Þjóðviljinn - 08.04.1960, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.04.1960, Blaðsíða 3
Föstudagur S. apríl 1960 ÞJÓÐVILJINN (3 Hödd sjómanna má ekki heyrast! Fulltrúl f rá BátaféL Björp má Smábátar hafa lengstum verið hornrekur í Reykjavík- urhöfn og um langt árabil hefur aðstaða þeirra í höfn inni verið óviðunandi, en á sama tíma hefur verið dauf- hcyrzt við öllum óskum og kröfum smábátaeigenda um úrbætur. f gær felldi íhaldsmeirihlutinn tillögu um að Bátafélagið Björg' fengi að hafa fulltrúa í nefnd til aö gera tillögur um bætta aðstöðu báta. Á fundi bæjarstjórnar í gær fluttu fulltrúar Alþýðubanda- lagsins svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjórnin samþykkir að skipa 5 manna nefnd er hafi það verkefni að athuga og gera tillögur um hæbia aðstöðu op- inna vélbáta í höfninni og um betri afgreiðsluskilyrði þeirra i landi. Bæjarstjórnin kýs sjálf 3 menn í nefndina, 1 skal til- nefndur af hafnarsújórn og 1 af bátafélaginu Björg. Bæjar- stjórnin Ieggur áherzlu á að nefndin liraði störfum og skili tillögum hið fyrsta.“ Guðmundur J. Guðmundsson liafði framsögu fyrir tillögunni_ Hann kvað öllum bæjarfulltrú- um kunnugt um að um langt árabil hefðu borizt kvartanir frá eigendum opinna vélbáta um afleita aðstöðu í höfninni og óskir um úrbætur, og hefðu þessar kvartanir bæði borizt hafnarstjórn og bæjarstjórn. Kvartanir þessar eru ekki að ófyrirsynju þar sem raunveru- lega ekkert smábátalægi er í höfninni., Guðmundur kvað báta þessa gegna töluvert mikilvægu hlutverki i bæjarlífinu, því á sumrin væri oft helzt nýr fisk- ur frá þessum bátum, — og myndi oft lítið um nýjan fisk á boðstólum ef ekki væru þess- ir bátar, sagði Guðmundur. Óskum þessara manna um bætta aðstöðu liefur ekki verið sinnt á undanförnum árum. Rök hafnarstjóra hafa verið þau. að þessir bátar þyrftu stórt, svæðí — sem ekki sé til staðar í höfninni, eða m.ö.o. t;ama - sem . að segia: Það er ekkert hægt fyrir þessa báta að gera. Nú er það tillaga min að 5 manna nefnd verði falið að athuga þetta mgl og gera tillögur um það. Það hefur sáralítið’ verið komið til móts við þessa menn, —■ og hér er minni og verri aðstaða fyrir s'íka báta en víða annarsstaðar Eg vil e'kki fullyrða, sagði Guð- mundur. að hafnarstjóri hafi ekkj rök fyrir sinni afstöðu, en ■j^l 111111111111111111111111111111111111111111M I Drengjanærföt f |hækkað um 50%| jjj Nærföt i'ramleidd erlend- = = is eru að koma í verzlanir = s á verði sem orðið hel'ur E = fyrir áhrifum af viðreisn s = ríkisstjórnarinnar. Til E E dænris hafa drengjanær- — 5 buxur, sem kostuðu t'yrir — E gengislækkun 39 krónur, = — hækkað í verði upp í kr. E E 5.9.10-eða um rúmlega 50%. E E Ekki eru þó allar hækk- E E animar sem viðreisninni E E fylgja enn komnar á þessa E E vöru. E imiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiimiiimimn7 tel að nefndarskipun sé heppi- leg leið til þess að öll sjónar- mið í málinu komi fram, — einnig smábátaeigendanna, og nð rædd verði með fulftrúum er bæjarstjórn kýs öll sjónarmið og viðhorf í málinu svo bæj- arfulltrúar geti fengið sem gleggstar upplýsingar um það. Eg skora á meirihTUta bæjar- stiórnar að samþykkja þessa tillcgu, sagði Guðmundur, því ég óttast, ef þessari tillögu verður vísað til hæjarráðs, þá sjái hún ekki dagsins ljós meir fyrr en einhver bæjarfulltrúi te'kur hana upp að nýju. Geir Hallgrímsson borgar- stjóri fjármála kvað mál þetta hafa verið fil umræðu í hafn- arstjórn og yrði áfram á næsta fundi og m.a. rætt að verja fé til að setja upp baujur. Á þeirri forsendu flutti hann frá- vísunartillögu um að fela hafn- arstjórn að rannsaka hvaða úr- bætur komi til greina og leita umsagnar bátafélagsins Bjarg- ar. Geir kvað duflin 50 sem Sett hefðu verið niður 1953 og 1954 (og nú mnnu hafa týnt 'tölunni um helming!) sum hafa flutzt til en sum verið tekin í burtu vegna framkvæmda, í! höfninni Helzt myndi koma til ! mála að láta. dufl við Norður-: garðinn og milli Faxagarðs og Ingólfsgarðs. Hann sagði að i Björg vildi fá krikann hjá Faxa i og Norðurgarðinum, en þár þyrfti höfnin að ráðast í fram- j kvæmdir og því óráðleg»t að; kosta miklu til fyrir smábáta þar. Þá kvað hann hafa komið til mála að vista smábátana í Vatnagörðum. Borgarstjóri kvað einnig þurfa að telja þessa báta og skrá þá. Magnús Ástniarsson kvaðst ,,á þessu stigi'1 frekar fylgja tillögu Guðmundar J. en horg- arstjóra, en ekki vilja vera á móti till. borgarstjóra og ósk- ! aði því að báðar yrðu bornar upn sem sjálfstæðar tillögur. Guðmundur J. Guðmundsson kvað bæjarfulltrúa þurfa að hafa það til hliðsjónar við af- greiðslu tillagnanna að smá- t-álaeigenduriiir hafa sent óskir og kröfur til liafnarstjórnar- innar um langt árabil, án þess þeim væri sinnt, hafnarstjóri liefði velt þessu máli fyrir sér í 10 >'il 15 ár og ekkert gert til úrbóta, en fulllrúar Bjargar gengið ár'ega píslargöngu til hafnarstjórnar. Nú er sagt að það sé fyrirhuguð bauja þar og bauja hé'r, en mér hefur skilizt að sífk>t hafi einmitt líka verið ,,fyrirhugað“ um fjölda ára — og þar við setið. Verði nefnd kosin getur fulltrúi bátafélags- ins Bjargar túlkað sín sjónar- mið og lagt fram sínar tillögur og hafnarstjóri getur skýrt fyrir lionum og öðrum nefndar- mönnum síh rök, kosning nefndar er því bezta leiðin til að koma í veg fyrir tortryggni í málinu •— en traust smábáta- eigenda á hafnarstjóra virðist nú vera orðið harla lítið. Einar Thoroddsen, hinni nýi yfirhafnsögumaður kvað hæpið að gera smábátakví framan við Faxaverksmiðjuna, eina lausn- ín væri að hola 25 bátum við Norðurgarðinn. Fulltrúi Bjarg- ar myndi engin ný sjónarmið túlka, „þetta mál þarfnast ekki rannsóknar þar sem vitað er að hafnarstjóri er að leita úr- lausnar" sagði hann (það hef- ur hafnarstjóri einmitt verið að gera í 10—15 ár!). Giiðmuiuliir J. kvað með til- lögu sinni aðeins verið áð tryggja að s.jónarmið Bjargar kæmi fram, það væri nauðsvn- Jegt því hafnarstiórn hefði brugðizt í málinu árum saman. Björgvin Frederiksen kvaðst viliq s'krá allar þessar fleytur í höfninni og hreinsa hana svo a.f ruslbátunum — og það væri hafnarstjórn einfær um að gera. Gróa PétursdóÚ'ir tók undir það að bátarnir væru skráðir, því þega.r Slvsavarnafélagið væri beðið að leita þeirra gæti það engar upplýsingar fengið um ferðir þeirra vegna þess að þeir væru óskráðir Tillögu Alþýðubandalasrsins um nefnd til að gera tillögur til úrbóta fvrir smábáta 'í höfn- inni felldi íhaldið með hjásetu, með henni greiddu 5 atkv. Síð- au var tillaga borgarstjóra samþykkt. — Hætt er því við a.ð smábátaeigendur fái að biða úrbóta enn um sinn eins og unda.nfarna áratugi — máski þurfa þeir að skipta um bæjar- stiórnarmeirihluta ef þeir ætla ekki endalaust að vera útlagar í höúiinni Pylsugerðarmaourinn, bakarinn og kaupmaðurinn í Iíarde-* mommubæ, en þá heiðursmenn leika þeir Valdemar Helgason, Eárus Ingólfsson og Klemenz Jónsson. Barnamíisikskóíimi flytur söngieik fyrir börn Barnamúsíkskólinn í Reykja- vík efnir til skemm*tunar fyrir almenning næstkomandi sunnu- dag, 10. apríl. I maíbyrjun lýkur áttunda starfsári Barnamúsíkskólans. Nemendur skólans eru nú á 3. hundrað að tölu. í lok skóla- ársins hafa nemendur oftast efnt til skemmtunar, og sýnt ýmis atriði úr skólastarfinu, Sungið og leikið á hljóðfæri, ein og í smáhópum. Það telst til nýlundu í starfi skólans í vetur, að nemendur hafa æft stuttan söngleik eftir Hindemith, „Wir bauen eine Stadt", sem á íslenzku hefur hlotið nafnið „Við reisum nýja Rej'kjavík". Þorsteinn Valde- hiarsson hefur þýtt og stað- fært textann. Nemendur skól- ans sjá einir um fluninginn, syngja og skipa hljómsveit- ina, sem leikur undir, en Bald- vin Halldórsson leikari hefur annazt leikstjórn. Auk söngleiksins verða ýmiis önnur skemmtiatriði, kórsöng- ur, einleikur og samleikyr á ýmis hljóðfæri. Skemmtun þessi verður hald- in aðeins einu sinni fyrir al- menning, næstkomandi sunnu- dag kl 4 síðdegis í samkomu- sal Hagaskóla við Hagatorg. Börn innan 10 ára aldurs fá, ! ekki aðgang nema í fylgd full- orðinna. Aðgöngumiðar fást í Hljóðfærahúsinu, Ban'kastræti, og í hljóðfæraverzluninni I Vesturveri. Tvær 3ja daga páskaferðir F erðaskrif stof unnar Nú um páskana efna Feröaskrifstofa ríkisins og Bif- reiöastöð íslands til tveggja skemmtiferöa um páskana. Önnur ferðin verður farin austur 1 Vestur-Skaftafells- sýslu, en hin er gönguferö á Eyjafjallajökul. Lagt verður af stað í báðar ; þessar ferðir síðdegis á laugar- i dag fyrir páska og komið í bæ- |inn aftur að kvöldi annars |páskadags. Ferðin austur i Vestur- j Skaftafellssýslu er . fyrirhuguð , þannig: Lagt verður af stað frá Reykjavík kl. 2 síðdegis á laug. ;ardag og ekið sem leið liggur ! aústur að Kirkjubæjarklaustri Og gist þar um nóttina. Á páskadag verður ekið austur að ;Núpsstað, en þaðan verður svo !farið áftur vestur á bóginn að jVí'k í Mýrdal og gist þar. Dag- inn eftir annan páskadag, jverður farið frá Vík fyrir há- 3egi, Dyrhólaey skoðuð, síðan !haldið áfram að Skógum og b.yggðasafnið skoðað, en þá far. ið að Keldum og staðurinn skoðaður. Frá Keldum veðui svo ekið til Reykjavíkur og komið þangað um kvöldið. Hin pás'kaferðin hefst einnig kl. 2 síðdegis á laugardag og verður þá ekið austur að Selja- : völlum og gist þar tvær næt- ur Páskadagsmorgun verður svo gengið á Eyjafjallajökui. Á annan páskadag mun þessi hópur fylgjast að með hópnum sem kemur austan úr Skafta- fellssýslu og fara sömu leið. 1 báðum ferðunum verður gist í skóla- og samkomuhúsum og verður fólk því að hafa með sér svefnooka og nesti. Þó raunu þeir sem þess óska geta fengið bæði gistingu og fæði í V'ík. Verð farseðla i V-Skafta- •fellsferðina er 390 kr., en i Eyjafjallajökulsferðina 295 kr. Ásgeir Ásgeirsson ;eir Ásgeirs- son í framboði Asgeir Ásgeirsson, núverandt forsc i Islaiiils, hefur gefið kosfc á sér sem frambjóðandi við forsetakjör í júnímánuði næst- komandi. Þetta verður ráðið af bréfi, sem Þjóðviljanum barst í gær og undirritað er af Haraldi Kröyer, forsetaritara. Er x bréfinu óskað eftir birtingu á eftirf. tilkynningu um söfnun meðmælenda með framboði Ás- geirs Ásgeirssonar: „Áskrifta- listar fyrir meðmælendur meö framboði Ásgeirs Ásgeirssonar, núverandi forseta íslands, viö forsetakosningar, sem auglýst- ar eru 26. júní næstkomcndi, liggja frammi hjá bæjarfóget- um og sýslumönnum utar. Reykjavíkur til aprílloka."

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.