Þjóðviljinn - 01.12.1961, Qupperneq 12
Margt fogurra muna á
Iðnsýningu í Bogasalnum
Sýning á iðnminjum var
opnuð í Bogasal Þjóðminja-
safnsins í gær. Iðnaðarmála-
ráðherra, Jóhann Hafstein,
öphaði sýninguna með stuttri
ræðu. Margt gesta var við
opnunina, m.a. ýmsir framá-
menn á svíði ísle'nzkra iðn-
aðarmála, Geir Hallgrímsson
borgarstjóri og fleiri.
Það er Iðnminjasafnsnefnd
sem gengst fyrir sýningunni
og á henni eru margir fagr-
ir, gamlir munir; snilldarvel
gerðir, verkfæri, sveins- og
meistarabréf, Ijósmýndir og
fieira.
í Iðnminjasafnsnefnd starfa
þeir Sveinbjörn Jónsson for-
maður nefndarinnar. Björn
Rögnvaldsson, Jónas Sól-
mundsson o-g Guðbjörn Guð-
mundsson. Þjóðviljinn náði
við opnunina tali af Svein-
birni Jónssyni og sagði hann
m.a. að þetta væri fyrsti vís-
irinn að iðnminjasafni fram-
tíðarinnar.
— Við eigum miklu fleiri
muni, en völdum ýmsa sér-
staklega vel gerða gripi, göm-
ul sveinsstykki, einkennileg
verkfæri, uppfinnirigar, mynd-
ir, heiðursskjöl og eitt lítið
verkstæði, hattasaumastofu.
Við erum jafnframt að kynna
nýútkomið ritverk um mæt-
an smið og athafnamann 19.
aldar, Þorstein á Skipalóni,
sem gefið er út af Menning-
arsjóði. Iðnaðarmenn og iðju-
höldar geta fengið tölusett
eintak af ritinu hjá Lands-
sambandi Iðnaðarmanna. Hér
er líka sveinsstykki Þorsteins
til sýnis, saumaskrín, sem
hann smíðaði 1820 og gaf
konu sinni.
— Hvenær gerið þið ráð -
Stofuorgel og fiðla, hvorttveggja smíðað af Einari Jónssyni
spillemann skömmu fyrir aldamótin.
fyrir að Iðnminjasafnið kom-
ist upp?
— Það vitum við ekki. Það
fer eftir fjárhag, en við höf-
um ætlazt til að Iðnminja-
safnið yrði deild úr Þjóð-
minjasafninu.
Iðnminjasýningunni í Boga-
salnum er sérstaklega smekk-
lega og skemmtilega fyrir
komið þótt hún sé ekki stór.
Uppsetningu sýningarinnar ;
hefur Iðnminjasafnsnefnd
annazt- sjálf með aðstoð Egg-,
erts Guðmundssonar listmál-
ara Qg Gísla Gestssonar.
Föstudagur 1. desember 1961. — 26. árgangur — 277. tölublað
NEW YORK 30/11 — Atlanzhafs-
bandalagið beið mikinn ósigur
við atkvæðagreiðslu í stjórn-
málartefnd al'sherjarþings SÞ í
dag. Samþykkt var með miklum
atkvæðamun tiHaga frá Svíþjóð
og sjii öðrum ríkjum, sem stefn-
ir að því að takmarkai útbreiðslu
kjarnavopna, en langf’est ríki
Atlanzhafsbanda'agsins greiddu
atkvæði gegn henni.
Tillagan var sambykkt með 57
atkvæðum gegn 12, en fulltrúar
32 ríkia sátu hjá. Fréttaritari
Reuters segir samkvæmt NTB
að „flest jSTatoriki hafi verið á
móti, en Noregur og Danmörk
| greiddu atkvæði með“. (Af
þessu verður ekki ráðið hvernig
■ fulltrúi íslands hefur greitt at-
kvæði, en ráða má af líkum að
hann hafi a.m.k. ekki greitt tii-
iögunni atkvæði, heldur setið
hj á.).
Það voru höfuðveldi Atlanz-
hafsbandalagsins, Bandarikin,
Bretland og Frakkland, sem
voru 'þelztu andstæðinga'r til-
lögunnar. Hefur það aldrei kom-
ið fvrir áður á þingi SÞ að
forysturíki Atlanzhafsbandalags-
! ins hafi staðið uppi jafn fylg-
I issnauð oct í bessari atkvæða-
, greiðslu. Öll sósialistísku ríkirt
greiddu . til’ögunni atkvæði.
Mynctarlegt hefti Nýja stúd-
entablaðsins kemur út í dag
„Vísindin efla alla dáð“
í öörum löndum.
Á Fróni eru þau fjötruð, smáð,
í feigðar böndum.
Með þessari vísu m.a. fylgir
ritstjóri Nýja stúdentablaðsins,
Finnur T. Hjörleifsson, 1. tölu-
blaði þessa árgangs úr hlaði, en
það kemur út í dag, 1. desember.
Blaðið íjallar að mestu leyti
um kjör háskólamenntaðra
manna o,g hefur ritnefnd þess
fengið þrjá kunna menn úr
þeirra hcoi til að skrifa um þau
mál. Þeir eru dr. Björn Jó-
hannesson jarðvegsfræðingur,
sem skrifar „um brottflutning ís-
lenzkra háskólakandidata til
annarra landa“, Ólafu.r Jensson
læknir skrifar greinina „Vett-
vangur vísinda á íslandi" og
Höröúr Bergmann B.A. „Launa-
kjör menntamanna".
Þá er í blaðinu ýtarleg grein
um Efnahagsbandalag Evrópu
eftir Hjalta Kristgeirsson hag-
fræðing, grein um handritamál-
in efti.r Einar Laxness cand. mag.
sem hann nefnir „Handritin og
skyldur okkar“ og grein um
vestræna samvinnu eftir Gísla
Gunnarsson auk ritnefndargreina,
ljóða, háskólapistils og fleira-
Blaðið er prentað á góðan
pappír, myndskreytt og frá-
gangur a'lur hinn bezti. Útgef-
andi er Félag róttækra stúdenta
og ritnefnd skipa þeir Finnur T.
Hjörleifsson, Gísli Gunnarsson,
Gunnsteinn Gunnarsson, Jórt
Gunnlaugsson og Kristján Thorl-
acius.
Búðum lokað
1 og 12
Kaupmannasamtökin hafa
beðið Þjóðviljann að vckja
rthygli lesenda á því, að þau
hafa mælzt til þess við kaup-
menn að þeir hafi ekki leng-
ur cpið í dag en til kl. 1
og má fastlega gera ráð fyr-
ir að kaupmcnn Ioki þá.
Einnig eru lescndur beðnir að
athuga það að opið er til kl.
1 á Iaugardag.
Mjólkurbúðir loka kl. 12 á
hádegi í dag og kl. 2 á morg-
un.
Líkan af brú yfir Skíðadal^á gert 1895 af Gísla á Ilofi í Svarfaöardal sem einnig smíðaði
brúna árið cftir, 1896.
TIL SJÓS OG LANDS
-4
SIGUREÍUR INGIMUNDARSON, vjitnsgæzlumaður . .
í ÁburðárVQrksiYiiðjunni kaus nýlega við stjórnarkjör í Sjómanna-
télagi Reýkjavíkur. — Hverra hagsmuna hefur hann að gæta?
Starfandi sjómenn, kosið er alla virka daga frá kl. 3—6 í skrif-
stofu S.R., Hverfisgötu 8—10. Kjósið lista starfandi sjómanna B-
listann. , 1 j
X B-lisfi
V
Yíirlýsinga kraíizt en án árangurs
• Við umræður í neðri deild Alþingis í gær skoruðu ræðumenn stjórnarandþtöð-
unnar alvarlega á ríkisstjórnina að hleypa ekki íslenzka togaraflotanum inn 1 land-
helgina frekar en orðið er. Forsætisráðherra neitaði að gefa nokkrar yfirlýsingar í
þessu efni.
Allur fundartíminn í gær fór
i að ræða ráðstafanir vegna á-
kvörðunar um nýtt gengi. Var
þetta framhald 1. umræðu og
varð umræðunni enn ekki lokið.
Þeir sem töluðu í gær voru
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra, Eysteinn Jónsson og
Lúðvík Jósepsson.
Eins og skýrt hefur verið frá
hér í blaðinu, vakti það, at-
hygli við upphaf umræðna um
þetta mál á Alþingi sl. þriðju-
dag. að Bjarni forsætisráðherra
virtist telja að hagur togaraflot-
,ans ísienzka yrði ekki bættur
nema á kostnað bótaflotans, en j
þau ummæli urðu naumast skil- .
in öðruvísi en ríkisstjórnin
hefði til athugunar að hleypa
togurunum inn á bátamiðin,
inn fyrir fiskveiðitakmörkin í
ríkara mæli en nú er gert.
Eysteinn Jónsson kvað þessi
uaimæli hafa vakið mikla at-
hygli og ótta um að þetta stæði
til. Mótmælti hann eindregið
slíkum aðgerðum og skoraði á
ríkisstjórnina að láta ekki tíma-
bundna erfiðleika togaraflotans
verða til þess að beim yrði aft-
ur hleypt inn á bátamiðin við
landið. Jafnframt skoraði hann
á forsætisráðherra að lýsa því
yfir fyrir rhönd ríkisstjórnarinn-
ar að slíkt kæmi ekki til greina.
Lúðvík Jósepsson benti í ræðu
sinni á að fjárhagur togaranna
myndi ekki batna nema þá að
sáralitlu leyti þó að þeir ferigju
að veiða allt að 4 mílunum, en
slíkt myndi hinsvegar valda
bátaflotanum verulegu tjóni.
Þegar á heildina væri litið
myndi slík róðstöfun því til
tjóns fyrir þióðarbúið en lítils
hags fyrir togaraútgerðina. Lúð-
vík skýrði frá því að sér væri
kunnugt um að nefnd hefði að
undanförnu starfað á vegum
ríkisstjórnarinnar til athugunar
á þessu máli og a.m.k. meðal
nefndarmanna hefðu komið
I íram tillögur um gjörbreyting-
Framhald á 5. síðu.
I