Þjóðviljinn - 19.11.1961, Side 3
Sl. haust hófst á Siglufirði
bygging niðuriagningarverk-
smiðju á vegum síldarverksmiðju
ríkisins.
Húsið, sem verið er að reisa
þar, er að flatarmáli helmingur
þeirrar byggingar sem fyrirhug-
að er að byggja. Gert er ráð
fyrir að húsið verði tvær hæðir,
en hugsanlegt væri að koma fyr-
ir tækjum og búnaði og hefja
vinnslu strax og neðri hæðin
væri komin upp.
Eins og sakir standa eru mest-
ar líkur til þess að veðrátta
stöðvi bygginguna að mestu, svo
að ekki sé að vænta neinnar
vinnslu í verksmiðjunni i vetur.
Telur Páll Jónsson húsasmíða-
meistari, sem stendur fyrir bygg-
ingarframkvæmdum, litlar horf-
ur á að húsið'komist upp fyrir
áramót, hvað þá að unnt verði
að hefja þdr vinnslu upp úr
áramótum, eins og sögur hafa
gengið um manna á meðal á
Siglufirði að undanförnu, nema
því aðeins að brevti algerlega
um tiðarfar og sumartíð gerði
svo sem mánaðartíma.
iFramangreind frétt er eftir
Mjölni, blaði sósíalista á Siglu-
firði. /
Fjölpð fnlltrú-
um í leikvallan.
Á fundi bæjarráðs Reykjavíkur
í fyrradag var samþykkt að
fjölga um tvo fulltrúa í leikvalla-
nefnd, úr 3 í 5. í nefndinni eiga
nú sæti þau Jónas B. Jónsson,
Sigvaldi Hjálmarsson, Margrét
Sigurðardóttir, Gróa Pétursdóttir
og Petrína Jakobsson.
6 barna- og unglingabœkur
frá bókaútgáfunni Setberg
Sex nýjar barna- og unglinga-
bækur eru komnar út hjá bóka-
útgáfunni Setberg.
Bækurnar eru þessar.
Þrír kátir kettlingar; bók í
stóru broti og með litmyndum á
hverri opnu, ætluð yngstu les-
endunum.
Mamma segftu mér sögu, sög-
ur sem Vilbergur Júlíusson hef-
ur valið, ætlaða-r 6—10 ára börn-
um. r-- .- :
- Helga .og yinkonur hennar,
skáldsaga eftir sama höfund og
skrifaði hina vinsælu bók Fr-íðu
fjörkálf; ætluð stúlkum á aldr-
inum 10—13 ára.
Gunnar gcimfari, drengjasaga
um ævintýralega ferð til Marz,
ætluð strákum 12—15 ára.
Ifeiða og börnin liennar, fram-
hald bókarinnar Heiða í heima-
vistarskólanum. .
Anna Fía gilftist, þriðja og síð-
asta bókin um önnu Fíu og vin-
konur hennar. Þýðandi Frey-
steinn Gunnarsson skólastjóri.
Arnheiður Jóns-
dottir kjörin
forssti N.L.F.I.
Náttúruiækningafélag fslands
háði8. landsþing sitt í Reykjavík
dagana 20.—21. okt. 1961. í upp-
hafi þingsins flutti frú Arnheið-
ur Jónsdóttir, varaforseti banda-
lagsins, minningarorð um Jónas
Kristjánsson, lækni, og minnt-
ist annarra látinna félaga. Þing-
forseti var kosinn Klemenz Þor-
leifsson, kennari.
Að undanfömu hafa aðalstörf
samtakanna ve,rtið* u'ppbygging |
og rekstur heilsuhælisins í
Hveragerði. Á síðustu 2 árum
hefur verið byggt þar starfs-
mannahús og- gróðurhús og uhn-
ið að fegrun lóðar. Hælið sækja
nú árlega um þúsund manns.
Læknar hælisins eru Karl Jóns,-
son, gigtlækningar, og Högni
Björnsson, sem - tók , við af Úlft ! j
Ragnarssyni, er hann lét af
störfum. Félagið gefur út tíma-
ritíð Heilsuvernd, og er ritstjóri
þess Björn .L. Jónsson, læknir.
Þingið samþykkti ýmsar til-
lögur, svo sem ályktun þess efn- :
Framháld, .á_ 7. ..síðu. .1
i:
Ekki
viðreisnarborg
Danskur skipulagssérfræð-
ingur hefur gert tillögur um
haildarskipulag Reykjavíkur
fyrir bæjarstjórn. Er þar i
senn fjallað um það hvernig
gamlir bæjarhlutar skuli
skipulagðir að nýju og lögð
á ráðin um hitt hvernig bær-
inn eiei að þróast á næstunni.
Af þessu tilefni birtir Morg-
unblaðið forustugrein í gæV
og kemst þar m.a. svo aðorði:
„Aðalatriðið hlýtur að vera
að ganga endanlega frá skipur
laginuy-jafnvel þótt allir geti
ekki ©rðið á eitt sáttir, því að
sérhvert vel uraið heildar-
skipulag hlýtur að vera betra
en skipulagsleysi eða ták-
miirkun skipulagsins við til-
tölulega litit svæði. Mjög ber
því að fagna þessu stóra á-
taki bæjaryfirvalda Reykja-
víkur“. ' " ' “
•Hætt er við ■ að ýmsir les-
endur Morgunblaðsins hati
rekið: upp stór. augu ; er þeir
sáu þessi ummæli. Það hefur
um langt skeið verið eftirlæt-
iskenning blaðsins að allt
skipuiag í þjóðlífinu væri
komið frá hinum illa og þeim
mun verra sem það væri víð-
tækara; þar með væri verið
að hefta frelsi einstaklings-
ins, kúga hann og lama fram-
tak hans. Ef Morgunblaðs-
menn væru sjálfum sér sam-
kvæmir ættu þeir að úthrópa
heildarskipulag Rej'kjavikur
sem argvítugan kommúnisma
og.,krefjast þess að bæjarfull-
trúarnir létu tafarlaust af
villu síns vegar. Hugsjón
þeirra ætti að vera sú að
hver einstaklingur hefði leyfi
til þess að byggia hvar sem
honum sýnist, hvernig sem
honum sýnist. án þess að
skeyta um þarfir heildarinn-
ar. ...
En viðbrögð Morgunblaðs-
ins sýna að jafnvel hinir of-
stækisfuHu ritstjórar þess
blaðs eru ekki eins trúir
kenningum sínum ' og , þeir
vilja vera látá. -Þeir geta ekki
hugsað sér að búa í-' viðreisn-
arborg. — Austri. . ,
Á föstudaginn bauð Trésmiðj-
an Víðir fré-tamiinnum að skoða
ný.ia gcrð húsgagna, sem hún \
er nú að koma með á markað-
inn. Hér er um að ræða stóla
og sófa með plastgrindum i stað
trégrinda, en þessi nýjung er mi
að ryðja sér til rúms víða er-
lendis.
Trésmiðjan Víðir hefur fengið
einkaleyfi á framleiðslu þessara
húsgagna frá norska fyrirtæk-
inu Plastmöbler i Kristiansand.
en húsgöan af þessari gerð eru
nú framleidd í 25 löndum sam-
kvæmt einkaleyfi frá þessu fyr-
irtæki. m.a. á Norðurlöndunum
öllum.
í fyrra fór maður. Þorsteinn
Björnsson. frá Trésmiðjunni Víði
til Kristiansand til þess að
kynna sér þessa framleiðslu og
þessa dagana eru einnig tveir
menn staddir hér frá Plastmöbl-
er. til þess að kenna framleiðslu-
aðferðirnar og sýna meðferð
tækja, sem við þær eru notuð.
Hráefni það. sem notað er. er
sams konar og plastið, sem haft
er í einangrun. en hlýtur aðra
meðferð. Það er fvrst soðið og
síðan sett í mót, þar sem það t r
aftur gufusoðið. en við það þenst
plastið út og fyllir út í mótin.
Er efni þetta géysisterkþ t.d.
þolir svona plastgrind. að henni
sé fleygt ofan af fimm hæða
húsi, það sér ekki á henni. Þá
er þessi framleiðsluaðferð marg-
falt fljótleeri en trégrindasmíði
og verða húsgögnin þar af leið-
andi ódýrari. Saeði forstjóri Víð-
is, Guðmundur Guðmundsson. að
svona plastsófasett myndi kosta
11—12 þúsund, en sams konar
sett framleidd með gamla lag-
inu kosta nú 14—15 þúsund
krónur.
Víðir hefur inú mót til þess að
framleiða 3 gerðir plaststóla og
eina sófagerð en von er á tveim
nýjum gerðum móta á næstunni.
gaflar hans eru úr plasti en trégrind í baki og botni. Grind stól-
anna er hins vegar algerlega úr plasti og fær Víðir mót af þeám
á næstunni.
Þessi mynd er af norsku plastsófasettii. Trésmiðjan Víðir hefur nú
l.afið framleiðslu á sófum, eins og þeim, er sést á myndinni, en
SERSTÆÐ
HANDAVINNUSÝNING
í gær var fréttamönnum
boðið að skoða handavinnu-
sýningu, sem Guðrún Einars-
dóttir, húsfreyja að Sellátr-
um í Tálknafirði. hefur opn-
að í Bankastræti 7 uppi-
Verður sýning þessi opin
þessa viku kl. 10—10 daglega.
Á sýningunni er mikið af
handmáluðum og saumuðum
dúkum og ofnum teppum með
íslenzkum jurta- og sauðalit-
um, svo að eitthvað sé nefnt,
ennfremur vegghillur, kassar,
vegglampar og myndaramm-
ar, sem Guðrún hefur lagt
skeljum og smákuðungum, en
maður hennar. Davíð Davíðs-
son hefur smíðað tréverkið.
Allir eru gripir þessir unnir
á síðustu 8—9 árum í hjá-
verkum frá öðrum störfum,
en Guðrún er 8 barna móðir
og einnig amma 8 barna.
Flestallir gripirnir á sýning-
unni eru. til sölu. Auk mun-
anna, sem Guðrún hefu
gert. eru á sýningunni fáein-
ir dúkar og sjöl,' er
hennar, Ingibjörg' Kristjáns-
dóttir, hefur unnið á sínum
efri árum.
Myndin hér fyrir ofan er
tekin á sýningunni í gær og
sjást á henni nokkrir hand-
málaðir dúkar, skeljalagðir
gripir og á borðinu liggja
ofnir dúkar. — (Ljósm. Þjóð-
viljans A. K.)
i
i
i
i
Þ rn - ■„ _
Sunnudagur 19. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (3