Þjóðviljinn - 06.09.1961, Side 9
Um síðustu helgi fór fram
hin áriega fjögra bandalaga
keppni í frjálsum íþróttum, en
að hcnni standa Ihróttabanda-
lag Keflavíkur, Ungmennasam-
band Kjalnesþings, Ungmenna-
samband Eyjafjarðar og íþrótta-
bandalag Akureyrar.
Það var íþróttabandal. Kefla-
víkur sem upphaflega efndi til
keppni þessarar. Mikill áhugi
var íyrir frjálsum íþróttum í
Keflávík á árunum fyrir 1950.
og leituðu þeir þá samvinnu hér
og þar til þess að ná sér í
verkefni. Leituðu þeir til Sel-
foss, Akraness og víðar en þau
heltust úr lestinni, en Keflavík-
ingar gáfust ekki upp þeir leit-
uðu víðar. Fyrst til Ungmenna-
sambands Kjalnesþings. og þar
má segja að hæfist reglubund-
in keppni og samstarf sem ekki
hefur slitnað síðan. og síðar
hafi bæzt við í keppni þessa
Ungmennasamband Eyjafjarðar
fþróttabandalag Akureyrar.
Képpt he'fur vérið árlega síð-
an 1950. og er þetta í 5. sinn
sem:J 4 félög eru með í keppni
þessari.
Meðal þátttakenda í keppni
þessari er mikill áhugi og vill
enginn hætta þátttöku. Hún er
viss áfangi á hverju keppnis-
tímabili sem íþróttamenn stað-
anna verða að búa sig undir að
ná. Framhjá því verður heldur
ekki gengið. að þetta er stórmót
þar sem 8 menn taka þátt í
hverri grein eða 2 frá hverju
sambandi.
Veður spillti kcppninni
Meðan keppnin fór fram að
þessu sinni var rok og rigning,
og skemmdi það mjög fyrir.
þannig urðu t. d. langstökkvar-
arnir að hlaupa á móti storm-
inum og rigningunni, og svipað
er um hástökkvarana að segja.
Eigi að síður hélt mótið áfram
samkvæmt. áætlun, þótt starfs-
menn og keppendur væru hold-
votir meðan á keppninni stóð.
Þi'átt fyrir þetta var keppnin
oft jöfn og spennandi og t. d.
voru 1. og 2. maður á 100 m á
sama tíma og þrír næstu einn-
ig á sama tíma.
Stigakeppnin hjá UMSK og
ÍEA var einnig mjög spennandi,
því að tæpu stigi munaði á
þeirh fyrir síðustu greinina,
4x100 m boðhl. iBA var á und-
an en. v;.u- dæmt úr leik fyrir
ranga skiptingu.
Stigin voru reiknuð bannig að
fyrsti maður fékk 10 stig, 2. 8
stig og 3. 7 stig o. s. frv.
1 boðhlaupunum voru st.igin
reiknuð þannig 1. sveit fékk 14
stig 2. sv. 10 st. 3. sveit 8 og
fjórða 6 stig.
Ef. stig urðu jöfn var þeim
skínt.
Árangur briggja beztu manna
í keppninni:
Foiseti ÍSI í Nöretfi
í dag fer forseti ÍSÍ Ben.
G. Waage til Osló, og ætlar
hann að sitja þar þing Nor-
rænu íþróttasambandanna.
Með hqnum í förinni er Jens
Guðbjömsson. Fundir þessir
eru haldnir til þess að ræða
ýms sameiginleg' mál samband-
anna og eru haldnir reglulega.
Kringlukast:
Þorsteinn Alfreðss. UMSK 45.65
Grétar Óalafsson ÍBK 40.11
Ármann J. Láruson UMSK 39,87
400 m hlaup:
Guðm. Hallgrímsson ÍBK 55.4
Birgir Marinósson UMSE 56,6
Jón Gíslason UMSE 57.2
Uangstökk:
Björn Jóhannsson ÍBK 5,54
Magnús Ólafsson ÍBK 5.54
Sigurður Sigmundss. UMSE 5,51
Sp.iótkast:
Halldór Halldórsson iBK 46.88
Ingvi B. Jakobsson IBK 42,27
Skjöldur Jónsson ÍBK 40,18
Kúluvarp:
Skúli Thornrensen ÍBK 13.15
Þóroddur Jóhannss. UMSE 13.02
Grétar Ólafsson IBK 12,91
100 m hlaup:
Þóroddur Jóhannss. UMSE 11.1
Guðmundur Hailgrímss ÍBK 11,1
Magnús Óiafsson ÍBA 11,4
Hörður Ingólfsson UMSK 11.4
Ólafur Larsen IBA 11.4
Hástökk:
Viðar Daníelsson UMSE 1.60
Hörður Jóhannsson UMSE 1.60
Sveinn Kristdórsson IBA 1.60
1500 m hlaup:
Jón Gíslason UMSE 4.49.4
Vilhj. Bjarnason UMSE 4,51.8
Guðm. Hallgrímsson ÍBK 5,02,1
Þrístökk:
Sig. Sigmundsson UMSE 12.66
Hörður Ingólfsson UMSK 11,88
Skjöldur Jónsson IBA 11.71
4x100 m
Sveit UMSE 50.6
Sveit ÍBK 51.7
Sveit IJMSK 53,5
Sveit ÍBA ógilt hlaup
Breiðablik
heimsœkir
Tindastól
Um síðustu helgi heimsóttu
handknattleiksstúlkur úr
Breiðabliki í Kópavogi og
knattspyrnumenn úr sama fé-
lagi Tindastól á Sauðárkróki.
Fór keppni fram á milii fé-
laganna bæði laugardag. og
sunnudag. Á laugardag fóru
ieikar þannig að í kvenna-
flokknum unnu stúlkurnar frá
Breiðabliki með 11:7. og síðari
daginn unnu þær líka og þá
með 11:3.
Knattspyrnumennirnir frá
Breiðabliki unnu einnig leik-
inn á laugardag unnu þeir með
1:0 en á sunnudag unnu þeir
með 4:2.
í liði Tindastóls voru yfir-
leitt ungir menn og margir
þerra eru efnilegir og hafa
þegar náð töluverðri leikni,
miðað við aldur. í fyrra nutu
þeir tilsagnar Ellert Sölvason-
ar. í ár er Einar Valur leið-
beinandi og þjálfari knatt-
spyrnumanna á Sauðárkróki.
Rómuðu þeir Kópavogsmenn
móttökur allar á Sauðárkróki,
og var förin öll hin skemmti-
legasta.
Heildar stigatala varð þann-
ig:
1. Ungmennasamband Eyja-
fjarðar 117.’ :i stig
Keflavíkur 111,1 —
2. Iþróttabandalag
3. Ungmennasamband
Kjalarnesþings 74' % —
4. Iþróttabandalag
Akureyrar 66,2';'. —
Næsta keppni fer fram á Ak-
ureyri í umsjá Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar.
Slæm aðstaða í Keflavík
DanWaern
frá keppni
^ Bæði alþjóðlega frjálsíþróttasambandið og skattadeild lögregl-
unnar hafa lagt fram ákæru á hinn heimsfræga sænska hlaup-
ara Dan Waern fyrir atvinnumennsku í íþróttum. Um leið
og alþjóðlega frjálsíþróttasambandið ákvað að banna Waern
þátttöku í alþjóðlegum mótum, lögðu skattayfirvöldin hald á
leyniskjöl sænska íþróttasambandsins um athafnir Waerns.
£ Þessir síðustu atburðir í máli Waerns hafa komið miklu róti
Það er í raun og veru að-
dáunarvert hvað eldur áhug-
ans log'ar glatt hjá íþrótta
mönnum í Keflavík, ef mið- ,
að er við þær aðstæður sem
þeir eiga við að búa. Má
segja að þeir séu mjög á hrak-
hólum með keppnisvelli og^
einnig æfingasvæði, þó að
hægara sé að verða sér úti
um blett til að æfa á en það
er ekki samkvæmt eðlilegri
kröfu tímans. Ekkert mun fast
ákveðið um slikan völl og því
síður hvenær byrjað verður
að byggja hann. Frjálsíþrótta-
menn hafa því orðið að flýja
í annan hrepp til þess ,að
halda mót sem þetta og þar er
heldur ekki um góða aðstöðu
að ræða.
Vissulega stendur þetta
frjálsum íþróttum mikið fyrir
þrifum, og ef ekki verður að
hafst á næstunni verða þeir
ekki margir sem bætast við í
fxjá'if)ai' íþróttir í Keflavík.
Þar er þó mikill efniviður og
áhugi. ef aðstaðan drægi það
ekki niður. Það er því von
frjálsiþróttamanna þar syðra
að næsta fjögra héraðamót
sem fara á fram í Keflavík
eftir 4 ár verði háð á for-
svaranlegum velli í Keflavík
sjálfri. Annað er tæpast sæm-
andi svo. ágætum bæ, með svo
marga ágæta efnilega íþrótta-
menn.
á hugi manna í Svíþjóð. Dagens Nyheter segir þetta mikið á-
fall fyrir sænska íþróttasambandið, sem áður hafði fjallað urn
þetta mál en aðhafðist ekkert frekar.
Dan Waern dvelst nú á hinu þekkta íþróttaheimili Valödalen
og býr sig undir landskeppnina við Finnland nú um næstu
helgi.
Akureyri í I
Um helgina komu hingað
suður handknattleiksmenn frá
Akureyri í boði Ármanns.
Handknattleiksfólldð að norð-
an er 2. fl. kvenna og 2. og 3.
fl. : karla.
Á laugardag kepptu norðan-
menn við gestgjafana. í
kvennaflokkinum sigraði Ár-
mann með 5 mörkum gegn 4,
í þriðja flokki skildu liðin
jöfn skoruðu samanlagt 16
mörk, í öðrum fl. kigraði Ár-
mann með yfirburðum með
16 mörkum gegn 9, KA-pilt-
arnir fengu fjögur vítaköst á
Ármann en skoruðu úr engu!
Á sunnudag var haldið smá
mót í tilefni af komu Akur-
eyringanna, í öðrum fl. og
öðrum fl. kvenna.
ÚRSLIT:
2. fl. kvenna
Ármann—FH margframlengö*
ur leikur 2:3
KA—Týr 2:1
KA—Fram 2:1
KA—FH úrslitaleikur 2:3
2. fl. karla
Víkingur—KA 4:4
Ármann—FH 6:4
Ármann—KA 3:2 \
FH—Víkingur 3:3
Ármann—V.íkingur 7:0
FH—KA 9:7 '
Úrslit:
Ármann 6 stig, FH 3, Vik-
ingur 2 og KA 1.
Framhald á 10. síðu.
Körfuknattleikssambandið
fœr bandarískan þgálfara
Körfuknattlcikssambandi fs-
Iands hefur nú tekizt að fá
hingað til lands snjallan
bandarískan þjálfara, Clar-
cncc Hodges Wyatt að nafni.
Háhn er nú á leið til Pakist-
an til kennslu þar en mun
dveljast hér um mánaðartíma.
Wyatt er fæddur í Kentucky
1909 og starfar nú við Berca
College í samau-íki sem körfu-
knattleiksþjálfari og yfirmað-
ur íþróttakennslu. Hann hef-
ur M.A. grúðu í íþróttafræð-
um og auk þess B.A. gráðu
í ensku og sögu, KSl hefur
því fengið hingað vel mennt-
aðan og færan kennara.
Þar sem íþróttakennara-
skóli Islands hefur nú und-
irbúið námskeið fyrir íþrótta-
kennara varð að ráði að
Wyatt tæki að sér kennslu í
körfuknattleik á námskeiðinu
og er það starf nú hafið.
í þessum mánuði verður
efnt til tveggja námskeiða á
vegum KKl. I fyrsta lagi
dómaranámskeiðs og í 2. lagi
þjálfaranámskeiðs. Dómara-
námskeiðið verður sem hér
segir:
Laugardaginn 9. sept kl. 2
til 4 og 5 til 7.
Sunnudag 10. sept. kl. 10
til 12 og 2 til 4.
Laugardag 16. sept. kl. 2
til 4 og 5 til 7.
Sunnudag 17. sept. kl. 10
til 12 og 2 til 4.
Framangreinda daga verður
farið yfir regiurnar með hin-
um nýju breytingum. sem
samþykktar voru í Róm 1960
og gengu í gildi nú í sumar.
Er hér um að ræða allmiklar
breytingar, sem allir körfu-
knattleiksmenn verða að
kynna sér. Dómæfingar verða
svo væntanlega einhverjar í
sambandi við þjálfaranám-
skeiðið. Þessa \ daga verður
námskeiðið haldið að Grund-
arstíg 2 í húsi Í.S.l. Eru
körfuknattleiksmenn hvattir
til að sækja þctta námskeið.
Námskeiðið fyrir áhuga-
þjálfara og aðra, er vilja,
hefst svo mánudaginn 11.
sept. og stendur til föstudags
22. sept. Tímar verða daglega
frá kl. 5—7 og 8,30—10 á
kvöldin.
Kennarinn Wyatt mun í
fyrri tímurh fara yfir ýmis
tæknileg atriði sem þjálfarar
verða að kunna, en í kvöld-
tímunum mun hann svo reyna
að sýna þessi o.fl. atriði með
hjálp körfuknattleiksmanna.
Námskeiðið verður haldið í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
en tvisvar í viku verða kvöld-
tímar í íþróttahúsi KR. Það
þarf vart að taka fram, að
körfuknattleiksmenn verða að
nota þetta einstæða tækifæri
til þjálfunar og lærdóms.
ritstjóri: Frímann Helgason
Miðvikudagur 6. september 1961 — ÞJÓÐVILJINN —