Þjóðviljinn - 31.07.1960, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 31.07.1960, Blaðsíða 9
r Sunnudagur 31, júlí 1960 — ÞJÓÐVILJINN O' ÍSaí M BH i m aæt m B Efea “fS 25; pUHí jg|§ ss n ÖSS< S3Ö :C3| Ritstjórí: Frímann Helgason Johnson er gœddur meiri per- sónutöfrum en almennt gerist Hér hefur nú og áður verið vikið nokkuð að íþróttamann- inum Rafer Johnson, en þessi þeldökki maður hefur einnig persónuleika, sem er langt yfir það sem er venjulegt. Þetta hefur orðið til þess að ýmsir aðilar hafa veitt honum at- hygli fyrir það ekki siður en fyrir afrek hans í íþróttum. Þegar hann árið 1958 var kjörinn „Iþróttamaður ársins“ í Bandarikjunum, var því hald- ið fram að það væri ekki að- •eins fyrir heimsmet hans í tugþraut heldur eins vel fyrir hina ýmsu eiginleika, sem hann hafði, og eru mjög sjaldgæfir hjá toppíþróttamönnum. Þá má geta þess að árið Rafer Johnson tugþrautar- kappinn bandaríski hefur ver- ið mikið á dagskrá að und- anfömu, enda afrek hans með eindæmum gott. Þó má geta þess að John- son á betri persónuleg met í öllum greinum en hann náði, er hann setti heimsmetið 8683 stig. Hér kemur samanburður á beztu afrekum Johnsons og afrekum er hann náði er hann setti heimsmetið. Persónul. H.met 100 m 10.3 10.6 Langstökk 7.76 7.55 Kúluvarp 16.75 15.85 Hástök-k 1.89 1.78 400 m 47.9 48.6 1958 var hann kjörinn af 11 þúsund stúdentum \ Kaliforn- íu háskóla sem formaður í stúdentafélagi skólans. Sumir vilja ef til vill halda því fram, að þetta hafi verið vegna þess að hann væri mikill íþrótta- maður, en því var ekki til að dreifa. Á þessum tíma hafði hann varla getað verið með tvö keppnitímabil vegna meiðsla, og enginn vissi hvort hann myndi verða heill aftur. Það var þvi ekki mikill stjörnu-ljómi yfir nafni hans, þegar hann var kjörinn í þetta virðingarstarf. Það var fyrst og fremst vegna þess orðstís sem hann hafði aflað sér með framkomu sinni og að hann 110 m gr. hl. 13.8 14.5 Kringlukast 52.31 51.97 Stangarstökk 3.97 3.97 Spjótkast 76.74 71.10 1500 m. 4-54,2 5:09,9 [Sem sé, væri Rafer John- son Islendingur ætti han;n metið í 100 m hlaupi með Hilmari, ætti metið í lang- stökki, kúluvarpi, 400 metr- um, 110 metra, grind, og spjótkasti og væri liðtækur meðal 'íslenzkra íþróttamanna í hinum fjórum greinunum. iSamtals gera persónulegu afrekin 9846 stig, svo það má verða Ijóst að enn getur Rafer bætt metið, og það e.t.v. svo um munar. hafði sýnt að hann hafði lag á að koma málum sinum fram, það var þyngst á metunum hjá stúdentunum sem gengu að kosningaborðinu, Eftirsóttur á niargan hátt Rafer nýtir daginn vel og skiptir honum á milli lesturs, vinnu og leiks. Hann er maður nútímans og lætur margt til sín taka. Hann jsitur 20 tíma á skrifstofu s'kólans þar sem hann gegnir starfi forseta samtaka skólans. Er þá mikið til sldptanna? Þar bíða hans daglega mörg og margháttuð verkefni og fer hér á eftir nokkur atriði á ein- um degi sem hann varð að sinna og taka afstöðu til og sýnir það nokkuð það álit sem hann nýtur sem maður. 1. Innanríkisráðuneytið gerir fyrirspurn til hans hvort hann geti farið j kynningaferðalag. 2. Frú nokkur, Berler að nafni, skrifar og spyr, hvort hann geti tekið þátt í sam- kvæmi og flutt erindi um blóð- banka. 3. Ýmis samtök vilja fá hann til að flyt ja erindi: KFUM-félög, Rótary-félög, sjónvarpsstöðvar o. fl. 4. Dan Ferris formaður Frjálsíþróttasambands Banda- ríkjanna, skrifar og óskar eft- ir því að Rafer taki þátt í keppniferð til Ástralíu næsta ár. 5. Louis Satterburg frá Yucaipa í Kaliforníu skrifar og segist hafa áttað sig á því að Rafer sé litli 10 ára dreng- urinn, sem hún hafi gætt fyrir löngu síðan þegar hann lá á sjúkrahúsi með slasaðan fót. Rafer minnist þess einnig, enda 9846 stig ef Johnson næði sínu bezta í öllum greinum I dag er væntanlegt með flugvél Flugfélags Islands landslið V-Þýzkalands, en þeir senda sitt A-landslið með a m.k. 7 sterkustu mönnunum, sem V-Þýzkaland hefur nú yfir ®ð ráða. Blaðamenn ræddu við mót- tökunefnd liðsins og Björgvin Schram form. KSl s.l. föstu- dag. Sagði Björgvin, að KSl hefðj kosið móttökunefnd til að sjá um allar móttökur iiðs- ins, og hefði sú nefnd þegar skilað mjög góðu verki. 1 nefndinni eru eftirtaldir menn: Sveinn Björnsson formaður, Hermann Hermannsson, Jón Ragnarsson, Ólafur Jónsson og Vilberg Skarphéðinsson. 18 leikmenn + Herberger Hópurinn, sem kemur verð- ur alls 30 menn; 18 leikmenn, 6 fararstjórar, 4 blaðamenn, nuddari og siðast en ekki sízt „Heili þýzkrar knattspyrnu", þjálfarinn Sepp Herberger, sem öðlazt hefur heimsfrægð fyrir snilli sína sem þjálfari. Herberger er ríkisþjálfari V- Þýzkalands og talinn einhver mesti sérfræðingur Evrópu í öllu viðvíkjandi knattspyrnu. Heimsfrægir leilanenn Meðal leikmannanna eru Framh. á 2. síðu iRafer Johnson í keppni aldrei fyllilega jafngóður síð- an. 6. Öve Ström frá Stokkhólmi skrifar og ós'kar eftir ráðlegg- ingum við þjálfun. 7. Rektor háskólans skýrir frá því, að Rafer hafi verið skipaður !í þjálfunarnefnd skólans. Þessi listi yfir verkefni eða hluta þeirra sem bíða Rafers daglega benda til þess, að mað- urinn Rafer Johnson sé ekki í minna áliti en íþróttamað- urinn Rafer Johnsson og sjald- gæft að þetta tvennt samein- ist í sama manni. 8. Art Lentz frá Olympíu- nefnd Bandaríkjanna spyr, hvort Rafer vilji vinna að því að gera kennslukvikmynd í íþróttum. 9. Frá Panama kemur bréf frá frú einni, Eleanor Larsson, sem hefur heyrt að Rafer stundi tannlækninganám, og skýrir honum frá því að hún sé trúboði, og verði að stunda tannlækningar, þótt hún hafi hafi ekki ,leyfi“. „Hvort hann gæti hugsað sér að koma til trúboðsstöðvarinnar, þegar hann hafi lokið námi, þar eru margar tennur og sálir, sem þarf að lækna.“, skrifar frúin, „en ég vil aðvara yður: þér komið aldrei til með að verða ríkur á þessu." Landsliðið í Hiíðardalsskóla Um helgina verður farið með íslenzka landsliðið aust- ur í Ölfus, eða nánar tiltekið austur í HHðardalsskóla, og þar munu landsliðsmennirnir dvelja í tæru fjallaloftinu og hvíla sig fyrir stór átök, sem þeir eiga eftir að lenda í, — landsleikinn á miðvikudags- kvöldið. Vonanid að dvölin þar eystra hafi góð áhrif á þiltana, bæði félags- og líkamlega, ekki mun af veita, ef við eigum að standast hinum sterku Þjcð- verjum snúning. Siglingar er skemmtileg íþrótt og mikið stunduð erlendis. Auðvitað er heimsmeistarakeppni í siglingum eins og öðr- um íþróttagreinum og eru þessar fallegu skútur einmitt í slíkri keppni á Eyrarsundi. Við liöfum ekki minnstu hug- mynd um hver bar sigur úr býtum, enda skiptir það ekki svo miklu máli — myndin er ágæt.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.