Þjóðviljinn - 04.02.1962, Síða 12
Stundum hlýtur það að vera spennandi að
vera á varðskipi, a.m.k. þcgar verið er að
elta uppi þrjóta þá sem stelast inn í Iand-
hclgi. En stundum liggja varðskip í höfn,
og þá er allt friðsamlegt. Þannig var það
kvöld eitt fyrir nokkru, að Óðinn lá úti á
ytri höfninni, og þá komu íjréttamenn í heim-
sókn og þáðu góðar veitingar um borð. Þess-
ir þrír piltar, sem heita Eggert, Ormar og
Jóhannes, gengu um beina það kvöld og að
máltið Iokinni gengu þeir frá matarílátum.
Þá íók fréttamaður blaðsins þessar myndir
í eldhúsinu um borð í Óðni.
Akureyri,
njóta beztu trygginga
Félagið nú langfjölmennasta verkalýðsfélagið þar í bænum, fé-
lagar 660 talsins — Jón Ingimarsson endurkjörinn formaður
AKUREYRI 2/2 — Aðalfundur gjald félagsmanna í 300 kr. fyrir
Iðju, félags verksmiðjufólks á
Akureyri, var haldinn sl. sunnu-
dag, 28. janúar. í stjórn félags-
ins voru kjörnir: Jón Ingimars-
son formaður, Arnfinnur Arn-
finnsson varaformaður, Ingiberg
Jóhannesson gjaldkeri, Páll Ól-
afsson ritari og Hallgrímur Jóns-
son meðstjórnandi.
Fjiilmennasta verkalýðs-
féiagið á Akureyri
Iðja, félag verksmiðjufólks á
Akureyri, telur nú 660 félaga og
er því orðið langfjölmennasta
stéttarfélagið í bænum, með um
200 fleiri félagsmenn en Verka-
mannafélag Akureyrarkaupstað-
ar. sem til skamms tíma var
f jölmennast.
Rekstrarhagnaður hjá félaginu
var á sl. ári 207.800 krónur, en
þá eru meðtaldar 100 þús. krón-
ur, sem verksmiðjur S.Í.S. færðu
félaginu að gjöí á 25 ára af-
mæli þess, sem var snemma á
árinu.
, Samþykkt var að hækka ár-
Þjóðviljafundur
Fundur nýbyggingarnefndar
Þjóðviljans og umboðsmanna
happdrættisins og blaðsins á
svæðinu frá Stokkseyri til Borg-
arness verður haldinn í Tjarn-
argötu 20 í dag og hefst kl. 2
síðdegis. Allir þeir, sem boðaðir
hafa verið á fundinn, eru beðn-
ir um að mæta stundvíslega.
karla og 250 kr. fyrir konur.
Langfullkomnustu
tryggingarnar
Þá var gengið frá reglugerð
fyrir sjúkrasjóð félagsins. Sam-
kvæmt samningum við verk-
smiðjur S.f.S. og KEA njóta Iðju-
félagar í slysa- og sjúkdómstil-
fellum fullra launa í 3 mánuði
og hálfra launa í aðra 3 mán-
uði, en sjúkrasjóður félagsins
greiðir síðan dagpeninga i allt
að 6 mánuði. Eru því tryggingar
Iðjufélaga á Akureyri vegna
sjúkdóma og slysa orðnar þær
langfullkomnustu sem þekkjast
hjá nokkru verkalýðsfélagi hér
á landi.
Morgunveik
Vailarlögreglu
Jón, Ingimarsson
Kðttum
þfÓÐVILJINN
Sunnudagur 4. febrúar 1962 — 27. árgangur — 29. tölublað
Yíirvöld í Leopoldville óttast uppþot
LEOPOLDVILLE V — Fyrrver-
andi varaforsætisráðherra Kongó,
Antoine Gizenga, var í nótt flutt-
ur úr búðum kongóskra fallhlíf-
arhermanna í Leopoldville til
Moanda við ströndina.
Þetta er haft eftir góðum
heimildum í kongóska binginu,
segir í frétt frá AFP-fréttastof-
unni. Sameinuðu þjóðirnar hafa
hvorki neitað þessari frétt né
staðfest hana.
Moanda liggur við mynni
Kongó-fljóts, nokkra kílómetra
frá herstöð S.Þ. í Kitona, þar
sem þeir Adoula og Tschombe
náðu samkomuiagi í desember.
Gizenga hefur verið komið fyr_
ir í hóteli í Moanda, og mun
framvegis nióta verndar kong-
óskra hermanna.
í Reuters-frétt segir að eitt
fylki kongóskra hermanna og 6
skriðdrekar séu komnir til Leo-
poidviile, vegna ótta stjórnar-
valdanna við ólguna út af hand-
töku Gizenga.
Kindu hertekin
Etíópíumenn úr liði Samein-
uðu þjóðanna hertóku í dag að
nýju bæinn Kindu í Kivu-héraði.
Lið S.Þ. hafði yfirgefið Kindu í
janúar, segir talsmaður S.Þ.
Hann sagði að etíópísku her-
mennirnir hefðu komið til Kindu
með flugvél frá Stanleyville
snemma í morgun. Þessar að-
gerðir eru liður í tilraunum til
að binda enda á ofbeldisaðgerð-
ir á þessum slóðum. Flökkuher-
menn myrtu t.d. 22 trúboða á
Kongóló-svæðinu á nýársdag.
Talsmaðurinn sagði einnig að
herfl. S.Þ. sem hafi farið frá
Bakavú fyrir fjórum dögum séu
nú komnir til Kama, 200 kíló-
metrum fyrir suðaustan Bukavú.
Þar ætla þeir að reyna að kom-
ast í samband við amerísku trú-
boðsstöðina í Kama. Langt er
orðið siðan nokkuð hefur heyrzt
frá trúboðsstöðinni.
VESTMANNAEYJUM 3/2 — Hér
hefur verið iðulaus stórhríð og
er nú allt á kafi í snjó og bílar
standa víða fastir í snjósköflum
á götunum. Er þetta mjög ó-
venjulegt hér í Eyjum.
Valdimar Lárusson
Spilakvöld Sésíal-
islafélagsins
Kl. 8.30 síðdegis hefst spiia-
kvöld Sósíalistafélags Rcykjavík-
ur í Tjarnargötu 20.
Auk féiagsvistarinnar verður
þar til skemmtunar upplestur.
Valdimar Lárusson leikari les
upp. Veitingar verða að venju
á boðstólum.
Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka með sér gesti.
Kennedy
bannar Kúbu-
viðskipti
WASHINGTON 3/2 — Kennedy
Bandaríkjaforseti hefur ákveðið
að banna allan innflutning frá
Kúbu. Þetta bann mun koma
einna harðast niður á tóbaksiðn-
aði eyjarinnar, en hún hefur
flutt út til Bandarikjanna tó-
baksvörur að verðmæti 35 millj-
ónir dollara.
Kennedy er sagður hafa tekið
þessa ákvörðun, eftir að hafa
kynnt sér skýrslu Dean Rusk ut-
anríkisráðherra um ráðherra-
fund Samtaka Ameríkuríkjanna,
sem nýlokið er í Punta Del Este
í Uruguay.
lógoð kl. 08.30,
skrifstofun sótt kl. 09.00
Miðvikudaginn 3. janúar
1962 er eftirfarandi skráð í
dagbók r'íkislögreglunnar á
Kef lavíkurf lugvelli:
*
★ * *
Kl. 08,30 skaut lögreglan tvo
kettlinga er skildir höfðu verið
efitir í Grænáshliði, til aflífg-
unar.
Kl. 09,00 skrifstofan sótt.
Bókun þessi er merkilegri en
virðist í fljótu bragði. Svo er
mál með vexti að fyrr í vetur
þurfti eitt sinn að stytta tveim
hundum aldur hjá sama emb-
ætti. en þeim var gert hærra
undir höfði en köttunum.
Gerður var út leiðangur, tveir
lögreglumenn í lögreglubíl, tii
að flytja dýrin að Keldum í
Mosfellssveit, með skipun um
að nota sírenur og rautt Ijós
eftir þörfum.
+
★ ★
Ekkert var því til sparað
að hundarnir mættu ljúka ævi
sinni á vísindalegan hátt. Ekk-
ert slíkt umstang var gert með
kettina, sem þarna hafa verið
beittir hróplegu misrétti.
Síðari liðurinn í framan-
greindri bókun er stuttur og
laggóður, en dálítið torskilinn
fyrir ókunnuga. Má geta þess
til að átt sé við skrifstofu
embættisins.