Þjóðviljinn - 04.06.1961, Page 4
%) •— ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 4. júní 1961
Maðurinn með ljáinn gerist
nú stórhöggur í liði hinna
öldnu stcrmeistara varla hafði
Löwenfisk verið moldu aus-
inn er fregrin um lát pólska
stórmeistarans Akíba Rubin-
steins barst út um heiminn.
Með honum er hniginn í val-
inn einn frægasti skákmaður
þessarar aldar, af sumum tal-
inn snjallasti endataflsmað-
ur, sem uppi hefur verið.
Rubinstein fæddist árið
. 1882 í bænum Stawiski í Pól-
lanái. Hann var af fátækri
gyðingafjölskyldu, yngstur 12
. systkina, og ólst upp hjá afa
sir.um og ömmu. Þrátt fyrir
fátækt var honum fyrirhugað
að fylla flokk skriftlærðra
mann og gerast gyðingaprest-
ur svo sem verið höfðu for-
feður hans. um margar kyn-
sló'ðir. En forlögin höfðu ætl-
• að Rubinstein annan hlut.
Hann kynnt.ist skákimi 16
ára að aldri og hreifst svo
af töfrum hennar, að hann
varð aldrei samur maður.
í stað þess að verða geist-
legur uppfræðari gyðinga varð
hann heimsfrægur stórmeist-
ari. Vandamenn hörmuðu frá-
' vik hans frá hinni troðnu
slóð, en skáklistin auðgaðist
um heilt konungsríki.
Það vrði of langt mál að
telja upn öll þau skákmót
sem Rubinstein tók þátt. í
' um dagana og alia hans
mörgu sigra. Alls tók hann
þátt í 57' skákmótum á skák-
Mikill meistari
ferli sínum. Hreppti hann
fyrstur ver’ðlaúr.i 20 sinnum
og .aðgins í fimm skipti var
hann ekki meðal þeirra sem
verðlaun hrepptu. Beztu ár
hans voru fyrir fyrri heims-
styrjöldina. 1912 vann hann
til dæmis fyrstu verðlaun á
5 skákmótum hverju á eftir
öðru, og hefur enginn náð því
meti hans enrþá.
Það ræður af líkum, að á
þessum árum þætii Rubin-
stein vænlegt efai í heims-
meistara, en þá var ksppni
um heimsmeistaratitilinn ekki
komin í janfastar skorður og
nú,
Heimsmeistarinn gat ef hon-
um þóknaðist svo hliðrað sér
hjá að tefla við hættulegasta
ar'lstæðing sinn ýmist með
því að telja hann ekki verð-
ugan andstæðing eða með
cðrum afsökunum. Að vísu
mun þessu ekki hafa verið
beitt gegn Rubinstein, en
vegna skipulagsskorts á flsst-
um málum þá dróst óeðli-
lega lengi, að stofnað yrði til
einvígis milli hans og heims-
meistarans, sem þá var Ema-
nuel Lasker.
Þó var svo komið árið 1914,
að ekki þótti fært að slá því
á frest lengur og skyldi það
fara fram þá um haustið.
Eu þá kom babb í bátinn.
Heimsstyrjöldin skall á og
hindraði öll einvigisáform.
Og þegar fallbyssudrunurnar
hljóðnuðu loks að fjórum
árum liðnum. þá var Rubin-
stein breyttur maður. Strfð-
hniginn í vzlinn
Akíba Rubinstein.
ið hafði orkað þungt á lík-
ama hans og sál, og hann
uiði aldrei sinni fyrri reisn.
þrátt fyrir það átti hann enn
eftir að vinna marga sigra
en það varð aldrei úr þvi, að
hann tefldi einvígi um heims-
meistaratitilinn. Capablanca
varð næsti áskorandi Lask-
ers og vann hann í einvígi
1921-.
A'rið 1930 vann Rubinstein
einn sinn stærsta sigur, er
liann hlaut 15 vinmnga af 17
mcgulegum á 1. borði á Olym-
píuskákmótinu í Hamborg.
En þá var farið að styttast
í skákferli hans. Árið 1932
dró hann sig algjörlega til
baka fvá þátttöku í opinber-
um ‘skákmótum. Tefldi hann
þó áfram við vini sína og
kunningja annað kastið. —
Þannig er talið að belgíski
skákmaðurinn O. Kelly hafi
notið mjög góðs af þeim
sendir íslenzkum sjómönnum
og aðstandendum þeirra beztu
kveðjur á sjómannadaginn.
«UmiJIIIIllllIllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlIIIIIIIIIIIIHIIII!4IlllllllillllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIfIllllllllllllllllllII|lll
þjálfun er hann hlaut hjá Ru-
binstein á stríðsárunum, en
siðustu áratugina bjó Rubin-
stein í Belgíu og andaðist
þar 14. ma.z s.l.
Eins og áður var getið
hafði heimsstyrjöldln fyrri
þungvæg áhrif á Rubinstein.
. Einkum voru hin sálrænu á-
hrif djúptæk. Hann gerðist
svo hlédrægur og mannfælinn
að slikt gat varla samrýmst
heilbrigðum geðsmunum. •—
Kurteisi hans og tillitsemi við
andstæðinginn gékk líka fram
úr öllu hófi. Er hann hafði
leikið leik sinn stóð hann
samstundis upp og settist á
afvikinn stað úti í horni sal-
arins, sem teflt var í, til að
hafa ekki fruflandi áhrif á
andstæðinginn. Vék hann
ekki þaðan fyrr en andstæð-
ingurinn hafði leikið leik
sinn. Að sjálfsögðu fór mik-
ill umhugsunartími til spillis
á þennan háit og átti það
sjálfsagt drjúgan þátt í
mörgu óvæntu skakkafalli,
sem hann varð fyrir á síðari
hluta skákferils síns. Þessi
framkoma Rubinsteins sting-
ur mjög í stúf við þá list,
sem Morgunblaðið telur að
beitt hafi verið í heimsmeist-
araeinvígi á s.l. ári: þ.e. að
taka tilhlaup að borði and-
stæðingsins og gera honum
bilt við!
Skákstíll Rubinsteins var
einnig brugðið eftir styrjöld-
ina. Hinn krystaltæri, rök-
rétti, matematiski stíll hafði
látið á sjá og hann teflir ekki
af sama öryggi og sjálfs-
frausti sem fyrr. Hann skorti
þá innri ró og jafnvægi, sem
var samtvinnað skákstíl hans
og bakgrunnur hinnar hár-
fínu og nákvæmnu tafl-
mennsku.
Sem fyrr var getið er Ru-
binstein talinn einhver snjall-
asti endataflsmaður, sem uppi
hefur verið, enda stóð ýms-
um stórmeisfurum stuggur af
því að þreyta við hann jafnt
endatafl. En þótt endatafl
væri sennilega hans sterkasta
hlið, þá voru margar mið-
faflsleikfléttur hans svo
snjallar, að þæ'r munu stand-
ast tímans tönn sem klass-
isk dæmi listrænnrar tafl-
mennsku, meðan skák verður
tefld.
En einnig í skákbyrjunum
hefur Rubinstein markað
djúp spor. Hann átti t.d.
drjúgan þátt í að gera drottn-
ingarbrag að því hvassavopni
'sem það hefur reynzt, og
knúið hefur svartan til að
leita ýmissa nýrra varnar-
kerfa t. d. Grunfeldsvarnar-
Niemzoindverskrar varnar o.
s. frv. Gegn Niemzoindverskri
vörn er leikurinn 4. e3 kennd-
ur við Rubinstein, en sá leik-
ur er enn þann dag í dag al-
gengasti svarleikurinn, gegn
Niemzoindverskri vörn. í fleiri
skákbyrjunum hefur mjög
gætt áhrifa frá Rubinstein.
Sem kunnugt, ier voru þeir
heimsmeistararnir Capablanca
og Aljechin litlir vinir og
þoldu illa að heyra h-vor öðr-
um hælt. Sagt var að þrauta-
lending heggja í slíkum til-
fellum hefði verið svarið:
„Hann er þó ekki betri en
Rubinstein". Það má ief til
vill segja, að í þeim ummæl-
um hafi fólgist nokkur hlut-
drægni. En þeir töldu sig þó
hafa langt til jafnað.
Og þó varð Rubinstein
ald'rei heimsmeistari. Þessi
hlédrægi maður, sem læddist
út i horn til að trufla ekki
andstæðinginn dró sig um.
fimmtugsaldur algjörlega í
hlé frá opinberum kapptefl-
um sem áður var getið. Ef
til vill hefur hann þá funidið
þá ró, sem samrýmdist bezt
hans kyrrlátu skapgerð.
En þótt þessi mikli meist-
ari, sem nefndur hefur verið
Spinoza skákarinnar, sé nú
allur, þá munu hin dásam-
legu listaverk sem hann læt-
ur eftir sig fryggja geymd
minningar hans í framtíðinni.
Og þótt, líkami hans ónáði
engan framar, þá mun andi.
háns trufla skákheiminn um
ókominn aldur með návist
sinni.
Hér birtist ein af skákum
hins látna stórmeistara. Ég
hefi ekki valið hana af verri
endanum, þa'r sem hún hefur
sérstaklega verið skýrð „ó-
dauðlega skákin“. Skákin er
tefld í Lodz 1907.
Hvítt: Kotlewi
Svart: Rubinstem
Dr ottningarbragð:
I. d4, (15. 2. Rf3, e6. 3. e3,
c5. 4. c4, Rc6. 5. Rc3, Rf6.
6. dxc5,
(Betra er 6. Bd3.)
6. — — — Bxc5. 7. a3, a6.
8. b4, Bd6. 9. Bb2, 0—0. 10.
Dd2?
(Slæmu'r leikur. Hvítur gat
leikið 10. cxd5, exd5. 11. Be2
o. s. frv., þótf það væri að
vísu viðurkenning á því, að
sjötti leikurinn var siæmur.)
10. -------De7! 11. Bd3.
(Meðan svarta drotíningin
stóð á d8 gat hvítur að sjálf-
sögðu ekki unnið peð á d5
þar sem það mundi kosta
hann drottninguna • vegna
biskupsskákar á b4. En einn-
ig nú er peðið á d5 friðhelgt:
II. cxd5, exd5 12. Rxd5, Rxd5
13. Dxd5, Be6 14. Ddl (14.
Dg5, Bxb4f) 14.-------------
Rxb4!)
11. ---------dxc4. 12. Bxc4,
b5. 13. Bd3, Hf-d8. 14. De2.
(Á d2 getur. drottningin auð-
vitað ekki staðið til lengdar.)
14. ----------Bb7. 15. 0—0,
Re5.
(Hvítur hefur tapað þremur
leikjum í byrjuninni!)
16. Rxe5, Bxe5. 17. f4.
(Betra var 17. Hf-dl. Leikí
svartur þá 17.---------Dc7,
kemur 18. f4, Bxc3 19. Ha-
cl o. s. frv.)
17. -------Bc7. 18. e4?
(Alrangur leikur!. 18 Hf-dl
var enn rétii leikurinn.
Hvort. það hefði nægt. til itafl—
jöfnunar, úr því sem komið
Framhald á 10. síðu.
Er dæmdur til að
lifa í skugganum
Átta ára gamall skozkur
drengur, Freddie Mclntosh, er
dæmdur til að lifa alla ævi í
skugga. Læknar hafa komizt að
því að hann er ofnæmur fyrir
sólarljósi sem orsakar kvala-
fullan hörundssjúkdóm. Hann
hefur nú legið í heilt ár í sjúkra-
húsi í Edinborg, en læknar geta
ekkert annað ráð gefið honum
en að forðast allt sólarljós.