Þjóðviljinn - 26.02.1961, Qupperneq 9
(HS
Sunnudagur 26. febrúar 1961 — Þj ÓÐVILJINN 4^9
Eitthvað verður að gera fyrir
hinn „veika'' Bandaríkjjamasui
seg/V Johrt Kennedy, forseti Bandarikjanna
í dssemberhefti hins mikla
dþróttatímarits Sports Illu-
strated birtist merkileg grein
eftir John F. Kennedy, þá ný-
kjörinn forseta Bandaríkj-
anna. í greininni bendir hann
á. eina af meinsemdum þeim,
er hann telur sig sjá í íþrótta-
lífi Bandarikjamanna. Gengur
hann hreint og hiklaust til
verks og hilmir ekki yfir það
að hann telur bandaríska
æsku mun verr menntaða lík-
amlega, en æskuna í Evrópu.
Hér á eflir birtisl. nokkur
hluti greinarinnar:
Fyrir rúmum 2500 árum
var Grikkjum það mikið
kappsmál að fá að taka þátt
í hinum olympísku leikjum
sem haldnir voru f jórða hvert
ár.
Meðan á leikjunum stóð var
samið. vqpnahlé í öllum grisku
ríkjunum, meðan beztu í-
þróttamenn hinnar vestrænu
menningar öttu kappi í hnefa-
leikum, hlaupum, glímu og
reiðum, og gerðu sitt ítrasta
til að vinna sigurlaunin, lár-
viðarsveiginn. Þegar sigurveg-
ararnir sneru heim til héraða
sinna fórnuðu þeir hinum ol-
jnnpísku verðlaunum á fórn-
arstöllum musteranna, en
heimspeki, bókmennta, stjórn-
visinda og lista, og trúna á
þýðingu líkamslegs heilbrigð-
is. IJr grísku yfir á latínu er
tekinn málshátturinn alkunni
Mens sana iii corpore saiio
(Heilbrigð sál í hraustum lík-
ama). Haldið er fram að það
hafi verið knattspyrnuiðkun
og cricketiðkun í Eton-há-
skóla í Bretlandi að þakka að
Bandamenn hlutu sigur í or-
ustunni um Evrópu í seinni
heimsstyrjöldinni, en frá þeim
skóia komu flestir frægustu
stjórnmálamenn Breia.
Þessi vitneskja um þýðingu
líkamsræktar á heilsu þjóðar
og velferð hennar er í hin-
um vestræna heimi jafngömul
byggingu hans. En því miður
virðist þetta hafa gleymzt í
Ameríku.
Kóreustríðið afhjúpaði
hina iélegu líkams-
þjálfun
Fyrstu merkin um afturför
í líkamlegura styrk og þoli
meðal bandarískrar æsku voru
kunn í þann mund er Kóreu-
striðið brauzt út. Enn komu
niðurstöður, sem studdu hin-,
ar fyrri og sýndu fram á að
Bandarílvjamenn eiga marga frábæra. íþróttamenn. Þessir þrír
tnenn voru í efstu sætunum í 400 m grindahlaupi á síðustu
olympíuleikjum og .sýnir myndin glöggt live þeir hafa lagt
hart að sér til að lialda heiðri þjöðar sinnar.
landslýðurinn tók á móti þeim
sem hetjum og færðu þeim
gjafir. Þetta sýnir að Grikkir
til forna liafa kunnað að meta
gildi iþróttanna. Þeir vissu að
íþróttirnar voru grundvöllur-
inn uniir sterku þjóðfélagi.
Þessi menning færði okkur
mörg af merkustu verkum
amiar hver unglingur í Banda-
ríkjunum var ekki móttækileg-
ur í herinn vegna sálrænna,
,,móralskra“ eða líkamlegra
bresta.
Dauðahöggið kom þó, er
læknarnir dr. Hans Kraus og
dr. Sonja Weber lögðu fram
niðurstöður rannsókna sinna,
sem náðu yfir 15 ára starf
við NYCP-sjúkrahúsið. Niður-
stöðurnar voru byggðar á
athugun 4.264 bandarískra
barna og 2.870 barna í Aust-
urríki, Sviss og Italíu.
Niðurstöðurnar sýndu, að
þrátt fyrir betri lifnaðarhætti
okkar, þrátt fyrir hinn góða
matarkost okkar, þrátt fyrir
hin miklu íþróttamannvirki
okkar, þrátt fyrir blómlegt í-
þróttalíf í æðri skólum okkar,
ster.dur bandarisk æska langt-"
um neðar líkamlega en sú evr-
ópska. Sex æfingar voru lagð-
ar fyrir börnin. Reyndu þau á
hina ýmsu vöðva. 57,9%
hinna bandarísku gátu alls
ekki innt eina eða fleiri af
þessum æfingum af hendi, þar
sem Evrópubörnunum mis-
tókst aðeins mjög fáum, eða
8,7%.
Eisenhower leyndi að
ráða bóí en misióksl
Kennedy heldur áfram og
segir m.a. frá tilraunum Eis-
enliowsrs lil að ráða bót á á-
standinu 1955, en meðal þess
sem hann lét innleiða var sér-
stakt kerfi, sem reynt skyldi
í skólum. Samt hefur þetta
ekki borið sjáanlegan árangur
í þau fimm ár, sem kerfið
hefur verið í notkun.
Kennedy segir síðan:
Hinar ömurlegu staðreyndir
að baki þessara talna eru þær,
að stöðugt vaxandi hópur
ungra Amerlkana lætur lik-
amann hrörna, og eru ekki
eins ,,frískir“ og þeir ættu^
að vera, sumir jafnvel mjög
veikburða. Og margir slíkir
einstaklmgar leggja vitanlega
mikið að mörkum lil að gera
ríkið veikburða.
Líkamsþjálfim nauðsyn
— ekki síður á frið-
artímum
Líkamshreysti er ekki siður
nauðsyn á friðartímum. Lík-
amshreystin er ekki aðeins
undirstaða fyrir líkamann
sjálfan, heldur er hún bein-
línis nauðsynleg fyrir þann
sem vill vera Skapandi og
frjór í starfi sínu. Snilligáfa
getur því aðeins notið sín tií
fulls að líkaminn sé í góðu
lagi.
Takmarkið: engin
líkamleg vinna
Forsetinn bendir síðan á
hvernig nútíma lifnaðarliættir
eru að breyta líkamlegri vinnu
og hvernig allt miðar að því
að afnema alla vinnu þar sem
verulega reynir á líkamann.
Síðan segir hann:
Mörg líkamleg vinna, sem
áður var nauðsynleg, er nú
ekki tii. Eitt augnatiliit yfir
yfirfulll. bilastæði við há-
ekólabyggingu í landi okkar
tíma eins og spyr okkur hvað
John F Kennedy
orðið sé af gömlu skemmti-
göngunum og hjólreiðaferðun-
um til og frá skóla, sem áður
gerði mikið gagn sem holl og
góð hreyfing. Sjónvarpstækin,
kvikmyndirnar og önnur þægi-
legheit hafa lokkað ungling-
ana frá öllu sem heitir hreyf-
ing. Það er auðvitað ágætt
að hafa allt þetta, en eitthvað
verður að koma til að rétta
við hinn líkamlega ,standard‘.
Úrbæfur Keimedys
Kennedy bendir á úi’bætur
í málinu og eru þær þanhig
settar fram:
1. Við’ . verðum að skipa
nefnd sem skal setja sanian
„prógram“, senr nefndin skal
svo sjá um að framfylgt verði
og skal það iniða að þvi að
hæta heilsufar þjóðarinnar. í
nefndinni skulu eiga m. a.
sæti innanrikismálaráðherr-
herrann og Iieilbrigðismála,-
ráðherrann.
2. Heilsufarsmál ungling-
anna skulu sett undir stjórn
heilbrigðismálaráðuneytisins.
3. R'kisstjórnir fylkjanna
skulu árlega koma saman og
Áth.semd veynð uminxlð
, febr.
bera saman bækur sínar í
þessum málum og kynna sér
liið nýjasta sem vísindin hafa
um heilsurækt að segja.
4. Forsetinn og ríkisstjórn
hafi áróður franimi svo sem
verða iná fyrir íþróttnni og
bendi á að iðkendur íþrótta
. éu mun líklegri til að komast
í valdasess í Bandaríkjunum.
Eandaríska vandamál-
iS -— getnr þaS verið
íslenzkt?
Grein sú, sem hér birtist
úrdráttur úr, er mjög skemmti
leg fyrir þær sakir að hún
sýnir st jórnmálamann, sem
greinilega hefur hug á að
rannsaka málið til hlítar og
sér hvar hafinn er vöxtur á
illkynjuðu æxli í þjóðfélagi.
sínu. Hann grípur til skurðar-
hnífsins eins og þaulæfður
skurðlæknir, þ.e. bendir á leið-
ir til að komast út úr ógöng-
unum.
En hvað erum við að hnýs-
ast í vandamál manna í öðr-
um heimsálfum, eða kemur
okkur þetta nokkuð við?
Jú, okkur kemur málið við,
því ástandið hjá okkur er því
miður ekki allt of gott, þó það
sé mun belra en það sem hér-
hefur verið lýst. Stjórnmála-
menn okkar hafa aldrei gert
sér virkilega ljóst hvers virði
íþróttir eru þjóðinni. Þess
vegna hefur fjárveitingum til
íþrótta hér alltaf verið varið
eins og um einhvern lúxus
væri að ræða, lúxus sem við
gætum mjög vel verið án.
Þess vegna ættu íslenzkir
ráðamenn að gera eilthvað
róttækt, sem mætti verða í-
þróttunum lyftistöng. Ríflegri
fjárveitingar til íþrótta eiga
áreiðanlega eftir að skila sér-
í ríkiskassann og það marg-
falt.
— bip —
Íþróttasíðan hefur 'verið beð-
in um að birta eftirfarandi at-
hugasemd frá stjórn glímudeild-
ar Ármanns:
„í íþróttaspjalli í útvarpinu
5. febr. sl. viðhafði Sigurður
Sigurðsson mjög ósanngjörn um-
mæli um Skjaldarglímu Ármanns
sem íram fór 1. íebrúar. Glímu-
deild Ármanns sendi Sigúrði at-
hugasemd vegna þessara um-
mæla. Las Si'gurður hana í
íþróttaþætti 12. febrúar sl., en
lét sér sæma að hnýta við hana
beinum ósannindum, sennilega í
trausti þess að hlustendur hefðu
gleymt hvað hann hafði áður
mælt. Málflutningur Sigurðar er
með þeim hætti að ekki verður
við unað, enda ekki vanzalaust
að áróðurstæki í eigu ríkisins
skuli af íþróttafréttaritara þess
vera notað til beinna ósanninda
um íþróttamenn. Má segja að
þar höggvi sá er hlífa skyldi.
Þeim, sem til málanna leggja,
brá í brún, er Sigurður svaraði
gagnrýni Ármenninga þann 12.
íebrúar. „Ég vék ekki að því
einu orði að keppnin mundi ekki
verða til að auka veg glímunn-
ar“.
Það sem Sigurður sagði um
Skjaldarglímuna í íþrótta-
spjallinu 5. íebrúar var þetta:
„Ekki verður þessi glímukeppni
til að auka veg íslenzku glím-
unnar. Ekki vegna þess fyrst og
fremst að illa hafi verið glímt,
heldur hins að heldur leiðiniegt
deilumál hefur fylgt í kjölíar
hennar.“
Þetta var allt og sumt sem Sig-
urður hafði um keppnina sjáifa
að segja. og getur nú hver og
einn séð það svart á hvítu
hvernig Sigurður Sigurðsson
meðhöndlar sannleikann í áhrifa-
mesta áróðursgagni þjóðarinnar.
í ofangreindum ummælum
sínum um Skjaldarglímuna gef-
Framhald á 10. síðu
13 lið tzka þátt í
knattspyrnu- !
keppni að HálogeL
1. og 2. marz verður haldið
innanhússmót í knattspyrnu á
vegum Vals og taka 13 lið þátt
í keppninni. Keppt verður um
bikar sem Albert Guðmundssori
hefur gefið.
Nánar verður sagt frá keppn-
inni í þriðjudagsblaðinu.