Þjóðviljinn - 05.10.1960, Síða 12

Þjóðviljinn - 05.10.1960, Síða 12
 | Stærsta guðs- | hús á íslandi Uppi á Skólavörðuholti =■ rís iHallgrímskirkja af s gruni í áföngum. Hún á að = verða stærsta kirkja á Is- 5 landi, 'há til lofts, víð til = veggja og himingnæfandi = turn ofan á öllu saman. S Fullbyggð á hún að rúma S í sæti 1000 itil 1200 kirkju- S gesti en kapellan, sem vígð ~ var 1948, tekur rúm 200 = manns í sæti. Þegar Þjóðvilj- = inn kannaði kirkjugestatölu H fyrsta sunnudag í aðventu = sl. vetur var -þar setið í = aðeins fjórða hverju sæti. Hinir kirkjuræknu í Hall- gr'Imssöfnuði ættu því ekki að þurfa að sitja háskalega þröngt í nýju kirkjunni, þegar hún verður fullbúin. Kapellan kostaði á sínum tíma rösklega hálfa milljón króna. Blaðið hefur ekki getað fengið upp, hve mikið fé er komið í grunn og veggi aðalkirkjunnar en veit þó, að vegghluti, sem reistur var í fyrrasumar kostaði hálfa milljón. ,,Dýr mundi Hafliði allur“ var sagt forðum. Bærinn leggur ár- lega eina milljón króna til kirkjubygginga í Reykjavík og fer hluti þess til Hall- grímskirkju. Ríkið mun einn- ig eiga að leggja sitt af jjj mörkum og svo eru sóknar- E gjöld, áheit og gjafir. Eins og sést á myndinni = hér fyrir ofan, sem ljós- = myndari Þjóðviljans, Ari = Kárason, tók nýlega, er ver- = ið að byggja nýjan vegg- = hluta kirkjunnar í ár. Þann- = ig smástækkar og rís kirkju- 5 báknið mikla á Skólavörðu- E holtinu á meðan klerkar jj safnaðarins messa yfir hálf- = setnum bekkjum kapellunn- = ar litlu. Á sama tíma eru = einnig að risa margar aðrar = kirkjur í Reykjavík — kirkj- = ur fyrir tugi milljóna króna = handa nokkrum hundruðum E sálna. iiiiiiiiiiiiiimi ii ni iii iii n ii iii in iii iii ii 111111111111111111111111111 iiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiii M ríður á að söltuð sé síld sunnan lands FramtiS saltsildarsölu erlendis i húfi, - segir framkvœmdastjóri Sildarútvegsn. Framtíðarsamningar um sölu saltsíldar héðan frá ís- landi eru í húfi, ef ekki tekst að salta mikið magn síld- ar hér sunnanlands á þessu hausti. Eitt’hvað á þessa leið komst Gunnar Flóventz, framkvæmda- stjóri Síldarútvegsnefndar, að orði í gær, er Þjóðviljinn hafði samband við ihann og spurðist fyrir um sölu Suðurlandssíldar og söluhorfur, en eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær hefur nokkurs síldarmagns orð- ið vart hér í Faxaflóa að und- anförnu. 65 þús. tunnur af stór- síid seldar Gunnar Flóventz sagði að búið væri að semja um sölu á 60 þús. tunnum af Suður- landssíld til Sovétríkjanna og 5 þús. tunnum til Vestur- Þýzkalands. Er hér eingöngu um svokallaða stórsíld og milli- síld að ræða. IHa hefur gengið að selja smásíldina, þar sem dregið hefur verulega úr viðskiptum við þau lönd, sem helzt sækj- ast eftir þessari stærð síldar, þ.e. Austu r-Þýzkaland, Pólland og Rúmenía. Minni innkaup — minni sala Austur-Þjóðverjar tjáðu sig þegar 'í sumar reiðubúna til að Jcaupa mikið magn af hinni smáu síld, svo framarlega sen austur-þýzkar vörur yrðu keyptar á móti. En því miður eru horfurnar ekki góðar, sagði Gunnar Flóventz, þar sem vöru- kaup oklíar frá Austur-Þýzka- landi hafa minnkað verulega á þessu ári, enda búið að setja á frílista um helming af vör- um þeim sem áður voru á bundna listanum við Austur- Þýzkaland. í vöruskiptasamninnum við AustuHÞjóðverja er gert ráð fyrir 50 þús. itunna saltsildar- kvóta, sagði Gunnar ennfrem- ur, og þrátt fyrir erfiðleikana erum við að gera okkur vonir um að samkomulag náist næstu dagana um sölu á nokkrum hluta af þessu magni. FuIItrúar frá Rúmeníu væntanlegir Um Rúmeníu er svipaða sögu að segja. Rúmenar tjáðu sig reiðubúna á síðasta vori að semja um saltsildarkaup en settu það sem skilyrði að sam- tímis yrði gengið frá kaupum á rúmenskum vörum hingað. Fulltrúar frá rúmenska ut- anríkisverzlunarráðuneytinu eru væntanlegir hingað til landsins á næstunni og fæst þá væntanlega úr því skorið, hvort tim verður að ræða síldarsölu til Rúmeniu á þessu ári. Stóraukin eigin framleiðsla Pólverja Um söluhorfurnar í Póllandi er það að segja, sagði Gunnar Flóventz, að sökum stóraukinn- ar eigin framleiðslu telja Pól- verjar sig ekki hafa len.gur á- huga fyrir síldarkaupum frá fslandi, Er viðskiptasamningurinn við Pólland var framlengdur í síð- asta mánuði var lögð á það mi'kil á'herzla af fulhrúum ís- lenzku ríkisstjórnarinnar, að Pólverjar keyptu hér saltsild og hafa þeir nú fallizt á að senda hingað fulltrúa til við- ræðna um síldarkaup og er hann væntanlegur í byrjun næstu viku, um 10. þ.m. Framhald á 10. síðu. B-listi Allsherjaratkvæðagreiðsla uni kjör fullttrúa á 27. þing Al- þýðusambands íslands hófst í Bifreiðastjórafélaginu Frama í gær. Kusu þá 228 af 558 á kjörskrá. Vinstri menn í félaginu hafa borið fram lista, B-!istarn, og hafa fullan hug á að gera hlut hans sem beztan. enda þJÓÐVILIINN Miðvikudagur 5. október 1960 — 25. árgangur — 223. tbl. „Gagnlegur” fundur Krústjoffs og Maemillans um afvopnun Þeir Macinillan og Krústjoff ræddust við í rúma hálfa aðra klukkustund í New York í gær og bar fulltrúum beggja saman um að viðræðurnar liefðu verið mjög „gagnlegar“. Fundur þeirra var ákveðinn þegar þeir hittust í fyrra skipt- ið í New York á dögunum og varð sú ákvörðun til þess að Macmillan frestaði þá brottför sinni frá New York. Hann heldur heimleiðis í dag. Létt var yfir báðum að við- ræðunum loknum og kvöddust þeir brosandi. Krústjoff sagði að viðræðurnar hefðu verið mjög árangursrikar. Brezkur talsmaður sagði að þeir hefðu rætt nær eingöngu um afvopn- unarmálið og hefðu haldið sér fast við efnið. Báðir hefðu komið með ýmsar tillögur. Komið hefði til tals að þeir hittust aftur á næsta ári ann- aðhvort tveir einir, eða þá á fundi stjórnarleiðtoga stór- veldanna. Stjórnarleiðtogarnir sem mættu á allsherjarþinginu eru teknir að tínast heim. Tító fór sjóleiðis heim í gær, en Nasser fer í dag. Tító sagði í gær að hann byggist ekki við að sam- búð stórveldanna myndi fara versnandi úr þessu. Forysta Verkamannaflokksins vann sigur á þinginu í gær Forysta Verkamannaflokks- ins vann sigur á þingi flokks- ins í Scarborough í gær, þegar greidd voru atkvæði um álykt- unartillögur um í liverra hönd- um æðsta stjórn flokksins, skuli vera. Felld var með miklum meiri- hluta tillaga þess efnis að þingmenn flokksins skyldu al- gerlega bundnir af samþykkt- um flokksþinga við atkvæða- greiðslur á brezka þinginu. Málamiðlunartillaga þess efnis að flokksþing skuli ráða megin- stefnu flokksins, en fram- kvæmdastjórn hans og þing- flokkur hafa frjálsar hendur í einstökum málum sem upp kunna að koma, var samþykkt með % atkvæða. Bandaríkjamenn héídu upp á af- mæli Spútniks Bandaríkjamenn héldu mynd- arlega upp á at'mæli Spútniks I. í gær, en þá voru liðin þrjú ár i'rá því honum var skotið á loft. Þeir sendu 225 kílóa gervitungl. sem kallast Sendi- boði, á braut umhverfis jörðu. Gervitunglið er búið margbrotn- um sendi- og viðtökutækjum. auk 5 segulbandstækja, sem gera því fært að taka við og senda samtími 68.000 orð á min- útu. Ætlunin er að senda fleiri slik tungl á loft og eiga þau að annast öll fjarskipti Banda- rikjahers. I dag er búizt við að flokks- þingið taki fyrir helzta deilu- mál þingsins, afstöðuna til kjarnavopna og landvarnamála, en talið hefur verið líklegt að það lýsi yfir þeii'ri meginstefnu að Bretar eigi að afsala sér kjarnavopnum og banna eld- flaugastöðvar. Fischersskákmót í kvöld hefst í Lido kl. 7.30 skákmót með þátttöku 5 manna: Fischers, Friðriks, Inga R., Frey- steins og Arinbjarnar. Tefld verður einföld umferð en ekki tvær eins og áður haíði verið ákveðið. Serkneskur maður var dæmd- ur til dauða í París í fyrradag, og var honum gefið að sök að hafa reynt að ráða af dögum landa sinn sem á sæti á franska þinginu. AÖalfundur ÆFR á morgun Aðalfundur Æskulýðs- fylgingarinnar í Reykja- vík verður haldinn annað kvöld í Tjarnargötu 20 og hefst kl. 8.30. Dagskrá: 1. Aðalfuiidarstiirf. 2. Kosning fulltrúa á 19. þing ÆF. 3. Verkalýðsmál. Stjórn ÆFR. bílstjóra í Frama hafa leigubílstjórar sérstaka ástæðu til að samcinast um hagsmuni sína og kjör í þess- um kosningum. Stórfelld hækk- un hefur orðið á öllu sem bílsljórar þurfa til vinnu sinn- ar og mimu fáar starfsstéttir hafa orðið jafn harkalega fyr- ir barðinu á „viðrcisn“ ríkis- stjórnarinnar. Þessvegna sam- einast leigubilstjórar um B- listann og þakka mcð því fyr- ir „viðreisnir.a". Kosið er í skrifstofu Frama. Freyjugötu 26, kl. 1—10 síðd. Kosningaskrifstofa B-listans er í Framsóknarhúsinu, sími 12942. — x B - listinn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.