Þjóðviljinn - 06.04.1961, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 6. apríl 1961
j Fréttamaður Æskulýðssíð-
unnar hitti nýlega að máli
ungan verkamann í Reykja-
vík, Jón Guðjónson, og lagði
fyrir hann nokkrar spurn-
ingar, s?m Jón féllst góðfús-
lega á að svara.
Hvar vinnur þú, Jón?
— Fg vinn hjá Hiijaveit-
unni.
! Hvað hefurðu unnið þar
lengi?
•— Það eru núna liðin fjög:
ur ár, síðan 1957.
Og hvernig likar þér að
vinna þar?
— Svosem vel. Ég vinn
núna við nýlagningar í Teig-
’ unum,
Ert þú á tímakaupi eða
1 vikukaupi?
1 — Ég er á tímakaupi.
Hvernig leizt ]>ér á rausn
íhaldsins í bæjarsí jórninni,
sem neitaði að borga ykkur
1 vikukaup?
1 — Það var svósem ekki vi5
öðru að búast úr ] úrri átt.
Ilvernig gengur þér að lifa
af þeim launum, sem þú hef-
ur ?
— Það er blátt áfram ó-
mögulegi að lifa af kaupinu.
Almenna verkamamiakaupið
er nú 990 krónur á viku. og
það er ailtof lág upphæð lil
þess að af henni sé hægt að
framfleyta fjölskyldu. Það er
stöðugt erfiðara að láta þessi
laun hrökkva. I allan vetur
hafa vörur verið að hækka
í verði, en kaupið stendur í
stað.
Finnsl þér tími kominn til
að leggja út í kjarabaráttu ?
’ — Verkalýðshreyfingin ga-f
núverandi ríkissljórn frest til
þess að bæla kjörin eftir
gengis'sékkunina. Hún hsfur
sagzl vilja kauphækkanir án
verkfalla. En þessi frestur
er nú orðin nógu langur. Það
væri mjög gott, ef kjarabæt-
ur næðusl án verkfal'a með
samkomulagi við atvinnurek-
endur. En reyndin hefur ver-
ið sú, að verkalýðshreyfing-
in hefur aldrsi komið fram
síunm málum nema með bar-
áttn.
Nú hafa síjómarsinnar út-
hác,,''^''ð. að aukin framle'ðni
og -íkvæð;sv:nna gæti komið
í stað kjarabóla með kauo-
hækkunum. Hvað finnst þér
um það?
— Við höfum nú séð það,
að framleiðslan hefur aukizt
á undanförnum árum, og á
sama tíma hefur kaupmáttur
launa lækkað. Tæp’ega hefur
aukin framleiðni frekar í för
með sér sjálfkrafa betri kjör.
En ákvæðisvinnan ?
— Það er nú mjög erfitt
Húgnnnn oq
f innréttingar
* Tökum að okkur smíði *
( húsgögnum og innréttingum.
j Leitið upplýsinga.
I Almenna husgagnavinnu-
! stofan h.f..
að skipuleggja ákvæðisvinnu
svo vel sé. Og þeim mun
freímir núna, þegar lítið er
um vinnu, og alvinnuleysi
jafnvel farið að stinga sér
niður, þá hefur ákvæðisvinna
það í för með sér að aðeins
þeir dugJsgustu fá vinnu,
hinir ekki. Þeim, sem hafa
vinnu er jaskað út, og þsgar
þeir komast á efri ár er þeim
stjakað til hliðar. Ákvæðis-
vinna út af fyrir sig leysir
ekki vandann.
En auknar fjölskyldubæt-
ur, hafa þær ekki chegið eitl-
hvað úr kaupráninu?
— Jú, það má segja svo,
fyrir þá sem eiga börn í ó-
megð. En harðast kemur það
niður á þeim, s:m eiga upp-
komin börn á aidrinum
16—20 ára. Á þeim hefur
kaupránið og dýrlíðarflóðið
dunið óbætt.
Rirgir Finnsson, þingmað-
ur AlþýðufJokksins, sagði
það í eidhúsdagsumræðunum
nýlega, að Alþýðuflokkurinn
hefði komið í veg fyrir dýr-
tíðarílóð með því að taka
þátt í viðreisnarstjórninni.
Hvernig finnst þ ér þessi um-
mæli koma heim við veru-
leikann?
— Mér finnst þau mjög
undarleg. Ég veit ekki hvað
er dýrtíð, ef það verðhækk-
anaf’óð, sem dunið hefur yf-
ir eftir gengislækkunina, er
ekki dýrtíð. Það er einmitt
það sem það er.
Nú hefur Dagsbrún sett
fram þá kröfu, að vikukaup-
ið verði 1180 kr. Finnst þér
það nóg?
Alþýðusambandsþigið
síðasla markaði þá stefnu að
kauphækkanir þyrftu að
verða 15—20%, og það er
alls ekkert of mikið. Fyrir
nokkrum árum gátum við
borið kjör okkar saman við
kjör bandarískra verkamanna
og á Norðurlöndum. Nú er-
um við ekki einu sinn; hálf-
drættingar á við bandaríska
verkamenn og kaupið orðið
allmiklu lægra en það er á
Norðurlönöum. Við þetta
getum vlð ekki unað.
Stjórnarvöldin hafa það
áreiðanlega í huga að beina
erlerjJu fjármagni inn i land-
ið með því að halda kaupinu
svona lágu. Hvernig lizt þér
á það?
— Það yrði mjög hæftulegt
fyrir okkur, ekki sízl af því,
hvað við erum fáir. Hið er-
lenda fjármagn hefði hér
miklu meiri áhrif heidur en
hjá slærri þjóðum. Og auk
þess, ef verkamenn færu að
gera kaupkröfur og berjast
fyrir réttindum sínum, þá
gætu þeir sagt, að þeir væru
farnir. Þannig yrði verka-
mönnum settur slóllinn fyrir
dyrnar.
Við þurfmn að ef1? ís'enzkt
efna'hagslif. Að þvi stuðlar
ekki sú stefna að halda niðri
kjörum verkamanna og sjá
um að þeir beri skarðan hlut
frá borði. A. H.
Þann 30. marz sl. gat að
lita á 13. síðu Morgunblaðs-
ins þann dag ákaflega hlægi-
legt, plagg. Það var skírt á-
kaflega löngu nafni og liét:
„Almenn st jórnmálaályktun
fyrstu þjóðmálaráðstefnu
Vöku“ og síðan er útskýrt, að
Vaka sé „félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta“. Þessi vísinda-
mannaefni íhaldsins birta
þarna í ályktunarplaggi sínu
nokkur stefnuskráratriði al-
menns og stjórnmálalegs eðl-
is, sem vert er að athuga
nokkru nánar.
Hinir vísu íhaldsstúdentar
hefja ályktun sína þannig:
,,Við teljum farsælustu
stefnu- íslendinga vera leið
framfarasinnaðrar, víðsýnn-
ar hægri stefnu...“ f augum
alls venjulegs fólks, sem ekki
hefur lært nein íhalúsfræði í
Heimdalli, inniheldur þessi
setning fullyrðingu, sem er
sjálfri sér ósamkvæm. Ann-
ars vegar er fullyrt að leið
Islendinga skuli vera fram-
farasinnuð og víðsýn stefna,
en hins vegar en einnig lýst
fylgi við hægri stefnu. Hér
er um að ræða contradictio
in adjecto, ósamrýmanlegar
andstæður. Hægri stefna get-
ur hvorki verið framfarasinn-
uð né víðsýn. Hægri stefna
er sú stefna, sem reynir að
draga úr framförum og við-
halda því einu sem er, hinu
gamla. Lýsingarorðin hægri
og vinstri var farið að nota
í FrakkJandi í stjórnarbylt-
ingunni mildu, en þá skipuðu
fulLtrúar léns- og konungs-
valdsins — afturhaldsins —
sér hægra megin í þingsaln-
um, þegar stéttaþingið var
háð. Fulltrúar þriðju stétt-
ar, borgara og vinnulýðs,
skipuðu sér til sæt'-s vinstra
megin. Þriðja stétt var þá
hin framfarasinnaða, víðsýna
stétt. Hún var þá með vinstri
stefnu. Síðan hefur margt
breytzt. Börgarastéttin er
orðin að afturhaldi og hmdr-
un í vegi allra framfara. Það
er því all raunsæ viðurkenn-
ing á ástandi borgarastéttar-
innar í dag að fullyrða að
hún fylgi hægri stefnu. Það
er alveg rétt, Hún er nú í
hlut.verki lénsaðalsstéttarinn-
ar, sem stjórnbyltingin mikla
á Frakklancli sópaði út af
leiksviði sögunnar. Á okkar
dögum er það borgarastétt-
in, en fylgir hægri stefnu.
Framfarasemi og víðsýni á
hún ekki til. Sjóndeildarhring-
urinn takmarkast við botninn
á peningjapyngjunni. iÞessi
hægristefnustétt metur . allt
til peninga. Því að sá sem á
peninga getur leyft sér það
frelsi að Jifa eins og hann
vill, hann einn getur notið
allra þessa heims gæða.
„Allir 'hafi sama rétt til að
lifa og leita hamingjunnar",
segja íhaldspiltamir í Vöku.
Það var nú einmitt borgara-
stéttin, sem nú er orðin.
íhalds- og hægri afl, sem á
Ritnefnd:
Arnór Hannibalsson
Einar Sverrisson
Grétar Oddsson
ályktun
sínum tíma setti fram kjör-
orðin: Frelsi, jafnrétti
bræðralag. Þeim ríkjum, sem
hvað hatrammast hafa barizt
gagn frelsi í heiminum, er
taml að kalla sig „hinn
frjálsa heim“. En hvað
myndu hinar þrautkúguðu
nýlenduþjóðir segja við því
frelsþ sem hinar frelsiselslc-
andi vesturlandaþjóðir hafa
rétt þeim? Þær beita nú öll-
um kröftum að því að ráða
niðurlögum þess skipulags,
sem auðdrottnunarríki hægri-
stefnunnar hafa komið á. En
einmiil með því að kúga þess-
ar ]:jóðir hafa svokölluð
stórveldi öðlast þann auð,
sem gefur þeim þann vafa-
sama rétt til að kalla sig
„hinn frjálsa heim“. Hann er
frjáls að hlýða boði og banni
auðsins. Það er það frelsi,
sem hægristefnuríkin bjóða
upp á. En jafnréttið? „Spar-
aðu tíu dollara og leggðu þá
í fyrirtæki" — sagði Roeke-
feller númer eitt við ungan
mann eit.t sinn. Sá ungi mað-
ur hafði jú vissulega jafnan
rétt til þess að sölsa undir
sig jafn mikinn auð og
Rockefeller. en hann hafði
vissulega ekki jafna mögu-
leika til þess. Hægri stefnan
býður nefnilega ekki uppá
jafnrétti, heldur ójafnréiti
milli þeirra sem eiga auð
annars vegar og þeirra sem
eiga ekkert nema sinn eigin
kropp —hinsvegar. Það hafa
kannski allir jafnan rétt til
þess að gerast forsetar í há-
borg hægristefnunnar,
Bandaríkjunum, en það er
aðeins örlítið brot af borg-
urunum, sem hafa næga pen-
inga ur.dir höndum til þess
að geta fikrað sig áfram
upp í efstu rim metorða-
stigans. Og bræðralagið? Það
hafa hægri stefnu menn
framkvæmt með því að
myrða nokkra tugi milljóna
manna í tveim heimsstyrjöld-
um, og þeir framkvæma það
dags daglega með barátlu
sinni gegn hagsmunum vinn-
andi manna hvarvetna í
heiminum. Þannig má sjá, að
hægri stefna getur aldrei ver-
ið framfarasinnuð eða víð-
sýn. Hún er afturhaldssöm
og þröngsýn. Og úr því að
piltarnir í Vöku eru svo
hreinskilnir að viðurkenna
fylgi sitt við hægri stefnu,
þá ættu þeir einnig að lýsa
yfir stuðningi sínum við aft-
urhaldið og íhaldið á íslandi
og í heiminum.
A. H.
Húseigendur
Nýii" og gamlir miðstöðvarkatl-
ar á tækifærisverði. Smíðum
svala- og stigahandrið. Við-
gerðir og uppsetning á olíu-
kynditækjum, heimilistækjum
og margs konar vélaviðgerð-
ir. Ymiss konar nýsmíði.
Látið fagmenn annast verkið.
FLOKAGATA 6, sími 24012.
Jón Guðjónsson að störfum við að .grafa fyrir hitaveitu
Hraunteig. (Ljósm. Þjóðv. A. K.).