Þjóðviljinn - 01.12.1961, Síða 5
rrJ
Island greiddi atkvœði gegn
__ 'iM7- ms* • . .^Mauvwr -« <mu!H»MÍ=: ag.,:38a*-«»s«iaKlw>>i»a—aml _«■«** «aK
i S-Afríku
NEW YORK 29/11 — Fulltrúi
íslan.ds á allsJjerjarJjingi SÞ var
meðal þeirra sem greiddi at-
kvæði gegn tillögu frá Asíu- og
Afríkuþjóðum um að hafnar
yrðu diplómatískar o.g efnahags-
legar refsiaðgerðir móti Suður-
Afriku v.égna kyfiþáttaKukhna’fl
innar þar. í landi. Hlaut tillagan
ekki'^nægan meirilííuta. '*
Fulltrúar 48 ríkja greiddu til-
lögunni atkvæði sem samþykkt
hafði verið i stjórnmálanefnd
þingsins, en 31 ríkis voru and-
Framhald af 1. síðu.
ytri tollmúr bandalagsins, varð-
andi samninga Dana við jafn-
keypislönd, um hin sérstöku
tengsl Dana við önnur Norður-
lönd í félags- og vinnumarkaðs-
málum og síðast en ekki sízt
varðandi reglur um fiskveiði-
réttindi í Iandhelgi Færeyja og
Grænlands.
Ákveðið var að sérfræðingar
Dana og bandalagsins skyldu
hefja viðræður aftur 29. janúar,
fen Krag utanríkisráðherra mæti
síðan á fundi með framkvæmda-
stjórnirini 6. febrúar.
Uppsteitur i bandalaginu
Ágreiningur sá innan Efna-
hagsbandalagsins um landbúnað-
armál sem áður var vikið að er
þannig til kominn, að Frakka’-
hafa viljað verðjöfnun á land-
búnaðarvörum í öllum sex að-
ildarríkjunum, sem framkvæmd
væri á þann hátt, að í þeim
löndum sem framleiðslukostnað-
ur landbúnaðarafurða væri fyrir
neðan meðallag væri lagður sér-
stakur skattur á þær, sem síðan
væri notaður til að bæta upp
Verð á afurðum í þeim löndum
þar sem framleiðslukostnaðurinn
Væri fyrir ofan meðallag.
Á ráðherrafundi bandalagsins
í dag sagði Schwartz, landbún-
aðarráðherra V estur-Þýzkalands,
að þessay tillögur væru algerlega
óaðgengilegar fyrir stjórn sína.
Þó hélt hann því fram að vest-
urþýzka stjórnin vildi að banda-
lagsríkin kæmu sér saman um
einhverja sameiginlega stefnu í
verðlagsmálum landbúnaðaraf-
urða.
Fréttaritari Reuters segir að
þeirri fullyrðingu Schwartz sé
varlega trúað af fulltrúum ann-
arra bandalagsríkja. Ræða hans
hafi verið talin heiftarleg árás
á öll hin aðildarríkin. Franski
landbúnaðarráðherrann, Edgar
Pisani, sagði eftir fundinn, að
miklar greinir væru með mönn-
um, en iþó væri ekki ástæða til
að gera of mikið úr því sem á
milli bæri.
ítalskar dömupeysur
Fallegt litaúrval. — Nýja verðið.
Verzlunin ÁSA,
Skólavörðustíg 17. — Sími 15188
vígir og var það.nóg til að fella
aana, þar sem tvo þriðju
freiddra“atkvæða þarf til að til-
laga nái fram að ganga á. allsherj-
arþinginu. í tillögunni hafði
einnig verið gert ráð fyrir að
Suður-Afríku yrði vísað úr Sam-
j einuðu þióðunum. ef stjórn
1 landsins héldi áfram stefnu sinni
í kynþáttamálum.
Fulltrúar allra Norðurlaúda
greiddu atkvæði gegn tillögunni.
svo og vesturveldin og fylgiríki
þeirra.
Hins vegar samþykkti allsherj-
arþingið með 97 atkvæðum gegn
2, en eitt ríki sat hjá, tillögu frá
Danmörku, Noregi' og Indlandi, "j
þar sem lýst er viðbjóði á stefnu
Suður-Afríkustjórnar í kynþátta-
málum og öll aðildarríki SÞ
hvött til að gera ráðstafanir,
hvert um sig og öll í sameiningu,
til að þeirri stefnu verði breytt.
Ríkin tvö sem greiddu atkvæði
gegp^ tjllþgunp.v voru Rorfúgal og
Suður-Afríka, en Gínea sat hjá.
Úlfur lagði mann
að velli og át
PARlS — í smáþorpinu Tines
í Pýreneafjöllum, við landamæri
Frakklands og Spánar, lagði úlf-
ur í síðustu viku fimmtugan
mann að velli og át hann. Mað-
urinn hafði verið að brynna
nautum sínum þegar úlfurinn
réðst á hjörðina. Maðurinn lagði
til atlögu við hann, en varð und-
ir. Illa leikið lík hans fannst
skömmu síðar.
Hafnarfjörður
ÞJÓÐVILJANN vantar börn til útburðar við
Suðurgötu og Hvaleyrarbraut.
Upplýsingar á Skúlaskeiði 20, sími 50648.
TAFF, Oklahoma — Lögreglan
í Oklahoma leitar nú að tuttugu
stúlkum sem tókst að flýja úr
kvénnafangelsi ríkisins. Stúlk-
urnar höfðu brotizt inn í eld-
hús fangelsisins og þar vopnað
sig hnífum og kjötöxum og
ógriað vörðunum. Lögreglan segir
að þær séu til alls vísar.
&
SMf.úll(.tH9 RIKISINS
Hekla
austur um land í hringferð hinn
6. des. Vörumóttaka árdegis í
dag og é mánudag. til Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar Norðfjarðar, Seyðisfjarð-
ar, Raufarhafnar og Húsavíkur.
Farseðlar seldir á þriðjudag.
Henri Alleg, franski rit-
stjórinn, sem handtekinn
var í Algeirsborg fyrir fjórum árum, en frægur varð af bók
sinni „Yfirheyrslan“, þar sem hann skýrði frá pyndingum þo:m
sem hann hafði orðið að þola, flúði úr fangelsinu í Fresmes í
Frakklandi fyrir nolckrum vikum, en þar afplánaði hann tíu ..ára
fangelsisdóm fyrir að hafa veitt Serkjum lið í frelsisbaváttu
þeirra. Fyrir nokkrum dögum kom Alleg til Prag og er enn ekki
viíað eftir hvaða leið. Myndin er tekin úr ítalska blaðinu l’Unita
og sýnir Alleg (t.h.) ræða við fréttamann þess í Prag.
NEW YORK — I útvarpsfregn Snekkjunni var snúið við. en
frá Santo Domingo segir að her- j hún mun hafa verið á leið til
skip úr flota landsins hafi sett
fasta lystisnekkjuna Angelita á
hafi úti og áhöfn og farþegar
verið handtekin.
Eigandi snekkjunnar var
Andres Alba Valara, frændi
Ramfis Trujillo, sonar einvald-
ans sem myrtur vár í vor. Það
kom í ljós þegar leitað var í
snekkjunni að hann hafði með-
ferðis hvorki meira né minna en
90 milljónir dollara eða um 4
milljarða króna.
Evrópu, sennilega til Portúgals,
þar sem ýmsir aðrir úr fjöl-
skyldu að. Trujillos hafa nú setzt
Tveir frændur hans, Louis
Trujillo Reynosa og Francisco
Trújillo Reynosa, hafa fengið
stöður við sendiráð lýðveldisins
í Lissabon, og sýnir það að
Balaguer forseti lýðveldisins sé
búinn að slíta þau tengsl sem
árum saman hafa bundið hann
Trujillofjölskyldunni.
Yfirlýsingcr
krafizt
Framhald af 12. síðu.
ar. Skoraði hann á ríkisstjórn-
ina að flana ekki að neinu í
þessu efni og hlevpa íslenzku
togurunum ekki frekar inn í
landhelgina en orðið er. Ef slíkt
yrði gert væri veruleg hætta ó
að útlendir togarar fylgdu á
eftir.
Bjarni Benediktsson þvertók
fyrir. að gefa nokkra yfirlýsingu
um að íslenzka to.garaflotanum
yrði ekki hlevpt inn í land-
helgina. Sagði hann að ummæli
sín á dögunum hefðu verið
rangfærð. Hann kvað óhjá-
kvæmilegt að athuga hvaða úr-
ræði kæmu til greina að grípa
til þegar aðstoð við togaraút-
gerðina væri á dagskrá. í ræðu
sinni hefði hann aðeins bent á
þær einu leiðir sem til greina
gætu komið og væri önnur sú,
að togararnir fengiu að veiða
aftur á svæðum sem þeim hefði
verið stuggað frá við stækkun
landhelginnar. Ég hef ekki,
sagði forsætisráðherra, gert upp
minn hug né ríkisstjómarinnar
hvað gera eigi í þessu efni.
ODYRT — HENTUGT
nii $ v
TIL JOLAGJAFA
NÆLONREGNKÁPUR 8 litir, 4 gerðir, stærðir 42, 44, 46 .. Kr. 798,00— 998,00
POPLINHETTUKÁPUR með loðfóðri, ýmsar gerðir os litir . — 1000,00 —1475,00
POPLINKÁPUR með loðfóðr! + Iausri hettu með eða án loðkraga . — 1150,00
POPLINKÁPUR með VATTFÓÐRI + lausri hettu, með loðkraga . — 1518,00
POSTSENDUM
NINON hf.
-225,00
HÚFU + TREFILSETT frá kr. 146,00
LOÐHÚFUR 14 litir, í gjafak. - - 199,00 — 210,00
LOÐKJUSUR á ungbörn - -
SLÆÐUR, í gjafakössum - -
ULLARPEYSUR, erlendar - -
BLÚSSUR - -
GOLFTREYJUR, ýmsar gerðir - -
BRJÓSTAHÖLD, 3 gerðir - -
TERYLENEPILS
SKINNHANZKAR, 5 litir - -
GEIÐSLU SLOPP AR - -
ULLAREFNISPILS, ýmsar gerðir
STÍF SKJÖRT, 8 gerðir
Verð kr. 262,00 - 322,00 - 381,00 - 415,00
130,00
27,00
265,00
195,00-
341,00
70,00 — 125.00
580,00 — 594,00
264,00
439,00 — 520,00
Ingólfsstræti 8 — Sími 13669
Föstudagur 1. desember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (5.