Þjóðviljinn - 24.11.1961, Side 9

Þjóðviljinn - 24.11.1961, Side 9
Svartur enn um og hvítur berjast heimsmeistaratitii Tom Mc Neely hefur keppt 22 sinnum og alltaf unnið; þar af 17 sinnum á rothöggi. Næst kepp- ir hairn vio heimsmeisiaiann Floyd Patterson Paíterson í næsta mánuði fer fram spennandi hnefaieikakeppni, sem aliir hnefaieikaunnendur mnira fylg.iast með af athygli. Heimsmeistarinn í þungavigt, Floyd Patterson, hefur tekið á- skorun frá Tom MC Neely frá Boston. Enn einu sinrtí munu svartur maður og hvítur berj- ast um heimsmeistaratitilinn, Tom Mc Neely er ekki á lista 10 beztu hnefaleikamanna í þungavigt. Hann hóf hnefa- leika í skóla og gerðist síðan atvinnumaður. Hann hefur keppt 22 sinnum og alltaf sigr- að og í 17 skipti á rothöggi. Hann er „killer", segir umboðs- maður hans, miiljónamæring- urinn Peter Davenport Fuller, sem stundaði nóm í hinum frsega Harvardháskóla og keppti þá í hnefaleikum fyrir skólann við ágætan orðstír. Síðan hefur hann dreymt um að vera umboðsmaður heims- meistara í hnefaleikum. Fuller borgar allan kostnað fvrir Tom og 60 dollara á viku í fast kaup, svo hann þurfi ekki að hugsa um annað en hnefaleikana. Fuller segir að hestar sínir.gefi meir af sér, en það sé sama: hann ætiar að gera Tom að góðum hnefaleik- ara. Fuller hefur látið Tom g'anga Tom til sálfræðings, þar sem hann heíur í keppni sýnt óvenju niikla grimmd og tilhneygingu til að ganga milli bols og höf- uðs á andstæðingi sínum þegar í stað. Sálfræðingunum hefur tekizt að sefa skap Toms, sv.o nú er Fuller ánægður með hegðun hans í hringnum og væntir þess að hann hlaupi ekki á Sig í keppni við Patt-' erson. Patterson hefur þrívegis ient í harðri og tvísýnni keppni við Ingemar og nú vilja menn halda því fram að hann hugsi með meiri rósemi til þessarar keppni. Patterson hefur líka vaðið fyrir neðan sig. því ef svo ólíklega skyldi fara að Tom næði heimsmeistaratitlinum. hefur Puller orðið að leggja fram eina milljón doilara í tryggingarfé, sem liggur að veði. ef Tom svíkst undan því að keppa við hann aftur að 120 dögum liðnum frá fyrstu keppni þeirra. Santiago 23/11..— Sovétríkin unnu landsleik í knattspyrnu á móti Chile í dag 1:0. Leikurinn fór fram á nýjum velli, sem verður notaður í heimsmeist- arakeppninni næsta sumar, og var völlurinn fullskipaður á- horfendum. Þessi framistaða Sovéts, að sigra bæði Argentínu og Chile á heimavígstöðvum þessara landa, kemur mjög á óvart, þar sem sovézka landsliðið hefur ekki þótt tiltakanlega gott. Nú virðist Vctur konungur genginn í garð og má búast við að hann tjaldi foldu hvítu. Þá fara skídamenn okkar á stiifana og við birtum þessa mynd af norskum skíðastökkvara þeim tii ánægju og uppörvunar. ÞíngsálykfuncirfJllaga Páls Knst]ánssonar um hanka- útibú á Húsavlk ræád á AlþJngi Þingsályktunartill. Páls Krist- jánssonar um bankaútibú á Húsavík kom til umræðu á fundi sameinaðs þings í gær. Flutningsmaður rökstuddi í framsöguræðu þörfina á banka- sta.rfsemi á Húsavík og sagði m. a.: „Aðalatvinnuvegur Húsvík- inga er útgerð og í því sam- bandi fiskiðnaður og önnur vinnsla sjávarafla þar á meðal síldarsöltun. Útgerð á Húsavík er í örum vexti og ennfremur fer það nú vaxandi að bátar frá öðrum . stöðum , sæki á nærliggjandi mið. við ^Húsayík yfir sumarið og leggí .upþ afla á Húsavík. Helzti fiskmóttakandi á Húsa- vík er Fiskiðjusamlag Húsavík- ur. Hefur það fyrirtæki alloft á þessu ári legið með sjávaraf- urðir upp á allt að 14 milljón- ir kr. í einu. Fjármagnsþörf útgerðarinnar er því orðin mikil og mun fara vaxandi, því að skilyrði til aukinnar útgerðar pg aukins iðnaðar í því sambandi eru þarna fyrir hendi. Verða að sjálfsögðu þarna teknar upp veiðar, sem ekki hafa áður verið stundaðar, þar sem nú er t.d. vitað að í Axar- fjarðarflóa og kannske víðar eru rækjumið, sem ekki var áður um vitað. ________________ Að Húsavík liggur allstórt viðsldptasvæði er tekur yfir nærfellt 7 hreppa. Er..því Húsa- vík orðinn allrriikill verzlunar- staður. Mundi allt það við- skiptasvæði sækja bankavið- skipti til Húsavíkur, ef þar væri bankaútibú. Auk þess má gera ráð fyrir að Norður- Þingeyjársýsla sækti þangað samskonar viðskipti. Á viðskiptasvæði Húsavíkur virðast vera skilyrði til ný- sköpunar í iðnaöi og atyinnu- rekstur meiri en víða annars- staðar. Má þar til nefna húg- myndina um kísilgúrvinrislu við Mývatn og enn má minna á það, að óvíða munu meiri skil- yrði. til fóðuröflunnar með þeim nýju aðferðum, sem nú virðast vera að ryðja sér til rúms, en einmitt á .þessu svæði. Eru þar mjög víðlend heiðalönd, sem bíða þess að verða brotin til. ræktunar og hagnýtt til féður- öi'Iunnaí'. Þörf þess svæðis, sem hér um ræöir, fyrir slíka þjór.ustu, sem bankaútibú mundi veita er nú þegar orðin mikil. Og til hag- nýtingar þeirra skilyrða, sem þar eru fyrir hendi til aukins atvinnureksturs og beinnar ný- sköpunar í þeim efnum, mundi bankaútibú. sem sinnti alhliða fiárrragnsbörf atvinriulífsins, verða mikil lyftistöng". Umræðunni var frestað og tillögunni vísað til allsherjar- nefndar. Vélbáturinn örn Arnarson GK 123, eign Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, verður eftir kröfu Gunnars Þorsteinsson- ar hrl. seldur á nauðungaruppboði, sem haldið verður í ] bátnum sjálfum í skipasmíðastöðinni Dröfn 1 Hafnarfirði föstudaginn 24. nóv. ki. 2 sd. Nauðungaruppboð þetta var auglýst í 94., 97. og 99. tbl. Lögbirtingablaðsins. Sýslumaðurinn í Gullbriegu- og Kjósarsýslu. Föstudagur 24. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (Q

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.