Þjóðviljinn - 09.07.1960, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.07.1960, Blaðsíða 12
Öeirðirnar á Italíu byrjuðu í Genúa í síðustu viku og er myndin þaðan. Allsherjarverkfall var á Italíu i gœr, miklar óeirðir á Sikiley þJÓÐVIUINN Laugardagur 9. júlí 1960 -— 25. árgangur — 119. tölublað UiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiliimiiiiH | Birtingur ilettir I I ofanai rithnupli ( miiiiiiiiiiiiiiimiiii 111111 n 11111111111111 n. f nýju hefti Birtings flettir einn ritstjórinn, Thor Vilhjálms- son, ofanaf bíræfnu rithnupli sem einn af kunnustu rithöfund- um þjóðarinnar hefur látið sig henda. I pistlj sem nefnist „Pas de deux við BoIafljót“ sýnir hann fram á að liöfundur þessi liefur birt undir sínu nafni grein sem er þýdd úr bandarískri bók. Heftið hefst á nokkrum ljóð- um eitir franska skáldið Arthur Rimbud. Jón Óskar hefur þýtt ljóðin og ritað grein um skáld- ið. Smásaga er eftir sænska skáld- ið Ingvar Orre: Maðurinn sem safnaði vindum >— þýðandi Geir tte* >-'< ■ ' Kristjánsson. Hjörleifur Sigurðs- son ritar mikla ritgerð um upp- haf abstraktlistar. og nefnist hún Mondrian. De Stijl og Nýplastík- in. Einar Bragi þýðir tvö ljóð eftir sænsk skáld. Edith Söder- g.ren og Lars Forssell. Bjarni frá Hofteigi skrifar greinina Fjör- egg eða leiksoppur? Smásaga er eftir Jón frá Pálmholti, hin fyrsta sem hann hefur birt: Síð- asti dagur útsöiunnar — eða leit að lífi. Myrkur í líkhúsi heitir Ijóð eftir Boris Pasternak í þýð- Ingu Gei.rs Kristjánssonar. Fram- an á kápu er ijósmynd eftir Rafn Hafnfjörð. Mikil þátttaka var í allsherjarverkfalli því sem ítalska alþýðusambandið CGIL boðaði til í gær og var atvinnu- líf landsins í lamasessi að sögn sænska útvarpsins. Átök urðu einnig milli verkfallsmanna og lögreglu, mestar á Sikiley. Fyrst sló í hart milli verk- fallsmanna og lögreglu í stærstu borg eyjarinnar, Pal- ermo, og særðust þar um 50 menn af báðum. Lögreglan skaut á mannfjöldann og særð- ust þá fjórir. I næststærstu borg eyjar- innar, Catania, urðu einnig blóðug átök. Einn maður beið bana og tveir særðust hættu- lega þegar lögreglan hóf skot- hríð á verkfallsmenn. Víða annars staðar í landinu urðu róstur, þótt ekki yrði manntjón í þeim. Forseti öldungadeildar ít- alska þingsins, Merzagora, lagði í gær til að stjórnmála- flokkarnir semdu með sér vopnahlé svo að forðað yrði frekari árekstrum og blóðsút- hellingum. Skyldi það vara í hálfan mánuð, en sá tími not- aður til að reyna að koma á sáttum. Óeirðirnar hafa stafað af vax- andi uppivöðslusemi nýfasista sem nú skáka í því skjólinu að stjórn Tambronis styðst við þingmenn þeirra í fulltrúa- deildinni. Kommúnistaflokkurinn og Sósialistaflokkur Nennis féll- ust í gær á tillögu Merzagora, en nýfasistar visuðu henni al- gerlega á bug. Kaþólski flokk- urinn hafði enn enga afstöðu tekið til hennar, enda þdtt Merzagora sé úr honum, en ríkisstjórn Tambronis virðist. staðráðin í að halda áfram að beita lögregluvaldi sinu gegn samtökum verkalýðsins. ÁframhaldandJ verkfall Miðstjórn alþýðusambandsins ákvað einnig á fundi sínum í gærkvöld &ð fallast á vopna- hlé, en hún tók fram að verk- föllum myndi haidið áfram og þau gerð enn víðtækari meðan stjórnin héldi uppteknum hætti. Sósíaldemókrataflokkur Sar&- gats skoraði i gær á Tam- broni að segja af sér. (Nánar er skýrt frá óeirð- unum á ítalíu á 5. síðu.) Þrír bæir og þnr hreppar ræða skipulag til 50 ára í fyrradag var lialdinn sameig- J inlegur fundur fulitrúa Reykja- víkur, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Garðahrcpps, Scltjarnarneshrepps os Mosfellslirepps um skipulag langt fram i tírnann á landi þess-' ara bæjarfólaga og hreppa. Fundurinn var haldinn að til- hlutan Skipulagsnefndar ríkis- ins, til að hlýða á mál danska skipulagsfræðingsins Peters Bredsdorífs prófessors um heild- j arskipulagningu á svæði því í nágrenni Reykjavíkur. austan og 1 sunnan Elliðaárvogs og Fossvogs, j sem gera má ráð fyrir að tekið verði til byggingar næstu hálfa öld. Bredsdorff prófessor var feng- inn hingað samkvæmt álýktuh bæjarstjórnar Reykjavíkur um skipulagsmál, sem gerð var í vet- ur, en þar er gert ráð fyrir að hafinn verði nú þegar undirbún- ingur að heildarskipuiagningu 50 ár fram í tímann. Fulltrúar allra bæjar- og hreppsfélaganna sem fundinn sátu í fyrradag lýstu yíir fylgi við hugmyndina um heildar- skipulagningu. Var talið að stofna bæri samvinnunefnd þess- ara aðila, sem starfaði í sam- ráði við ríkisskipuiagið. Mun það Framhald á 10. siðu. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinijiniun,in,n„i,ii,n |[1l|iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii,iiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiii Þetta er opið á reytingarvél- inni. Hjólin snúast og Rrípa um fiðrið og dúninn. í litlu bakhúsi við Lauf- ásveginn hefur uppfinn- ingamaðurinn kunni, Baldvin Jónsson, verkstæöi sitt, Sylgju. Hann er aö góöu kunnur fyrir dún- hreinsarann og dúnþurrk- arann sem hann fann upp og reynzt hafa mjög hag- kvæmir og gagnlegir. Nú hefur hann fundið upp dún- og fiöurrevtara, sem hann sýndi blaöamönn- um í gærdag. Þegar blaðamenn komu á vettvang, stóð Baldvin við reyt- TVÆR MINÚTUR MEÐ FUGLINN arann og var í óða önn að reyta fugl. — Hvenær fékkstu fyrst hug- myndina að þessum reytara? — Ja, ég man það nú ekki. En ég byrjaði á framkvæmd- inni í fyrra. að mig minnir, og þá fékk ég nokkurn styrk, til að koma þessu í kring. — Hve lengi ertu með hvern fugl? -— Þegar ég reytti sjöunda fugiinn var ég tvær mínútur. Það er ágætur hraði og erfiðið ekkert’. — Það er vitanlega mun létt- ara að reyta í vélinni? —- Já. já. Þetta er engin á- reynsla. aðeins að halda fugl- inum að hjólunum, sem gripa í liðrið og dúninn, og' engin hætta á að dúnninn eyðilegg- ist, ef þess er gætt að hraði hjóianna sé mátulegur og þau grípi ekki of íast í. •— Er ekki hættulegt að haía fingurna alveg við hjólin? — Nei, þau grípa ekki það fast í og svo láta þau undan. ef eitthvað stórt kemur á milli. Ég hef sett fingur á milli þeírra, — hann marðist áðeins en ekk- ert hættuiega. — Reytirðu bæði dún og fið- ur í einu? — Fiðrið má taka fyrst og síðan dúninn, alveg eftir henti- semi hvers og eins. — Hvernig heldurðu fuglin- um. iæturðu reyta á móti dún- inum eða með? — Eiginlega er nokkuð sama hvort er gert, þó finnst mér betra að reyta á móti. ■— En lóin sem eítir verður. Framhald á 10. siðu. Baldvin Jónsson rey iir svartfugl í nýju vélinni siiuii. Gísli Kristjánsson ritstjóri fylgist með aí áhuga. (Lm. Þjóðv. A.K.)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.