Þjóðviljinn - 05.10.1960, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 05.10.1960, Blaðsíða 10
30) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 5. október 1960 „Vitcslis" Framhald af 7. síðu. Öil þjónusta símans verður að batna stórkostlega og fást fyi’ir sannvirði. 2.) Landsím- inn má ekki lengur komast upp með þá skömm að fleyg'ja í fólkið ljótum og illa gerðum simaskrám á margra ára fresti!! Honum ber að standa skil á hagkvæmri og góðri símaskrá einu sinni á ári! 3.) Það þarf að vera hægt að hringja í þessa stofn- un án þess að starfsfólk hlaupi úr miðju samtali til þess að hrópa á annað lands- horn. 4.) Þegar Landsíminn hringir í skökk númer, (það gerist mjög oft), og heimtar þar fólk, sem ekki er til, ber að biðjast kurteislega afsök- unar, en ekki skella á. 5.) Símnotendur, sem búnir eru að notast við eitt og sama símatækið áratugum saman og borga Landsímanum off jár á mörgum okurárum, verða Enn ný aðför Framhald af 4. síðu Vísitala framfærslukostnað- ar lækkar þannig úr 104 stig- um 1. ágúst í 101 stig 1. sept- ember 1960.. Lækkun tekju- skatts og útsvars veldur 3,6 stiga vísitölulækkun, en á móti kemur 0.6 stiga hækkun vegna verðhækkunar á ýmsum vör- um. Skattskrár og útsvarsskrár Reykjavíkur 1960 voru lagðar fram i ágúst sl., og er því lækkun á tekjuskatti og útsvari „vísitölufjölskyldunnar“ tekin í vísitöluna 1. september 1960. Að óbreyttum árlegum álagn- ingartíma tekjuskatts og út- svars verða breytingar á þess- um gjöldum framvegis teknar í vísitöluna 1. september ár hvert. Þess skal getið, að tekju- skattsupphæðin í vísitölunni, 1.444 kr., lækkar niður í ekki neitt vegna lækkunar tekju- skattsstigans en útsvar „vísitölu- fjölskyldunnar“ lækkar úr 5.639 í 4.715 kr. Það skal að lokum tekið fram, að vísitala framfærslu- kostnaðar 1. september 1960, reiknuð á sama hátt og gert hefur verið undanfarið, er 105 stig, og er um að ræða 1 stigs hækkun hennar frá 1. ágúst 1960, Útreikningur þessarar vísitölu fellur nú niður. Að öðru leyti er vísað til greinargerðar um þessi mál, sem birt verður í októberblaði Hagtíðinda. Hagstofa íslands. skrilezr að eiga rétt á nýju símatæki án þess að þurfa að kaupa það, því nóg er okur þessar- ar stofnunar að öðru leyti æðisgengið og skammarlegt. 6.) Það er óverjandi „þjösna- skapur“, þegar símanum leyf- ist að loka símatækjum, þótt óviðráðanlegar ástæður fólks valdi, að greiðsla drag- ist, og 7.) Það verður að leggja algjört bann við „hauskúpuveiðum" Land- símans! VII. Alvizkan á fræðslumála- skrifstofunni, nánar tiltekið toppurinn sjálfur, er nú tek- inn að haliast. Hefur maður gengið undir manns hönd og reynt að rétta toppinn, en ekki tekizt. Þannig er í fáum orðum ein vandræðasaga, sem hefur blasað við mönnum undanfar- ið í blöðunum. Fræðslumála- stjórinn fór fyrir nokkru út á þá braut, sem hann ætti aldrei að stíga fæti á, bless- aður drengurinn, sem sé, að láta ljós sitt skína, enda kom hann rammskakkur úr þeirri för. Maðurinn er nú búinn að gjökta við þesei fræðslumál okkar í mörg ár í einhverjum M.R.A.-anda og veldur þessum málum auðsjá- anlega ekkert frekar í dag heldur en hann gerði 1944, þegar hann hrökk inn í starf- ið. En eftir öll þessi ár ræð- ir fræðslumálastjórinn um kennaraskort á Islandi. Og auðvitað tókst honum ekki að ramba á höfuðástæðuna fyrir þeim skorti, nefnilega bágborin laun kennara, sem eru nú mjög á dagskrá. Heldur fjasar hann í blöðum um atriði, sem allir kunna skil á, en eru bara á allt öðru sviði. Síðan hafa svo bless- aðir kennararnir, ýmist einn og einn eða í hópum, reynt að rétta toppinn við og minnt fræðslumálastjórann á hin lágu laun, en um þ-au virðist þessi maður vita ná- kvæmlega jafnlítið og Moggi vissi um landhelgismálið á tveggja ára afmæli þess. Kennarar eru sjálfsagt ýmsu vanir, þegar þeir. reyna að fræða slappa nemendur, og vafalaust tekst þeim oft að taka andlega slagsíðu af slíku fólki. En þegar þeir eru nú farnir að leitast við að leiðrétta og leiðbeina sínum eigin meistara og það í blöð- unum, þá held ég að þeir fær- ist of mikið í fang. Þeir verða þó að muna það blessaðir mennirnir, að fræðslumála- skrifstofan er ekki neitt venjulegt jólatré, þar sem skakkur- toppur verður rétt- ur við með einu handtaki. Ó, nei. Toppurinn heldur áreið- an'ega áfram að hallast. Hvernig má líka annað vera, þar sem það bætist nú ofan á allan ráfuskapinn, að Björn Ólafsson fyrrv. ráðherra og Bjarni Ben. núv. ráðherra eru báðir búnir að komast í þenn- an topp og hrista hann? Sum:r 'ættu að muna þau csköp! En hvers vegna skyldi hann (toppurinn) þá vera að blása sínar sápukúlur í mál- gögnum þeirra? Varla verða þær sigurstranglegri en gömlu kveinstafirnir. Nei, toppurinn réttist ekki, þótt hann stein- gleymi vissum aitriðum fyrir tvo „h jartfólgna “ stjórn- málamenn. Mánudagsblaðið hefur verið að beina nokkrum spurning- um til fræðslumálastjórans og gerir það alveg réttilega. Einnig ofbýður því eins og eðlilegt er að hann ekuli ekki svara. En hafa menn bara hugleitt, hvernig frammistað- an yrði, ef maðurinn tæki nú allt í einu upp á því að svara? Þá hugsun neita ég algerlega að hugsa til enda, því að það hefur lengi sézt og sézt nú betur en áður: Að toppurinn liallast. / Þjóðviljann vantar unglinga til blaðburðar í eftirtalin hver.fi: Seltjarnarnes, Grímsstaðaholt, Hringbraut, Vesturgötu, Tjarnargötu, Meðalholt, Höíðaborg, Laugarás, Langholt, Njálsgötu og Gunnarsbraut. Afqreiðslan, Sími: 17-500. IþróHir Framhald af 9. síðu. heim á æfingu til okkar í sömu erindum. Ég held að við getum lænt hver af öðrum og sameiginlega byggt áhalda- leikfimi upo sterkari og traust- ari en verið hefur. Hún ætti þó alltaf að vera hið sam- eiginlega áhugamál okkar. Hvað um keppni í fimleik- um ? Ég veit það eiginlega ekki. Það er eins og menn komi sér ekki saman um það. Af hverju veit ég ekki. Það munu þó vera til reglur fyrir þessu. Hvað tefur framgang á- haldaleikf iminnar ? Ef til vill helzt það að ungl- ingunum er ékki nægur gaum- ur gefinn. Það er ekki byrjað nógu snemma að leiðbeina þeim, og getur þar lika vald- ið nokkru að áhöld eru ekki víðá. Þá má geta þess að kennarar sem kunna þessa grein fimleika eru of fáir hér, en kennslan og þjálfunin verður þó alltaf undirstaéan, sagði Óskar að lokum. I stjórn Fimleikadeildarinn- ar eru: Óskar Valgarðsson formaður, Guðrún Jónsdóttir Jörgen Berndsen, Sveinn V. Jónsson. Sími 2 -33-333. Skólastúlkur Stúlka, sem er í skóla, seinnipart dagsins, getur fengið herbergi og fæði gegn því að sitja hjá gam- alli konu fyrrihluta dags- ins. — Upplýsingar í síma 19264 eftir klukkan 6. Aðstoð við námið kemur einnig til greina. LÖGFRÆÐl- STÖRF endurskoðun og fasteignasala. Ragnar Olafsson hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi. Sími 2 - 22 - 93. SíldarsöltuFt Framli. af 12. síðu Vegna lélegrar veiði Norð- urlandssíldar á síðastliðnu sumri vantar allniikið á að hægt sé að afgreiða hið til- greinda síldarmagn sam- kvæmt samningum. Veltur {iví á miklu, sagði Gunnar Flóventz, að unnt verði að salta það ma.gn liér syðra li! viðbótar því magni sem áður hafði verið samið mn af Suðurlandssíld sérstak- lega. i Xilraunir í síldarverkun Að lokum gat framkvæmda- stjóri Síldarútvegsnefndar þess, að í undirbúningi væri tilraunaframleiðsla á nokkrum tegundum af ediksverkaðri s'íld, en fyrir þá vöru er mik- ill markaður í Mið-Evrópu og Bandaríkjunum. Innflutningur Bandaríkjamanna á venjulegri saltsíld er hinsvegar mjög lít- ill. Hemlarnir btluðu og árekstur varð í gærkvöld um klukkau 7.30 biluðu hemlar bifreiðarinnar G-99 er hún var á leið niður Skólavörðustíg og rann hún niður í Bankkstræti og lenti á grindverkinu á horni Skóla- vörðustígs og Bankastrætis og lagði það útaf. Bifreiðin skemmdist allmikið, en slys varð ekki á mönnum. ENWNÍIIP RAFPRáW- FARIP íÆTILEa MfD RAFTAKI! Húseigendafélag Reykjavíkur KRANA- viðgerðir og klósett-kassa. Vatnsveita Reykjavíkur Enn heldur skyndisalon áfram 20 % Afslóttur 30% á öllum vörum í HERRADEILDIMNI KomiS - SkoSiS - GeriS góS kaup M.a.: Allar stærðir af SPÖRTU Drengja og karlmanna FÖTUM

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.