Þjóðviljinn - 19.11.1961, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 19.11.1961, Blaðsíða 9
- ............ !■■■ ■ .................................... .............................................. 1 nágrenni Prag, höfuðborgar Xékkóslóvakíu, er verið að reisa skíðastökkbraut sem hægt er að keppa í sumar jafnt sem vetur. Á myndinni sjást ungar stúlkur vinna vúð að Ieggja „falskan“ snjó i brautina fyrir fyrstu keppnina. Tvö hagsmunamál íþrótta- manna, fjármál og öryggis- mál, liggja fyrir á Alþingi Um þessar mundir liggja fyrir Aiþingi tvö stórmál, sem varða. mjög íþróttahreyfinguna í landinu. Annarsvegar er mál, sem varðar tollalækkanir á íþróttavörum, sem því miður hafa ekki náð nema stutt og iþá verið mismunað svo varð- andi íþróttagreinar, að merki- iegt er, og virðist vera til þess að sýnast en ekki til að taka á málinu í heild með hagsmuni íþróttamanna í huga. Hitt málið er slysatryggingar íþróttamanna, þar sem lagt er til að almannatryggingar taki einnig til slysatrygginga íþróttafólks, en það hefur lengi verið brennandi áhugamál og umræðuefni á fundum og þing- um íþróttahreyfingarinnar. Er hér um merkileg mál að ræða, sem varða hag íþrótta- hreyfingarinnar og einstaklinga hennar í heild, og munu marg- ir íþróttamenn fylgjast með því hverja meðferð þau fá. Verður örlítið vikið að þeim hér á eftir. Á að hátolla íþróttaáhöld? Fyrir um það bil tveim mán- uðum var vikið hér að því, hve íþróttatæki væru hátt toll- uð hér. Var á það bent, að það væri óeðlilegt að leggja svo háa tolla á varning þenn- an, þegar tekið er tillit til þess, að íþróttahreyfinguna má kalla hreyfingu, sem tekur á vissan hátt þátt í uppeldi þess fólks, sem sækir hana. Hún er því hliðstæð skólum. Hreyfing þessi er borin uppi af áhuga- mönnum, sem vinna kauplaust að þessum málu.m. Hins vegar sýnir það opinbera, þ.e. tolla- yfirvöldin, ekki meiri skilning á starfi þeirra en svo að flokka íþróttavörur í svo háa tollflokka, að þær komast nær allar nokkuð á annað hundr- að prósent. Að því var vikið að nú mundi tollskráin í endurskoð- un, og því eðlilegt að þetta mál yrði tekið upp, og ætlast til að íþróttaforustan eða ISÍ hefði forgöngu um þetta við tollayfirvöldin. Ekki er Iþróttasíðunni kunn- ugt um það, hvort stjórn fSÍ hefur látið þetta máh til sín taka og beitt áhrifum sínum í þá átt að fá lagfæringu á þessum tollamálum, sem svo mjög varða íþróttahryefinguna, bæði einstök félög, sambönd og einstaklinga. Hins vegar hefur komið fram í blöðum, að lækkanir eigi að koma fram á fótknött- um, en fátt annað er nefnt, sem varðar áhold, sem almenn- ingur á öllum aldri og þá helzt unglingar nota af íþróttaáhöld- um. Einhvern veginn finnst manni, að í þessu sé einhver sýndar- mennska, ef þetta á að vera endanlegt um tilslökun á verð- lagi íþróttaáhalda. Það er að sjálfsögðu góðra gjalda vert, að verð á fótknöttum lækki, en það eru svo margar aðrar íþróttavörur, sem nauðsynleg- ar eru og menn, sem aðrar íþróttir iðka, verða að kaupa. Verður .ekki hjá því komizt að álíta, að með þessu sé verið að mismuna íþrótta- greinum. Með þessu er líka verið að leggja ár þær riokkurs konar mat, ef svo mætti segja — gæðamat. Þetta ér mjog hæpið, að fella þennan dóm, og getur ekki ■ staðizt, ef menn vilja vera rétt- sýnir og sanngjarnir. Helztu íþróttaáhöld í framhaldi af bessu er rétt að geta heiztu flokka íþrótta- varnings og bá um leið að geta þeirra tolla og skatta, sem renna í ríkissjóð af þeim völd- um. Þessum vörum má að rniklu leyti . skipta í þessa fimm flo.kka: 1. íþróttaskór 93 % 2. íþróttaföt 128 — 3. Fótknettir 125 — 4. Kúlur, kringlur spjót o.þ.h. 108 — 5. Skiði og skautar 110 — Til þess að geta iðkað íþrótt- ir, þurfa þeir, jem það gera yfirleitt, að noía til þess þar til gerðan klæðnað, og víst er að allir verða að koma fram í klæðum til æfinga og leikja. Það er því athyglisvert að ein- mitt sá flokkur er í hæstum tolláflokki. Hér verður því enn skorað á íþróttaforustuna að láta þetta sanngirnismál til sín taka, og gera tilraun til að fá samræmi í þetta, koma í veg fyrir að íþróttagreinum sé mismunað, og sem lokatak- mark að fá lækkaða tolla af öllum íþróttavarningi, sem not- aður er í félögum innan sam- takanna. Sérsamböndin hljóta einnig að hafa áhuga fyrir málinu, og væri því ekki úr vegi, að þau beittu einnig á- hrifum sínum í .þá átt að lag- færa þetta. sem um langt skeið hefur valdið þeim sjélfum erf- iðleikum og þeim, sem að þeim standa. Því má heldur ekki gleyma að þetta hefur alla tíð verið ósanngjarnlega á lagt, og án þess að taka tillit til þess starfs, sem áhugamenn- irnir inna af höndum. Slysatryggingar íþróttamanna Slysatrygging íþróttamanna hafa um langt skeið verið um- ræðuefni innan íþróttahreyf- ingarinnar. Það hefur jafnlengi verið áhyggjuefni forustu- mönnum • hreyfingarinnar, hvernig hægt sé að koma fyrir slysatryggingum fyrir íþrótta- fólk. sem slasast við iþróttaæf- ingar eða í keppni. í sannleika sagt má segia. að það sé furðulegt, að slys sem eiga sér stað innan íþróttafé- laganna í landinu, skuli ekki koma undir almannatrj’gging- arnar. í iandslögum er bó svo að kveðið, að — ,,íþróttastarfsemi utan skólanna er falin frjálsu framtaki landsmanna og fer fram í félögum og sem ein- staklingsstarf með þeim stuðn- ingi, sem veittur er 'Samkvæmt lögum þessum“. Þarna setur löggjafinn lög um bað að fela frjálsu framtaki þessa þýðing- armikiu starfsemi. Löggjafinn hefur veitt með lögum fjárstyrk til starfsemi íþróttamanna á margan hátt og er á þann hátt mjög hvetj- andi þess. að ungt fólk iðki íþróttir og sjálfsagt í þeirri góðu trú, að bar sé góður og heppilegur staður til þess að ala upp góða og gegna borg- ara, og að þessi uppeldisheim- ili, sem löggjafinn styður. séu aðilar að þessum stofnunum, sem vinna að uppeldi þjóðar- innar. Það er því óneitanlega hjá- róma að það komi löggjafanum ekki við, ef slys verður í í- þróttafélagi, sem hann hefur stutt og felur umsjá æskufólks- ins, að svo miklu leyti, sem þau geta tekið á móti því. Það sem hér virðist eðlilegi! að leggja til grundvallar máli þessu, er það mat, sem lagt er á íþróttahreyfinguna, hvort hún er til þjóðnytja og til upp- byggingar æsku þessa lands, eða ekki. Með löggjöf og stuðn- ingi sínum á margan hátt. hef- ur Alþin^i tekið af öll tvímæli um það, að áhugamennirnir hafi unnið eott starf, og það er ekkert eðlilegra, en að slys, sem verða innan vébanda í- þróttahreyfingarinnar, fallí undir almannatryggingar, og að fjárveitingavaldið komi tii móts við íþróttafélögin um kostnað við tryggingar íþrótta- fólksins. Það er því vonandi, að allir sanngjarnir menn, sem unna íþróttum og eiga sæti á Al- þingi, veiti máli þessu lið sitt. Þetta mál getur ekki komið í flokk mála þeirra, sem flutt eru í pólitískum tilgangi. Þetta er hlutlaust mál sem allir hugs- andi forustumenn íþrótta fylgja og trej'sta að fái þá lausn sem eðlileg er, og þar með verði létt af þeim miklum áhyggjum af hugsanlegum Slys- um sem því miður eiga sér stað við æfingar og leiki, og eng- inn fær að gert. ritstjóri: Frímann Helgason Landsfundyr Li.O. Framhald af 1. síðu. ráðherra til þess að krefjast að fá vátryggingaiðgjöld fiskiskipa- flotans frá 1960 greidd að fullu og einnig að fá loforð um að vá- tryggingaiðgjöld fyrir árið 1961 verði einnig greidd að fullu. Nenfdin skýrði frá því að rík- isstjórnin hefði fallizt á að greiða iðgjöldin 1960 að fullu og jafnframt lofað því að byrja nú þegar að greiða upp í ið- gjöld ársins 1961 af fé því sem til fellur af þeim nýja útflutn- ingstolli af sjávarafurðum sem á- kveðið var í gengislækkunar- lögunum frá í sumar og þá var ákveðið að skyldi renna til nýs tryggingakerfis. Fundurinn gerði nýja sam- þykkt út af vátryggingaiðgjöld- unum og krafðist þess af ríkis- stjórninni að hún lofaði því skilyrðislaust að öll iðgjöld flot- ans fyrir 1961 yrðu greidd, þar sem ráðstafanir ríkisstjórnar- innar hefðu Ieitt til þess að hagur útgerðarinnar hcfði stór- versnað á yfirstandandi ári. Þá mótmælti fundnrinn því aö gengishagnaðurinn vegna geng- islækkunarmnar í sumar yröi tekinn í ríkissjóð og taldi að útgcrðarmenn ættu gengishagn- afiinn. Mikil óánægja útgerðarmanna með forystu LfC og viðreisnarstefnuna Hinar miklu umræður á lands- sambandsfundinum hafa glöggt leitt í ljós að almennt eru báta- útvegsmenn í landinu mjög óá- nægð,ir með efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar og telja að hún hafi marga hluli gert sjáv- arútveginum til tjóns. Stjórn LÍÚ átti sýnilega lítið traust íundarmanna vegna þeirrar fylgispektar sem hún hefur sýnt við ríkisstjórnina. Kvenfélag Hallgrímskirkju heldur bazar þriðjudagjnn 5. des. :i Góðtemplarahúsinu , (uþþí f.jflij.áf- ir frá félagskonum og öðrum vel- unnut-um HaHgrimskirkju eru yel þegnar. Gjöfum veita móttöku: Aðalheiður Þorkelsdóttir Lauga- veg 36. Petra Aradóttir Vífils- götu 21 og Guðrún Fr. Ryden Blönduhlíð 10. Félag frímerkjasafnara Herbergi félagsins að Amtmanns- stig 2 er opið félagsmönnum og almenningi miðvikudaga kl. 20—22. Ókeypis upplýsingar um frimerki og fr merkjasöfnun. Sunnudagur 19. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (0

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.