Þjóðviljinn - 11.05.1961, Page 7
JAFNRÉTTIOG LÝÐRÆÐI í FRAMKVÆMD
Jkr
Hlustað á nokkra bæjarfulltrua
A >
Eiga allir að vera jafnir
fyrir lögunum? Það þarf
ekki að ræða. segja menn,
svo sjálfsagt er þaö.
En eiga þá allir aö hafa
jafna aðstööu þegar um
störf og stöðuveitingar er
aö ræðá? Á að ráöa menn
til starfa eftir hæfni, þekk-
ingu, reynslu og starfsaldri
þeirra, eöa eiga sjónarmið
einhverrar valdaklíku aö
hafa alræðisvald um val
mpnna til starfa?
Á' liollusta við jafm’étti ög
lýðræði aö vera einliver
tyllidaaamunaöur til notk-
únar i hátíðai*æöum, en'
bannvara á virkum dög-
um?
Ríkinu er, samkvæmt
löpum, skvlt aö auglýsa
allar stöðúr til umsóknar.
En hvemie: fer bæiar-
st.inrn Revkiavíkur að 1
þ°im efnum? Víö skiUum
ptvn’o-a hvaö rvnkkrir bæi-
pr-FnUt.ninr söp’öu um bað
mál á bæiarstjórnarfund-
jnum 4. þ m.
Á bæjarstjórnarfundinum 4.
þ.m. urðu miklar umræður og
harðar deilur um mannaráðn-
ingar. Ekki fyrst og. fremst
um hver væri ráðinn, heldur
hvernig' ráðið væri til starfa.
Þarna var um mjög djúpstæð-
an ágreining að ræða milli
sósíalista annarsvegar og í-
haidsins hinsvegar. Tilefni
deilunnar á síðasta bæjar-
stjórnarfundi var sú ákvörðun
borgarstjóra, sem meirihluti
bæjarráðs samþykkti, að stofna
borgarverkfræðingsembætti og
ráða í það Gústaf E. Pálsson
— án umsóknar. í bæjarráðinu
flutti Guðmundur Vigfússon
tillögu um að borgarverkfræð-
ingsstarfið skyldi auglýst laust
til umsóknar. Þá tillögu endur-
fluttu sósíalistar á bæjar-
stjórnarfundinum. — Umræður
þessar verða raktar í stuttu
máli.
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri skýrði frá því að Bolli
Thoróddsen bæjarverkfræði^g-
ur hefði óskað að hætta því
starfi í tilefni þeirra tíma-
móta að hann varð nýlega 60
ára og hefur verið verkfræð-
ingur hjá Reykjavíkurbæ í 35
ár, þar af bæjarverkfræðingur
nær þrjá áratugi. Þakkaði
borgarstjóri Bolla Thoroddsen
góð störf og langan starfsferil.
Jafnframt kvaðst hann telja
það mikið happ að ráða Gúst-
af E. Pálsson borgarverkfræð-
ing.
Ingi R. Helgason tók næstur
til .máls á þessa leið: Ég tek
undir allar beztu þakkir og
árnaðaróskir til Bolla Thor-
oddsen á þessum tímamótum
í ævi hans. Með tillögu sinni
um ráðningu borgarverkfræð-
ings tekur borgarstjóri upp
vinnubrögð sem eru mjög til
vansa. Með tillögunni er geng-
ið þvert á venjur er eiga að
gilda um ráðningu manna.
Með tillögunni (um ráðningu
Gústafs E. Pálssonar) er lýst
yfir að bæjarstjórnin sjái eng-
an núverandi starfsmann þess
umkominn að fylla sæti Bolla
Thoroddsen. Ég tel ósæmilegt
að ráða mann utan verkfræð-
ingahóps bæjarsins án þess að
gefa þeim mönnum kost á að
sækja um starfið. Með tillögu
bæjaráðs er komið í vpg fyrir
að bæjarfulltrúar fái að meta
hæfni þeirra manna er kynnu
að sækja um starfið. Bæjar-
stjórn getur ekki sóma síns
vegna samþykkt tillögu bæjar-
ráðs og því tek ég hér upp til-
Jögu Guðmundar Vigfússonar.
Valborg Bentsdóttir sagði m.
a. Ég lýsi undrun minni yfir
þessum vinnubrögðum bæjar-
ráðs að ekki eigi að auglýsa
til umsóknar jafn þj'ðingar-
mikið starf. Árið 1953 var rík-
inu gert að skyldu að auglýsa
með tilskildum fyrirvara allar
stöður. Þau lög ná ekki til bæj-
arstjórnar og í því skákar bæj-
arstjórnarmeirihlutinn. Aðferð
sú sem bæjarstjórnarmeiri-
hlutinn hyggst beita hér er
ekki rétt gagnvart verkfræð-
ingum hjá bænum né öðru
starfsfólki Rvíkurbæjar og
ekki sæmandi bæjarstjórn.
Guðmundur J. Guðmundsson:
Það eru næsta nýstárleg vinnu-
brögð sem taka á upp við
ráðningu borgarverkfræðings
— þótt við séuní hér orðin
ýmsu vön i þessum efnum. T.
d. má minna á að nýlega var
ráðinn hér yfirverkfræðingur
Rafmagnsveitunnar — og á-
kvörðunin um það var gerð
hálfri klukkustund áður en
bæjarstjórnarfundur hófst. —
og bæjarfulltrúar meirihlut-
ans fengu fyrirmæli um það
hér í forsalnum hverjum þeir
ættu að greiða atkvæði! Með
engu móti mátti auglýsa stöð-
una til umsóknar svo bæjar-
fulltrúar gætu valið um menn
eftir hæfni og starfsreynslu.
— Tæknimenntaðir menn fara
nú unnvörpum úr landi og
þessi vinnubrögð og þvíhk eru
ekki til að auka trú þeirra
manna á störfum hér.
Sama aðfgrð og nú á að
beita hér var viðhöfð við
ráðningu framfærslufulltrúa.
Á bæjarstjórnarfundinum upp-
lýstist að nokkrir bæjarfull-
trúar höfðu ekki heyrt mann-
inn nefndan fyrr. Það mátti
með engu móti auglýsa þctta
starf, og það mátti heldur ekki
fresta afgreiðslu málsins svo
bæjarfulltrúar gætu kynnt sér
það frekar.
Og nú fáum við að vita að
meirihluti bæjarráðs hafi sam-
þykkt tillögu borgarstjóra um
að ráða Gústaf E. Pálsson
borgarverkfræðing — og enn
sem fyrr má með engu móti
auglýsa staífið til umsóknar!
Fjölmargir verkfræðingar
hafa unnið hjá bænum um ára-
bil — og þeim er ekki gefinn
kgstur á að sækja um stöðuna.
Mér finnst næstum að borgar-
stjóri vilji, ef hann veit um
duglegan mann eða hittir
skemmtilegan mann á götu, þá
vijji hann hafa vald til að ráða
manninn umsvifalaust í þjón-
ustu bæjarins! Þetta getur
hentað honum sem einstaklingi,
— en þetta er gi-undvallarbrot
á þeim reglum sem opinber
stofnun á óhjákvæmilega að
fara eftir.
Fyrir tveimur árum var hér
deila um ráðningu skipulags-
stjóra. Minnihlutinn taldi
Skúla Norðdahl hafa mesta
menntun og rej-nslu umsækj-
enda. Meirihlutinn sagði það
gæti verið rétt — en hann
hefði starfað einu ári skemur
hjá bænum en umsækjandinn
er meirihlutinn hafði velþókn-
un á og ráðningin yrði að fara
eftir starfsaldri lijá bænum
Nú eru þau rök gleymd! —
Ég vil taka skýrt fram að í af-
stöðu minni felst ekkert van-
traust á hæfni Gústafs E.
Pálssonar, heldur tel ég hann
duglegan mann. En aðferðin
við ráðninguna er brot á lýð-
ræðisreglum; aðferð sem kern-
ur í veg fyrir að aðrir hæfir
menn geti sótt og að bæjar-
fulltrúar fái tækifæri til að
meta þá.
Alfreð Gíslason: Ég mót-
mæli þessu tiltæki bæjar-
stjórnarmeirihlutans. Á því
hlýtur að vera sú ein skýring
að bæjarstjómarmeirihlutinn,
með borgarstjórann í broddi
fylkingar, hlýtur að vera and-
vígur þeirri reglu að störf hjá
bænum séu auglýst. Hver er á-
stæðan? Ég vil fá svar við því
hér á þessum fundi. Jafnframt
undrast ég að góður og mikil-
hæfur maður eins og Gústaf E.
Pálsson skuli vilja þiggja
starfið með þessari aðferð. Og
ég undrast að Verkfræðingafé-
lagið skuli ekki mótmæla slík-
um vinnubrögðum. — Ég tek
það fram að ég hef ekkert á
móti Gústafi E. Pálssyni.
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri; Ég tel æskilegt að al-
menna reglan sé að auglýsa
stöður til umsóknar. En ég
hika ekki við þegar völ er á
hæfum manni scm ég hef sér-
stakan augastað á að ráða
hann. Tel að auglýsingareglan
sé ekki það „prinsíp11 að fara
þurfi eftir því. Þessi maður
(G.E.P.) er í ágætri stöðu og
hefði enga hvöt haft til þess
að sækja um þetta starf nema
að hann hefði verið hvattur
til þess. Borgarverkfræðings-
starfið er mikilvægara en bæj-
arverkfræðings. Það væri á-
byrgðarleysi að gera sér ekki
hugmynd um slíkan mann áð-
ur en hann er ráðinn. Umsækj-
endahópurinn um slíkt starf er
þröngur, og því þrengri sem
umsækjendahringurinn er, því
minni þörf er á að auglýsa
starfið.
Valborg Bentsdóttir; Fyndist
borgarstjóranum það við hæfi
ef menntamálaráðherra þekkti
mann er hann teldi rétt að
gera að prófessor við háskól-
ann, að hann réði manninn án
þess að auglýsa stöðuna, að-
eins vegna bess að um þröngan
umsækjendahóp væri að ræða?
Ingi R. Helgason: Borgar-
stjóri sagðist ekki hika við að
þverbrjóta lýðræðisreglu.
(Borgarstjóri: Hver sagði að
það væri lýðræðisregla!).
Það vcrður að álíta grund-
vallareglu að menn séu
jafnréttháir gagnvart lögum
og opinberum stofnunum.
Lagasmíð um ríkisstofnanir
byggir á þeirri reglu að rík-
ið megi ekki misnota ráðn-
irigarvald sitt. Sama á að
gilda hjá Reykjavíkurbæ, —
höfuðborg landsins.
Borgarstjóri segir að Gústaf
E. Pálsson myndi ekki hafa
sójt ef starfið hefði verið aug-
lýst. Þokkajeg forsenda til að
ráða manninn ’að hann vill
ekki láta leggja á sig sama
mælikvarða og aðra íslenzka
verkfræðinga!!
Að auglýsa starf til umsókn-
ar er lýðræðisleg aðferð til að
koma í veg fyrir að mönnum
sé mismunað.
Úlfar Þórðarson kvað aug-
lýsingu starfs enga tryggingu
vera fyrir réttri veitingu
þess, því eitt sinn hefði ráð-
herra tekið lakasta umsækj-
andann um læknisstöðu og
gert hann að héraðslækni í
, einu stærsta héraði landsins.
Guðmundur J. Guðmundsson:
þótt einhver ráðherra hafi ein-
hverntíma misnotað aðstöðu
sína tij að ráða mann réttlæt-
ir það á engan hátt aðferð
bæjarstjórnarmeirihlutans, þá
að auglýsa störf ekki til um-
sóknar, því sú aðferð veitir
enn meiri möguleika til mis-
notkunar. Hvað er að óttast
þó það 'komi fram hverjir
sækja um staríið og bæjarfull-
trúar fái að vega og meta
hæfni umsækjanda? Borgar-
stjóri kvað ábyrgðarleysi að
vilja vega og meta umsækjend-
ur um starf, — ég tel hans af-
stöðu enn meira ábyrgðar-
leysi.
Borgarstjóri talar k’.ökkur
um lýðræði á hátíð'sdögum.
Þetta er hans lýðræði í fram-
kvæmd. Ég mótnvæH mjög ein-
dregið þessum vinnubrögðum
meirihlutans.
Að loknum umræðum fund-
arins, sem hér hafa verið rakt-
ar efnisl°ga í stuttu máli, voru
atkvæði greidd. Með tillögu
Alþýðubandalagsnianna um að
auglýsa borgarverkfræðings-
starfig voru 4 atkv. en allir í-
haldsfulltrúarnir sátu hjá, svo
og Alþýðuflokksfulltrúinn,
Óskar Hallgrímsson, sem í
þetta sinn hafði hlutvérk
Magnúsar XI. — Þvínæst sam-
þykkti íhaldið og Óskar vara-
ellefti að ráða Gústaf E. Páls-
son borgarverkfræðing, án
þess að starfið væri auglýst til,
umsóknar. J. B.