Þjóðviljinn - 04.06.1960, Síða 10

Þjóðviljinn - 04.06.1960, Síða 10
10) _ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 4. júní 1960 Alþingi var slitið í gær og hafði þá staðið alls 146 daga og samþykkt 51 lög og 25 j þingsályktanir. Stóð þingið frá 20. nóv. til. 1. des. 1959 og frá 28. jan. til' 3. júní 1960. Voru alls lögð fyrir það 100 lagafrumvörp og 65 þingsályktunart’llögur og 28 fvrirspurnir voru bornar fram. Tala prentaðra þingskjala varð 640. Deildum var lokað að lokn- um næturfundum í fyrrinótt. Kvaddi Jóhann Hafstein neðri- deildarmenn og þakkaði þeim samstarf og umburðarlyndi, en Einar Olgeirsson þakkaði for- seta fyrir hönd þingmanna réttláta og sanngjarna fundar- stiórn og árnaði honum og fjölskyldu hans alls góðs. I •efri deild kvaddi Sigurður Ó. Ólafsson forseti, en Hermann Jónasson þakkaði forseta af hálfu þingmanna. Á þingslita- fundi sameinaðs þings í gær flutti 1. varaforseti Sigurður Ágústsson skýrslu um störf þingsins og árnaði þingmönn- um og starfsfólki þingsins allra heilla en Eysteinn Jóns- son mælti fyrir munn þing- manna þakkarorð til forseta. Að því loknu las forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson, for- setbréf um þinglausnir og sagði þinginu slitið, en þingmenn minntust forseta og ættiarð- arinnar með ferföldu húrra- hrópi. an Framh. af 12. síðu . átaka i Tokío. Þúsundir stúd- enta réðust að bústað forsætis- ráðherrans, sem girtur hefur verið með gaddavír og ’járn- grindum. Stúdentar rit'u niður þessa.i varnargirðingar og drógu tvær lögreglubifreiðar út á götu. Lögregian réðist á hópinn og var fcarizt í heila klukkustund. Um 90 lög'reg'luþjónar og fjöl- margir stúdentar særðust i á- tökunum en 13 stúdentar voru handteknir. Búizt er við að til átaka kunni að draga þegar verki'all- ið skellur á. „Dulalulli Rússinn sást hvsrgi Isafjörður Framhald af 12. síðu. námsdeild 9,25, næsthæstu einkunn hlaut Huld Björg Sigurðardóttir einnig í 2. bók- námsdeild 9.22. Við skólaslit skýrði skólastjóri frá því, að fengið væri leyfi menntamála- ráðherra til að starfrækja næsta vetur deild sem svaraði til fyrsta bekkjar mennta- skóla og yrði hún algjörlega kostuð af ríkinu en skilyrði er að minnst 15 sæki um inntöku í deildina. Landspróf þreyttu 17 unglingar, en úrslit þess eru ekki kunn. Gústaf Lárusson kennari gegndi skólastjóra- störfum í vetur vegna veikinda Guðjóns Kristinssonar, skóla- stjóra Gagnfræðaskólans. Framh. af 12. siðu Rán var yfir Óðni á hádegi og liðlega klukkustundu síð- ar var komið yfir Ægi, sem lá út af Straumnesi vestur. Áður, meðan flogið var vest- ur með Vestfjörðum, var fylgt fis'kveiðatakmörkunum og sáust margir togarar brezkir þar fyrir utan, en út af Dýrafirði var brezka her- skipið Dainty D-108 og þr'ír togarar af sama þjóðerni, öll skipin utan marka. Ægismenn fengu eins og félagar þsirra á Óðni blaðasendingu, en þeg- ar pakkanum ha.fði verið komið til skila var Rán snú- ið í vesturátt. Flogið var 30 mílur út og mátti sjá marga erlenda togara á Halanum; 12 togara taldi einhver og Guðmundur skipherra kvað þá alla vera þýzka, a.m.k. einn var austur-þýzkur Af Halamiðum var stefna tekin suður og bar nú ekkert til tíðinda fyrr ®n um kl. 2.20, er Rán tók allskyndilega dýfu. Hafði þá bandarísk her- Ihaldið hafnar útboði olíuviðskipta Framhald af 12. siðu. því að þau hefðu numið á sl. ári um 12 milljónum króna. Sagði Guðmundur að hinn almenni skattgreiðandi í bæn- um ætti kröfu á að gerðar væru allar mögulegar tilraunir til að ná sem hagkvæmustum samningum fyrir bæjarsjóð og fyrirtæki hans. Þessa dagana Væri mikið talað um frelsi og l'rjáisa verzlun í málgögnum bæjarstjórnarmeirihliAans, en nú reyndi á stóru orðin. Nú hel'ði meirihlutinn aðstöðu til að láta reyna hina frjálsu verzíun á þessu sviði Þetta væri prófmál á -vilja meirihlut- ans til að skapa eðlilega verzl- unarhætti í Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar. yfirlýsing borgarstjóra Höskuldur Ólafsson, spari- sjóðsstjóri, varð fyrir svörum af hálfu íha’dsins, taldi enga ástæðu til að efna til almenns útboðs á kaupum bæjarins og fyrirtækja hans á olíum og benzíni „að svo stöddu“ og flutti frávisunartillögu frá meirihlutafulltrúunum. Þórður 'Björnsson, bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, lýsti fylgi sínu yið tillögu Guðmundar, en Geir Hallgrímsson, borgar stjóri, kom með sérstæða yfir- lýsingu. Lýsti hann því yfir að hann væri í aðalstjórn Olíufé- lagsins Skeljungs h.f. en hefði j látið varamann sinn í stjórn- inni taka þar sæti jafnskjótt og hann hefði tekið við emb- ætti borgarstjóra. Hann lét sig þó ekki muna um að greiða j atkvæði með frávísunartillögu Sjálfstæðisflokksmanna, þ. e. með einhliða samningi bæjariiis við félag sitt, en aðrir íhalds- fulltrúar sem atkvæði greiddu gegn frjálsari verzlunarháttuin i innkaupastofnun bæjarins yoru: Ilöskuldur Ólafsson, Páll S. Pálsson, Gunnar Helgason, Ölfar Þórðarson, Guðjón Sig- lirðsson, Björgvin Fredriksen, Frið'eifur Friðriksson, Gróa PétursdótCir og Gísli Iíalidórs- son: Alls 10. — Þrír bæjarfull- trúar Alþýðubandalagsins og p’ramsóknarmaðurinn greiddu atkvæði gegn frávísunartillög- unni. Alþýðuflokksfuíltrúinn lét ?kki sjá sig á fundinum í fyrra- I, flugvél af Keflavíkurflugvelli, Neptune-vél, komið á móti úr suðri í sömu hæð og flug- stefnu, og þótti íslendingun- um þetta kynleg háttsemi. Kannski voru ,,verndararnir“ á leið vestur til leitar að „dularfulla Rússanum“ sem Alþýðublaðið hafði sem stærstar fyrirsagnir um í gær — en ferða þess togara urðu menn ekki varir í Rán, hvorki fyrir Vesturjandi né suður undan landi. Á Eldeyj- arbanka voru tveir togarar og einn íslenzkur sást á út- leið. Þegar komið var austur undir Vestmannaeyjar sáust tveir norskir línuveiðarar og varð ekki annað séð en aflinn væri góður. Ferðinni var enn haldið áfram í austurátt, suð- urfyrir Vestmannaeyjar, en síðan snúið til norðurs. Rán renndi sér tvisvar niður að íslenzkum fiskibát skammt frá Eyjum; en ekkert var þar athugavert. Um kl. 4.15 var flogið yfir E.yjakaupstað og síðan stefnt til Reykjav’íkur, þar sem lent var réttum sex klukkustundum eftir að lagt var upp í þetta. gæzluflug. Bar blaðamönnunum saman um að þetta hefði verið hln á- nægjulegasta ferð, þó áhöfn- inni þætti hún stórtíðindalít- il og ekki sæist til „dular- fulla Rússans“. Enda var ekki ferðin farin vegna ,,fréttar“ Alþýðublaðsins heldur um venjulegt gæzlu- flu<r að ræða. Guðmundur Kæmested var sem fvrr segir skipherra á Rán. GuðjÓn Jénsson flug- stjcri, aðrir flugliðar: Agnar Jónasson, Biörn Jónsson, Erling Magnússon, Garðar Jónsson. Iv. ík í karfháti Er nokknrt vit að vilja vera bóndi? Framhald af 7. síðu. búsetú í landinu vera' allsráð- andi með þjóðinni og vera í sama hlutfalli og menn mega sín meira og lifa við meiri þægindi. Og þeir, sem ennþá halda merkinu upp úr for- inni, evu, með mjög fáum und- antekningum, að verða í- skyggilega eðlislíkir fé, sém stendur undir brekku í norð- anáhlaupi að hausti til og lætur skefla yfir sig, þyljandi í sífellu við sjálfa sig: Öll él birtir upp um síðir. Það mun rétt vera, en koma að litlu gagni, þeaar skaflinn er orðinn 3—4 metra þykkur yf- ir þeim. Munurinn er bara sá, að eigandi sauðfjárins mun legg.ia mikið á sig til bjarg- ar því, en við erum frjáls þjóð, og teljum okkur eiga o'kkur sjálf, og engri erlendri þ.ióð ber þessvegna nokkur skylda til að grafa okkur upp úr fönninni. Og hvernig sem ég velti þessu 'í huga mínum kemst ég ævinlega að sömu niður- stöðu. I flestum tilfellum bjargast sauðkindurnar, ef meðal þeirra finnast einstak- lingar, sem hafa vit og skerpu til að hafa sig upp úr rlotalegheitunum og áreynslu- levsinu í skaflinum og það eðli, sem knýr til að bera höfuðið hátt þrátt fvrir allt og brjótast áfram í veðurhörku og ófærð. Vanalega eru ein- hverjir eða einhverjar, sem treysta sér til að elta 'í slóð- ina, og fjöldinn gerir hvað hinar gera, bæði til feigðar og frama, hér eins og annars staðar. Eins og áður er á bent, mun meinbugrurinn, sem kom- ið hefur í veg fyrir, að land og þjóð hafi runnið saman í eina heild, þar sem hvort um sig verður hinu til halds og trausts, vera sá, að þióðipni hefur aldrei nema að íitlu leyti tekizt að festa hér ra:l- ur sem bændaþjóð, vegna þess, að hún hefur inær aldrei getað aflað það mikilla og góðra heyja, að hún um vet- urnætur væri fær um að hor.fa með trúnaðartrausti til vetrarins. Þess vegna virðist mér það ganga kraftaverki næst hvað bændur -eru búnir- að afreka síðustu áratugina, þrátt fyrir megna andúð og- skemmdarstarfsemi. En auð- séð er, hvernig fer innan skammg, því liðsmenn eldast og fækkar stöðugt. Mjög fáir yngri menn og konur hafa hætzt í bændaherinn síðustu: áratugi. Og nú er svo komið um nær allt land, að jafnvel þó roskin hjón vildu gefa ungu pari jörð og hús og fara slypo og snauð á elli- heimili, fyrirf.vndist ekki ungt par til að taka við, enda ér rú svo búið um hnútana, að ég tel það frágangssök að stofna til búskapar. Og það mun innan skamms hafa 'i för með sér, að b.ióðin verður tekin nnp til ráðstöfunar. Nú- verandi valdamenn virðist annaðhvort skorta greind eða vúia til að skilia þetta eða álít.a sig eiga svo mikið fé eUendis að það komi þeim ekki að sök. En hér í norðlenzkum dal h°f ég rekið niður merkis- stöng í góða mold og álít það plgert aukaatríði, hvort ég berst undir merki sem íslenzk. ur eða józkur bóndi, því hændaeðli er pi’i/, um allan heim En mér hvkia þ»að með afbrifrðum aum örlög, ef ís- lenzkt hióAnrni barf að gefast unn við að bypgia þetta góða land. þegar glæsileg framtíð b’asir við með notkun nú- tímn. búvísinda, verktækni og verksviti. sem aðeins að litlu levti er kunnugt og kynnt ís- lenzkum bændum. (Framhald). Veitingastofan Miðgarður Veitingastofan verður lokuð frá klukkan 9 í kvöld og hvítasunnudag. Opið annan hvítasunnudag eins og venjulega. af Tveir bandarískir froskmenn i hafa fundið þýzka kafbátinn i U-853, en honum var sökkt í heimsstyrjöldinni með 55 manna áhcfn undan ströndum Rhode Island. Kafbáturian liggur á 39 metra dýpi. Froskmcnnirnir komust inn í turn kafbátsins og fundu þar lík 6 kafbáts- manna. Reynt verour að ná l'ík- um kafbátsmanna á land innan skamms. ÍBÚDARHÆÐ ÓSKAST Erum kaupendur aö 5 herbergja íbúóaríhæö, 130—140 ferm. íbúöarhæöin þarf helzt að vera, nýleg, í góöri hiröu, nálægt Landspítalanum og laus til íbúðar í þessum mánuði. TilboÖ óskast send til skrifstofu ríkisspital- anna, Klapparstíg 29, fyrir 10. júní næstkom- andi. Skrilstofa ríkisspítaífíHKa

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.