Þjóðviljinn - 27.09.1961, Síða 12

Þjóðviljinn - 27.09.1961, Síða 12
SORGARATHOFN Vlfl KOMU HEKLU ÍGÆR íM$e<<Ký$ í Sncmma í gærmorgun kom m.s. Hckla úr Noregsförinni og iagðist skipið að bryggju laust eftir kl. 8.30. Eins og frá hefur verið skýrt i fréttum fór skipið til Noregs með 160 manna hóp farþega, er ætluðu að vera viðstaddir afhjúpun Ingólfsstyttunnar, er Is- lendingar gáfu Norðmönnum, og komu flest- ir þeirra aftur með skipinu. Þessi fcrð hlaut þann sorglega endi, að skipstjórinn á Heklu, Ásgeir Siðurðsson, varð bráðkvaddur í Nor- cgi, skömmu áður en haldið var heimleiðis og flutti skipið lík skipstjórans heim. Er skipið lagði að bryggju blakti fáni þess i hálfa stöng. Og á hafnarbakkanum stóðu sjómenn heiðursvörð undir félagsfánum. Er farþegum hafði verið hleypt frá borði stað- næmdust þeir allir á bryggjunni og biðu meðan kista skipstjórans var færð í land. Lék Lúðrasveit Reykjavíkur sorgarlög meðan á þeirri athöfn stóð. Á útlcið hreppti Hekla versta veður og voru margir farþeganna mjög sjóveikir. Einn- ig fengu allmargir í hópnum magakvilla í ferðinni. Móttökurnar í Noregi voru hins vegar mjög hjartanlegar og sjálf afhjúpun- arhátíðin og ferðalagið um Noreg mjög á- nægjuleg, þar til andlát skipstjórans varp- aði skugga á það í lokin, sögðu Noregsfar- arnir. Meðal farþega hingað á Heklu frá Færeyj- um voru skipsbrotsmennirnir tveir, er af komust, er Helgi frá Hornafirði fórst við Færeyjar 15. þ. m. Myndin hér að ofan er tekin, þegar lík- kista Ásgeirs Sigurðssonar skipstjóra er bor- in frá skipshlið í líkvagninn. Ljósm. Þjóðv. A. K.) ■ •HNMIIMMIIfltMIIIKilimillUilllllllllllHIIIIIIIMMItMIMlailllUMMmaillllll immmmMMmHiMMmmmMmiimimm Vaxandi grunsemdir að flugvél Dags Hammarskjölds hafi verið skotin niður Byssukúlurnar sem fundust í einu líkanna ur flugvélinni hljóta að hafa komið úr skotvopnum, fullyrða sænskir sérfræðingar STOKKHÓLMI 26/9 — Sænsk blöS láta í ljós grunsemd- ir um að ekki sé allt með felldu varðandi rannsókn stjórnarvalda í Rhcdesíu á slysinu sem varð Dag Hamm- arskjöld og fimmtán öðrum aö bana. Blöðin segja að sænskir sérfræöingar sem fylgjast með rannsókninni telji hana ófullnægjandi. í einu likanna úr flugvélinni hafa fundizt byssukúlur. Að sögn flugmálastjóra Rhodesíu sem stjórnar rannsókninni hafa þær kúlur ekki komið úr neinu skotvopni, heidur séu þær þann- ig til komnar, ' að skotfæri sem vóru með flugvélinni • hafi sprungið þegar í henni kviknaði og kúlurnar'þannig lent í líkama mannsins. Sænskir sérfræðingar vísa þessari skýringu Rhodesíumanns- ins algerlega á bug. Þeir segja að það sé fráleitt að kúlur sem þannig springr’ geti komizt inn í mannslíkama, skotmáttur þeirra sé ekki meiri en svo að þær myndu ekki jeinu ^inni fara í gegnum föt. Skotvopna- fræðingurinn C. F. Westerell, sem fengizt hefur við fræði sín í 30 ár, segist géta fuR.vrt að það sé hreinasta firra að halda því fram að skot sem i kviknar geti sprungið með svo miklum krafti að þau fari inn í manns- líkama. Annar sænskur skot- vopnafræðingur, Arne Svensson, tekur undir ’ þessi orð og segir að hafi kúlur fundizt í einu lík- anna, sé hægt að fullyrða að þær séu þangað komnar úr skot- vopni. Framkonia Rliodesíumanna vekur grunsemdir Sænski flugmaðurinn Göran Andrée sem flaug til Ndola þar sem slysið varð daginn eftir það segir að hann og förunautar hans, sænski ræðismaðurinn í Kongó o.g fulltrúi gæzfuliðsins, Khiari. hafi orðið að bíða í tvo daga áður en þeir fengu að skoða sig um á slysstaðnum. Framhald á 5. síðu. Miðvikudagur 27. september 1961 — 26. árgangur — 220. tölublað Sex manna nefndin situr enn Sex manna nefnd framleiðenda og neytenda, sem fjallar um bú- vöruverðið, hefur setið á fundi af og til síðan á laugardaginn var. í gær stóðu fundir mest- an hluta dags. Yfirdómur hefur, svo sem áður hefur verið skýrt frá í fréttum, úrskurðað 14,5% meðalhækkun á afurðaverði til bænda, en sex manna nefndin á eftir að fjalla um kostnað við vinnslu og dreif- á fundum ingu, heildsölu og smásölu á grundvelli yfirdómsins. Þjóðviljinn leitaði í gær frétta af fundahöldunum o.g gangi mála. en fékk engar upplýsingar að svo stöddu, þar sem sam- komulag virtist ekki á næsta leiti. Fram að þessu hefur búvöru- verð ailtaf verið ákveðið fyrir 20. september ár hvert. en nú er þegar liðin vika frá þeim tíma. Guðrún Hallgi ímsdóttir var kjörin formaður Æskulýðsfylk- ingarinnar í Reykjavík, en aðal- j fundur hennar var haldinn í fyrrakvöld. Formaður sumarstjórnar Ólafu.r Einarsson stýrði fundin- um, en á dagskrá voru venju- leg aðalfundarstörf, svo sem reikningar félagsins, ' skýrsla sumarstjórnar, inntaka nýrra fé- laga, lagabreyting’ar og kosning vetrarstjórnar. Tillögur uppstillinganefndar til stjórnar voru samþykktar ó- breyttar. Guðrún Hallgrímsdóttir, 1 stúdent, var kosin formaður, [ Hrafn Magnússon, varaformaður, j Jóhann Þórarinsson ritari, Björn Ólafsson gjaldkeri, Einar örn Guðjónsson sþjáldskrárritari og meðstjórnendur: Auðunn Einars- son, Bjarni Guömundsson, Gísli Svanbergsson og Ingibjörg Har- aldsdóttir. Þetta er í annað sinn í sögu ÆFR sem stúlka er kosinn for- maður félagsins. Fyrir nokkrum áru.m var Adda Bára Sigfúss- dóttir, veðurfræðingur um skeið formaður. V-Berl ín er ekki ógnað, en égnar sjálf friðnum NEW York 26/9 — Gromiko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, flutti ræðu á þingi SÞ í dag og hóf mál sitt á að ræða um Vest- ur-Berlín. Hann ítrekaði að Sov- étríkin hefðu aldrei ógnað borg- inni né ibúum hennar, hins veg- ar væri núverandi staða henn- ar ógnun við friðinn í heiminum. Vesturveldin segjast vilja tryggja frelsi og velferð Vestur- Berlínarbúa. En við höfum sagt margsinnis að við föllumst alger- lega á það. Það hefur aldrei verið á það minnzt að breyta ætti þjóðskipulagi því sem íbúar borgarinnar búa við og vilja við- halda. Sovétstjórnin viðurkennir einnig fullkomlega rétt borgar- innar til ótruflaðra samgangna við umheiminn. í tillögum okkar er ekki minnzt einu orði á að loka samgönguæðum til borgar- innar. Gromiko sagði að til mála kæmi að SÞ ættu hlut að því að tryggja frelsi og sjálfstæði Vestur-Berlínar og sovétstjórnin gæti falliz.t á að herlið frá hlut- lausum ríkjum yrði í borginni ti! að verja stöðu hennar sem fríríkis. Hann sagði að sovétstjórnin myndi þvi aðeins undirrita frið- arsamninga við Austur-Þýzka- land eitt að í ljós kæmi að ekki gætu tekizt samningar við vest- urveldin. Friðarsamningar við Þýzkaland skiptu höfuðmáli fyr- ir friðinn í heiminum. Gromiko ræddi ýms önnur al- þjóðamál, m.a. tilraunir með kjarnavopn. ITann sagði að Frakkar hefðu brotið þegjandi samkomulag stórveldanna um stöðvun tilraunanna í þeim til- gangi að efla hernaðarmátt Atl- anzbandalagsins. Bandaríkin og Bretland hefðu heldur aldrei viljað fallast á algera stöðvun Framhald á 11. síðu. Líkið var d sjé- mcnni frá Þórshöfn Eins og frá var sagt hér í blaðinu í gær fannst lík af karl- manni í fyrramorgun við Grandagarð og tókst ekki fyrr en í gær að upplýsa af hverjum líkið væri; kom þá í ljós að það var af sjómanni frá Þórs- höfn, Olgeiri Sigtryggssyni að nafni. Olgeir hafði síðasta hálfan mánuð verið skipverji á Geir goða og mun hafa haldið til þar um bo.rð. SI. sunnudagskvöld fór hann á dansleik í Ingólfscafé ásamt bróður sínum. Fóru þeir þaðan um kl. 1.30 um nóttina og var Olgeir þá undir áhrifum áfengis. Þeir bræður skildu eftir dansleikinn og er ekkert vitað um ferðir Olgeirs þá um nóttina eftir það. Óskar rannsóknarlög- reglan þess. að þeir sem kynnu að geta gefið einhverjár upplýs- ingar gefi sig fram. Réttarkrufningin leiddi í Ijós, að dánarorsökin var drukknun. Olgeir var tæplega fertugur - að aldri.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.