því að ýtt var á
skakkan hnapp. Átta vísinda-
menn voru þá að vinnu sinni
við ofninn og urðu einskis varir
fyrr en þeir fundu lykt af ozon
í loftinu.
Þá varð þeim þegar ljóst
að ekki var allt með felldu,
— en það var þá um seinan:
Þeir höfðu orðið fyrir nev-
trónu- og gammageislum í
2—3 mínútur áður en hægt
®var að loka fyrir ofninn.
Þeir voru lagðir á spítala í
Belgrad og þar kom í ljós að
tveir þeirra höfðu sloppið með
^tiltölulega væga geislun, en sex
þeirra höfðu fengið svo stóra
geislunarskammta að engin ráð
voru þar að hjálpa þeim. Það
var aðeins um einn stað að
ræða: Curie-sjúkrahúsið í Paris.
Flogið tii Parísar
Daginn eftir var flogið með
þessa sex til Parísar, en bar
hafði yfirlæknirinn við Curie-
sjúkrahúsið, Prófessor Henri
Jammet, þegar undirbúið komu
þeirra með því að gera boð
eftir sjálfboðaliðum sem fúsir
væru að gefa merg úr beinum
sínum.
iiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiii
Rannsókn sem gerð var eft-
ir slysið lciddi í ljós að vís-
indamennirnir hefðu orðið
fyrir geislun sem taldist hafa
verið 680 einingar af nev-
trónu- og gammageislum.
4—500 eininga skammtur hef-
ur verið talinn banvænn.
Það er þó engin vissa fyrir
því hve mikil geislunin var. Sú
stofnun Sameinuðu þjóðanna sem
vinnur að friðsamlegri hagnýt-
ingu kjarnorkunnar og hefur:
aðalstöðvar í Vínarborg fór því ’
fram á að mega gera þá tilraun
sem áður var lýst, en hún á að ;
leiða í Ijós hve mikill geisla-
skammturinn var.
Alþjóðlegt samstarf
Vísindamenn frá mörgum þjóð-
um taka þátt í tilrauninni. Þjóð-
verjar leggja til sex og hálfa
lest af þungu vatni. Frakkar
koma með ýmsan útbúnað. Frá
Bandaríkjunum koma mannslik-
önin með innbyggðum mælitáekj-
um. Þeim verður komið fyrir ná-
kvæmlega þar sem vísindamenn-
irnir átta stóðu þegar slysið
varð.
Búizt er við að tilraunin verði
gerð í fyrstu viku maímánaðar.
Hinir hryllilegu Dlburðir sem undanfarið hafa verið að gerast
í Suður-Afríku liafa vakið viðbjóð manna um allan heim á
því stjórnarfari sem ríkir í þessu brezka samveldislandi. í
London hafa verið haldnir miklir mótmælafundir, m.a. á Traf-
algartorgi, en við það stendur Hás Suður-Afríku. Þar voru
framarlega í flokki menn úr brezkum nýlendum. Lögreglu vac
slgað á mannfjöldann og margir voru handteknir, þ.á.m. tveir
s'ijórnmálaleiðtogar, Linden Burnham og Jai Narinesingh, frá
Brezku Guiana og sjást þeir hér á myndinni. Þeir eru í London
til viðræðna mn nýja stjórnarskrá fyrir nýlenduna.
[Lagt til að Danir hætti að hafa
ambassador á Islandi
„Gerðu svo vel
hér er lykillinn“
Síðasta kvikmynd ítalska
kvikmyndastjórans Fellinis,
Hið ljúfa líf, hefur hneykslað
borgarablöð á Italíu, en hann
lísir þar spillingu yfirstéttar-
innar og dregur ekkert undan.
I myndinni koma fyrir ýms
atvik úr lífi „fína fólksins" á
Italíu sem orðið hafa á undan-
förnum árum og skýrt frá í
blöðum um allan heim. Þar er
m.a. um að ræða veizluna þá
hina frægu þegar sænska leik-
konan Anita Ekberg dansaði
berfætt en önnur stúlka ber-
háttaði. Pellini fékk Anitu til
þess að leika sjálfa sig í kvik-
myndinni, og hafa nú sum
borgarablöð ráðizt heiftarlega
á hana til þess að ná sér niðri
á Fellini.
í blaðinu II Europeo lýsir
blaðakona að nafni Oriana
Fallaci Anitu á heldur ófagran
hátt- Hún segir að það sé alls
ekki hægt að tala við hana því
að and’egur þroski hennar sé
ekki meiri en 12 ára telpu.
Hún hefur eftir leikara sem
leikið hefur á móti Anitu:
„Komi hún auga á eitthvað
sem hana langar í, tekur hún
það, hvort sem það er karl-
maður eða salamipylsa". Eftir
öðrum: „Anita er ekki kost-
bær. Það finnst henni sem öðr-
um norrænum konum vera
bæði tilgerðarlegt og óþolandi.
Ef þú vilt, þá vil ég — hvers
vegna þá að draga það á lang-
inn? Karlmanni sem reynir að
fá Anitu til við sig fer líkt og
innbrotsþjófi sem staðinn er að
verki af húsráðanda sem segir
við hann: Gerðu svo vel, hér
eru lyklarnir".
Anita hefur að sjálfsögðu
reiðzt þessum ummælum og
hefur hún stefnt blaðakonunni
fyrir meiðyrði.
Margir gáfu sig fram, þeir
voru svæfðir og soginn mergur
úr bringubeinum þeirra.
Einum þessará sex nægðu
blóðgjafir. En í hinum hafði
geislunin valdið slíkum truflun-
um á myndun hvítra blóðkorna
í mergnum, að lítil von virtist
til að þeim yrði bjargað.
Dr. Jammet hafði áður dælt
heilbrigðum beinmerg í bein
geislunarvcikra tilraunadýra, og
nú gerði hann það í fyrsta sinn
við menn, — það var eina von-
in. Hinum heilbrigða merg var
dælt inn í bein Júgóslavanna
sex og nær þegar í stað fór þeim
að batna, þ.e. öllum nema ein-
um sem hafði orðið fyrir mestri
geislun.
Hinir urðu heilir heilsu og
eru löngu komnir heim. Meðal
þeirra var ung kona sem nýlega
hefur gengið í hjónaband. Hún
má þó ekki eignast börn. því að
mikil hætta er á að þau yrðu
vansköpuð.
Kjarnorkuofninn sem hefur ver-
ið innsiglaður síðan slysið varð
verður settur í gang og hel-
geislar frá honum látnir fara
gegnum líkönin. Komi það í ljós,
sem líklegt hefur verið talið, að
um hafi verið að ræða banvæna
geislunarskammta, þá hefur það
verið endanlega staðfest að með
lækningaraðferð dr. Jammet er
hægt að bjarga lífi þeirra sem
áður voru taldir dauðans matur.
Þá eru einnig allar líkur fyrir
því að fundizt hafi ráð til að
lækna marga aðra blóðsjúkdóma,
sem lýsa sér á svipaðan hátt og
sá sem helgeislar valda, þótt
orsakir þeirra séu aðrar.
. í skýrslu frá Kjarnorkustofn-
un SÞ segir þannig að merg-
innspýtingin „kunni að koma í
veg fyrir ýmsar óheppilegar I
aukaverkanir af notkun röntgen- i
geisla til lækningar á krabba- ,
meini, en það myndi auka stór-
lega Iækningarinátt þeirra
geisla.“
Það er víðar en hér á landi
að raddir eru uppi um nauðsyn
þess að draga úr, kostnaði í ut-
anrikisþjónustunni. Dönsku borg-
araflokkarnir, Vinstri flokkurinn
og íhaldsmenn, sem eru í stjórn-
arandstöðu, hafa þannig lagt til
að fækkað verði sendiherrum og
sendifulltrúum og þannig sparað-
m 1111111111111111111111111111111 ii 1111111111 ii
E Mannþröngin var svo mik- E
= il á götum Parísar daginn E
E sem Krústjoff kom þangað E
E að langflestir hefðu ekki E
E getað komið auga á hann E
E og föruneyti hans ef þeir =
E hefðu ekki liaft kíkja eins S
og þá sem sjást á mynd- =
inni, sem tekin er við Sig- ~
urbogann. =
ar 5 milljónir danskra króna.
Helztu tillögur þeirra eru
þessar:
1. Sendiherrastöðurnar í Sví-
þjóð, Noregi og á íslandi verði
lagðar niður. .
2. Einum sendiherra verði fal-
in störf þeirra þriggja sem nú
starfa í Paris hjá Efnah'ags-
samvinnustofuninni, Atlanzhafs-
bandalaginu og í Frakklandi.
3. Einn sendiherra komi í stað
tveggja í Beneluxlöndunum.
Auk þess er lagt til að þessar
stöður verði lagðar niður: sendi-
herra hjá SÞ, sendifulltrúi í
Austurríki, aðalræðismaður í
Bretlandi, verzlunarfulltrúar í
Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi
og Bandaríkjunum, blaðafulltrú-
ar í Noregi og Svíþjóð.
Þá er einnig lagt til að lækk-
uð verði fjárveiting til starfs-
mannahalds í ýmsum löndum,
m.a. á íslandi.
Bandarískt olíufélag hefur á-
kveðið að hefja leit að ol’u á
Svalbarða, að sögn norska blaðs-
ins Aftenposten. Leitin hefst
sennilega í sumar.
Samkvæmt hinum svonefnda
Svalbarðasamningi hafa samn-
ingsaðilar, þ.á.m. Bandarikin,
jafnan rétt til hvers konar frið-
samlegra framkvæmda á eynni.
Brezkur jarðfræðingur , sir
James Wordie, hefur rannsakað
jarðlög á austurströnd eyjarinn-
ar og komizt að þeirri niður-
stöðu að mjög miklar líkur séu
I á því að þar sé olíu að finna.