Þjóðviljinn - 04.03.1961, Page 4

Þjóðviljinn - 04.03.1961, Page 4
%) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 4. marz 1961 Fréttir aí enskum bókamarkaði: (Jr hjálkakoío í Hvíta húsið Abraham Lincoln. By Carl Sandberg. Vol. I' The Prai- rie Years. Vol. II: The War Years 1861—1864. Vol. III: The War Years 1864—1865. 75c each. Dell Publishing Company. Það hefur ekki oft komið fyrir í sögu mar.inkynsins, að fram á sjónarsviðið hafi kom- ið maður, sem í senn var sem stál og sem flauel, harður sem klettur, mjúkur sem þoku- Carl Saudbcrg slæð'ngur, sem í sinni og brjósti hefur alið þversögn aegilegra storma og friðar, •óræðs og algers.“ Þannig hljóða inngangsorð Carls Sandbergs að frásögn hans af Abraham Lincoln. En hanm hefur skrifað frægustu ævi- ,sögu Lincolns í sex bindum, en útdráttur þeirra 'í þrem bindum í ódýrri útgáfu er tilefni þessaira lír.ia. Bandaríkjamenn, sundur- leitir og ósamstæðir, hafa hafið á stall einingartákn sitt, sögu sína, og þá annarri hærra sögu tímabils eldraun- ar einingar ríkjasambands þeirra, ára borgarastyrjaldar- innar 1861—1865, þegar súð- urrikin sögðu sig úr1 lögum við ríkjasambandið til að halda negrunum sem þrælum. Og um forseta Bandaríkjanna í einingarstríði þeirra, Abra- ham Lincoln, hefur meira verið skrifað eri nokkurn ann- an bandarískan mann. Til skamms tíma hafði þessi Lincoln-ástundun ekki borizt hingað_ Loks í fyrra kom út bók Thórólfs Smiths. Þá var nær gleymd bók Bjarna Jóns- sonar um Lincoln. En helztú æviatriði óg e:ginleikar hans eru flestum kunn, örbirgð hans í bernsku og braut hans stig af stigi upp í forseta- stól Bandaríkjanna 1861, stjórnvizka hans í borgara- styrjöldinni, mannúð og sann- færingarkraftur. í fleiru er alþýðlegu við- mcti bar Lincoln merki upp- runa síns, í metnaði og harð- fylgi og þunglyndisköstunum og ef til vill hinum frægu sögum s'ínum. Hann virðist hafa talið móður sína vera cskilgetna dóttur plöntuekru- eiganda í Virginíu. Hanri mun að eðlisfari hafa verið nær- gæt’nn, en hlédrægur, og lát- ið séi1 annt um fáa utan konu sína og börn. Afskipti af stjórnmálum hóf hann í þágu flokks eigna- manranna, Whiganna. Og þótt hann hefði þá strax sam- úð me'ð þrælunum var hann vanur að segja, að norður- ríkin mundu í sporum suð- urríkjanna hafa farið að dæmi plöntuekrueigendanna. Honum urðu snemma ljósir yfirburðir sínir yfir flesta aðra menn sökum andlegs og 1‘íkamlegs atgervis, og munu þeir yfirburðir sjaldan hafa liðið honum úr minni, að sögn þeirra, sem þekktu hann bezt. Blaðamaður Don Piatt að nafni,, sem hafði margt sam- an við hann að sælda, skrifaði um hanni: „Þrátt fyrir alla þvingunina í framkomu hans og þctt hann virti allar um- gengnisvenjur að vettugi, vakti eitthvað í fari Abra- hams Lincolns virðingu. Þrátt fyrir kumpánlega framkomu hans kom engum annað til hugar eri að sýna honum virð- ingu. Mér var sagt í Spring- f’eld, að það hafi fylgt hon- um ævilangt.-I hópi óheflaðra lagsmanna sinna á unga aldri varð hann forystumaður, sem litið var upp til og hlýtt, að þeir töldu, sökum líkams- krafta hans, sem hann var á ósparneytinn. I hópi mál- flytjendama var það talið vera sakir orðheppni hans, sem hélt samstarfsmönnum hans í hæfilegri fjarlægð. En reyndin er sú, að þetta á- hiifavald stafaöi af ónotuðum andlegum hæfileikum, sem enginn tók eftir nema í ár- angri“. Ritari Lincolns í for- setatíð hans, John Hay, sagði, að „fjarstæða væri að kalla hann hæverskan...... það1 var andlegt stórlæti og ó- vituð sannfæring um yfir- burði, sem menn eins og Chase gátu aldrei fyrirge.fið honum. Þeim að þakka var einnig cbrigðult stórlyndi, sem 'i fari stjórnmálamams gekk ól'ikindum næst, en sakir þess hélt hann Chase í ráðuneyti sínu, þegar fvlgismenn hins síðarnefnda stóðu að dreifi- miðum gegn Lincoln, sem hann neitaði að lesa.“ Á það hefur verið bent, að í skilrángi Lincolns á borg- arastyrjöldinni hafi gætt að no'kkru sjónarmiða, sem hann myndaði sér, og sjónarmiða, sem hann tileinkaði sér. Þeg- ar Jefferson lézt, var Lin- coln seytján ára gamall. Hann hafði í hávegum Henry Clay, sem með Missouri-samriingun- um hafði hindrað, að í odda skær:st milli ríkja um þræla- haldið. Lincoln mun þannig þegar sem ungur maður hafa litið svo á, að eining ríkja- sambandsins væri ekki endan- lega tryggð. Að því verða þess vegna færð rök. a'ð markmið Lincolns með af- skiptum s'ínum a.f stjórnmál- um hafi frá upphafi ver'ð varðveizla eiri'ngar Banda- ríkjanna. Og þetta markmið gaf ævi hans einingu, allt að þvi listræ'Yi heild. Hcnum duldist ekki gildi þessarar hugsjónar fyr'r umheiminn, ekki síður en Bandaríkin. Ef þjóðfélag grundvallað á sjálf- stæðisyfirlýsingunni frá 1776 þrifist, hlytu afleiðingarnar að vera endurmat manna á þjóðféjagsháttum. I ræðu í bindindisfélagi í Springfæld '1842 sagði hann: „Að réttu Abraham Lincoln lagi erum við hreyknir af stjcrnarbyltingunni 1776. Hún liefur fært okkur frelsi í langtum rikara mæli en nokk- urri armarri þjóð á jörðu. í því hefur he’murinn fund- ið ráðningu hins margrædda vandamáls um getu mannsins til að stjórna sér sjálfur. 1 þv'í var frækorn, sem skotið hefur rótum, og upp af mun vaxa og breiðast út allsherjar frelsi mannkynsins.“ En eir.s og flestir samlandar hans var hann undir áhrifum guðfræði púrítananna í Nýja Englandi. Baráttan fyr.r afnámi þræla- halds varð smám saman í augum hans .sem þeirra áþekk baráttumi í opinberunarbók- inni milli góðs og ills. I ræðu sinni í Cooper-stofnuninni 27. febrúar 1860 fór hann þessum orðum um þrælahaldið: ,,Að þeir telja það rétt og að við teljum það rangt, er einmitt sú staðreynd, sem öll de:lan snýst um. Þar sem þeir telja það rétt, verða 'þeir ekki á- sakaðir fyrir að vilja afla því fullrar viðurkenningar; en þar sem við teljum það rarigt, getum við ekki látið undan þeim“. Tveimur áratugum áður, þá ungur stjórnmála- maður, lauk hann ræðu á þessum orðum: „Ef ég finn nokkru shuni sál mína - hef ja s;g úpp til o’g breiða úr sér á hæðum þeim, sem ekki eru með öllu óverðugar almátt- ugum byggingameistara þeirra. þá er það, þegar ég hugleiði málstað lands míns, yfirgefinn af umheiminum, og ég rís upp, einn og djarfur, og býð byrginn sigrandi kúg- urum 'hennar". Smám saman var'ð trú hans,' sem átti sér l'íka frjálshyggjuskeið, að e:nhvers konar algyðistrú. Haran sá vilja guðs birtast í sögunni. Árið 1862 skrifaði hann: ,,í núverandi borgara- styrjöld kann vilji guðs að Framhald á 11. síðu. 1MIIIIIIIIIIII.....................................................illilllll.............................IIMIIIIMIMIIIIIIIIIIMIMMI |||IIIMIMMIIIIIIIIIllMIMMIMIMIHIMIMIIIIIMIIUIIIIII!lllllllllMIMIIIi:illlllMIIIIIIIIIIMIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIl‘ ISLENZK TUNGA Ritstjóii: Árni Böðvarsson. 139. þáttur 4. marz 1961 Ákveðinn greinir Ákveðinn greinir er til tvenns konar í íslenzku, laus og -viðskeyttur, og er raunar hvort tveggja mismunandi myndir sama orðs. Laus greinir nefn- ist öðru naíni ákveðinn grein- ir lýsingarorða, vegna þess að í íslenzku verður hann aðeins notaður í sambandi við lýsing- arorð. Þá er hann settur á iundan því og nafnorðinu sem Það stendur með: hinn stóri xnaður, hið glæsta skip. Ákveð- inn greinir nafnorða er settur sem viðskeyti aftan við nafn- orð, eins þó að lýsingarorð fari á undan því: stóri maður- inn, glæsta skipið. Ef laus greinir er notaður í cf.óit, verður stíllinn tilgerðarlegur, og má venjulega forðast það með því að nota heldur greini nafnorða. Þó ber að athuga í því sambandi að merking' orða- sambandanna „ hinn stóri mað- ur“ og „stóri maðurinn“ er ekki alltaf hin sama. Með orðalagi eins og „stóri maður- inn, glæsta skipið" er oft gef- ið í skyn að einnig sé um að ræða andstæðu, „litla (minni) manninn, óglæsilegra skipið“, en af sambandinu verður þó venjulega ráðið hvort svo er. Ákveðinn greinir er notaður til að sýna að um einhvern til- tekinn, áður kunnan einstakl- ing sé að ræða. Hann er not- aður i öllum germönskum mál- um, bæði viðskeyttur og laus í öilum Norðurlandamálunum (nema finnsku, sem er ekki germanskt mál), en í ensku og þýzku er hann aðeins laus, svo sem kunnugt er. Er þar oft mjótt á mununum hvort um er að ræða ákveðinn greini eða ábendingarfornafn, en yfirleitt mun ákveðinn greinir í tungu- málum vera sama orðið og eitt- hvert ábendingarfornafn. — í mörgum tungumálum er ekki til greinir, hvorki ákveð- inn né óákveðinn. Svo er t.d. um latínu, og af nútímamálum má nefna rússnesku og finnsku, auk ýmissa annarra mála. Ekki ber á því að þetta valdi rugj- ingi í þeim málum, en þess er l.'ka vert að geta í því sam- bandi að í slíkum málum er venjulega unnt að nota for- nöín (eins og t.d. sérstakur, einhver“) sem nokkurs konar greini. Áf því hlutverki ákveðins greinis að ákveða eitthvert til tekið orð leiðir að ofnotkun hans verður til að gera stílinn flatneskjulegan og sviplausan. Meðan skólafólk og aðrir nem- endur eru að átta sig á hóf- legri notkun ákveðins greinis, er það góð regla að strika hann alls staðar út þar sem hann er ekki beiniínis nauðsynleg- ur. Venjulega er ákveðinn grein- ir aðeins notaður með samnöfn- um, en stundum þó með sér- nöínum: annar Jóninn, báðir Jónarnir. Viðskeyttur greinir er og stöku sinnum notaður með lýsingarorðum; góðurinn minn, ljúfan min, enginn má við margnum, o.s.frv. Aí sérnöfnum mun ákveðinn greinir helzt vera notaður með örnefnum alls konar, bæjanöfn- um og öðrum. Þó mun þetta vera mismunandí eftir lands- hlutum. Ég hef orð Skagfirð- ings fyrir því að þar í héraði sé aldrei notaður greinír með bæjamafni, nema tvö séu sam- nefnd, og þá í samböndum eins og „bæði Valiholtin“, en hins vegar „Vallholt er góð jörð“, einnig: „Þveráin (eða Þverá, greinislaust) er vatns- mikil, en Þverá er góð jörð“. Sama segir mér Þingeyingur (frá Raufarhöfn) úr sínu hér- aði. Á Suðurlandi er þessu öðruvísi háttað. Greini er þar hægt að nota með hvaða bæj- arnafni sem er í ákveðnum samböndum, einkum ef talað er um að jörðin sé laus til á- búðar: Holtið er laust. Oddinn er laus (getur alveg eins átt við prestakallið), og með sum- um bæjarnöfnum er jafnvel venja að nota greini. Sérstak- lega á það þó við um nöfn sem enda á -hjáleiga, -kot, -sel eða einhverju slíku sam- nafni, þegar samnaínið eitt er notað, t.d. í Selinu = í Hólma- seli, í Hjáleigumii — í Fróð- holtshjáleigu. Svo þarf þó ekki að vera. í Landsveit er t.d. bærinn Bjalli, en með því nafni er venjulega notaður greinir: á eða frá Bjallanum. Mjög almennt var það í Rang- árvallasýslu að minnsta kosti að nota greini með bæjarnafn- inu Klaustur, þegar það var stytting á Kirkjubæjarklaust- ur, og var þá sagt t.d. Lárus á Klaustrinu. Mér er tjáð að í Mýrdalnum sé hvort tveggja notað, á Klaustri og á Klaustr- inu (enginn kunnugur segir í Klaustri um þennan stað). Heiti sveitarinnar, Mýrdalur, er ég vanastur með greini, þegar ekki er haít áttartákn- andi atviksorð með þvi: -í Mýr- dalnum, austur í Mýrdal, út í Mýrdal. — Þessar áttartáknan- ir, út og austur um gagnstæð- ar stefnur, eru enn éitt ein- kenni sunnlenzku. Þetta skal látið nægja að sinni, en ég vildi sérstaklega biðja lesendur af Austurlandi eða Vesturlandi að láta mig vita hversu háttað er notkun greinis að þessu leyti í heima- héruðum þeirra. Og mér þætti fengur að frétta um bæjanöfn sem í næsta nágrenni eru venjulega höíð með greini, sbr. um Bjallann, Selið, og Hjáleig- una hér að ofan.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.