Þjóðviljinn - 31.10.1961, Qupperneq 1
I
I llilil
■rJINN
Afmœlisblað
64 síður, auk kápusíðna, kem-
ur út í dag. Verður það borið
tii kaupenda í dag og á morg-
un.
Þriðjudagur 31. október 1961 — 26. árgangur — 249. tölublað
SPRENGD
30/10 — Allar líkur benda til þess að Sovétmenn hafi
snemma í morgun sprengt risastóra og öfluga kjarna-
sprengju- við Novaja Semlja í Norður-íshafinu. Engin
cpinber tilkynning hefur verið gefin út um sprenging-
uná, en samkvæmt mælingum í Svíþjóð virðist sprengj-
an hafa verið rúmlega 50 megalestir. Vindur er að
vestan á norðlægum slóðum og er engrar geislunar að
vænta í Evrópu vegna þessara sprengingar á næstunni,
en hún hefur valdið mikilli reiði víða um heim.
Sérfrœðingar í Svíþjóð og vjð-
ar telja víst að hér hafi verið
um að ræða 50 megalesta
sprengjuna, sem Krústjoff for-
sætisráðherra gat um í ræðu ný-
lega að sprengd yrði í lok þessa
mánáðar. 'Þó téljá sumir sér-
fræðingarnir að sprengjan í
morgun hafi verið enn öflugri,
eða a.m.k. 2500 sinnum öflugri
en sprengjan, sem Bandaríkja-
menn vörpuðu á Hiroshima árið
1945. Þess ber að gæta, að
sprengjan, sem nú var sprengd,
sprakk í gííurlegri hæð í gufu-
hvolfinu, þannig að geislunará-
hrifin eru hlutfallslega minni en
af Hirosimasprengjunni.
Sænskir og bandarískir sér-
fræðingar telja að sprengjan
hafi vegið um 15 lestir, og hafi
verið þrír metrar í þvermál og
rúmlega 5 metrar á hæð. Áhrifa
sprengjunnar gætti á jarðskjálfta
mælum í Svíþjóð, Japan, Frakk-
Framhald á 3. síðu.
ðð S0fp u
Á fundi í Félagi járniðnaðarmanna sl. laugardag var gerð eft-
irfarandi samþykkt:
„Fundur i Félagi járniðnaðarmanna haldinn laugard. 28. okt.
1961, samþykkir að segja upp kaupgjaldsákvæðum í samningum
félagsins við atvinnurekendur, í þeim tilgangi að leita eftir leið-
réttingu, með það íyrir augum að kaupmáttur launanna verði
ekki lægri en hann var, þcgar samningarnir voru gerðir á sl.
sumri.“
MOSKVU 30/10 — Flokksþing
Kommúnistaflokks Sovétríkjanna
í Moskvu samþykkti í morgun
að fjar!ægja jarðneskar leifar
Stalins úr grafhýsi Leníns og
Stalíns á Rauða torginu í
Moskvu.
Það var formaður Kommún-
istaflokksins í Xíkraínu, sem bar
fram t.'llöguna um að fjarlægja
ltk Stalíns frá hlið Leníns. Sagði
hann iað það væri ótilhlýðilegt
að lík Stalíns væri gevmt á þess-
um stað eftir að búið væri að
afhiúpa ólöglegar aðgerðir hans
á tímum persónudýrkunarinnar.
Mannfjöldi á torg'nu
í fréttum AFP-fréttastofunnar
frá Moskvu segir að allmikill
mannfjöldi hafi safnazt saman á
Rauða torginu í dag, eftir að
Moskvuútvarpið flutti þá frétt
að fiarlægia ætti lík Stalíns.
Ræddi fólk um fyr'rætlanirnar
og munu ýmsir hafa haldið að
lík Stalíns yrði þegar flutt brott.
í tillögunni, sem samþykkt
var, segir; — Grafhýsið á Rauða
torginu var reist til þess að
varðveita minn.'nguna um Lenín,
stofnanda Kommúnistaflokksins
og leiðtoga Sovétríkjanna. Hér
eftir skal grafhýsið bera nafn
hans. Þingið álítur óheppilegt að
hafa lík Stalíns lengur í graf-
hýsinu vegna misferlis hans á
dögum persónudýrkunarinnar.
Ekkert hefur verið tilkynnt
hvað gert verði við lík Stalíns.
Lokaður fundur
22. þing Kommúnistaflokksins
kom saman til lokaðs fundar í
dag til þess að kjósa nýja mið-
stjóm. Samkvæmt hinum nýju
flokkslögum á að skipta um a.
m.k. fjórðung allra manna í á-
byrgðarstöðum hjá flokknum í
hvert sinn sem kos.'ð er.
Réttarfarsbrot Stalíns
f langri ræðu sem Krústjoff
flutti á flokksþinginu á föstu-
daginn vék hann að þeim átök-
um sem áttu sér stað innan
flokksins fyrst eftir 20. flokks-
þingið og nefndi auk þess ýms
dæmi um réttarfarsbrot og yfir-
troðslur á valdaskeiði Stalíns.
Framhald á 3. síðu.
Margir hafa heimsótt graf-
hýsið á Rauða torginu. —
Myndin sýnir fólk sem stend-
ur í biðröð til að líta lík
Lenins. Myndin er tekin áður
en Iík Stalíns var flutt í graf-
hýsið.
Bandaríkjamenn
hef ja tilraunir í
í andmmslofti
WASHINGTON 30/10 — For-
maður kjamorkumálanefndar
Bandaríkjaþings, Henry Jackson,
skýrði frá því í dag, ,að Banda
ríkjamenn myndu nú he.fja til-
raunir með kjarnavopn í and-
rúmsloftinu, en undanfarið hafa
Bandaríkjamenn sprengt fjórar
atómsprengjur neðanjarðar.
Jackson sagði að næstu
sprengjur Bandarikjamanna
myndu hafa lítið sprengiafl og
orsaka takmarkaða geislun.
Jackson hélt því fram að
Bandaríkin hefðu enn forskot
fram yf.r Sovétrikin varðandi
kjarnavopn.
® ©
DREGIfl IKV0LD
® Ert þú lesandi ^góður búinn að tryggja þér
næga gula miða í Afmælishappdrætti Þjóðviljans?
Það verður dregið um þá í kvöld, svo að síðustu
forvöð eru að fá sér miða í dag.
@ Og hvernig er það með kunningja þína og
vinnufélaga, hafa þeir allir fengið sér miða? Það
er aðeins í dag, sem þeim gefst kostur á að tryggja
sér möguleika á að vinna Volkswagen-bifreið í
fyrsta drættinum.
® Seljið alia gulu miðana ykkar í dag, og
komið í skrifstofuna, Þórsgötu 1, og gerið skil
fyrir selda og keypta miða. Skrifstoían er opin
til klukkan 12 í kvöld, en þá verður dregið.
® Eftir daginn í dag verða gulu miðarnir ó-
gildir, og þu^fa þá allir sölumenn að skila and-
virði þeirra í peningum eftir það. Hinir miðarnir
í blokkunum (bláu, bleiku og grænu) gilda svo
áfram í síðari skiptin, sem dregið verður. Ef ein-
hverjir hafa með höndum gula miða, sem þeir
ekki treysta sér til að selja eða kaupa, þá verða
þeir að skila þeim í skrifstofuna fyrir miðnætti
í kvöld.
® Umboðsmenn úti á landi verða að póst-
leggja óselda gula miða strax á morgun, og þá
einnig að póstleggja peninga, sem komnir eru inn
fyrir söluna.
® Það er í dag sem Þjóðviljinn er 25 ára.
Þeim, sem vilja færa honum sérstakt viðbótarfram-
lag á sjálfan afmælisdaginn skal bent á að við
því cr tekið hjá þessum aðilum:
® Ctsölumönnum happdrættisins um land allt
Afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustíg 19,
sími 17500
Skrifstofu happdrættisins, Þórsgötu 1, sími
22396
Sósíalistafélagi Reykjavíkur, Tjarnargötu 20,
sími 17510
Æskulýðsfylkingunni t Reykjavík, Tjarnar-
götu 20, sírni 17513.
OPIÐ TIL MIÐNÆTTIS