Þjóðviljinn - 16.12.1960, Page 10
5E0) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagiir 16. desember 1960
L
Rœtt vi5 Jén Guðnason
; Framhald af 7. síðu.
gildi fyrir borgarastéttina
, eins og rússneska byltingin
fyrir verkamannastéttina; á
ýmsan hátt eru þessir atburð-
ir hliðstæðir, þótt afleiðingar
þeirra verði gjörólíkar. Ýms-
ir byltingaleiðtcgarnir eru
beztu syn;r franskrar borg-
arastéttar á þessum árum. Ég
var dálítið spenntur, livað
gert yrði Robespierre til heið-
urs 1958; þá var 150 ára af-
mæli hans og ég var byrjaður
á bók minni. Það var feilt í
franska þinginu, að minnast
hans nokkuð af því tilefni.
Þannig hefur franska borg-
arastéttin i dag borið þennan
brautryðjanda sinn út á haug
og vitl ekki kannast vfð hann.
Auðvitað er ég ekki einn um
þau sjónarmið, sem ég set
fram. Þetta er lítil bók um
mikilvægt tímabil; hún geym-
ir ekkert pláss fyrir bolla- s,
leggingar um menn og mál-
efni, en krefst umbúðarlausr-
ar hlutlægrar frásagnar. Ég
hef reynt að forðast hrösluleg-
ar lýsingar og skáMlegheit;
slíkt á hvorugt við í frásögn-
um af þessu t.mabili að mínu
viti. Önnur tímabil geta verið
lyriskari og enn önnur hafa
á sér me'ri nöturleikablæ, Þau
-i- S]onarmið, sem bókin opnar
lesendum, gæti ég auðvitað
skýrt mikið betur, ef út í þá
sálma væri farið“.
Viðureign við tímatal og
prentvillur.
Veiztu nokkuð um það,
hvers er að vænta af þessari
. útgáfu á næstunni?
i „Ég veit, að nokkrir menn
eru með bækur í smíðum, en
ég ætla ekki að fara að koma
fram með nein fyrirheit fyrir
þairra hönd. Það mun heyrast
frá þeim bráðiega. Við eig-
um nóg að ungum áhuga-
mönnum um sagnfræði; það
mun koma á öaginn“.
Fannst þér ekki erfitt að
hefja þetta verk, þar sem
bindin á undan eru ókomin?
Að vísu eru mjög skörp
mörk um 1789, eftir því sem
um er að ræða í sögunni. Það
er auðvitað erfitt að taka upp
alla þræði, byrja hálfgert í
lausu lofti, þegar allt er á
hraðri ferð vegna iðnbylting-
arinnar og kapítalismans, sem
geystist fram á svið sögunn-
ar með öllum sínum umsvif-
um. Saga nútímans hefst í
raun og veru með iðnbylting-
unni um 1760. Sú þróun, sem
orðið hefur hér á landi síðustu
öldina, er ekkert annað en
angi af þeirri byltingu. Við
öðlumst aldrei fullnægjandi
skilning á eigin sögu nema í
samhengi við alþjóðlega þró-
un og atburði. Gangur mál-
anna á íslandi ákvaðast auð-
vitað að miklu leyti af því
sem gerist úti í löndum, og
hið tímamótamarkandi skeið
á Vesturlöndum og þar með
í veröldinni er fyrri hluti 19.
aldar, þótt þróun málanna
verði með sérstökum hætti í
hverju Iandi“.
Ertu ekki sæmilega
ánægður með útgáfu bókar-
innar?
Frágangur hennar er
með því bezta, sem ég þekki.
j Ég heyri, að fólk er að narta
í mvndprentunarmenn okkar
og leitað er út fyrir land-
steinana með myncprentanir.
Ég er hæstánægður með
vinnubrögð EymurjJur Magn-
ússonar, sé ekki betur en
myndirnar séu eins vel prent-
aðar og þar sem bezt er er-
lendis. Hafsteinn Guðmunds-
son prentsmiðjustjóri teiknaði
kcrt og hjálpaði mér á ýmsan
hátt að gera bókina úr garði.
Hins vegar er þetta fyrsta
bók, sem ég gef út, og mér
er nú fyrst Ijóst, hve mikla
árvekni þarf til þess að sjá
um, að handritið komist
óbrjálað gegnum prentvélarn-
ar.. Mér er óskiljanlegt,
hvernig prentvillupúkinn hef-
ur brotizt í gegnum fjórfalda
röð leiðréttinga me'stara.
Þannig hefur hann stolið einu
núlli á blaðsíðu 287; íbúar
Mexíkóborgar eru þar taldir
9.000 en voru reyndar 90.000.
Á blaðsiðu 229 hefur blóð
fallið framan af skattheimt-
unni hjá Tyrkjum; þar seg;r
um kristna menn, að þeir hafi
einir goldið skattinn í
Tyrkjaveldi, en á að vera
blcðskattinn, sem áður gre;n-
. ir frá. Þetta eru helztu efn-
isvillurnar, sem ég hef rekizt
á, og venjulegar prentvillur
eru ekki áberandi, en mér
þykir leiðinlegt, að nokkur
skuii hafa komizt í gegn. Ég
hélt að öryggisráðstafanirnar
væru ncgu öflugar til þess
að útiloka þær, en það hefur
ekki tekizt a’gjörlega, þvív
miður.“
Vildir þú koma nokkru sér-
stöku á framfæri um þessa
bók við tilvorandi lesendur?
„Ég hef orðið að sleppa
ýmsum atriðum, sem æskilegt
hefði ver'ð að drepa á í yfir-
litsriti um þetta tímabil, t.d.
' ’rep ég nær ekkert á atburði
í náttúruvísindum cg læknis-
fræði, en tel hentugra að
gera þeim skil í næsta bindi,
sökum samhengis; það er til
dæmis eðlilegt að fjallað
verði talsvert rækilega um
náttúruvísindi, þegar gerð
verður grein fyr'.r Darwin og
þróunarkenningunni. Sam-
vinnuhreyfingin á einnig ræt-
ur í þessu tímabib, sem bók-
in fjallar um, en aðalvaxtar-
skeið liennar er á síðari hluta
aldarinnar, og þá ber að
skýra frá upphafi hennar.
Mér fellur ilia að höggva efn-
ið mjög í smákafla; ég hef
lehazt við að birta heildar-
mynd'r eftir föngum, en hef
þá stundum orðið að hverfa
frá strangri tímatalsrðð. At-
burðaskráin aftan við bókina
á að rétta úr þeim smirðum,
sem af því kunna að leiða.
Ef mér hefði ekki vér’'' mjög
Jtröngur sfakkur skórinn,
hefði ég haft gaman af því
að birta kafla úr snjöllum
þýðingum Islendinga á höfuð-
skáldum rómantíkurinnar, því
að mörg þessi kvæði varþa
skýru ljcsi á samfélag.shætti
þes-sara ára. Annars yrði það
of langt mál að fjalla um allt
það, sem ég viidi hafa. sagt,
ti’-'a fram skankana, sem
sniðust utan a?.“ B.Þ.
BÖTAGREIÐSLUR
almannahvgginga í Reykjavik.
Greiðslur fjölskyldubóta til 1 og 2 barna fjölskyldna
hefjast strax laugardaginn 17. þ.m. og verða frá
þeim degi allar tegundir bóta greiddar til aðfanga-
dags. Milli jóla og nýárs verða engar bætur greiddar.
Fólk er því hvatt til að sækja ógreiddar bætur sem
fyrst. Bótagreiðslur fara fram óslitið ki. 9.30—3 e.h.
virka daga, nema laugardaginn 17. þ.m. verða bætur
greiddar kl. 9.30—6 e.h. Á aðfangadag lýkur bóta-
greiðslum kl. 12 á hádegi.
TRY GGIN GASTOFNUN RÍKISINS.
33 snúninga.
Höfum fyrirliggjandi óperur, hljómsveitarverk, karla-
og kvennakóra og einsöngvara.
Fjölda þjóðlaga og vinsælla söngva.
Bandúrutríó Nínu Pavlenkó, Valentíiu TredjcLova
og Tamöru Polistsúk.
Sömu söngvarar er sungu og léku hér í Þjóðleik-
húsinu fyrir tveimur árum.
I s t o r g h. f.,
Hallveigarstíg 10. — Sími 2-2961.
Bylting
Framhald af 12. síðu
heimleiðis, og lenti flugvél hans
í Eritreu, sambandsriki Eþíópíu.
Hinn nýi konungur er sagð-
ur frjálslyndur í skoðunum og
vinsæll í landinu. Hann er 44
ára, menntaður í Bretlandi.
Forsætisráðherra byltingar-
stjórnarinnar er Ras Imru,
fyrrum sendiherra í Sovétrikj-
unum og Indlandi. Hann hefur
flutt ávarp til þjóðarinnar i út-
varpið í Addis Abeba.
Tveir réðu sig
Framliald af 1. síðu.
Gekk íslenzka lögreg’an frá
pappírum þeirra í gærmorgun,
en siðan lét Erfurt úr höfn og
var einum manni fleira í áhöfn-
inni en þegar togarinn lagði af
stað frá Rostock. Á máli Morg-
unblaðsirs myndi það væntan-
lega heita að tveir menn hafi
yfirgefið ísland sem pólitískir
flóttamenn og leitað hælis í
Austur-Þýzkalandi.
1 gærmorgun tók sakadómari
skýrslu af „flóttamanninum“
en síðan mun útlendingaeftir-
litið taka málið til meðferðar.
Að því lcknu verður það feng-
ið dómsmálaráðuneytinu til úr-
skurðar og ákveður það, hvort
veita skuli honum hér landvist-
arleyfi sem flóttamanni.
Allt fyrir yngstu kynslóðina. — Ný gerð barnavagna, sem
eru burðarrúm, keria og vagn, verð kr. 2490,00 — Barna-
vagnar frá kr. 1880,00. — Þýzkar barnakerrur kr. 1080,00,
barnarúm, leikgrindur, rólur, kerrupokar, beizli, ruggubílar,
rugguhestar, ný gerð ungbarnastóla sem má breyta í borð
og stól fyrir eldri börn (samanber mynd).
Nýkomið fjölbreytt úrval smekklegra leikfanga •— brúð-
ur, brúðuvagnar, kerrur; brúðuhúsgögn, allskonar jóla-
skraut og margt fleira.
Póstsendum um land allt.
FÁFNIR
Skólavörustíg 10. Sími 12631. Pósthólf 766. Símn. Fáfnir
Framhald af 6. síðu.
þá um atvinnu’lf og framfarir
í landinu síðan 1874, sem er í
kennslubókum barnaskólanna.
Fjölmargar skemmtilegar
myndir prýða bókina. Ríkisút-
gáfan ætti að láta sérprenta
þær fyrir vinnubókastarf-
semi skólanna.
Sagan okkar er tilvalin
jólagjöf handa börnum, sem
farin eru að læra ís’andssögu,
og mörgum fullorðnum mundi
þykja meiri fengur í henni en
sumum stóru bókunum, sem
sendar eru á markaðinn til
jólagjafa.
Mörgum kennara xnun
þykja gott að fá þessa bók i
hendur. f
Kosnir í Norðnr-
landaráðið
Neðri deild Alþingis kaus
í gær fulltrúa í Norðurlanda-
ráð.
Kosnir voru af a lista: Gísli
Jónsson og Sigurður Ingimund
arson, og af b lista: Einar OI-
geirsson. Varamenn voru kosn-
ir af a lista Matthías Mathie-
sen og Birgir Finnsson og af
b lista Hannibal Valdimarsson.
Ekki komu fram fleiri uppá-
stungur en kjcsa átti.
Tungleldfleeug
sprakk í USA
Bandaríjfjamenn gerðu í gær
misheppnaða tilraun til að koma
gervitungli á loft, en það átti að
fara á braut umhverfis tunglið.
Skjóta átti gervitunglinu með
risaeldflaug frá Cauaveral-höfða
á Floridaskaga, en eldflaugin
sprakk, skömmu eftir að hún
losnaði frá jörðu.
Atvinnuleysi
Framhald af 1. síðu.
það allt, því ekki er um meiná
aðra vinnu að ræða. Bygg-
ingavinna er að stöðvast og'
flestir iðnaðarmenn eru á
uppsögni. Víða hafa fyrir-
tæki þegar sagt upp starfs-
fólki, eða það stendur til að
segja því upp efiir áramót-
in.“
Þessi ummæli Guðmundar
féllu í uniræðum um fjárliags-
áætlun bæjarins, og kvað Guð-
mundur bæjarstjcrnina ekki
geta minnlkað framlög til verk-
legra framkvæmda þegar svo
horfði.
Guðmundur J. kvaðst
sleppa að nef na eins'ölt dæmi
um uppsagn»r og atv'rinu-
leysi, en vildi eirhver bera
brigður á ummæli sín myndi
hann taka aftur til máls o,g
telja upp nokkur dæmi.
íhaldið þorði ekki að víkjá
orði að þessu máli o<r sam-
þvkk'i með þöeninnij að at-
vinnu'.eys'ð væri komíð.