Þjóðviljinn - 08.04.1960, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 08.04.1960, Qupperneq 12
Hátekjnmönnum er hyglaö, stórkostlega Tekjuskattsfrumvarpíð til umræðu í neðri deild Við 1. umræðu tekjuskattslagafrumvarpsins í neðri deild Alþingis í gær deildi Einar Olgeirsson fast á þá stcfnu ríksstjórnarinnar að hygla hátekjumönnum lands- ins stórkostlega með skattálækkunum meðan þeir sem lægri hafa launin fá smávægilegar sárabætur vegna hinn- ar gífurlegu dýrtíðaraukningar. Einar nefndi sem dæmi, art liðlega 18 þúsund gjaldendur í Reykjavík, þ.e. % allra gjald- enda í bænum — þeir sem hafa innan við 70 þús. kr. árs- tekjur, fengju sainkv. skatta- lagafrumvarpi ríkisstjórnarinn- ar samtals um 20 millj. kr. eftirgjöf. Hins vegar fengju 1924 liæstu gjaldendurnir í bænum, þ.e. þeir sem hafa yfir 100 þús. ltróna árstekjur, sam- tals 18 millj. króna eftirgjöf. Með öðrum orðum: Skattalækk- un mikils meirihluta gjaldenda í Reykjavík er til jafnaðar um 1100 kr. á hvern einstakan, en tekjuliæstu gjaldendurnir fá liinsvegar 9620 kr. lækkun að meðaltali! iiiuiimiiiiimiMmiiiiimmmiimiHii Ríkisstjórnin þekkir sína Af íþessu má berlega sjá, sagði Einar Olgeirsson, hverra hagur það er sem ríkisstjórnin ber fyrir brjósti. Ríkisstjórnin þekkir sína og sker svo sannar- lega ekki við nögl þegar þeir eiga hlut að máli. Kjörorð hennar er: Því ríkari sem þú ert þeim mun meira skaltu fá, því fátækari sem þú ert þeim mun minna skaltu fá en meira frá þér tekið. Tekjuskattslækkunin er eins og ríkisstjórnin leggur hana fram, sagði Einar, þáttur í heildarárás á lífskjör þeirra sem lægstar hafa tekjur í þjóðfélaginu, en um leið er hálaunamönnum og auð- mönnum hyglað þeim mun meir. PIOÐVILJINN Föstudagur 8. apríl 1960 - - 25. árangur — 83. tölublað. | Frímerkja- | | verzlun { C í grær var opnuð sýning á E ss ljósmyndum og frímerk.jum 5 E að Lindargötu 50. í tilefni S S dagsins voru gefin út kort, 5 S 4000 að tölu, sem fengust E E stimpluð með útgáfudags- E E stimpli og það er þessvegna E E sem allur þessi mannfjöldi E E bíður fyrir utan Lindargötu E E 50. Nánar verður sagt frá E E sýningunni síðar. (Ljósm.: E — Þjóðv.) E Röksemd sem ekki fær staði/.t 1 síðari hluta ræðu sinnar í gær gerði Einar Olgeirsson einkum að umtalsefni þau „rök“ sem talsmenn ríkis- stjórnarinnar héldu á loft fyr- ir tekjuskattsfrumvarpinu. — Einkum vék hann að þeirri rök- semd að skattalækkun verði til þess að yfirstéttin verji meira af ágóða sínum til fjárfesting- ar í framleiðsluatvinnuvegun- um en áður. Þessi röksemd fær ekki stað- izt hér á landi, sagði Einar. Hér er yfirstéttin tiltölulega fjölmenn, fjármagn hefur ekki dregizt saman á mjög fáar hendur. Gróðinn hefur því far- ið hlutfallslega miklu meir til neyzlufjárfestingar en annar- ktaðar. Nefndi Einar dæmi, sem sýna að hér á landi hefur Vilutfallið milli neyzlufjárfest- ingar og framleiðslufjárfest- ingar verið mun verra en í Framhald á 10. síðu. Friðrik 3.-6. eftir 5 umf. Eftir 5 umferðir á skákmót- inu í Mar del Plata er Friðrik Ólafsson í 3.—G. sæti með 3!4 vinning. f fyrstu umferð vann Friðrik Carlos, Argentímj, og í fimmtu umferð vann hann Mar- tini, Argentínu. Þjóðviljanum er ekki kunnugt um við hverja hann hefur teflt í annarri til fjórðu umferð, en hann hafði 2 '/> vinning eftir þrjár umferð- ir og hefur því tapað í fjórðu umferðinni. Keppendur á mótinu eru 16 alls, bar af 3 Evrópumenn, Frið- rik og Spasskí og Bronstein frá Sovétrikjunum. Hitt eru allt Suðurameríkumenn nema Bobby Fischer. Staða efstu manna eftir 5 um- ferðir var þessi: 1. Spasskí 5 v., 2. Fischer 4 v.. 3.—fi. Bron- stein, Friðrik, Vexler.l Argen- tínu og Fogelman, Árgentínu 3V2 v.. 7. Letelier, Chile með 3 v„ 8. Bazan, Argentínu 2 V2 og biðskák og 9. Redolfo, Árgentinu 214 vinning. 1 Afli heldur rýr E Fréttamaður Þjóðviljans E átti leið niður að höfn í = gærkviild er skipin voru = að koma að landi með afla. = Heldur var aflinn rýr, en Gunnar Thoroddsen íjármála- ráðherra taldi þetta fjarstæðu mikla og taldi sig hafa í hönd- um nákvæma útreikninga sem sönnuðu að útgjaldaaukning sveitarfélaga af völdum efna- hagsráðstafana ríkisstjórnarinn- ar næmj ekki nema helmingi þeirra upphæðar sem þau myndu fá af hluta sínum úr sölu- skattinum og víða væri kostnað- urinn ekki líkt því svo mikill. Karl Guðjónsson benti á að ekki væri gert ráð fyrir að bæj- arfélögin fengju nema sem svar- ar 10% af útsvarsupphæð sinni með þessum nýja tekjustofni, og sýndi hann með nokkrum dæm- um hve gífurlega hækkar til- kostnaður bæjarí'élaganna við allar framkvæmdir vegna efna- hagsráðstafananna. svo var að heyra á sjó- miinnunum að þeir væru vongóðir um að aflabrögð fari batnandi. Myndin sýn- ir Aðalbjörgu RE 5 renna að bryggju með 8—9 tonna afla. — (Ljósm.: ÞjóSv.) Sagði Karl að lofgerðaróður þingmannanna Birgis Finnssonar og Guðlaugs Gíslasonar um veg- lyndi ríkisstjórnarinnar við sveitafélögin hefði minnt sig' á Framhald á 10. síðu. Stúdentaráð sendir skeyti Á fundi sínum í gær sam- þykkti Stúdentaráð Háskóla ís- lands einróma að senda íslenzku sendinefndinni á sjóréttarráð- stefnunni í Genf svohljóðandi skeyti: .Styðjum lieils liugar baráttu ykkar fyrir óskertri 12 inílna fiskveiðilögsögu og gegn livers- konar takmörkunum hennar“. ... I Sparar i tekjuskatti hálf verkamannalaun ’-IH' I r- ■ ■ Eins og rakið hefur verið hér í blaðinu að undanförnu er lækkunin á tekjuskatti mikil hagsbót fyrir stórtekju- menn. en skiptir allan al- menning litlu í samanburði við þær stórfelldu álögur sem á móti koma. Tekjuskatts- hækkunin er þannig mikið persónulegt hagsmunamál fyr- ir þá menn sem bera tillög- una fram. Tökum til dæmis Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra. Á síðasta ári greíddi hann kr. 52.068 í tekjuskatt, en það jafngilti því að skattskyldar tekjur hans hefðu numið kr. 240.225. Sé miðað við óbreytt- ar tekjur á hann að borga samkvæmt nýju reglunum kr. 27.500. Hann sparar þannig kr. 24.568 í tekjuskatti einum saman — eða sem svarar hólf- um órslaunum verkamanns. Jafnframt á að gera bre.yt- ingar á útsvarslögunum sem heimila að draga skatta frá tekjum áður en lagt er á, en það er mjög stórfellt hags- munamá! fýrir auðfyrirtæki og hátek.jumenn. Á síðasta ári borgaði Gunnar Thoroddsen kr. 28.100 í útsvar — og höfðu honum þó verið gefnar eftir kr. 23.400 kr. miðað við þær reglur sem aðrir urðu að hlíta. Njóti Gunnar sömu eftirgjafar í ár — sem vafa- laust má telja — munu nýju útsvarsákvæðin,tryggja að út- svar hans lækki enn um kr. 8.430. Nýju skattalögin munu þannig spara honum kr. 32.998 fram yfir þá stórfelldu ívilnun sem hann íékk í fyrra, en að henni meðtalinni sparar E hann kr. 56.398. Alþýðublaðið hefur gefið þá skýringu á þessari steínu. að með henni sé verið að veiða hátekjumenn í þá ,.gildru“ að nota meira af lúxusvörum og verða þannig að borga óbeina skatta! Fjármálaráðherra er auðsjáanlega einn þeirra rnanna sem á að geta veitt sér mikinn lúxus. Fjármálaráð- herra í „gildrunni“ miiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 111111 m 11111111 m 111 i 1111111111111111111111111111111111111111111 gi 1111111111 i-v 11111 ’.i: 11111 Sveitarfélögin fá litla bót fyr- ir mikla útgjaldaaukningu í umræðunum í neðri deild. Alþingis í gær um Jöfnun- arsjóð sveitarfélaga lögðu allir ræðumenn áherzlu á nauö- syn þess að sveitarfélögunum væri séð fyrir öðrurn tekjustofnum en útsvörunum. En Karl Guðjónsson og Hannibal Valdimarsson bentu á að sá hluti söluskattsins sem sveitarfélögunum væri nú ætlaður hrykki skammt til að mæta hinum stóraukna kostnaði vegna efnahags- 1 áðstafana ríkisstj órnar i nar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.