Þjóðviljinn - 24.11.1961, Qupperneq 10
maður aðeins kann að velja
sér föt við sitt hæfi, í sam-
ræmi við útlit og persónu-
leika, en anar ekki blint útí
það að kaupa föt sem fara
vel á sýningarstúlkunni. Hér
eru nokkur ráð frá Frakk-
iandi, heimalandi tízkunnar,
fyrir þær sem eru dálítið
þrekvaxnar:
Það er um að gera að sýn-
ast sem grennstur. Forðizt því
allan óþarfa eins og of mik-
ið skraut og margbrotin snið
á fötunum. Þá er nauðsynlegt
að eiga gott magabelti og
brjóstahaldara, sé þetta
tvennt ekki í lagi er allt unn-
ið fyrir gíg þótt kjóllinn
sjáifur sé vel valinn.
Hætti ykkur til að fá fitu-
keppi fyrir ofan mittið þurfið
þið að fá magabelti sem naer
hátt upp fyrir mittið, það
langbezta er náttúrlega gott
og lipurt lífstykki. Séu
mjaðmirnar breiðar, er
teygjubelti ágætt en það þarf
að vera vandað svo. það fari
vel í mittið.
Forðizt stóra kraga sem ná
hátf upp í hálsinn og leggj-
ast yfir brjóstið. Veljið frem-
ur litla kraga og örlítið flegin
hálsmál sem gera hálsinn
langan, koma ekki nálægt
andlitinu og skemma ekki
brjóstsvipinn.
Tvískiptir kjólar eða pils
og blússa sem girt er ofan í
pilsið er ekki hentugur
klæðnaður fyrir þær þrek-
vöxnu. Hins vegar er það
ágætt ef blússan er utanyfir
og nær niður á mjaðmirnar.
Veljið ekki alveg ermalausa
kjóla, ermar niður að og fram
yfir olnboga eru miklu klæði-
legri. Notið aldrei breitt belti.
Ef þið hafið stórt höfuð og
eruð dálítið kringluleitar,
veljið þá litla hatta og húfur.
Loðhúfurnar stóru klæða yð-
ur ekki, þær fá höfuðið til
að sýnast enn stærra.
Frönsk ráð fyrir þœr
Dragtin er einföld í sniðinu,
jakkinn nær niður á mjaðmir
og kraginn er lítill og klæði-
legur. Eina skrautið er stutt
leðurslifsi.
Hálsmálið er aðeins flegið,
ermarrar ná rétt fram ýfir
olnboga og b'.ússan niður fyr-
ir mittið. í stað nælunnar
mætti lífga upp á búninginn
með fallegri, langri perlufesti.
Hár er annar kjóll í svipuðum
stíl, nema hann er í heilu
lagi með mjótt belti um
mittið.
Á tízkumyndunum eru allar
konur tággrannar, með full-
kominn vöxt og lagleg andlit.
Það er þó staðreynd að fæst-
ar venjulegar konur hafa
þennan vöxt og engin ástæða
til að ergja sig yfir því ef
Evrópubikar-
keppnin
Evrópubikarkeppnin í knatt-
spyrnu heldur áfram og í gær
sigraði Glasgow Rangers aust-
urþýzka liðið Vorwaerts 4:1 og
var áður búið að vinna það 2:1.
Glasgow Rangers heldur. áfram
í keppninni og ítalska liðið
Juventus, sem vann júgóslav-
neska liðið Páfizan 5:0 og 2:1.
Fjöldi drepinn s
Doiti. iýðvsldinu
Ciudad Trújiilo 2311 — Fjöldi
manna var drepinn í höfuðborg
Doninikanska lýðveldisins, Ci-
udad Trujillo, í óeiröum í dag.
Gífurelgur mannfjöldi fór í
kröíugöngur til heimila þriggja
meðlima harðstjórnarfjölskyld-
unnar Trujillo.
Meðan þessu fór fram réðust
menn inn á heimili J.A. Trujillo
hershöfðingja, bróður hins myrta
einræðisherra, og rannsökuðu
'húsið. Mikil ólga er í Domini-
kanska lýðveldinu.
AFP-fréttastofan greinir frá
því að þjóðþingið í landinu hafi
í dag einróma samþykkt að láta
höfuðborgina aftur fá hið gamla
nafn sitt „Santo Domingo de
Guzmen", en Trujillo einræðis-
herra hafði skírt borgina í höf-
uðið á sjálfum sér.
Fagerholm
Framhald a£ 12. síðu.
allt heldur kaldhæðnislegt. Kus-
inen sagðist álíta að kosningarnar
ættu hind.runarlaust að geta far-
ið fram. Hún kvaðst viss u.m að
í kosningum myndi meirihluti
þjóðarinnar fordæma stefnu og
framferði hægri flokkanna. Ann-
ars ihefur ekki verið fjallað um
tillögu Fagerholms í Kommún-
istaflokknum né heldur Lýðræð-
isbandalaginu.
Formaður uppreisnararmsins í
Sósíaldemókrataflokknum, Aare
Simonen, telur tillögu Fager-
holms óraunhæfa.'
Trúlofunarhringir, stein.
hringir, hálsmen, 14 og 18
karata.
Nýtízku husgögn
ÍFjölbreytt úrval.
Póstsendum.
Axel Eyjólfsson,
j Skipholti 7. Sími 10117.
v^.í-IaíÞÓQ. ÓOPMUmSOH
l)&tU^aía.l7''k': 'Súni 7ty7o
INNHEIMTA
LÖOFRÆQI3TÖRP
m
\ BARNARCM
HNOTAN.
húsgagnaverzlun
I Þórsgötu 1
Framh. af 1. síðu.
herstöðvum sínum í ýmsum lönd-
um eru Vesturþjóðverjar að öðl-
ast á „friðsamlegan" bátt þá
hernaðarlegu yfirdrottnun sem
Hitler reyndi að tryggja með
blóðugu ofbeldi. Og með Efna-
hagsbandalaginu ætla Vesturþjóð-
verjar að tryggja sér — sem
langsterkasta aðilanum — sömu
efnahagslegu yfirráðin í Vestur-
evrópu sem Hitler hafði á ofbeld-
isskeiði sínu. Efnahagsbandalagið
á svo jafnframt að nota til fram-
dráttar hernaðarlegum kröfum
Þjóðverja, ef fyrirstaða' verður.
Alþingi
Efri deild í dag kl. 1.30.
Parísarsamþykkt um vernd
eignarréttinda á sviði iðnað-
ar, frv. 3. umr. Dómsmála-
störf, lögreglustjórn, gjald-
heimta o.fl., frv. 3. umr.
Tunnuverksmiðjur ríkisins,
frv. 1. umr.
Neðri deild í dag kl. 1.30.
Húsnæðismálastofnun, frv. 1.
umr. Ráðstafanir vegna á-
kvörðunar um nýtt gengi, frv.
1. umr. Almannatryggingar,
frv. 3. umr. Vegalög, frv. 1.
umr. Lausaskuldir bænda,
frv. 2. umr.
iðvsr hér?
Jafnvel þótt íslenzk stjórnarvöld
treysti sér ekki nú til þess að
leyfa vesturþýzkar herstöðvar á
íslandi, myndi það mál verða
tekið á dagskrá á nýjan leik ef
ísland gerðist aðili að Efnahags-
bandalaginu og vesturþýzkt
fjármagn hefði náð undirtökum
hér á landi.
Þarf jbó nokk-
ur að efast?
Islendingar hafa búið við erlent
hernám um meira en tveggja
áratuga skeið. öll þjóðin veit
hversu erfitt og stórhættulegt
það tvíbýli hefur verið, einnig
þeir sem mælt hafa hernáms-
stefnunni bót. En Islendingum
hefur tekizt að takmarka þetta
hernám verulega eftir styrjöld-
ina með sleitulausri baráttu og
oft árangursríkri gagnsókn. En
eigi nú vestunþýzkt hernám að
bætast ofan á það bandaríska og
eigi að ibreyta íslandi í æfinga-
stöð fyrir stórvirkustu morðtól
og vígvélar í höndum hefndar-
sjúkra valdamanna í Ve-stur-
þýzkalandi, iþarf ekki að leiða
getum að því framar hver örlög
hinni fámennu íslenzku þjóð yrðu
búin.
V0 WuMct/ÍHHUfot 6e£t
íhúðcbyggingarmál rædd á Alþingi
Framhald af 12. siðu.
farið þveröfugt að með því að
gefa auðmönnum landsins eftir
stóreignaskattinn, sem nota átti
til að hjálpa fátækum mönnum
til að eignast íbúðir. Minnti
hann einnig á, að atvinnuleysis-
tryggingasjóður hefði reynzt
drjúgur að lána í íbúðabygging-
ar, gegnum húsnæðismálastjórn,
og hefði Sjálfstæðisflokkurinn
jafnan sýnt þeim sjóði lítinn
skilning.
★ Sæmt ástand nú
Afleiðingarnar af stefnu nú-
verandi ríkisstjórnar hefðu líka
orðið þær, sem við máttu búazt,
sagði Lúðvík. Byggingar hafa
dregist verulega saman og lán-
in frá Húsnæðismálastjórn eru
2ja saknað
Framhald af 1. síðu.
Helzt er talið, að eitthvað
kunni að reka úr bátnum undan
veðrinu inn Húnaflóa. Verður
leitinni haldið áfram þar til eitt-
hvað finnst.
Eins og áður segir voru tveir
bræður á bátnum, Sveinn (f 17/4
1921) og Hjörtur (f. 22/3 1925).
Bjuggu þeir í samliggjandi býl-
um á Skagaströnd, Sveinn í Vík
en Hjörtur á Höfðatúni. Þeir
voru báðir ókvæntir. Þeir bræð-
ur áttu Skíða og keyptu þeir
hann. fyrir 2—3 árum frá Dalvík.
nú mun minni hluti af bygg-
ingarkostnaðinum en hann hefur
nokkurntíma verið.
Hannibal Valdimarsson rakti
meginatriði löggjafarinnar frá
1957 um húsnæðismálin og
hrakti firrur og staðleysur Þor-
valdar Kristjánssonar um þau
mál. Um ástandið nú sagði
Hannibal m.a.:
„Mér heyrist að myndin af
því, hvernig húsnæðismálin
standi núna, sé ekkert sérlega
glæsileg þrátt fyrir það, þó að
hinn virðulegi Sjáifstæðisflokkur
sitji nú við stjórnvöl. Ég veit
ekki betur en það sé staðreynd,
að það hefur dregið mjög úr
byggingum íbúðahúsnæðis í
landinu á undanförnum árum.
Óg orsökin til þessa afturkípps
er versnandi efnahagsafkoma í
landinu. En þegar færri íbúðir
eru byggðar, þá hefði ótt að
verða auðveldara fyrir húsnæð-
ismálastofnun ríkisins að... full-
nægja þeim umsókrium um lán,
sem bærust. En það er síður en
svo. Það var upplýst hér áðarj
af hv. flm. málsins, að um 2000
umsóknir biðu. nú að mestu leyti
óafgreiddar eða algerlega óaf-
greiddar. Og mun sjaldan hafa
staðið verr í þeim efnum. Og
þó er upphæðin, sem nú er
veitt á íbúð, aðeins að verðgildi
um það bil helmingur á við það,
sem var, þegar húsnæðismálalög-
gjöfin var seinast endurskoðuð
og hygg ég því, að öllum megi
ljóst vera,- að í óefni er komið
um þessi mál og hefur sjáldan
horft verr heldur en nú.
J 0) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 24. nóvember 1961