Þjóðviljinn - 05.10.1960, Qupperneq 5
Miðvikudagmr 5. október 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
ÍMl
Þjóðhátíðargestir til Peking
Hinn 1. október héldu K'n-
verjar hátíð’egt 11 ára af-
mæli alþýðuveldisins og var
þá gestkvæmi í Peking. Á
myndunum sjást tveir kunn-
ir þjóðaleiðtogar við kom-
una til Peking. A efri mynd-
inni sjást ungir Kínverjar
fagna U Nu, forsætisráð-
herra Burma, en hann und-
irritaði einnig nýjan landa-
mærasamning við Ivína með-
an liann dvaldist í Peking. Á
neðri myndinni sést Pant-
sén Lama, forseli stjórnar-
nefndar Tíbets og varafor-
seti fastanefndar þjóðþings
Kína. Pantsén er hér á
flugvellinuin í Peking á-
samt Ilo Lung aðstoðar-
íorsætisráðlie rra.
asnzasnniannHHnnnaHnnHBBnHnBHBKnHHHn
Styrjöldin í Alsír hefur nú staöiö í 6 ár, og allan þenn-
an tíma hafa franskir hermenn brytjaö niöur serki 1
Alsír, — oft lagt heil þorp í eyði og myrt alla íbúana.
Taliö er að’ um 600.000 manns hafi látiö lifiö á þessu
tímaibili.
Útiagastjórn Alsírbúa hefur
snúið sér til Sameinuðu þjóð-
anna og beðið um, að séð verði
um að þjóðaratkvæðagreiðsla
verði látin fara fram í Alsír
undir eftirliti Sameinuðu þjóð-
anna, þannig að alsírska þjóð-
in fái sjálf ótvírætt að ákveða
framtíð sína.
Stjórn de Gaulle er algjör-
lega andvíg því að Samein-
uðu þjóðirnar fái að hafa eftir-
lit með slíkri þjóðaratkvæða-
greiðslu, þar sem vitað er að
ef vilji þjóðarinnar fær að
koma fram í slíkum kosning-
um, myndi það þýða algjöran
ósigur fyrir stefnu de Gaulle j
í Alsírmálinu.
Alsírmálið verður rætt á i
Allsherjarþinginu . og búast [
margir við að nú muni Sam- i
einuðu þjóðirnar ekki lengur
geta staðið hjá aðgerðarlausar ,
og horft á hryðjuverk sem [
Frakkar fremja í Alsír. Morð |
á óbreyttum borgurum og á í
föngunum hafa mjög aukizt í
Alsír undanfarið, og jafnframt;
hafa Frakkar ef.lt herlið sitt j
og hernaðaraðgerðir í landinu. •
Fyrrverar.di nýlendur eiga nú
marga fulltrúa á þingi S.Þ. og
telja margir von til þess að
Sameinuðu þjóðirnar láti mál-
ið tii sín taka.
Hermenn úr Þjóðfrelsisher
Alsírbúa, sem Frakkar hafa
tekið höndum á vígvellinum,
fá aldrei þá meðhöndlun sem
j þeim ber samkvæmt alþjóða-
Ba.ndaríkjastjórn hefur gert
samning við Dominilianska lýð-
veldið um kaup á 321000 lest-
um af sykri. Með þessu ætla
Bandaríkjamenn sér aðl fá þann
sykur frá Dominikanska lýð-
veldinu sem þeir áttu að fá
frá Kúbu samkvæmt verzlunar-
samningi ríkjanna, sem Banda-
ríkjamenn rufu er þeir liófu
efnahagsstríð sitt gegn Kúbu.
Bandaríkjamenn hafa fyrir
skömmu lýst stuðningi við for-
samþykktum. Þeir eru fluttir
til yfirheyrslu og beittir
hrottalegum pyntingum sem
oftast enda með aftöku.
Frönsku hermennirnir
fremja stöðugt hin hroðaleg-
ustu fjöldamorð á óbreyttum
borgurum í Alsír. Þjóðfrelsis-
herinn hefur stuðning íbúanna
í öllum bæjum og þorpum
landsins, og til þess að þeir
veiti Þjóðfrelsisliernum ekki
styrk, myrða þeir oft íbúa
heilla þorpa og jafna þorpin
við jörðu.
dæmingu á einr~5i~rtjcr~'
Trujillos, en grunur lck á að
þeir hefðu aðeins léð þann
stuðning til þess að fá önnur
ríki í Ameríkubandalaginu til
að mótmæla ekki efnahagsleg-
um, hernaðarlegum og póli-
tískum þvingunum Bandaríkja-
manna gagnvart Kúbu. Sá
grunur hefur nú sannazt.
Óánægja í. Venezuela
Bandaríkjastjórn hefur lýst
yfir því, að hún telji sig ekki
bundna af samþykkt stofnun-
ar Ameríkuríkjanna um sam-
eiginlegar aðgerðir gegn ein-
ræði Trujillos. Og nú veitir
hún einræðisherranum stuðning
með því að kaupa af honum
sykurbirgðir eftir að hafa svik-
ið samningana við Kúbu.
Frá Venezuela hafa borizt
hörð mótmæli til Bandaríkja-
stjórnar, sem samþykkti á ráð-;
stefnu Ameríkubandalagsins í
Costa Rica fyrir skömmu að ■
slíta stjórnmálasambandi og
hætta viðskiptum við einræð- \
isherrann Trujillo. Er Banda- [
ríkjastjórn ásökuð fyrir að
hafa opinberlega brotið þetta
samkomulag bandalagsins.
Blaðið Prensa Latina í Cara-
cas skýrir frá því, að forseti
þingsins, Errera Oropesa, hafi
lýst yfir því að sykurkaup
Bandaríkjanna sýni að Banda-
ríkjastjórn hafi áhuga á að
styðja einræðisstjórnina í Dom-
inikanska lýðveldinu.
Fleiri stjórnmálaforkólfar í
Venezuela hafa látið í ljós
sömu skoðanir. Forseti Vene-
zuela, sem slapp nauðuglega
undan morðtilraun sendimanns
Trujillos á dögunum, hefur af-
hent sendiherra Bandaríkjanna
í Caracas orðsendingu, þar sem
lýst er yfir óánægju og hryggð
yfir því að Bandaríkastjóm
skuli hafa misvirt samkomulag-
ið sem utanríkisráðherrarnir
gerðu í Cocta Rica.
Kouraghan Kouroina heitir hann þessi listamaður, sem er að
leika á flautu með nefinu. Þetta er þjóðleg list í landi hans,
en Kouroma er frá Afríltulýðveldinu Gíneu. Hann er I hópi lista-
fólks frá Gíneu, sem sýnir þjóðdansa og leikur á hljóðfæri
um þessar mundir í Piccadilly Theatre í London.
Nýr stuðningur Bandaríkjanna
við Trujillo eiuræðisherra
Forhertur glæpamaður fyrir
rétti í Vestur-Þýzkalandi
Ákærður fyrir 5 morð og 10 morðtilraunir
Réttarhöld era liafin gegn
23 ára gömlum Vesturþjóð-
verja í, Freiburg, Pommerenke
að nafni. Er hann ákærður fyr-
ir fjögur morð, tíu morðtil-
raunir, margar ofbeldisárásir
Og innbrot.
Baað 1081 upp á
sörau stúlkuna
Danskur hljóðfæraleikari,
Jörgensen að nafni, hefur játað
á sig að hafa svikið um 16.000
danskar krónur út úr karl-
mönnum um öll Norðurlönd,
sem hann hefur lofað að koma
í kynni við ungar stúlkur með
hjónabar.d fyrir augum. Jörg-
ensen hefur rekið hjóna-
bandsmiðlunarskrifstofu í fjög-
ur ár. Hann setti auglýsingar
í blöð á öllum Norðurlöndum.
Þeir sem svöruðu auglýsing-
unum fengu mynd af ungri lag-
legri stúlku og var sagt að ef
þeir greiddu 15 krónur fengju
þeir me'ra um hana að vita.
1081 kvenmannslaus maður
beit á agnið, sendi peningana,
en heyrði síðan ekkert meira
frá Jörgensen. Það kom við
athugun í Ijós að myndirnar
voru allar af sömu stúlkunni.
Ákæruskjalið er 139 síður.
Þar segir m.a. að Pommerenke
hafi gert fimm morðtr raunir
á tveim nóttum í Karlsuhe.
Pommerenke liefur játað á sig
55 afbrot, en rétturinn fjallar
aðeins um þau 27, sem hann
hefur framið síðan hann varð
21 árs.
Hann er m.a. ákærður fyrir
nauðgun og morð á 48 ára.
gamalli konu í Karlsuhe í
febrúar í fyrra. Þá myrti hann
18 ára hárgreiðslustúlku I
Schwarzwald og kastaði líki
hennar í fljótið. Hann réðist
á 21 árs gamla stúlku í járn-
brautarlest, varpaði henni út
úr lestinni. Greip í neyðarheml-
ana, hljóp út og myrti stúlk-
una. E:nnig myrti hann 17 ára
stúlku í Schwarzwald þar sem
hún var ein á gangi á þjóð-
vegi.
Upp komst um Pommerenke
eftir að hann komst undir
her.dur lögreglunnar vegna
smáafbrota. Ein af þeim kon-
um, sem hann hafði ráðizt á,
þekkti hann aftur og þá játaði
hann á sig afbrotin. Hann
sagðist vera undrandi yfir því
að sér hefði ekki tekist að
fremja fleiri morð en raun varð
á.