Þjóðviljinn - 10.07.1960, Blaðsíða 7
Sunnudagnr 10. júlí 1960 — ÞJÓÐVILJINN
(7
RœH við Hannibal Valdimarsson, forseta Alþýðusambandsins
RM
verkkllsréttar flugmcmna er
aras
Afnám verkfa'lsrcttar
flugrnanna er nýjasti liður-
inn í ráðstöfunum rikisstjórn-
ar auðr.téttarinnar í grimmri
baráttu liennar fyrir að halda
vöitum í laniinu, gerður til
að kúga verkalýðssamtökin
og tryggja h:num ríku enn
urn sinn aðstöðu til að fé-
fletta almenning — en jafn-
fra.mt skref sem færir ríkis-
stjórnina örlítið hraðar nær
endalokum sínum.
Daginn eftir að ríkis-
stjórnin setti bráðabirgða-
lög sín er bönnuðu verk-
fall flugmanna gengu flug-
menn á fund flugfélaganna
og spurðu þau hvort þau
vildu ekki ljúka við að
semja og leysa deiluna,
því í bráðabirgðalögunum
er ekkert bann sett við
nýjum samningum. Nei,
flugfélögin líta á þessi lög
sem bann við nýjum samn-
ingum. Lögfræðingur flug-
manna gekk þá á fund ráð-
herra, Ingólfs Jónssonar
og innti hann eftir hvort
hann teldi samningsbann
felast í lögunum. Ingólfur
kvað að vísu ekkert á-
kvæði um bann við samn-
ingum í lögunum, en ríkís-
stjórnin myndi beita sér
fyrir því að ekki yrðu
gerðir nvir samningar um
kauphækkarir.
Þjóðviljinn liefur haft tal
af Hannibal Valdimarssyni
forseta Alþýðusambands ís-
lands og spurt hann um álit
á þsssum síðustu atburðum
í kjaramálunum.
— Eg lít mjög alvarlegum
augum á þetta mál, sagði
Hannibal, og tel bannið við
'verkfalilinu alvarlega árás á
rétíindi verkalýðsfélaganna,
— eiiki i'lugmanna einna,
lieldur irf's á alla verlialýðs-
hreyfingima.
— En er þessi lagasetn-
ing ekki sett vegna deilu
flugmanna, og eru þeir ekki
í sérflokki livað kaup snert-
ir ?
— Jú, í orði kveðnu bánna
lögin einungis boðað verkfall
flugmanna, en engum getui’
blandazt hugur um að setning
laganna er hatrömm árás á
verkalýðslireyfinguna í lieild.
Þetta er byrjunin á þvi að
afnema v'erkfallsréttinn með
lagaboði, og verkalýðshreyf-
ingin í heiii verður að mæta
þeirri árás. Það högg sem nú
er greitt Félagi íslenzkra at-
vinnuflugmanna er jafnframt
greitt öllum verkalýðsfélög-
um innan Alþýðusambands
Íslands, hverju einasta. Um
það þarf ekki að efast að
verkalýðssa.mtökin öll standi
með baráttu flugmanna og
telji hana sína baráttu.
Liing keðja
ofbeldisverka.
-— Kvað er orð'ð af frelsi
verkalýðsins og samtaka
vinnandi fólks í landinu ef
þannig er haldið áfram? seg-
ir Ilannibal. Ríkisstjóm Em-
ils Jónssonar byrjaði. Verka-
lýðshréyfingunni þótti það
ískyggilegt þegar stjóra hans
breytti öllum kaupgjakls-
samningum í landinu með
lagaboði um að lækka kaup-
gjaldsvísitöluna um 27 stig.
Næst eru svo sett lög til að
Hannibal Valdimarsson
svipta bændur tekjum er
þeir áttu rétt á. Önnur árás-
in á verkalýðssamtökin er svo
þegar vísitala á kaupgjald
er afnumin með öllu þegar
efnahagsmálalöggjöfin var
sett í vetur. Þá voru einnig
sett lög um að afhenda spari-
fé samvinnumanna hvar-
vetna á landinu til að
braskararnir í Reykjavík
geti ráðstafað þeim.
Þriðja og síðasta árásin á
verkalýðssamtökin er svo
bannið við verkfalli flug-
manna.
Fyrirheit hvítbókar.
— Þegar ríkisstjómin af-
nam kaupgjaldsvísitöluna tók
ríkisstjórnin sérstaklega fram
í hvítbók sinni ,,Viðreisn“:
„Það er stefna rfldsí.'ijórn-
arinnar, að það sé og eigi að
vera, verkefni samtaka laun-
þega og atvininirekenda að
semja um liaup og kjör.“
En nú, þegar fyrsta stétt-
arfélagið ætlar, samkvæmt
„stefnu ríkisstjórnarinnar“
að ftemja um kaup og kjör
þá liemur ríkisstjórnin — áð-
ur en sáttatillaga hefur verið
borin fram og meðan samn-
ingar virðast enn standa í
miðjum klíðum og góðar
horfur um lausn deilunnar,
og sadkur opinskátt hátíðlega
yfirlýsingu sína og setur lög
sem kippa fctunum undan því
að launþegar hafi nokkra að-
stöðu til að knýja fram lag-
færingu á kjörum sínum.
— Hver er afstaða Al-
þýðusambandsins til þessara
mála
— Hún liggur ljóst fyrir,
verkalýðsráðstefna Alþýðu-
sambandsins, sem haldin var
í maí'sl. samþykkti einróma:
„Réðstefnan, álítur, að
kjarainá'iúm verkafólks sé
nú svo komið, að óh.já-
kvæmilegt sé fyrir verka-
'ýð félögin að láta til
skarar í.kriða og hækka
kaupgjald og lirinda þann-
ig þ.eirri kjaraskerðingu
sem orðlð hefur“.
Ani a og vellaunuð
skrifstofustiilka.
— En svo við víkjum aftur
að flugmannadeilunni, eru
fiugmenn ekki meðal hæst-
launuðu manna innan verka-
lýðs’samtakanna, eða blátt
áffam hátekjumenn, því er
rnjög víða haldið fram.
— Jú auðvitað eru þeir bet-
ur launaðir en almennir
verkamenn, en þar er þó sér-
staklega tvenns að gæta.
I fyrsta lagi að þeir hafa all-
dýrt nám að baki, og í öðru
lagi að starfstími þeirra er
ekki frá 16 ára aldri til sjö-
tugs heldur frá 23—24 ára
aldri til 45 ára aldurs og auk
þess eru þeir stöðugt undir
ströngu lækniseftirliti, og ef
þeir bila eitthvað heilsufars-
lega er starfi þeirra sem
flugmanna lokið. — Vegna
hins skamma starfsaldurs
taka flugmenn 10% af laun-
um sínum í eftirlaunasjóð til
öryggis síðar á ævinni.
Þrátt fyrir þetta er það
staðreynd að byrjunarlaun
fullnema flugmanns eru ekki
nema 3441 kr. á mán., eða á-
móta og hjá ,,allvellaunaðri“
skrifstofustúlku. Síðan fer
þetta að sjálfsögðu hækk-
andi, og hæstlaunaði flug-
stjóri mun hafa 102 þús. kr.
kaup á ári.
Bein krafa um
aukið öryggi.
-— Það hefur tæpast Kom-
ið nógu vel fram hvaða kröf-
ur flugmenn gerðu í þessum
samningatilraunum.
— Þeir fóru fram á að
sett sé takmark fyrir því hve
flugtími megi vera langur í
einu. Það eru dæmi þess að
ilugmenn liafi verið látnir
vinna > fir 30 stundir í einu.
— og eftir eina slíka vinnu-
lotu settust þeir að samn-
ingaborði.
Krafa þeirra um íakmörk
fyrir flugtúna í einu er því
beiulínis öryggisráðstöfun
fyrir flugfarþega.
Jafnframt fara flugmenn-
irnir fram á. lágmarksflug-
stundafjö.'da á ári. Þá hafa
flugmenn orðið fyrir stór-
skerðingu á tveim þáttum
kaups síns. Þeir fá, eins og
farmenn, nokkum 'hluta
kaupsins í erlendum gjald-
eyri, en sá hluti þess hef-
ur stórlækkað við gcngis-
fellinguna. 1 öðru lagi fengu
þeir ákveðna upphæð til
upþihalds er þeir dvelja í
erlendum flughöfnum, sú upp-
hæð dugir nú ekki lengur fyr-
ir uppihaldi þeirra, og auk
þ?ss getur hún raunverulega
ekki talizt til kaups heldur
er hún vegna kostnaðar við
starfið.
Þriggja ára.
-— Kaupgjald flugmanna
hefur staðið óbreytt í 3 ár,
en á þeim tíma hefur kaup
flestra annarra hækkað nokk-
uð, en kaup þeirra raunveru-
lega lækkað. FLugmenn eru
því nú ekki í þeirri hálauna-
aðstöðu sem sumir hafa hald-
ið. Það er því ekki hægt að
segja að csanngjarnt sé að
leiðréttingar á kaupi þeirra
séu gerðar.
Flugmenn fara ekki fram á
hækkan'r á kaupgjaldsliðnm,
nema fyrir þá lægst launuðu,
en þeir vilja fá bætta geng-
isfellingarskerðinguna og
greiðs’u til uppihalds erlend-
is hækkaða.
Hafa lægri laun.
— Það á ekki að bera flug-
menn saman við verkamenn*;
heldur stéttarbræður þeirra í
öðrum löndum og kaup og
kjör stéttarbræðra þeirra.
Á flugvélum Loftleiða liafa
etarfað norskir flugmenn með
þeim íslenzku, og íslenzkur
flug.1 jóri á flugleiðum Loft-
leiða fær greitt minna kaup
en undirmaður hans norskur.
Þetta bendir til þess að kjör
flugmanna séu enganveginn
svo góð að verkalýðssamtökin
þurfi nokkuð að ve:gra sér
við að standa með þeim, þótt
aðeins sé litið á launakjörin.
Tslenzku flugfélögin fengu
hækkuð fargjöld sín á s. 1.
vori og hljóta því að geta
staðið undir svipuðu flug-
mannakaupi og greltt er
í öðrum löndum.
— Hvern'g lízt þér á þá
stjórnarstefnu sem fram
kemur í bráðabirgðalögun-
um?
—• Það er óhætt að full-
yrða að það dugir engin laga-
retning til að halda kaupi ó-
hreyttu eftir !"i>r gjörbreji:-
ingar sem orðið hafa á öllu
verð’agi í landinu vegna
rtefnu stjórnariniiar og að-
gerða hennar. EinstakMngar
og verkalýðurhm sem heild
mun neyta allra ráða til að
brjóta slíka ofbeldislöggjöf
niður — og það þarf enginn
Framhald á 10 síðu
iiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimimim!iiiimiii»
| Guðbjörg
1 Össurardótlir
= f-yrrverandi Ijósmóöir
= Fædd 8. apríl 1864
= Dáin 29. maí 1960
= Hér kemur síðasta kveðjan mín,
þín kvöldstundin hinzta er liðin.
= Þér hefur upplýst sólarsýn,
= að sjá yfir björtu sviðin.
Við þráðum báðar að þekkja þá stunid,
= og þvilikar sálarfarir.
= E-f til vill kem ég á þinn fund,
E áður en nokkurn varir.
= Þau verk sem þú gerðir á vorri jörð,
voru ekki metin sem skyldi.
= Þú varst svo vel af guði gjörð
= af gáfum, kærleik og mildi.
= Þín list var að íæra ljóssins til.
= þær lífverur sem við þráum.
= En er ekki dauðinn skuldaskil,
= skuld sem við aldrei sáum.
Andi minn sér inní himnahöll,
= helgidóm mannlegs anda.
= Við munum að síðustu mætast þar öll
hjá Messías allra landa —
Ennþá er foeðið um aldabil,
E í öruggri von til dáða.
= Ljósmóðir gakk þú lífsins til,
og læknaðu hrellda og smáða.
= Sólveig Hvannbérg.
ilmimiimiimmmmimmnmmmimimmimmimiHiuimiiuuuiiimm
lnsiimimiiniiiiiiíifiiimmimiiiiiiiiiiimiimimiiiiiiiiiiiimiuiniiniuiniiiiiimmimiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiimiiiiiii: