Þjóðviljinn - 26.02.1961, Qupperneq 3
Sunnudagur 26. febrúar 1961
ÞJÓB.VILJINN — (3
kjóscs A-listann
Stéttvísir trésmiðir
Eitt mælti verkalýðurinn
læra af atvinnurekendum, en
það er stéttvísi. Þeir eru víst
ekki margir í hópi atvinnu-
rekenda, sem þykir heiður að
því, að hugsa eins og stctt-
vísir verkamenn, standa upp á
fundum í félögum atvinnurek-
enda, eru eins og újlspýtt
hunclsskinn í skrifstofum og
öðrum bæk;stöðvum þeirra til
að reyna að telja þeim trú
um, að þeir eigi að láta stétt-
vísa, róttæka verkamenn
hugsa fyrir þá, laka erind-
reka verkalýðsins inn í sam-
tök atvinnurekenda, kjósa þá
þar í trúnaðarstöður Qg fela
þeim öll völd í hagsmunafé-
lögum atvinnurekendastéttar-
innar. Þá mundi hagsmuna-
málum atvinnurekenda verða
betur borgið en ef þeir fara
með þau sjálfir. Séu slíkir
menn til, hafa atvinnurekend-
ur að minnsta kosti einhver
tök á því, að koma í veg fyrir
að skoðana þeirra gæti, og
mikil eru viðurlög atvinnu-
rekendasamtakanna ef með-
limur þeirra skerst úr leik og
svíkur stéttina í átökum við
verkalýðinn.
Því er verr, að mikið skort-
ir á, að stétlvísi verkamanna
sé eins rík og almenn og
stéttvísi atvinnurekenda. Inn-
Ásmundur Sigurjónsson.
Veðumtlitið
Austan gola og síðan kaldi,
úrkomulítið.
SunniidagserÍEsdi
um sjáifstæðis-
baráttu Serkja
Sunnutlagserindi verður flutt
á vegum fræðslunefndar Sósíal-
istaflokksins og Æskuiýðsfylk-
ingarinnar í Tjarnargötu 20 í
dag og hefst klukkan 2.30 síðd.
Ásniundur Sigurjónsson blaða-
maður flytur erindi urn sjálf-
stæðisbaráttu Serkja í Alsír.
Öllum cr heiniill aðgangur.
Sérstaklega er skorað á félaga í
Sósíalistaféiagi Reykjavíkur og
ÆFR að mæta.
an vébánda verkalýðsfé'ag-
anna er hópur manna, skipu-
lagður af atvinnurekendum
og flokki þeirra,. sem á enga
ósk heitari en þá, að bera
sk ðanir og hugsanagang
stéttarandstæðingsins inn í
verkalýðshreyf inguna, t roða
þeim inn í félaga sína og
starfsbræður með öllum til-
tækum ráðum, fagurgala, í'alsi
og fögrum loforðum, en ekki
s.’ður rcgi og lygum um
stéltvíst verkafólk o'g forustu-
menn þess. 1 hvert sinn, sem
verkalýðsíélögin kjrsa í trún-
aðarstöður, hvort helchir er
fulltrúa á þing Alþýðusam-
bardsins eða stjórnir og trún-
aðarráð fé’aganna sjálfra, eru
þessir stéttvillingar roknir
upp til handa og fóta með
skemmdarstarf sitt í þágu at- j
vinnurekendavaldsins, hnoða
saman listum með nöfmim
sjálfra sín á og þylcjast allra
manna bezt fal’nir til að fara
með málefni verkalýðsins og
tryggja honum vinsamlega af-
stöðu atvinnnrekenda.
Þarna kvmu þeir með það!
Jú, það er svo sem augljóst,
að ef verkalýöurinn feng'st
til að kjósa trúnaðarmenn al-
vinnurekenda til að stjórna
verkalýðsfélögunum, mælti at-
vinnurekendastéttin vissu’ega
vel við una. Hún þarf ekki
að óttast verkaiýðshre.vfingu,
sem hún stjórnar sjálf og,
mundi því láta af öllum1
fjandskap gegn samtökunum j
á meðan þau eru vopn í
hennar eigin hendi. En hugur
hennar til verkalýðsins sem
stéttar yrði óbreyttur þó
henni tækist að hrifsa bitr-
asta vopnið úr höndum hans
og snúa því gegn honum
sjálfum.
„Vi3rka]ýðshreyfing“, sem
atvinnurekendur telja sér fært
að láta í friði, er verkalýðn-
um einskis nýt, er engin
verkalýðshreyfing í þess orðs
réttu merkingu. Verkalýðnum
koma þau ein samtök að
gagni, sem atvinnureksndur
eiga engin ítök í, eða svo lít-
il, að stéttvist vérkafólk kveð-
itr þau með öllu niður og
gerir áhrifahms.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
er að kjósa sér stjórn nú um
helgina. Tveir listar eru í
kjöri: A-listi stéitvísra tré-
smiða og B-listi, sem atvinnu-
rekcnöava’dið hefur narrað
stéttvillta starfsbræður okkar
til að bera fram. I kosning-
unni sýnum við, að við vilj-
um heldur eiga félag okkar
sjálfir þó því fylgi fullur
fjandskapur atvinnurekenda
en gefa atvinnurekendum fé-
lagið og fá að launum góð-
látlegt en niðurlægjandi klapp
á kinnina í Morgunblaðinu
sem góðir cg þœgir drengir —
það er: stéttvil’tar rolur.
Burt með álirif atviimurek-
enda úr Trésmiðafélaginu!
Stéttvúsir trésniiöir lcjósa
A-Iistann.
Geriun sigur lians sem
stserstan!
S31
Myndin fyrir ofan b'rtist
iiír í blaðinu fyrir rúmum
mánuði og fylgdi henni þá
þessi texti: — Lítið hcfur
verið um byggingar í Vest-
maiinaeyjuni síðan „við-
re!snin“ hófst. Vakti það því
undrun og áhuga manna í
Eyjuin, þegar kaupmaður.
einn lióf byggingu á bíl-
skúr skammt frá verzlun
sinni, sem cr rétt við hiifn-
ina. Byggingin reyndist líka
vera miðuð við „viðveisnar-
tima“ — og sést bílskúrlnn,
bíllinn og eigandinn á mynd-
inni.
Fyrir ncðan cr svo ný
mynd af sömu byggingu og
nú hefur hcnni veriö gcfið
nafn og það málað á „húsið“
stórum stöfum eins og sjá
má. (Ljósm. P. II.).
Húnvetningar stolna
héraðstryggingafél.
Nýveriö hafa Húnvetningar stofnaö tryggingafé’.ag,
er nefnist Byggöatrygging h.f. Ef því ætlaö aö annast
tryggingar fyrir héraösbúa og er fyrsta tryggingafélag-
ið hér á landi meö slíku fyrirkomulagi.
j Stofnendur félagsins segja,
að tvö mégin sjónarmið hafi
' ráðið við stofnur.i þess. Ann-
'ars vegar að lialda sem: mestu
' a.f því f jármagni, er héraðs-
jbúar þurfa að greiða fyrir alls
konar lögboðnar tryggingar,
^ eftir í héraðinu í stað þess að
ágóði af þeim rennur nú 'i
vasa tryggingarfélaga í Reykja-
vík. Hins vegar að vinna að
hagsmunum tryggjendanna
með því að veita þeim sem,
j hagstæðastar tryggingar og
telja þeir, að húnvetnskt félag
hafi betra færi á að gera það
en félaig í Reykjavík.
j Það nýmæli er tekið upp í
sambandi við stofnun Byggða-
tryggimga h.f., að þeim sem
tryggja hjá félaginu, er gef-
inn kostur á að kaupa hluta-
bréf í félaginu, 500 kr. bréf
fyrir 59 þús. kr. tryggingu
1090 króna bréf fyrir 100 þús.
kr. tryggingú o.s.frv. Kall-
ast þessi hlutabréf hlutdeild-
arhlutabréf. Jafnframt eru gef-
in út stofnhlutabréf. Má stofn-
hlutaféð ná allt að 200 þús.
kr. ea enginn einn má eiga
meira en 5000 kr. í stofnhluta-
bréfum. Stofnendur eru þegar
orðnir 60 að tölu. Atkvæðis-
réttur fylgir báðum tegundum
bréfanna, eitt atkvæði fyrir
hverjar 500 krónur.
Byggðatrygging h.f. leitaði
eftir samningnm við trygginga-
félögin í Reykjav'Ik um endur-
tryggingu og hafa tekizt samn-
ir.tgar með því og Tryggingar-
miðstöðinni h.f., sem er eitt
stærsta tryggingafélagið hér
á landi.
Byggðatrygging mun taka
cð sér eftirtaldar tegundir
trygginga: Brunatryggingar á
lausafé og' innanstokksmunum,
þar með taldar heimilistry'gg-
iigar, ábyrgðartryggingar,
slysatryggingar, ferðatrygging-
r.r einstaklinga og hópa, sjó-
og flutróagstryggmgar á vör-
um, sem fluttar eru með bif-
reiðum, flu'gvélum og skipum,
áfcyrgðartryggingar bifreiða og
dráttarvéla og kaskótryggingar
bifreiða.
Formaður Byggöat ryggingar
h.f. er Stefán Á. Jónsson Kag-
aðcrhóli en aðrir í stjórn eru
Bergur Lárusson Slcagaströnd,
Jóhannes Björnsson Laugar-
bákka, Jón Karlsson Blöndu-
csi og Sigurður Tryggvason
Hvammstanga. Umboðsmaður
félagsins á Skagastrcnd verð-
ur Björgvin Brynjólfsson spari-
sjóðsstjcri og á Hvammstanga
I Ingólfur Guðnason hreppstjóri.
i Framkvæmdastjóri hefur enn
ekki verið ráðinn, en liann
i
mun hafa aðsetur á BlönduósL
Yest mannaeyjum